Hringborð norðurslóða

Laufléttir gervihnettir á stærð við þvottavél skoða Reykjanesgosið
Fjórtán gervihnettir á stærð við þvottavél auðvelduðu íslenskum vísindamönnum að meta umfang og hegðun eldgossins á Reykjanesi betur en fyrri eldgos. Tæknin getur einnig nýst vð mat á áhrifum loftslagsbreytiinganna.

Horft til Íslands og Grænlands eftir rafeldsneyti
Á meðan leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna ræða hvert Ísland skuli stefna í nýtingu grænnar orku voru þau mál ofarlega á baugi á Arctic Circle.

Ekki lengur hrópandinn í eyðimörkinni
Lisa Murkowski öldungardeildarþingmaður Republikana fyrir Alaska mætti áhugaleysi og jafnvel efasemdum um raunveruleika loftlagsbreytinganna innan flokksins þegar hún hóf að vekja athygli á málefnum norðurslóða á Bandaríkjaþingi. Hún hefur sótt Hringborð norðurslóða frá upphafi og segir stöðuna hafa breyst mikið í dag.

Grænlendingar bjartsýnir þrátt fyrir loftslagsbreytingar
Ný ríkisstjórn Grænlands horfir til grænna lausna og ætlar ekki að veita leyfi til olíu- og gasvinnslu. Gífurleg uppbygging innviða eins og flugvalla, hafna og vega á sér stað á Grænlandi sem kynnt hefur verið á Hringborði norðurslóða í Hörpu.

Sér mikinn hag í þéttara samstarfi Íslands og Grænlands
Málefni Grænlands hafa verið áberandi á Hringborði Norðurslóða á Arctic Circle ráðstefnunni, sem fer fram í Hörpu þessa dagana, og verða það áfram í dag. Gríðarleg uppbygging á sér stað á innviðum í Grænlandi þar sem Íslendingar koma nokkuð við sögu.

Norðurslóðir án íss!
Norðurslóðir eru að hlýna þrisvar sinnum hraðar en önnur svæði í heiminum. Ísinn á Norðurskautinu hefur aldrei mælst minni og á aðeins örfáum árum hefur íshellan minnkað um flatarmál sem nemur Frakklandi, Spáni, Þýskalandi, Póllandi og Ítalíu samanlagt.

Þétt dagskrá á Þingi Hringborðs Norðurslóða í Hörpu
Þing Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle hófst í Hörpu í morgun klukkan tíu með fjölþættum málstofum um ýmis efni. Setningarfundur þingsins verður svo klukkan 13.

Boð í risapartý á Íslandi barst frá... Ólafi Ragnari
Auglýsing fyrir ráðstefnuna Arctic Circle hefur heldur betur vakið athygli þeirra sem hana hafa heyrt eða séð. Þar heyrist formaður Arctic Circle, Ólafur Ragnar Grímsson, lofa feikna stuði.

Enginn árangur án breytinga á orkustefnu heimsins
Formaður Hringborðs norðurslóða segir að ef ekki takist að breyta orkukerfum heimsins náist aldrei árangur í baráttunni gegn loftlagsbreytingunum. Þing Hringborðsins í Hörpu í næstu viku sé mjög mikilvægt í aðdraganda loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow síðar í mánuðinum.

Hyggja að stofnun Norðurslóðaseturs kennt við Ólaf Ragnar
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að skipa nefnd um undirbúning að stofnun og byggingu Norðurslóðaseturs í Reykjavík sem yrði kennt við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands.

Norðurskautið gæti orðið íslaust að sumri innan tuttugu ára
Fyrstu niðurstöður viðamesta leiðangurs sögunnar á Norðurskautið voru kynntar á webinar hjá Hringborði norðurslóða, Arctic Circle, í dag. Hann staðfestir miklar breytingar sem muni meðal annars stuðla að aukinni tíðni ofsaveðra um allan heim.

Samverkamaður Epstein flutti boðskap sinn í Hörpu
Meðal ræðumanna á Hringborði Norðurslóða í Hörpu árið 2013 var Ghislaine Maxwell, sem var ákærð í gær vegna gruns um aðild að mansali.

Guðlaugur Þór bauð Lavrov til Íslands
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra bauð í dag Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands í heimsókn til Íslands og vonar að hann geti mætt á Hringborð norðurslóða á næsta ári.

Rick Perry kynnir afsögn viku eftir að hafa verið spurður í Svartsengi
Rick Perry, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, hefur tilkynnt Donald Trump forseta að hann hyggist segja af sér embætti. Trump staðfesti fréttirnar sjálfur í kvöld.

Alvarlegustu áhrif hlýnun jarðar í kringum þriðja pólinn
Kínverskur vísindamaður, sem fjallaði um málið á Arctic Circle, segir bráðnunina þar mun hraðari en á hinum pólunum. Veldur það áður óþekktum hamförum og búferlaflutningum.

Heimspólitíkin við Hringborðið og varnarlaus forsætisráðherra í Víglínunni
Góðir gestir í Víglínunni sem er í opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi klukkan 17:40.

John Kerry sagði íslenska heilbrigðiskerfið hafa komið sér í gegnum ávarp sitt í Hörpu
Kerry var verðlaunaður fyrir baráttu sína gegn loftslagsbreytingum á hringborði norðurslóða.

Perry segir norðurslóðir barmafullar af orkuauðlindum
Orkumálaráðherra Bandaríkjanna segir norðurslóðir barmafullar af auðlindum eins og gasi sem megi nýta á skynsaman hátt íbúunum þar og heimsbyggðinni til hagsbóta. Ákvörðun ríkisstjórnar Donalds Trump um nýtingu auðlinda í Alaska sé gott dæmi um þetta.

Orkumálaráðherra Bandaríkjanna sér á báti við Hringborð norðurslóða
Orkumálaráðherra Bandaríkjanna nefndi loftslagsbreytingar ekki á nafn í ávarpi sínu við setningu Hringborðs norðurslóða í dag en skaut föstum skotum að ríkjum sem hann sagði boðflennur á norðurslóðum. Forystufólk annarra ríkja lagði hins vegar áherslu á að þjóðir heims tækju höndum saman til að vinna gegn loftslagsbreytingunum.

Rick Perry varði Donald Trump með kjafti og klóm í Svartsengi
Rick Perry, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, segir jarðhitann guðsgjöf til Íslendinga og að flestar þjóðir myndu gefa allt til að geta nýtt slíka auðlind til að hita upp hús sín og framleiða rafmagn.

Táknrænn klaki fluttur úr Jökulsárlóni að Hörpu
Tvö vörubílshlöss af klaka úr Jökulsárlóni voru flutt að Hörpu í dag, en þing Hringborðs Noðurslóða- Arctic Circle- hefst þar á morgun.

Stórveldin sýna Hringborði norðurslóða aukinn áhuga
Meðal gesta verður orkumálaráðherra Bandaríkjanna og forstöðumaður æðstu stofnunar landsins í umhverfismálum.

Viktoría krónprinsessa, forsætisráðherrar og fyrrum forsetaframbjóðandi á mælendaskrá Arctic Circle
Alþjóðaþing Hringborðs norðurslóða – Arctic Circle fer fram á Íslandi dagana 10. til 13. október næstkomandi. Hringborð norðurslóða er orðinn fastur liður í ráðstefnulífi Reykjavíkurborgar.

Ólafur Ragnar segir eðlilegt að spenna sé milli ríkja um norðurslóðir
Bandaríkjastjórn hefur verið vægast sagt skeptísk út í stefnu Rússa og Kínverja í málefnum svæðisins.

Öldungadeildarþingmaður ræðir við Kínverja sem Pompeo sendir tóninn
Nokkrum dögum eftir að utanríkisráðherra Bandaríkjanna gagnrýndi Kínverja fyrir afskipti þeirra af norðurslóðum, mætti öldungadeildarþingmaðurinn og flokkssystir hans Lisa Murkowski á Hringborð norðurslóða í Shanghai. Hún segir ekki þýða að loka augunum fyrir augljósum áhrifum loftslagsbreytinganna.

Boð ráðherra kostaði hátt í tvær milljónir
35 ráðstefnugestum Arctic Circle var boðið í kvöldverð í Hellisheiðarvirkjun í október síðastliðnum. Ríkissjóður borgaði brúsann og fékk reikning frá ON upp á 1,7 milljónir.

Örlög norðurslóða ráðast ekki síst sunnar á hnettinum
Ólafur Ragnar Grímsson formaður Hringborðs norðurslóða sagði örlög þeirra ekki síst ráðast af þróun loftlagsmála sunnar á hnettinum.

Óhrædd við að fara gegn flokkslínum
Lisa Murkowski, öldungadeildarþingmaður Alaska fyrir Repúblikanaflokkinn, segir að milliríkjadeilur Bandaríkjanna og Rússlands ættu ekki standa í vegi fyrir samtali ríkjanna í málefnum norðurslóða, þótt það geti reynst erfitt. Hún er óhrædd við að greiða atkvæði þvert á flokkslínur í umdeildum málum.

„Það er ekkert stærra mál sem mannkynið þarf að fást við en loftslagsbreytingarnar“
Ólafur Ragnar Grímsson var gestur Heimis Más Péturssonar í Víglínunni í dag þar sem hann ræddi ráðstefnuna Hringborð norðurslóða,

Sérfræðingar við Hringborð norðurslóða vara heimsbyggðina við
Allir helstu sérfræðingar heims í loftslagsmálum á Hringborði norðursins í Hörpu vara heimsbyggðina við því sem er að gerast á norðurslóðum. Samkvæmt nýlegri skýrslu Sameinuðu þjóðanna gerast loftslagsbreytingarnar hraðar en áður var talið. Mannkynið hafi aðeins rúman áratug til að forða meiriháttar hamförum á jörðinni.