HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi

Fljúgandi Hollendingar í átta liða úrslitin
Hollendingar tryggðu sér í nótt sæti í átta liða úrslitum á HM kvenna er liðið skellti Suður-Afríku, 2-0.

Japan of stór biti fyrir norska liðið
Japan tryggði sér sæti í átta liða úrslitum á HM kvenna í morgun er liðið vann frábæran 3-1 sigur á Noregi.

Senjoríturnar dönsuðu sig inn í átta liða úrslitin
Það var lítil spenna í leik Spánar og Sviss á HM kvenna í nótt. Sviss átti aldrei möguleika og varð að sætta sig við 5-1 tap.

„Ekki hræddar við neitt lið á þessu heimsmeistaramóti“
Sextán liða úrslit heimsmeistaramóts kvenna í fótbolta hefjast á morgun en Evrópumeistarar Englands mæta Nígeríu á mánudaginn.

Hylltar sem hetjur eftir eitt stig á HM
Um 8.000 stuðningsmenn mættu til að taka á móti og hylla leikmenn írska kvennalandsliðsins í fótbolta eftir komu liðsins heim til Írlands af HM í Eyjaálfu.

Óvæntir hlutir að gerast á HM kvenna í fótbolta
Kvennafótboltinn er í mikilli sókn og hluti af því er sú staðreynd að margir af risum kvennafótboltans geta ekki lengur gengið að úrslitum vísum á HM. Það hefur heldur betur komið í ljós síðustu daga.

FIFA rannsakar þjálfara HM-liðs Sambíu
Alþjóða knattspyrnusambandið hefur hafið rannsókn á framkomu þjálfara kvennalandsliðs Sambíu en liðið var meðal þátttökuliða á HM í fótbolta í Ástralíu og Nýja Sjálandi.

Segir klúður Þjóðverja það óvæntasta í sögu kvennaboltans
Fyrrverandi landsliðskona Englands í fótbolta segir að það að Þýskaland hafi ekki komist upp úr sínum riðli á HM sé það óvæntasta í sögu kvennaboltans.

Lloyd dregur í land: „Ég ann þessu liði“
Carli Lloyd, ein besta fótboltakona allra tíma, hefur dregið í land með gagnrýni sína á bandaríska landsliðið sem komst naumlega upp úr sínum riðli á HM.

Líkir dóttur sinni við Maradona og Messi
Pabbi Lauren James, sem hefur slegið í gegn á HM í fótbolta, hefur líkt henni við nokkra af bestu fótboltamönnum allra tíma.

Ótrúleg úrslit þegar þýska stálið bráðnaði en draumur Marokkó rættist
Tvöfaldir heimsmeistarar Þýskalands þurfa í fyrsta sinn í sögunni að sætta sig við að komast ekki í útsláttarkeppni HM kvenna í fótbolta, eftir lokaleikina í riðlakeppni mótsins í Eyjaálfu í dag.

Missti þrjá fjölskyldumeðlimi á síðustu vikum en fór ekki heim af HM
Thembi Kgatlana tryggði Suður-Afríku sæti í sextán liða úrslitum á HM kvenna í fótbolta með því að skora sigurmarkið í 3-2 sigri á Ítalíu í dag.

Hópsöfnun fyrir HM en eru nú komnar í 16-liða úrslit
Jamaíka gerði sér lítið fyrir og sló út Brasilíu á HM kvenna í fótbolta í dag, þegar liðin gerðu markalaust jafntefli í lokaumferð F-riðils. Stigið dugði Jamaíku til að fylgja Frakklandi sem vann riðilinn með 6-3 sigri á Panama.

Norsku stelpurnar í lífshættu á æfingu
Heimsmeistarakeppni kvenna í fótbolta fer fram yfir vetrartímann í Nýja Sjálandi og Ástralíu og veðrið hafði heldur betur áhrif á æfingu norska landsliðsins í gær.

Bróðir Lauren James stoltur af systur sinni: Verður sú besta í heimi í tíu ár
Reece James, leikmaður Chelsea og enska landsliðsins, var heldur betur stoltur af litlu systur sinni eftir frábæra frammistöðu hennar í lokaleik enska landsliðsins í riðlakeppni HM í Ástralíu og Nýja Sjálandi.

Sendu Ítali heim með sögulegum sigri en Svíar mæta Bandaríkjunum
Suður-Afríka tryggði sér með ævintýralegum hætti sæti í 16-liða úrslitum á HM kvenna í fótbolta, í fyrsta sinn, með 3-2 sigri gegn Ítalíu. Liðið fylgir toppliði Svíþjóðar sem vann alla sína leiki í G-riðlinum.

Lét gömlu liðsfélagana heyra það: „Stöngin var maður leiksins“
Carli Lloyd, ein besta fótboltakona allra tíma, var ekki hrifin af frammistöðu bandaríska landsliðsins gegn Portúgal og sagði það stálheppið að vera ekki úr leik á HM.

Lauren James er stærsta stjarna fjölskyldunnar í dag
England og Danmörk eru komin áfram á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta í Ástralíu og Nýja Sjálandi en Kína er úr leik líkt og Víetnam.

Bandaríkin stálheppin að fylgja Hollandi
Holland tryggði sér sigur í E-riðli á HM kvenna í fótbolta í dag, með stórsigri gegn Víetnam, en Bandaríkin voru stálheppinn að falla ekki úr keppni í viðureign sinni við Íslandsbanana í Portúgal.

Hetja á HM nokkrum árum eftir að hún vissi ekki hvort hún gæti gengið aftur
Ástralar þurftu á hjálp að halda til að koma liði sínu áfram í sextán liða úrslitin á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta sem fram fer á þeirra heimavelli. Pressan hefur verið mikil á liðinu en líklega aldrei meira en fyrir leikinn í morgun.

BBC baðst afsökunar á fúkyrðaflaumi í beinni
Breska ríkisútvarpið hefur beðist afsökunar á fúkyrðaflaumi sem heyrðist í beinni útsendingu frá leik Ástralíu og Ólympíumeistara Kanada á HM í fótbolta kvenna.

Ástralar brunuðu í sextán úrslitin og skildu þær kanadísku eftir í rykmekki
Ástralía og Nígería tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum HM kvenna í fótbolta í dag eftir lokaumferðina í B-riðli. Cloé Lacasse og félagar hennar í Kanada eru á heimleið.

Japan valtaði yfir Spán og mætir Noregi
Japan rúllaði með afar sannfærandi hætti yfir Spán, 4-0, í lokaumferð C-riðils HM kvenna í fótbolta. Bæði liðin fara þó áfram í 16-liða úrslitin eins og ljóst var fyrir leik.

Horfði á mörkin sín og komst svo á toppinn
Norska landsliðskonan Sophie Román Haug varð í gær ein af markahæstu leikmönnum HM í fótbolta í Eyjaálfu þegar hún skoraði þrennuna sína í 6-0 sigrinum gegn Filippseyjum, sem kom Noregi áfram í 16-liða úrslit.

Kólumbía í bílstjórasætið eftir glæsilegan sigur á Þjóðverjum
Kólumbía fór með 2-1 sigur af hólmi þegar liðið mætti Þýskalandi í annarri umferð riðlakeppninnar á heimsmeistaramótinu í fótbolta kvenna í Sydney í Ástralíu í dag.

Noregur kláraði riðlakeppnina með stæl
Noregur vann stórsigur, 6-0, þegar liðið mætti Filippseyjum í lokaumferð heimsmeistaramótsins í fótbolta kvenna á Eden Park í Nýja-Sjálandi í morgunsárið.

Komið að ögurstundu fyrir Noreg
Norska landsliðið gæti verið á heimleið af Heimsmeistaramóti kvenna eftir daginn í dag. Ekkert nema sigur gegn Filipseyjum dugar þeim mögulega til að komast áfram úr A-riðli.

Jamaíka vann sinn fyrsta sigur í sögu HM
Jamaíka vann Panama með einu marki gegn engu á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í dag. Þetta var fimmti leikurinn í sögunni sem kvennalið þjóðarinnar spilar á HM og sigurinn því sögulegur.

Frakkar á toppi F-riðils eftir sigur gegn Brasilíu
Frakkland vann Brasilíu 2-1 í æsispennandi leik á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Frakkland er á toppi F-riðilsins eftir úrslitin. Með sigri hefði Brasilía getað tryggt sig í 16-liða úrslitin en nú er allt mögulegt.

Svíar í sextán liða úrslit eftir stórsigur á Ítölum
Svíþjóð gerði sér lítið fyrir og vann Ítalíu 5-0 á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Þær sænsku komust í þriggja marka forystu rétt fyrir hálfleik og bættu svo tveimur mörkum við í þeim síðari. Þær eru því komnar í sextán liða úrslit og mæta Bandaríkjunum, Hollandi eða Portúgal.