

Davíð Örn Atlason gekk í dag í raðir Íslandsmeistara Víkings á ný eftir árs dvöl hjá Breiðablik. Davíð hefur leikið tæplega tvö hundruð leiki fyrir félagið og segir það góða tilfinningu að vera kominn heim.
Trínidadinn Jonathan Glenn mun þjálfa lið ÍBV í efstu deild kvenna á næstu leiktíð.
Miðjumaðurinn Alex Freyr Hilmarsson er genginn til liðs við nýliða efstu deildar, ÍBV.
Portúgalski miðjumaðurinn Tiago Manuel Silva Fernandes er snúinn aftur í raðir Fram og mun leika með liðinu í Pepsi Max deild karla á næstu leiktíð.
Arnþór Ingi Kristinsson hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Skagamaðurinn hefur leikið með KR undanfarin ár og var til að mynda stór ástæða þess að liðið varð Íslandsmeistari sumarið 2019.
Hjörvar Hafliðason, eigandi hlaðvarpsins Dr. Football og knattspyrnusérfræðingur, hefur ákveðnar skoðanir á því sem þarf að gerast í íslenskri knattspyrnu svo að íslenskir knattspyrnukarlar fari aftur að ná árangri.
Það virðist klappað og klárt að Óttar Bjarni Guðmundsson muni leika með uppeldisfélagi sínu Leikni Reykjavík í efstu deild karla í knattspyrnu sumarið 2022.
Nýliðar Fram halda áfram að missa leikmenn úr sínum röðum en vinstri bakvörðurinn Haraldur Einar Ásgrímsson hefur samið við FH um mun leika með félaginu næstu þrjú árin.
Ný þáttaröð hefst á Stöð 2 Sport á sunnudag en hún ber nafnið Foringjarnir.
Sigurbjörn Hreiðarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari knattspyrnuliðs FH og mun hann því vera Ólafi Jóhannessyni, þjálfara liðsins, innan handar á komandi tímabili.
Hinn 26 ára gamli Gonzalo Zamorano er genginn í raðir Selfyssinga og mun leika með liðinu í Lengjudeild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð. Zamorano lék síðast með ÍBV hér á landi og heldur sig við Suðurlandið.
Íslenskur Toppfótbolti, ÍTF, og Sýn hafa skrifað undir tímamótasamning sem gildir til næstu fimm ára.
Íslandsmeistarar Vals hafa samið við tvær af bestu leikmönnum Fylkis undanfarin ár.
Starfshópurinn sem Knattspyrnusamband Íslands setti á laggirnar í storminum í haust hefur nú lokið vinnu sinni og skilað til KSÍ tillögum „varðandi vinnulag, viðhorf og menningu“.
Framherjinn Bryndís Arna Níelsdóttir mun að öllum líkindum spila fyrir Íslandsmeistara Vals næsta sumar. Þetta herma öruggar heimildir Vísis.
Daníel Hafsteinsson, leikmaður KA í Pepsi Max deild karla, vill sjá íslensk félagslið uppfæra læknisskoðun leikmanna í ljósi þess sem kom fyrir Emil Pálsson í gær.
Natasha Moraa Anasi gekk í dag í raðir Breiðabliks. Samdi hún við Kópavogsliðið til tveggja ára. Natasha kemur til liðsins frá Keflavík þar sem hún hefur leikið frá árinu 2017.
Knattspyrnumaðurinn Eyjólfur Héðinsson hefur ákveðið að yfirgefa Stjörnuna eftir sex ár hjá félaginu. Hann gengur til liðs við uppeldisfélag sitt, ÍR.
Svo virðist sem framherjinn Aron Jóhannsson muni leika með Val í efstu deild karla í knattspyrnu á komandi leiktíð.
Ingvar Jónsson varði vítaspyrnu Pálma Rafns Pálmasonar í 2-1 sigri Víkinga á KR í Frostaskjólinu í leik sem fór langleiðina með að tryggja Víking sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í 30 ár.
Knattspyrnukonan Mist Edvardsdóttir hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara Vals út næsta tímabil.
Srdjan Tufegdzic, eða Túfa eins og hann er nær alltaf kallaður, hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við Val. Hann verður því áfram aðstoðarþjálfari Heimis Guðjónssonar á Hlíðarenda.
Alex Freyr Elísson hefur skrifað undir nýjan samning við Fram og mun leika með liðinu í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu næsta sumar. Samningur hans gildir til ársins 2023.
Júlíus Magnússon, miðjumaður Víkings, átti afbragðs leik í 3-0 sigri á ÍA í bikarúrslitum. Júlíus var í skýjunum eftir frábæran leik og ótrúlegt tímabil.
Víkingur vann ÍA 3-0 í úrslitaleik Mjólkurbikarsins 2021. Árið 2021 hefur verið frábært hjá Víkingi sem er Íslands- og bikarmeistari. Ingvar Jónsson, markmaður Víkings, var afar kátur í leiks lok.
Markverðir Víkings og ÍA verða í sérmerktum hönskum er liðin mætast í úrslitaleik Mjólkurbikars karla í fótbolta klukkan 15.00 í dag.
Ítalir eiga Maldini-fjölskylduna eins við Íslendingar eigum Guðjohnsen-fjölskylduna. Frammistaða Andra Lucasar og Sveins Arons í vikunni sýndi okkur að þeir standa sig vel í að fylgja í fótspor afa síns og pabba.
Á meðan að KA-menn þurftu að ferðast samtals um 8.500 kílómetra til að spila leiki sína í efstu deild karla í fótbolta í sumar þurftu Íslandsmeistarar Víkings aðeins að ferðast 1.000 kílómetra. Liðin á Austfjörðum þurftu þó að ferðast lengst allra þetta fótboltasumar.
Guðlaugur Victor Pálsson verður ekki með íslenska landsliðinu gegn Liechtenstein á morgun í undankeppni HM.
Knattspyrnusamband Íslands býður börnum og ungmennum, 16 ára og yngri, á völlinn á leik Íslands og Liechtenstein í undankeppni HM sem fram fer á Laugardalsvelli á morgun.