Hernaður
46 47 48 49 50 51 52 53 54 … 55 ›
Bandaríkjaher í startholunum vegna stöðunnar við Úkraínu Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sett 8.500 hermenn í viðbragðsstöðu vegna hernaðaruppbyggingar Rússa við landamæri Úkraínu. Erlent 24.1.2022 23:24
Hernaðaruppbygging Rússa heldur áfram Hernaðaruppbygging Rússa við landamæri Úkraínu heldur áfram en viðræður um spennuna í Austur-Evrópu virðast hafa skilað litlum árangri. Yfirvöld í Bretlandi saka Rússa um að ætla sér að gera innrás í Úkraínu og koma á laggirnar ríkisstjórn sem væri hliðholl Rússlandi. Erlent 23.1.2022 11:30
Vonast eftir því besta en búa sig undir það versta Íbúar borgarinnar Kharkiv, sem er sú næst stærsta í Úkraínu, vonast eftir því besta en búa sig undir það versta. Borgin er í austurhluta landsins, skammt frá landamærum Rússlands þar sem tugir þúsunda hermanna eru staddir. Erlent 22.1.2022 16:12
Rússar búast við svörum við kröfum sínum í næstu viku Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, búast við skriflegum svörum við kröfum sínum í næstu viku. Lavrov fundaði í dag með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um spennuna í tengslum við Úkraínu. Erlent 21.1.2022 13:19
Blinken og Lavrov funda í Genf í dag Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands, þeir Antony Blinken og Sergei Lavrov, munu hittast síðar í dag í Genf í Sviss til að ræða ástandið í Úkraínu en spennan á svæðinu fer nú vaxandi dag frá degi og óttast vesturlönd að Rússar hyggi á innrás í landið. Erlent 21.1.2022 07:07
„Rússarnir eru að sameina NATO“ Erindrekar Bandaríkjanna og Evrópu funda nú í Berlín vegna mögulegrar innrásar Rússlands í Úkraínu. Útlit er þó fyrir að spennan í Austur-Evrópu muni mögulega endurvekja Atlantshafsbandalagið. Erlent 20.1.2022 14:15
Allt gæti farið úr böndunum hjá Rússum Prófessor í stjórnmálaheimspeki segir afleiðingar af mögulegri innrás Rússa í Úkraínu geta verið grafalvarlegar. Þegar spenna sé orðin eins mikil og nú þurfi lítið til að allt fari úr böndunum og stríð eða jafnvel styrjöld brjótist út. Erlent 20.1.2022 13:09
Íhugar að hefja aftur tilraunir með langdrægar eldflaugar Ríkisstjórn Norður-Kóreu ætlar mögulega að hefja á nýjan leik tilraunir með langdrægar eldflaugar sem geta borið kjarnorkuvopn. Sú ákvörðun var tekin á ríkisráðsfundi í vikunni að Kim Jung-un, einræðisherra Norður-Kóreu, íhugaði að hefja tilraunirnar aftur vegna „óvinveittrar stefnu“ Bandaríkjanna í garð einræðisríkisins. Erlent 20.1.2022 11:05
Í skyndiferð til Úkraínu til að sýna stuðning Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mun fara til Úkraínu á morgun. Þar mun hann hitta Volodímír Selenskí, forseta Úkraínu, og ræða við hann um spennuna á landamærum Úkraínu annars vegar og Rússlands og Hvíta-Rússlands hins vegar. Erlent 18.1.2022 17:06
Senda hermenn og skriðdreka til Gotlands Yfirvöld í Svíþjóð hafa ákveðið að fjölga hermönnum og vopnum á Gotlandi í Eystrasaltshafi. Ástæðan er sögð vera versnandi öryggisástand á svæðinu sem að miklu leyti má rekja til mögulegrar innrásar Rússa í Úkraínu. Erlent 17.1.2022 13:00
Skutu eldflaugum í fjórða sinn á mánuði Tveimur eldflaugum var skotið á loft frá frá Norður-Kóreu í nótt. Eldflaugunum var skotið frá flugvellinum í Pyongyang, höfuðborg einræðisríkisins einangraða en þetta var í fjórða sinn á einungis mánuði sem sambærilegar tilraunir eru gerðar. Erlent 17.1.2022 09:35
Segja Rússa undirbúa fölsun tilefnis til árásar Yfirvöld í Bandaríkjunum sökuðu í dag Rússa um að hafa sent sérstaka sveit hermanna til Úkraínu. Þeirra verk sé að skapa tilefni fyrir Rússa til að gera innrás í Úkraínu. Samhliða því eigir yfirvöld Rússlands í áróðursherferð sem ætlað sé að koma sök á mögulegum átökum á Úkraínumenn. Erlent 14.1.2022 22:31
Viðræður strand og Rússar skoða hernaðaraðgerðir Zbigniew Rau, utanríkisráðherra Póllands, varaði við því í dag að hætta væri á stríði í Evrópu. Viðræður milli Bandaríkjamanna, Atlantshafsbandalagsins og Rússa um spennuna við landamæri Rússlands og Úkraínu hafa engum árangri skilað og Rússar segjast vera að skoða mögulegar hernaðaraðgerðir. Erlent 13.1.2022 23:08
Tvö hundruð óbreyttir borgarar myrtir í Nígeríu Að minnsta kosti tvö hundruð almennir borgarar hafa verið myrtir af glæpagengjum í Nígeríu í vikunni. Árásir glæpagengjanna eru sagðar vera í hefndarskyni. Erlent 9.1.2022 07:57
Rússneskur kafbátur lenti á hljóðsjá breskrar freigátu Þegar áhöfn tundurspillisins HMS Northumberland var að leita að rússneskum kafbáti í Norður-Atlantshafi kom það þeim verulega á óvart þegar kafbáturinn sigldi á hljóðsjá skipsins. Talið er öruggt að um slys hafi verið að ræða. Erlent 7.1.2022 12:01
Japan og Bandaríkin taka höndum saman gegn Kína Ráðamenn í Japan og Bandaríkjunum lýstu í nótt yfir áhyggjum sínum af aukinni hernaðargetu Kína. Þá hétu þeir því að vinna nánar saman í varnarmálum eftir fjarfund utanríkis- og varnarmálaráðherra ríkjanna. Erlent 7.1.2022 09:14
Starfsmenn Save the Children týndir eftir fjöldamorð í Mjanmar Hjálparsamtökin Save the Children eru hætt starfsemi í Mjanmar eftir að tveir starfsmenn samtakanna týndust um helgina. Það er í kjölfar meints fjöldamorðs þar sem hermenn eru sagðir hafa skotið rúmlega þrjátíu þorpsbúa til bana og brennt lík þeirra. Erlent 26.12.2021 09:34
„Það eru ekki við sem höfum ógnað neinum“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, krafðist þess aftur í dag að vesturveldin svokölluðu veittu Rússum tryggingar gagnvart því að Atlantshafsbandalagið neitaði ríkjum Austur-Evrópu um aðild að bandalaginu og vísaði aðildarríkjum af svæðinu á dyr. Erlent 23.12.2021 14:55
Útsendarar Kína í innsta hring herafla Taívans og meðal lífvarða forsetans Kínverskir njósnarar hafa orðið sér út um útsendara í innsta hring lífvarða forseta Taívans og meðal forsvarsmanna herafla eyríkisins. Gagnnjósnarar Taívans eiga í erfiðri baráttu gegn umfangsmikilli njósnaherferð Kínverja sem ætlað er að veita upplýsingar um varnir eyjunnar og grafa undan leiðtogum hennar. Erlent 21.12.2021 22:15
Segir Rússa tilbúna í átök Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir ríkisstjórn sína tilbúna til hernaðarátaka sýni vesturveldin óvinveittar aðgerðir vegna Úkraínudeilunnar. Pútín hefur lengi sakað Bandaríkin og Atlantshafsbandalagið um að valda aukinni spennu nærri landamærum Rússlands. Erlent 21.12.2021 13:29
Þúsundir fallið í árásum byggðum á slæmum upplýsingum og illa ígrunduðum ákvörðunum Drónahernaður Bandaríkjamanna hefur oftsinnis byggt á gölluðum upplýsingum og illa ígrunduðum ákvörðunum um árásir. Af þessum sökum hafa þúsundir almennra borgara látið lífið, þeirra á meðal mörg börn. Erlent 19.12.2021 11:31
Slagorð úr vopnabúri hernaðarandstæðinga nýtt gegn bólusetningum barna Hernaðarandstæðingar eru afar ósáttir við að andstæðingar bólusetninga skuli nota þekkt slagorð úr þeirra vopnabúri. Boðað hefur verið til mótmæla þeirra sem gjalda varhug við bólusetningum undir yfirskriftinni Friðarganga. Innlent 17.12.2021 23:00
Skutu niður fyrsta skotmarkið í fjörutíu ár Flugmaður orrustuþotu breska flughersins skaut nýverið niður dróna sem verið var að fljúga nærri herstöð í Sýrlandi. Þetta var í fyrsta sinn sem bresk orrustuþota skýtur niður skotmark frá því í Falklandseyjastríðinu fyrir tæpum fjörutíu árum. Erlent 16.12.2021 23:46
Tuttugu og sjö hermenn látnir fara fyrir að neita bólusetningu Tuttugu og sjö bandarískir hermenn hafa verið látnir fara af bandaríska flughernum fyrir að neita að þiggja bólusetningu. Formlega skýringin á brottrekstrinum er neitun hermannanna við að fylgja fyrirmælum. Erlent 14.12.2021 06:59
Brenndu þorpsbúa lifandi í Búrma Hermenn í Búrma hafa verið sakaðir um grimmilegt ódæði í norðvesturhluta landsins. Hermennirnir bundu ellefu almenna borgara og brenndu þá lifandi. Erlent 9.12.2021 09:15
Bandaríkjamenn hóta hörðum viðbrögðum en Pútín segir Rússa ekki ætla að ráðast inn í Úkraínu Bandaríkjamenn segjast vera að undirbúa sig undir að svara mögulegri árás Rússa á Úkraínu með afgerandi hætti. Þetta kom fram í máli Joe Bidens Bandaríkjaforseta á tvíhliða fundi sem hann átti með rússneskum kollega sínum Vladimir Pútín í gærkvöldi. Erlent 8.12.2021 06:56
Uppljóstrari lýsir ringulreið og skipulagsleysi af hálfu breskra stjórnvalda Tugþúsundir Afgana sem höfðu aðstoðað Breta og óttuðust um líf sitt þegar Talíbanar tóku aftur völd í Afganistan, náðu ekki í gegn og fengu enga aðstoð vegna skipulags- og sinnuleysis af hálfu breska utanríkisráðuneytisins. Erlent 7.12.2021 06:44
Vilja rússneska hermenn frá landamærum Úkraínu Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti ráðamenn í Rússlandi til að flytja hermenn sína á brott frá landamærum Úkraínu. Hann sagði að innrás í Úkraínu myndi hafa afleiðingar og meðal annars yrðu hinum ströngustu refsiaðgerðum beitt gegn Rússlandi. Erlent 1.12.2021 21:46
Úkraínumenn og Rússar halda heræfingar á landamærum Spennan í Austur-Evrópu magnast enn en bæði Rússar og Úkraínumenn hafa verið að halda heræfingar á landamærum sínum. Staðan á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlans fer þá versnandi. Erlent 24.11.2021 11:59
Bandaríkjamenn drápu tugi kvenna og barna í loftárásum Bandaríkjamenn drápu að minnsta kosti 64 konur og börn í mannskæðum árásum á Íslamska ríkið í mars árið 2019. Reynt var að afmá ummerki um árásirnar. Erlent 14.11.2021 10:25