
Spænski boltinn

Ævintýraleg eyðsla hjá Real Madrid
Það er ekkert félag í heiminum eins duglegt að eyða peningum og Real Madrid. Samkvæmt spænska blaðinu Marca hefur Real eytt yfir 1.000 milljónum evra í leikmenn síðasta áratuginn.

Moratti, forseti Inter: Maicon verður áfram hjá okkur
Massimo Moratti, forseti ítalska félagsins Internaztionale, segir að Real Madrid sé ekki tilbúið að gera nóg til þess að fá brasiliska bakvörðinn Maicon. Maicon hefur verið á óskalista Jose Mourinho síðan hann fór yfir á Santiago Bernabeu.

Guardiola: Rétt hjá Arsenal að hafna tilboði Barcelona í Fabregas
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, hefur nú eftir allt sem á undan er gengið, látið það frá sér að það hafi verið rétt hjá Arsenal að neita tilboði Barcelona í fyrirliða sinn Cesc Fabregas.

Jose Mourinho er búinn að gefast upp á Gerrard og Carvalho
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, er búinn að gefa upp vonina um að fá þá Steven Gerrard og Ricardo Carvalho til sín á Bernebeu en leikmennirnir tveir voru orðaðir við Madridar-liðið í allt sumar.

Royston Drenthe með karatespark - myndband
Royston Drenthe var í sviðsljósinu er Real Madrid og Los Angeles Galaxy mættust í Kaliforníu í vináttuleik á laugardagskvöldið fyrir framan 85.000 manns.

Mourinho segir Ashley Cole úr sögunni
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, segir ljóst að Ashley Cole komi ekki til félagsins frá Chelsea.

Öruggur sigur Barcelona í æfingaleik - myndband
Barcelona tefldi fram ansi ungu byrjunarliði þegar liðið lék æfingaleik í dag við Beijing Guoan. Þrátt fyrir það var spænska stórliðið með mikla yfirburði og vann á endanum 3-0.

Fabregas: Barcelona heillar en ég verð áfram hjá Arsenal
Cesc Fabregas mun ekki yfirgefa Arsenal og ganga til liðs við Barcelona fyrir tímabilið, það er nú orðið endanlega ljóst. Arsene Wenger varð að ósk sinni en Fabregas steig fram og tilkynnti að hann væri ekki á förum.

Kaka á leið í aðgerð - frá í tvo mánuði
Útlit er fyrir að Brasilíumaðurinn Kaka verði frá í allt að tvo mánuði þar sem hann þarf að gangast undir aðgerð vegna hnémeiðsla.

Maicon við þröskuldinn hjá Real Madrid
Brasilíski bakvörðurinn Maicon hjá Inter hefur loks náð samkomulagi við Real Madrid um kaup og kjör. Frá þessu greina spænskir fjölmiðlar.

Iniesta: Allir hér vilja fá Fabregas
„Við viljum ólmir fá hann. Hann myndi gera mikið fyrir liðið," segir Andrés Iniesta, leikmaður Barcelona. Hann er sá nýjasti til að taka þátt í samráðinu í að reyna að fá Cesc Fabregas til liðsins.

Marquez farinn til Bandaríkjanna
Rafael Marquez er genginn til liðs við New York Red Bulls frá Barcelona á Spáni. Hann fylgir þar með fótspor Thierry Henry en þeir voru liðsfélgar hjá Barcelona.

Er Lionel Messi orðinn gítarleikari í hljómsveit til heiðurs Oasis?
Áhugi Lionel Messi, besta knattspyrnumanns heims, á bresku hljómsveitinni Oasis fékk góða umfjöllun í heimspressunni á meðan á HM í Suður-Afríku stóð. Nú þykist breska slúðurblaðið The Sun hafa komist að því að Messi sé líka tónlistamaður.

Fabregas felldi tár - Vill hann fara til Barcelona?
Áfram heldur fjölmiðlaumfjöllun um Cesc Fabregas og hugsanleg félagaskipti hans frá Arsenal til Barcelona. Spænskir fjölmiðlar komu í morgun með nýja hlið á málinu.

Wenger vill að Fabregas hreinsi andrúmsloftið
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er orðinn meira en lítið þreyttur á stöðugum fréttaflutningi varðandi Cesc Fabregas. Miðjumaðurinn spænski hefur verið sterklega orðaður við Barcelona í allt sumar.

Sál Real Madrid fór með Raul
Raul, fyrrum fyrirliði Real Madrid, gekk frá vistaskiptum sínum til þýska liðsins Schalke á dögunum.

Real Madrid hefur enn áhuga á Maicon
Forráðamenn Real Madrid segjast enn hafa áhuga á að fá Brasilíumanninn Maicon í raðir félagsins frá Inter á Ítalíu. Maicon var þrefaldur meistari með Inter á síðasta tímabili og var svo valinn í lið mótsins á HM í Suður-Afríku í sumar.

Khedira gerði fimm ára samning við Real
Þjóðverjinn Sami Khedira gerði í dag fimm ára samning við spænska stórliðið Real Madrid.

Khedira í læknisskoðun hjá Real Madrid
Sami Khedira er í leiðinni í læknisskoðun hjá Real Madrid. Þetta staðfesti Stuttgart í yfirlýsingu í dag.

Zlatan: Ég verð áfram hjá Barcelona
Zlatan Ibrahimovic segir ekkert hæft í þeim sögusögnum að hann sé á leið frá Barcelona á Spáni.

Ekki á hverjum degi sem við fáum svona tilboð frá Real Madrid
Það lítur allt út fyrir það að Sami Khedira spili með spænska liðinu Real Madrid á næsta tímabili en yfirmaður íþróttamála hjá Stuttgart, Fredi Bobic, staðfesti þetta við þýska blaðið Bild í morgun.

Real Madrid í viðræðum vegna Thiago Silva
Real Madrid og AC Milan eiga nú í viðræðum um kaup fyrrnefnda félagsins á Brasilíumanninum Thiago Silva samkvæmt umboðsmanni leikmannsins.

Senna eftirmaður Toure hjá Barcelona?
Marcos Senna er nú sterklega orðaður við Barcelona sem leitar að eftirmanni Yaya Toure á miðjuna. Senna leikur með Villareal en hann er orðinn 34 ára gamall.

Khedira fer vonandi til Real Madrid
Umboðsmaður Þjóðverjans Sami Khedira vonar að gengið verði fljótlega á kaupum Real Madrid á kappanum.

Felix Magath: Frábærar fréttir fyrir Schalke - Raul búinn að semja
Spænski knattspyrnumaðurinn Raul hefur gengið frá tveggja ára samningi við þýska liðið Schalke en þýskir og spænskir fjölmiðlar hafa skrifað um það í nokkurn tíma að Raul væri á leiðinni yfir til Þýskalands. Eftir sextán tímabil hjá Real Madrid hefur Schalke nú endanlega staðfest að Raul verður í Gelsenkirchen næstu tvö árin.

Skuld Barcelona er 442 milljónir evra
Barcelona skuldar 442 milljónir evra. Þetta kemur fram í nýrri úttekt á fjármálum félagsins. Það tapaði alls 77 milljónum evra á síðasta tímabili.

Ekkert víst að Raul fari til Schalke - spenntur fyrir ensku deildinni
Raul kvaddi Real Madrid með tárum í dag en það var troðfullt á blaðamannafundinum á Bernabeu-leikvanginum þegar þessi vinsæli leikmaður tilkynnti það, sem lengi var vitað, að hann sé á förum frá Real Madrid. Hann er búinn að spila sextán tímabil með liðinu og vera hjá félaginu síðan 1992.

Raul og Guti eru báðir farnir frá Real Madrid
Spænsku blöðin AS og Marca sögðu frá því í gær að Raul og Guti muni tilkynna það í næstu viku að þeir hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Real Madrid. Raul mun tilkynna það á morgun að hann hafi samið við Schalke en Guti er á leið til tyrkneska liðsins Besiktas.

Carvalho dreymir um að komast til Real Madrid
Ricardo Carvalho hefur biðlað til Real Madrid um að kaupa hann frá Chelsea. Portúgalski miðvörðurinn vill endilega komast aftur til Jose Mourinho sem kom með Carvalho með sér frá Porto til Chelsea árið 2004.

Villa: Ég myndi skora meira fyrir Barcelona ef Fabregas kæmi
David Villa hefur bæst í hóp þeirra leikmanna Barcelona sem þrýsta á Cesc Fabregas að koma aftur til félagsins. Framtíð fyrirliðans hjá Arsenal er enn óljós.