Mannréttindadómstóll Evrópu

Frávísunar krafist vegna dýrkeyptra mistaka í málum útrásarvíkinga
Ríkissaksóknari hefur farið fram á frávísun í máli Milestone gegn Karli Wernerssyni í kjölfar frávísunar Hæstaréttar á sambærilegu máli Styrmis Þórs Bragasonar vegna mistaka endurupptökudóms. Nokkrum svipuðum hrunmálum var ranglega vísað til Hæstaréttar á síðasta ári. Fari hrunmál Karls og fleiri sömu leið og Styrmis standa áratugsgamlir sýknudómar óhaggaðir og ríkið dæmt til að greiða tugi milljóna í málsvarnarlaun.

Ekkert sáttatilboð lagt fram í talningarmálinu
Ríkislögmaður segir að ríkið hafi ekki lagt fram neitt sáttatilboð eða viðurkennt brot á mannréttindasáttmála Evrópu vegna kæru tveggja frambjóðenda í Alþingiskosningunum í fyrra. Frambjóðendurnir kærðu ákvörðun Alþingis að staðfesta kosningaúrslitin til mannréttindadómstólsins.

Ríkið reyndi að ná fram sáttum í talningamálinu
Ríkið hefur boðið fram sáttir í máli tveggja frambjóðanda er varðar umdeilda talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi í síðustu Alþingiskosningum. Málið verður tekið fyrir hjá Mannréttindadómstól Evrópu á næstunni.

„Ég vona að þetta klárist fyrir minn dag“
Erla Bolladóttir skoðar að fara með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu eftir að beiðni hennar um endurupptöku var hafnað. Hún glímir við ólæknandi krabbamein og kallar eftir því að ríkisstjórnin taki á sig rögg og ljúki Guðmundar- og Geirfinnsmálunum í eitt skipti fyrir öll.

MDE skeri úr um lögmæti aðgerða lögreglunnar á Norðurlandi eystra
Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, hefur falið Gunnari Inga Jóhannssyni lögmanni sínum, að óska eftir því að Mannréttindadómstóll Evrópu skeri úr um lögmæti framgöngu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Oddný tjáir sig ekki um afsökunarbeiðni Magnúsar Orra
Magnús Orri Marínarson Schram, fyrrverandi alþingismaður, hefur slegið í gegn meðal Sjálfstæðismanna sem kunna sér vart læti yfir afsökunarbeiðni hans vegna hlutdeildar hans í Landsdómsmálinu.

Foreldrar Madeleine McCann töpuðu hjá Mannréttindadómstólnum
Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að foreldrar Madeleine McCann hafi fengið réttláta málsmeðferð í meiðyrðamáli sem þeir höfðuðu gegn lögreglumanni í Portúgal.

Bjarni fagnar langþráðri hreinni sakaskrá
Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood og fjárfestir, er ekki lengur með dóm á bakinu fyrir meiriháttar skattalagabrot. Málinu var vísað frá héraðsdómi í Hæstarétti í gær. Bjarni segir réttlætið hafa sigrað.

Þrjú sóttu um stöðu dómara við Mannréttindadómstólinn, aftur
Þrjár umsóknir bárust um lausa stöðu í embætti íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Síðast þegar Íslands skilaði lista umsækjenda til dómstólsins var hann dreginn til baka.

Furðar sig á niðurstöðu Hæstaréttar um vanhæfi Markúsar
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi Hæstaréttardómari, gefur lítið fyrir röksemdafærslu Hæstaréttar sem komst á miðvikudaginn að þeirri niðurstöðu að Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseti réttarins, hafi ekki verið vanhæfur til að dæma í máli sem höfðað var gegn stjórnendum Glitnis. Var fallist á endurupptöku málsins þar sem Markús hafði tapað umtalsveðum fjárhæðum við fall Glitnis.

Enn ein sneypuför íslenska ríkisins í Strassborg
Íslenska ríkið hefur viðurkennt að hafa brotið gegn fólki í sextán málum sem voru til meðferðar hjá Mannréttindadómstól Evrópu vegna ólögmætrar skipunar dómara í Landsrétt. Lögmaður telur að dómstólinn sé þar með búinn að greiða úr öllum þeim málum sem lágu fyrir. Hann gerir ráð fyrir að nokkrir muni krefjast endurupptöku og segir lendinguna til minnkunar fyrir íslenska ríkið.

Ríkið viðurkennir brot í fjórtán málum hjá MDE
Íslenska ríkið hefur viðurkennt brot gegn kærendum í fjórtán málum sem voru til meðferðar hjá Mannréttindadómstól Evrópu og eiga það öll sameiginlegt að hafa verið höfðuð vegna ólöglegrar skipan dómara við Landsrétt.

Katrín segir engan tossalista hafa verið sendan til MDE
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir rétt hafa verið staðið að útnefningu dómaraefna til Mannréttindadómstóls Evrópu. Enginn tossalisti hafi verið sendur til dómstólsins.

Skattamáli vísað frá héraði að ósk ákæruvaldsins eftir ákúrur Mannréttindadómstólsins
Máli Ragnars Þórissonar, stofnanda vogunarsjóðsins Boreas Capital, var vísað frá héraðsdómi að ósk ákæruvaldsins í dag með öðrum dómi Hæstaréttar í málinu. Ragnar hafði betur gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu vegna málsins.

Auglýst að nýju eftir íslenskum dómurum við MDE
Forsætisráðuneytið hefur auglýst eftir nýjum aðilum sem tilnefndir verða af Íslands hálfu í stað þeirra tveggja sem drógu umsókn sína til baka.

Of veikur listi umsækjenda sendur til Mannréttindadómstólsins
Íslenska ríkið þarf að hefja umsóknarferli um dómarastöðu við Mannréttindadómstól Evrópu að nýju eftir að tveir af þremur umsækjendum, sem tilnefndir voru af íslenska ríkinu, drógu umsókn sína til baka í kjölfar viðtala.

„Ákaflega mikilvægur áfangi í höfn“
Magnús Davíð Norðdahl, lögmaður, tilkynnti á Facebook fyrr í dag að mál hans hjá Mannréttindadómstóli Evrópu, vegna ágalla á framkvæmd síðustu Alþingiskosninga, hafi komist í gegnum fyrstu síu dómstólsins. „Ákaflega mikilvægur áfangi í höfn“ skrifar Magnús.

Reykjanesbær braut ekki á mannréttindum hjólagarpsins Arnars
Reykjanesbær braut ekki á mannréttindum Arnars Helga Lárussonar vegna slæms aðgengis fatlaðra að Duushúsinu og 88-húsinu í bænun.

Íslenska ríkið braut gegn mannréttindum Bjarka
Íslenska ríkið braut gegn sjöttu grein Mannréttindasáttmála Evrópu þegar Bjarka Diego, sem starfaði sem framkvæmdastjóri útlana hjá Kaupþingi, var kallaður inn sem vitni í maí 2010, við rannsókn sérstaks saksóknara, í stað þess að fá réttarstöðu grunaðs.

Fjalla ítarlega um mál Nöru sem beit tungu eiginmannsins í sundur
Breska blaðið The Guardian fjallar ítarlega um mál Nöru Walker sem kærði íslenska ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu. Mál hennar er nú til meðferðar en hún var sakfelld hér á landi fyrir að hafa bitið hluta úr tungu eiginmanns síns.

Þrjú sóttu um stöðu íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu
Þrjár umsóknir bárust um embætti íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu en umsóknarfrestur rann út 14. janúar síðastliðinn.

Ríkið viðurkennir mistök í máli Maríu í ítarlegri umfjöllun CNN
CNN birti í morgun ítarlega umfjöllun um kynferðis- og heimilisofbeldi á Íslandi og mál íslenskra kvenna sem kært hafa íslenska ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu fyrir óréttláta málsmeðferð í tengslum við rannsókn á málum þeirra. Haft er eftir upplýsingafulltrúa dómsmálaráðuneytisins að ríkið viðurkenni mistök í máli einnar þeirra.

Ætlar að fara með kosningamálið í Norðvesturkjördæmi fyrir Mannréttindadómstólinn
Magnús D. Norðdahl, lögmaður og frambjóðandi Pírata í Alþingiskosningunum í haust, hefur ákveðið að fara með kosningamálið í Norðvesturkjördæmi fyrir Mannréttindadómstól Evrópu.

Íslendingar ættu ekki von á góðu í Strassbourg
Mannréttindadómstóll Evrópu telur ótækt að þingmenn greiði sjálfir atkvæði um lögmæti eigin kjörs, eins og til stendur hér á landi. Lögfræðiprófessor segir Íslendinga enn geta komið í veg fyrir að kosningin í Norðvesturkjördæmi fari til Strassbourg, en þá þurfi að hafa hraðar hendur.

Rússnesk stjórnvöld talin hafa myrt Litvinenko
Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu í morgun að rússnesk stjórnvöld hefðu staðið að morðinu á Alexander Litvinenko, rússneskum fyrrverandi leyniþjónustumanni, árið 2006. Eitrað var fyrir Litvinenko með geislavirku efni.

Mannréttindadómstóllinn tekur mál Nöru fyrir
Mannréttindadómstóll Evrópu mun taka mál Nöru Walker gegn Íslenska ríkinu til efnismeðferðar. Nara kærði ríkið í kjölfar þess að hún var sakfelld fyrir að bíta hluta úr tungu fyrrverandi eiginmanns síns.

Mannréttindadómstóllinn vísaði kæru Ólafs frá
Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun kæru Ólafs Ólafssonar frá dómi.

Ríkið gerir sátt við fyrrverandi bankastjóra Kaupþings í Lúxemborg
Íslenska ríkið hefur gert dómsátt við Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings í Lúxemborg, og hefur mál hans verið fellt niður hjá Mannréttindadómstól Evrópu vegna þessa. Samkvæmt sáttinni fær hann 15 þúsund evrur í bætur, um 2,2 milljónir króna.

MDE staðfesti dóm Hæstaréttar í máli kvenna sem nutu aðstoðar staðgöngumóður
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur staðfest úrskurð Hæstaréttar þess efnis að Þjóðskrá þurfi ekki að skrá tvær íslenskar konur, sem eignuðust dreng með aðstoð erlendrar staðgöngumóður, sem foreldra hans. Úrskurður þess efnis var birtur í dag.

Takmarkanir á frelsi borgaranna í þágu lýðheilsu - nýr dómur yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu
Þann 8. apríl sl. kvað yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu upp dóm þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að það færi ekki í bága við ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu að skylda foreldra til að láta bólusetja börnin sín áður en þau fara í leikskóla.