Ástin á götunni

Þórir hjá KSÍ: Alltaf hætta á svartamarkaðsbraski með miða
"Fyrstur kemur fyrstur fær“ gildir þegar miðasala á Króatíuleikinn hefst í dag.

Stelpurnar komnar til Serbíu - myndir
Það voru fagnaðarfundir þegar leikmenn íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta hittust á flugvellinum í höfuðborg Serbíu í dag en liðið er að koma saman fyrir annan leik sinn í undankeppni HM 2015.

Allt er þegar fernt er
Hrannar Björn Steingrímsson skrifaði í gær undir tveggja ára samning við KA sem leikur í 1. deild.

Sportspjallið: Umræða um Hallberu og Hólmfríði
"Hólmfríður er líka þannig leikmaður að hún er annaðhvort heitt eða kalt. Hún getur unnið leiki en það getur líka verið slökkt á henni.“

Sonurinn tekur við af föður sínum
Atli Eðvaldsson hefur látið af störfum sem þjálfari Reynis í Sandgerði. Liðið hafnaði í 8. sæti í 2. deild karla í sumar.

Sportspjallið: Landsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson í yfirheyrslu
Freyr ræddi meiðsli ungra leikmanna, útreiðina gegn Sviss, styrkleika Pepsi-deildar kvenna, hvort leikmenn þurfi að fara í atvinnumennsku og möguleika Íslands á að komast á HM 2015 í Kanada.

Sportspjallið: Umræða um álag og meiðsli efnilegustu stelpna landsins
"Ef leikmaður er nægilega góður til þess að spila með meistaraflokki hvaða erindi hefur hún í að spila með 3. flokki. Fyrir mér er engin glóra í því.“

Nýi landsliðsþjálfari Króata elskaður og dáður í heimalandinu
Slæmt gengi Króata á seinni stigum undankeppni var fyrst og fremst þjálfaranum Igor Stimac að kenna. Áhugi almennings á liðinu er lítill í augnablikinu.

Ingó Veðurguð ráðinn þjálfari Hamars
Knattspyrnumaðurinn Ingólfur Þórarinsson hefur verið ráðinn þjálfari Hamars og mun hann verða spilandi þjálfari hjá liðinu í 3. deildinni á næsta tímabili. Þetta staðfesti Ingólfur í samtali við vefsíðuna 433.is í dag.

Á ekki von á að Ísland valti yfir Serbíu
"Ég vona að 9-0 sigur Sviss á Serbíu fari ekki vitlaust í hausinn á okkur. Við þurfum að muna að svissneska liðið er mjög gott.“

Guðmunda hefur bætt sig mikið á milli ára
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, tilkynnti í gær hópinn sinn fyrir leik úti í Serbíu í undankeppni HM. Freyr gerir nokkrar breytingar frá tapinu á móti Sviss á dögunum.

Nú væri hiti undir vellinum fljótur að borga sig
Laugardalsvöllur verður þakinn vænum dúk með hitablásturskerfi vikuna fyrir landsleik Íslands og Króatíu. Kostnaður er mikill en ekkert annað var í stöðunni.

Kristinn dæmir í Swansea og í beinni á Stöð 2 Sport
Knattspyrnudómarinn Kristinn Jakobsson verður í sviðsljósinu á fimmtudagskvöldið þegar hann mun dæma leik velska liðsins Swansea á móti Kuban Krasnodar frá Rússlandi í Evrópudeild UEFA í fótbolta.

Freyr þögull sem gröfinn um nýjan fyrirliða
Óvíst er hver tekur við fyrirliðabandinu hjá íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu sem Katrín Jónsdóttir hefur borið undanfarin ár.

Miðasala á Ísland-Króatía hefst í fyrsta lagi um næstu helgi
Miðasalan á leik Íslands og Króatíu í umspili um sæti á HM í Brasilíu 2014 hefst þegar leiktími hefur verið staðfestur, fjöldi miða til mótherja hefur verið staðfestur og ljóst er að miðasölukerfi geti tekið við miklu álagi. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.

Guðmunda í Serbíu-hópnum hans Freys
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur valið hópinn sem mætir Serbum í undankeppni HM, fimmtudaginn 31. október næstkomandi. Leikið verður á FK Obilic Stadium í Belgrad.

Vonandi ekkert M & M vandamál í nóvember
Ísland mætir Króatíu í umspilsleikjum um sæti á HM í Brasilíu. Króatar telja sig hafa unnið í lottóinu með því að fá Íslendinga í stað Frakka eða Svía.

Hannes fann sér lið til að æfa með
Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, er í sérstakri stöðu ásamt varamarkverði sínum Gunnleifi Gunnleifssyni. Ólíkt því sem gildir um aðra leikmenn íslenska liðsins þá er tímabilið búið hjá þeim tveimur en enn eru 24 dagar í fyrri umspilsleikinn á móti Króatíu.

Lagerbäck ætti kannski að hringja í Gordan Strachan
Lars Lagerbäck og aðstoðarmaður hans Heimir Hallgrímsson eru væntanlega nú þegar komnir á fullt að afla sér upplýsinga um króatíska landsliðið sem verður mótherji Íslands í næsta mánuði í umspilsleikjum um sæti á HM í Brasilíu.

Best fyrir Króatíu - verst fyrir Ísland
"Ísland er besti kosturinn í boði fyrir Króatíu," segir Króatinn Hrvoje Kralj sem er búsettur á Íslandi. Jón Júlíus Karlsson heimsótti hann og landa hans í kvöldfréttum Stöðvar tvö í kvöld.

Fimmtán ára landsliðið komst á Ólympíuleikana
Strákarnir gerðu það með því að vinna 3-1 sigur á Moldavíu í síðari leik sínum í forkeppni Ólympíuleika ungmenna sem haldin var í Sviss.

Lagerbäck hefur líka tapað öllum leikjunum á móti Króatíu
Lars Lagerback, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, þekkir það ekki frekar en íslenska karlalandsliðið að fagna sigri á móti Króatíu. Svíar töpuðu öllum þremur leikjum sínum á móti Króötum þann tíma sem Lagerback þjálfaði sænska landsliðið.

Hemmi Hreiðars hættur með ÍBV en ekki hættur að þjálfa
Hermann Hreiðarsson stimplaði sig inn sem þjálfari í Pepsi-deildinni í sumar en hætti síðan óvænt sem þjálfari ÍBV eftir Íslandsmótið.

Ísland 1 - Króatía 7
Karlalandslið Íslands og Krótatíu hafa mæst tvisvar sinnum á knattspyrnuvellinum og Króatar unnu báða leikina sannfærandi. Markatalan er 7-1 Króatíu í vil.

Ólafur Örn og HK náðu ekki saman
Ólafur Örn Bjarnason verður ekki þjálfari HK í 1. deildinni næsta sumar eins og stefndi í en viðræður voru í gangi milli hans og félagsins.

Alfreð vill mæta Grikklandi
Alfreð Finnbogason, leikmaður íslenska landsliðsins og markahæsti leikmaður hollensku úrvalsdeildarinnar á sér óskamótherja í umspili HM 2014 en dregið verður í hádeginu.

Gregg Ryder ráðinn þjálfari Þróttar | Aðeins 25 ára
Knattspyrnudeild Þróttar hefur ráðir Gregg Ryder sem þjálfari meistaraflokks karla í fótbolta en þetta staðfesti Jón Kaldal, formaður knattspyrnudeildar, í samtali við Fótbolta.net í dag.

U-15 landsliðið færist nær Ólympíuleikunum
U-15 ára landslið Íslands vann í dag flottan sigur, 2-0, á Finnum í undankeppni fyrir Ólympíuleika ungmenna.

Sigurbjörn Hreiðarsson ráðinn þjálfari Hauka
Sigurbjörn Hreiðarsson hefur verið ráðinn þjálfari knattspyrnuliðs Hauka en að auki mun Matthías Guðmundsson vera í þjálfarateymi liðsins.

Íslenskir sigursöngvar á Ullevaal í kvöld - myndir
Íslenska karlalandsliðið fagnaði vel á Ullevaal-leikvanginum í kvöld þegar liðið hafði tryggt sér annað sætið í riðlinum og þátttökurétt í umspilsleikjum um laus sæti á HM í Brasilíu.