
Erlend sakamál

Tólf á sakamannabekk fyrir að hygla ættingjum sínum
Tólf fyrrverandi bæjarfulltrúar í litlum bæ á Suður-Spáni hafa verið ákærðir fyrir spillingu. Á þriggja ára tímabili úthlutuðu þeir ættingjum og vinum hvers annars opinberum framkvæmdum í 150 tilfellum.

Pyntingameistari einræðisstjórnar fangelsaður
Dómstóll í Argentínu dæmdi fyrrverandi lögreglumann í fimmtán ára fangelsi fyrir að ræna og pynta námsmann í tíð herforingjastjórnarinnar á áttunda áratug síðustu aldar. Lögreglumaðurinn starfaði í alræmdri pyntingastöð.

Unglingsstúlkur sem stungu mann fyrir áfengisflösku til rannsóknar vegna fleiri árása
Saksóknarar í Toronto í Kanada hafa ákært átta táningsstúlkur fyrir að stinga 59 ára gamlan mann til bana. Stúlkurnar eru þrettán til sextán ára gamlar og voru að reyna að ná áfengisflösku af vinkonu mannsins.

Átta unglingsstúlkur ákærðar fyrir morð á heimilislausum manni
Lögregla í Kanada hefur ákært átta unglingsstúlkur fyrir morð á tæplega sextugum heimilislausum manni í Toronto um helgina. Þær eru sakaðar um að hafa stungið manninn til bana.

Dæmdur fyrir að nauðga og myrða fimmtán ára stúlku fyrir tæpum fimmtíu árum
Breskur maður hefur verið dæmdur fyrir að nauðga og myrða fimmtán ára stúlku, nærri því fimmtíu árum eftir að mál gegn honum var fellt niður. Ný greining á lífsýnum sem tekin voru þegar Jacqueline Montgomery var myrt sýndi fram á sekt Dennis McGory.

Tom Hanks var einnig á „dauðalista“ árásarmanns Pelosi
Maðurinn sem sakaður er um að hafa ráðist á eiginmann Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, með hamri í lok október ætlaði sér einnig að ráðast á fleiri þekkta einstaklinga. Í hóp þeirra var bandaríski stórleikarinn Tom Hanks.

Íslenskur nuddari ákærður fyrir kynferðisbrot í Kanada
Fimmtugur íslenskur karlmaður, Guðbjartur Haraldsson hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot í Kanada. Samkvæmt fréttum þarlendra miðla hefur Guðbjartur starfað sem nuddari í Surrey borg í nágrenni Vancouver í Bresku Kólumbíu. Hann er ákærður fyrir að hafa brotið kynferðislega á konu sem sótti hjá honum meðferð.

Fjölskylda borgarstjóra ákærð fyrir umfangsmikið eiturlyfjasmygl
Áttræður eiginmaður borgarstjórans í Marbella á Spáni og stjúpsonur hennar, hafa verið ákærðir fyrir umfangsmikið eiturlyfjasmygl frá Spáni til Norðurlanda, peningaþvætti og skattsvik. Þá er borgarstjórinn sökuð um að hafa viðað að sér umtalsverðum auðæfum með vafasömum hætti í krafti embættisins.

Tæklaði árásarmanninn en tapaði tengdasyninum
Miðaldra fyrrverandi hermanni hefur verið hampað sem hetju eftir að hann afvopnaði og yfirbugaði árásarmann sem hóf skotárás á hinsegin skemmtistað í Colorado í Bandaríkjunum um helgina. Hann segist hafa farið ósjálfrátt í stríðsham þegar kúlunum byrjaði að rigna. Tengdasonur hermannsins er á meðal þeirra sem lést í árásinni.

55 barna móðir lét myrða eiginmann sinn
Söngkona, leikkona, prestur, þingmaður og 55 barna móðir í Brasilíu hefur verið dæmd til 50 ára fangelsisvistar fyrir að fá tvo syni sína til að myrða eiginmann sinn.

Telja raðmorðingja vera á ferð um Rómarborg
Lögreglan í Rómarborg á Ítalíu telur að raðmorðingi beri ábyrgð á dauða þriggja kvenna sem fundust látnar í vikunni. Konurnar þrjár voru allar vændiskonur af erlendum uppruna.

Carew dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi fyrir stórfelld skattsvik
John Carew, fyrrverandi landsliðsmaður Noregs í fótbolta, hefur verið dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi fyrir gróf skattsvik. Auk þess þarf hann að greiða háa sekt.

Eftirlýstur flóttamaður þóttist vera írskur munaðarleysingi
Sannað hefur verið fyrir skoskum dómstólum að karlmaður sem kvaðst vera írskur munaðarleysingi er í raun Bandaríkjamaður á flótta undan réttvísinni. Dómstóll í Edinborg komst að þessari niðurstöðu í vikunni.

Enn bætist í skuldasúpu Jones vegna samsæriskenninga
Það syrtir enn í álinn fyrir bandaríska samsæriskenningasmiðinn Alex Jones. Dómari í Connecticut-ríki hefur dæmt hann til að 473 milljónir dollara til viðbótar við þann tæpa eina milljarð sem hann hafði áður verið dæmdur til að greiða.

Rændu eðalvíni að andvirði 220 milljóna króna
Karl og kona sitja í gæsluvarðhaldi á Spáni, grunuð um að hafa rænt 45 vínflöskum á fínum veitingastað. Það þætti vart í frásögur færandi, nema fyrir þær sakir að flöskurnar eru metnar á 220 milljónir íslenskra króna.

Fundinn sekur í öllum ákæruliðum eftir skrautleg réttarhöld
Hinn bandaríski Darrell Brooks hefur verið fundinn sekur um sex morð að yfirlögðu ráði, þegar hann ók bifreið sinni inn í jólaskrúðgöngu í Waukesha, úthverfi Milwaukee í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum, í nóvember á síðasta ári. Réttarhöldin yfir honum vöktu mikla athygli, en hann kaus að verja sig án aðstoðar lögmanns.

Finnskur fjöldamorðingi á flótta handtekinn
Lögregla í Finnlandi handtók í gærkvöldi fangann Juha Valjakkala eftir að hann hafði flúið úr opnu fangelsi. Valjakkala var handtekinn eftir að ábendingar bárust frá almenningi.

Dæmdur fyrir að nauðga konu og skilja hana eftir í djúpri holu
Dómstóll í Svíþjóð hefur dæmt 41 árs karlmann, Taher Amini, í lífstíðarfangelsi og til brottvísunar fyrir að hafa nauðgað konu og ýtt henni ofan 24 metra djúpa í holu á námuvinnslusvæði eftir að hún hafði hafnað bónorði hans. Konan hafði legið fótbrotin í holunni í tvo sólarhringa þegar hún fannst.

Telja sig hafa fundið morðingjann
Lögreglan í París telur sig hafa handtekið konuna sem myrti Lolu, tólf ára stelpu, í borginni á föstudaginn. Konan sást á öryggismyndavélum fjölbýlishússins sem Lola bjó í en talið er að hún sé alvarlega veik á geði.

Telja sig hafa gómað raðmorðingjann
Lögreglan í Stockton í Kaliforníu tilkynnti í dag að hún hefði handtekið mann sem grunaður er um sex morð á síðustu þremur mánuðum.

Mafíusögur 2022: „Er einhver frægur kominn hingað?“
Það er yfir þrjátíu stiga hiti á paradísareyjunni Ustica, en hún er í ríflega klukkustundar siglingafjarlægð frá Palermo á Sikiley.

Ekki á þeim buxunum að greiða milljarðinn sem hann skuldar
Bandaríski samsæriskenningasmiðurinn Alex Jones virtist gefa það til kynna að enginn möguleiki væri á því að hann myndi greiðar gríðarlega háar skaðabætur sem hann var dæmdur til að greiða fjölskyldum fórnarlamba skotárásarinnar í Sandy Hook.

Sögð hafa gert tilraun til þess að myrða sama nýburann fjórum sinnum
Þriðji dagur réttarhalda yfir breska hjúkrunarfræðingnum Lucy Letby fóru fram í dag. Letby er sökuð um að hafa myrt sjö nýbura og gert tilraun til þess að myrða tíu til viðbótar á nýburadeild spítala sem hún vann á. Verknaðurinn er sagður hafa átt sér stað á milli júní 2015 og 2016.

Þarf að greiða fjölskyldum fórnarlamba tæpan milljarð dollara vegna samsæriskenninga
Bandaríski fjölmiðlamaðurinn og samsæriskenningasmiðurinn Alex Jones hefur verið dæmdur til að greiða fjölskyldum barna sem myrt voru í skotárásinni í Sandy Hook í Bandaríkjunum tæpan milljarð dollara í skaðabætur.

Adnan Syed hreinsaður af sök
Hinn bandaríski Adnan Syed, sem hefur setið í fangelsi í 23 ár fyrir á morðið á fyrrverandi kærustu sinni, hefur verið hreinsaður af sök. Mál Syeds vakti heimsathygli í rannsóknarhlaðvarpinu Serial, sem kom út fyrir átta árum síðan.

Breskur hjúkrunarfræðingur grunaður um að hafa myrt sjö ungabörn
Réttarhöld eru hafin á Bretlandseyjum yfir hjúkrunarfræðingi sem er sakaður um að hafa myrt sjö nýfædd börn og reynt að myrða tíu önnur á Countess of Chester-sjúkrahúsinu í Chester.

Ákærð fyrir að láta vin sinn myrða föður sinn
Réttarhöld hófust á Spáni í vikunni yfir 19 ára stúlku sem er ákærð fyrir að hafa ginnt rúmlega tvítugan mann til þess að myrða föður sinn. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi í tvö ár, en er ekki ákærður þrátt fyrir að játa að hafa orðið föður sínum að bana.

Mafíusögur 2022: „Ég heyri ekki, ég sé ekki, ég tala ekki“
Fyrir rúmu ári síðan gerðist sá harmleikur í góðu hverfi í Palermo á Sikiley að rétt rúmlega fimmtugur fjölskyldufaðir féll, eða fleygði sér, fram af svölum á 9.hæð í fjölbýli og lést.

Anna Sorokin úr „Inventing Anna“ laus úr fangelsi
Hinni rússnesku Önnu Sorokin, sem þekkt er fyrir að hafa svikið háar fjárhæðir frá fólki í New York í Bandaríkjunum, hefur verið sleppt úr fangelsi. Hún hefur verið flutt í stofufangelsi, verið gert að vera með ökklaband og meinað að vera á samfélagsmiðlum.

Talinn hafa svívirt lík rúmlega hundrað kvenna og stúlkna
David Fuller, breskur rafvirki sem dæmdur var í lífstíðarfangelsi í fyrra fyrir að myrða tvær konur árið 1987 og hefur játað að hafa svívirt 78 lík, hefur verið ákærður fyrir sextán brot til viðbótar.