Fasteignamarkaður

Sex milljóna króna hækkun á innan við viku
Ásett verð þriggja herbergja blokkaríbúðar í Kópavogi hækkaði um sex milljónir króna á fimm daga tímabili. Fasteignasali segir að aðstæður hafi breyst hjá seljenda sem vilji reyna fá hærra verð fyrir eignina.

Ásgeir segir framboð, ekki vaxtalækkanir, rót vandans á íbúðamarkaði
Verðhækkanir á fasteignamarkaði má fyrst og fremst rekja til framboðsskorts á húsnæði frekar en peningastefnu Seðlabanka Íslands. Þetta kom fram í máli Ásgeir Jónssonar seðlabankastjóra á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gær þar sem hann var spurður um fasteignamarkaðinn og samhengi hans við peningastefnu bankans.

Nýir eigendur ætla alls ekki að byggja blokk eða reisa hótel
Höfuðvígi íslensks bingós til áratuga verður fjölnota samkomustaður eftir breytingar nýrra eigenda. Þeir útiloka ekki að þar verði hægt að spila bingó.

Dýrustu eignirnar sem seldar voru á Íslandi á síðasta ári
Fasteignaverð hér á landi hefur verið mikið til umræðu síðustu misseri. Fasteignasalinn Páll Pálsson tók saman níu dýrustu eignirnar sem seldar voru á Íslandi árið 2021.

Húsnæðismarkaður við suðumark
Seðlabanki Íslands hækkaði meginvexti sína um 75 punkta þann 9. febrúar sl. líkt og væntingar stóðu til og nú standa vextirnir í 2,75%. Stýrivextir bankans hafa ekki verið hærri síðan fyrir heimsfaraldurinn. Útlánastofnanir hafa brugðist við með hækkun útlánsvaxta og nú eru fastir vextir til þriggja ára á óverðtryggðum lánum á bilinu 4,8-5,7%.

Fjölskyldur landsins í „hlekkjum afborgana“
Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis stéttarfélags, segir að það sé meðvituð ákvörðun stjórnvalda að stýra ekki húsnæðismarkaðnum og láta frumskógarlögmálið ráða för.

66 fasteignir einstaklinga seldar nauðungarsölu í fyrra
Alls voru 66 fasteignir í eigu einstaklinga seldar með nauðungarsölu árið 2021 samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættum. Um er að ræða mál sem luku með afsali á árinu.

Bankarnir ekki lánað minna til íbúðakaupa frá upphafi faraldursins
Hækkandi vextir Seðlabankans, ásamt sögulega litlu framboði fasteigna á höfuðborgarsvæðinu, er farið að hægja verulega á útlánavexti bankanna vegna íbúðakaupa heimilanna. Ný lán þeirra með veði í íbúð námu þannig 13,3 milljörðum króna í janúar á þessu ári og hafa ekki aukist minna í einum mánuði frá því í apríl 2020.

Nær aldrei bæst við fleiri íbúðir en í fyrra
Mikill fjöldi íbúða bættist við húsnæðisstofn höfuðborgarsvæðisins í fyrra og fjölgar íbúðum í byggingu, að sögn Hagfræðideildar Landsbankans. Þó er óvist hvort framboðsaukningin sé næg miðað við núverandi aðstæður þar sem eftirspurn er mikil.

Ósamþykkt 16 fermetra „íbúð“ á 17 og hálfa milljón
Svo virðist sem einskonar sturlun hafi gripið um sig á fasteignamarkaði og er slegist um eignir. Fasteignasali til 32 ára segist aldrei hafa séð annað eins.

Betri en Fasteignaskatturinn
Það hefur ekki farið framhjá neinum að fasteignaverð í Reykjavík hefur hækkað gífurlega síðustu ár og mánuði. Ungt fólk hefur setið á hakanum því kaupmáttur launa hefur ekki hækkað í sama mæli. Flestir eru sammála að þessi staða sé vandamál en þeim kemur ekki saman um hvernig er best að taka á vandanum. Vilja sumir meina að lækka þurfi útlánsvexti bankanna en aðrir vilja meina að þetta sé bara spurning um að byggja meira.

Innlit í stúdíóíbúð á milljón/m²: Klikkunin á íslenskum húsnæðismarkaði
Ástandið á íslenskum húsnæðismarkaði hefur aldrei verið eins slæmt, segja fulltrúar markaðarins sem fréttastofa hefur rætt við.

Hvernig á að berjast við verðbólgu?
Verðbólga, eins flókið fyrirbæri og það er, á sér nokkrar grundvallarástæður. Ein af þeim er ósamræmið á milli eftirspurnar eftir ákveðinni vöru m.v. framboð af henni: ef eftirspurn (magn af peningum sem er að eltast við viðkomandi vöru) er mikið meiri en framboðið hefur verðið á henni tilhneigingu til að hækka. Úr verður verðbólga.

Eik bindur vonir við að Borgarlínan glæði eftirspurn niðri í bæ
Eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði í miðbænum var dræm á síðasta ári samkvæmt nýrri ársskýrslu Eikar fasteignafélags. Forstjóri félagsins segir að tilkoma Borgarlínunnar muni breyta stöðunni til muna.

Hækkaði um tíu milljónir á þremur mánuðum: „Hvernig á fólk að gera þetta?“
Hjón í fasteignaleit segja það lyginni líkast að ásett verð íbúðar sem þau hafi gert tilboð í fyrir þremur mánuðum hafi síðan hækkað um tíu milljónir króna. Seljandinn, sem vill nú fá 8,6 milljónum meira fyrir íbúðina en hann greiddi í desember, segir að fólki sé frjálst að gera tilboð.

Verðbólga gæti farið í 7 prósent ef ekki tekst að hemja íbúðaverð í bráð
Nýjar tölur um hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu eru til þess fallnar að „lyfta upp“ verðbólguspám fyrir næstu mánuði og með þessu áframhaldi gæti verðbólga farið upp í 7 prósent áður en hún tekur að hjaðna. Þetta segir Konráð S. Guðjónsson, aðalhagfræðingur sjóðastýringarfélagsins Stefnis.

Meðalkaupverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 5 milljónir á tveimur mánuðum
Enn dregur úr fjölda íbúða til sölu en í byrjun febrúar voru þær 1.031 talsins. Um er að ræða 4 prósenta fækkun milli mánaða og um 74 prósent færri íbúðir en þegar mest lét í maí 2020 þegar um það bil 4 þúsund íbúðir voru til sölu.

Markviss uppbygging íbúðarhúsnæðis greiðir fyrir umferð á höfuðborgarsvæðinu
Ekkert sveitarfélag á landinu hefur lagt jafn mikla áherslu á að skapa umgjörð fyrir uppbyggingu óhagnaðardrifis húsnæðis fyrir jafn fjölbreytta hópa eins og Reykjavík. Meirihlutinn í borginni hefur leitt þær breytingar á meðan sveitarfélögin í Kraganum hafa varla lyft litla fingri í húsnæðismálum.

Segja neyðarástand ríkja á húsnæðismarkaði og krefjast aðgerða vegna verðbólgu
Miðstjórn ASÍ segir neyðarástand ríkja á húsnæðismarkaðnum og krefst þess að stjórnvöld grípi þegar í stað til aðgerða til að bæta stöðu þeirra sem verst verða fyrir barðinu á verðbólgunni, sem nú mælist.

Hækkandi húsnæðisverð vegi þyngst
Hækkun verðbólgu er ekki séríslenskt fyrirbæri heldur færist hún einnig í aukana erlendis, segir aðalhagfræðingur Landsbankans. Frá aldamótum hafi dregið verulega úr sveiflum hér á landi þó að verðbólga hafi verið óstöðugari á Íslandi en í okkar helstu viðskiptalöndum.

Hvenær hægir á hækkun íbúðaverðs?
Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að íbúðaverð hefur hækkað mikið frá því að faraldurinn skall á. Á nýliðnu ári nam hækkunin nær 16% eða ríflega 10% að raunvirði. Þrátt fyrir að kaupmáttur launa hafi einnig vaxið töluvert það ár hækkaði raunverð íbúða mun hraðar.

Vandinn á fasteignamarkaði verður ekki leystur með aðeins vaxtahækkunum
Vandi fasteignamarkaðarins hér á landi verður ekki leystur með vaxtahækkunum Seðlabankans þótt líklega muni það leiða til þess að „menn rói sig aðeins“ og meiri ró komist yfir markaðinn.

Bein útsending: Hvernig hönnun kemur í veg fyrir raka og brunatjón
Málþing á vegum Verkfræðingafélags Íslands og áhugafólks um áhrif hönnunar og skipulags á lífsgæði og lýðheilsu hefst klukkan 13:00.

Óvissa um þróun fasteignamarkaðarins sjaldan verið meiri
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu er orðið hátt á alla hagræna mælikvarða. Í árslok 2021 var verðið með tilliti til launa landsmanna og fjármagnskostnaðar rúmlega einu prósenti hærra en það hefur verið að meðaltali undanfarin tíu ár.

Spá því að ferðaþjónustan nái vopnum sínum á ný og krónan styrkist um 9 prósent
Hagvöxtur á þessu ári mun mælast 4,7 prósent sem má einkum þakka þróttmiklum vexti útflutnings, sér í lagi ferðaþjónustu og sjávarútvegs, og gæti skilað sér í því að gengi krónunnar styrkist um 8 til 9 prósent. Gangi það eftir yrði það hraðasti vöxtur í hagkerfinu frá árinu 2018.

Útlit fyrir myndarlegan hagvöxt, hjaðnandi verðbólgu og hærri stýrivexti
Útlit er fyrir myndarlegan hagvöxt út árið 2024 og hægt hjaðnandi verðbólgu á þessu ári að mati Greiningar Íslandsbanka sem spáir 4,7% hagvexti árið 2022. Gert er ráð fyrir að stýrivextir verði komnir í 3,25% í lok þessa árs og 4,0% í byrjun 2024. Þeir eru nú 2,0% og hækkuðu um 1,25 prósentustig á seinasta ári.

Bankarnir lánuðu yfir 300 milljarða til íbúðakaupa annað árið í röð
Ný íbúðalán bankakerfisins, sem voru alfarið drifin áfram af óverðtryggðum lánum, námu rúmlega 307 milljörðum króna á árinu 2021 sem er um einum milljarði króna meira heldur en árið áður.

Aldrei selst fleiri íbúðir en í fyrra og verðið hækkaði mikið
Metfjöldi íbúða seldist á síðasta ári og var fjölgunin milli ára töluvert yfir meðaltali fyrri ára á þessari öld og íbúðaverð hækkaði um 18,4 prósent. Fasteignasali reiknar með áframhaldandi skorti á íbúðarhúsnæði á allra næstu misserum.

Meðalkaupverð íbúða í landinu átta milljónum hærra en fyrir ári
Meðalkaupverð íbúða á landinu var 58,5 milljónir króna í nóvember síðastliðinn samanborið við 50,8 milljónir króna nóvember árið áður. Á höfuðborgarsvæðinu var meðalkaupverð 67,6 milljónir króna en þar af var það 58 milljónir króna fyrir íbúðir í fjölbýli og 98 milljónir fyrir sérbýli.

Heimilin sækja á ný í íbúðalán hjá lífeyrissjóðum eftir langt hlé
Hrein ný lán lífeyrissjóðanna til heimila námu um 1.449 milljónum króna í nóvember á árinu 2021 og er þetta í fyrsta sinn í um næstum eitt og hálft ár sem slík sjóðsfélagalán eru meiri en sem nemur uppgreiðslum innan mánaðar.