
Hestaíþróttir

„Þér geta orðið á mistök í lífinu, geturðu þá aldrei komið til baka?“
Jóhann Rúnar Skúlason, sem nýverið var vikið úr landsliði Íslands í hestaíþróttum vegna kynferðisbrotadóms frá árinu 1994, er verulega ósáttur við að hafa verið vikið úr landsliðinu. Hann var dæmdur fyrir að hafa haft önnur kynferðismök með þrettán ára stúlku í gáleysi um aldur hennar. Hann segist iðrast gjörða sinna en vill að það sé skýrt að hann hafi ekki fengið dóm fyrir nauðgun eins og haldið hafi verið fram í fjölmiðlum.

Segir rangt að hann hafi verið dæmdur fyrir nauðgun
Jóhann Rúnar Skúlason, sem var rekinn úr landsliðinu í hestaíþróttum vegna dóms sem hann hlaut fyrir alvarlegt kynferðisofbeldi, segir það rangt að hann hafi verið sakfelldur fyrir nauðgun. Hann hafi verið dæmdur sekur fyrir að hafa samræði við barn yngri en fimmtán ára.

Einn besti knapi landsins braut á þrettán ára stúlku árið 1993
Jóhann Rúnar Skúlason, landsliðsmaður í hestaíþróttum, hefur verið rekinn úr landsliðinu vegna þess að hann á að baki dóm fyrir alvarlegt kynferðisofbeldi. Jóhann Rúnar varð þrefaldur heimsmeistari árið 2019 og var hestafólk verulega ósátt við að hann komst ekki í efstu þrjú sætin í kjöri íþróttamanns ársins.

Vikið úr landsliði í hestaíþróttum vegna kynferðisbrots
Stjórn Landssambands hestamannafélaga og landsliðsnefnd hafa vikið einum landsliðsmanni úr landsliðshópi Íslands í hestaíþróttum. Ástæðan er refsidómur sem landsliðsmaðurinn fyrrverandi hefur hlotið fyrir kynferðisbrot.

Kaley Cuoco býðst til að kaupa hestinn sem var laminn á Ólympíuleikunum
Leikkonan Kaley Cuoco, sem flestir þekkja eflaust úr þáttunum The Big Bang Theory, hefur sagst munu borga hvaða verð sem er til að bjarga hestinum sem laminn var af þýskum þjálfara á Ólympíuleikunum.

Dóttir Bruce Springsteen er á leið á Ólympíuleikana
Jessica Springsteen, dóttir Bruce Springsteen og tónlistarkonunnar Patti Scialfa er á leið á Ólympíuleikana í Tókýó í sumar.

Segir dóminn geta ýtt við hestamannafélögum og komið í veg fyrir slys
Guðrún Rut Heiðarsdóttir knapi hafði betur í skaðabótamáli sínu gegn Vátryggingafélagi Íslands fyrr í mánuðinum eftir hestaslys sem hún lenti í fyrir rúmum fimm árum. Hún segir dóminn fordæmisgefandi og staðfesta það að hestamannafélög verði að passa betur upp á aðstæður og merkingar við skipulagðar æfingar.

Greiðir tíu milljónir vegna saknæmrar sölu á stóðhesti
Guðmundur Friðrik Björgvinsson, einn færasti knapi Íslands og landsliðsmaður í íþróttinni, hefur verið dæmdur til að greiða rúmlega tíu milljónir króna í skaðabætur fyrir svik við sölu á stóðhestinum Byl til Noregs.

Heimsmet og hæst dæmd frá upphafi
Stjörnur urðu til í heimi íslenska hestsins þrátt fyrir að nær öllum stórmótum í hestaíþróttum á árinu hafi verið aflýst, þar með talið Landsmóti og Íslandsmóti.

Íslandsmótinu í hestaíþróttum aflýst
Ekkert verður af Íslandsmótinu í hestaíþróttum sem átti að hefjast á miðvikudaginn.

Tvöfaldur sigur Jakobs í Meistaradeildinni
Annað árið í röð stóð Jakob Svavar Sigurðsson uppi sem sigurvegari Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum en hann vann öruggan sigur. Lið hans, Hjarðartún, vann liðakeppnina.