Ingrid Kuhlman

Meirihluti heilbrigðisstarfsmanna hlynntur því að dánaraðstoð verði leyfð
Síðastliðið vor fól Alþingi heilbrigðisráðherra að láta gera skoðanakönnun um viðhorf heilbrigðisstarfsfólks, sjúklinga og almennings til dánaraðstoðar. Gallup sá um framkvæmd könnunarinnar og voru niðurstöðurnar birtar á vef Alþingis 8. júní sl.

Listin að slaka á og njóta sumarfrísins
Þó að sumarfríinu sé ætlað að vera tími afslöppunar, samveru og ánægjulegra athafna, getur það einnig valdið kvíða og streitu. Að skipuleggja sumarfrí getur falið í sér samhæfingu og ákvarðanatöku, allt frá því að velja áfangastað, bóka gistingu, pakka niður, undirbúa tjaldvagninn og gera ferðaáætlun.

Hvað er gott eða virðulegt andlát?
Við hugsum sjaldan mikið um eigið andlát fyrr en það er yfirvofandi. Sigmund Freud sagði reyndar að við værum ófær um að ímynda okkur eigið andlát. Jafnvel þó að við vitum og getum ímyndað okkur fráfall einhvers annars, erum við sannfærð um eigin ódauðleika.

Sköpum minningar á Degi barnsins
Í dag 21. maí fögnum við Degi barnsins. Dagurinn, sem helgaður er börnum, var haldinn háíðlegur í fyrsta sinn þann 25. maí 2008. Eitt helsta markmið dagsins er að hvetja til ánægjulegra samverustunda foreldra og barna. Mikilvægt er að skapa fjölskylduvænt samfélag þar börn finna að á þau sé hlustað, þau tilheyri, upplifi ást og öryggi.

Máttur góðvildar í eigin garð
Góðvild í eigin garð er hugtak innan jákvæðrar sálfræði sem vísar til þess að koma fram við sjálfan sig af mildi og hlýju, sérstaklega þegar við stöndum frammi fyrir áskorunum eða erfiðleikum. Að sögn Kristin Neff, sem er leiðandi fræðimaður og höfundur bóka um góðvild í eigin garð, felur hún í sér þrjá meginþætti.

Njótum íslenska vorsins og alls þess sem það hefur upp á að bjóða
Að varðveita og njóta, sem kallast á ensku „savoring“, er sú athöfn að meta, taka inn og njóta jákvæðrar upplifunar, skynjunar eða tilfinningar. Þetta snýst um að taka fullan þátt í augnablikinu og beina athyglinni vísvitandi á ánægjulega þætti upplifunar í þeim tilgangi til að auka hamingjutilfinningar og þakklæti.

Góð barnabók er gulli betri
Alþjóðlegur dagur barnabókarinnar er haldinn hátíðlegur árlega í kringum 2. apríl, sem er fæðingardagur ævintýraskáldsins Hans Christian Andersen. Að þessu sinni er hann haldinn hérlendis í dag, 13. apríl. Tilgangur dagsins er að minna á mikilvægi barnabóka.

Máttur örkærleika í daglegu lífi
Örkærleikur („micro kindness“) felur í sér litlar einlægar og sjálfviljugar athafnir og viðhorf sem sýna öðrum að við kunnum að meta þá. Örkærleikur getur lífgað upp á daginn hjá öðrum og stuðlað að jákvæðum samskiptum.

Stuðlum að vellíðan barna
Alþjóðlegi hamingjudagurinn er haldinn í ellefta sinn í dag, 20. mars, að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna. Markmiðið er að vekja stjórnvöld og einstaklinga til vitundar um mikilvægi hamingjunnar.

Hrós getur gert kraftaverk
Alþjóðlegi hrósdagurinn er haldinn hátíðlegur 1. mars um heim allan. Haldið var fyrst upp á daginn í Hollandi fyrir 20 árum en nú er honum fagnað víða um heim, meðal annars hér á landi. Markmiðið með deginum er að stuðla að aukinni vellíðan með því að hvetja fólk til að gefa og þiggja hrós.

Óvæntar staðreyndir um ást og vellíðan
Valentínusardagurinn er runninn upp á ný, dagur sem er helgaður ástinni og sveipaður rósrauðum ljóma. Þrátt fyrir það sem kortafyrirtæki, súkkulaðiframleiðendur og blómasalar telja okkur trú um, snýst það að elska um meira en að gefa blóm, konfekt eða Valentínusarkort. Það að finna, deila og gefa ást getur haft djúpstæð áhrif á líkamlega heilsu okkar, efnafræði heilans og almenna vellíðan.

Dýrmætasta gjöfin
Í Brennu-Njálssögu sagði Gunnar á Hlíðarenda við Njál á Bergþórshvoli: „Góðar eru gjafir þínar, en meira þykir mér verð vinátta þín og sona þinna.“ Hamingjurannsóknir hafa einmitt sýnt að góð, nærandi og gefandi tengsl eru stærsti einstaki þátturinn þegar kemur að hamingjunni.

Styrkleikar eru öflugt verkfæri
Með hraðri framþróun tækninnar og auknu áreiti frá samfélagsmiðlum hefur andlegt álag á börn og unglinga aukist töluvert. Því er mikilvægt að byrja sem fyrst að vinna með sjálfsmynd barna þannig að þau eigi auðveldara með að blómstra í lífinu.

Flestir eru þakklátir fyrir fjölskylduna
Nú um helgina stóðum við fyrir vitundarvakningu um vellíðan barna hjá Eymundsson í Smáralind og á Akureyri til að vekja athygli foreldra á því hversu mikil áhrif snjalltækjanotkun hefur á líðan barna.

Hrós lætur okkur líða vel
„Flott klipping, hún fer þér vel“, „Ræðan sem þú hélst í afmælisveislunni var mjög áhrifamikil“, „Þú ert virkilega góður vinur; ég get ekki sagt þér hversu frábært það var að tala við þig í síðustu viku þegar ég var í uppnámi.“

Meiri ávinningur af persónulegum samskiptum en samskiptum á samfélagsmiðlum
Stór hluti samskipta okkar í dag eiga sér stað í gegnum netið og þá sérstaklega samfélagsmiðla (Facebook, Instagram, Snapchat o.fl.). Þeir eru komnir til að vera og eiga ef til vill eftir að verða enn stærri hluti af lífi okkar.

Gefum umhverfisvænni jólagjafir
Jólin eru yfirleitt mikil neysluhátíð. Við straujum greiðslukortin eins og enginn sé morgundagurinn og kaupum hluti sem við þörfnumst ekki og enda inni í geymslu eða jafnvel á ruslahaugunum.

Fimm leiðir til að vinna bug á faraldursþreytu
Þessa dagana glíma margir við heimsfaraldursþreytu. Við höfum þurft að búa við óvissu í bráðum tvö ár þar sem ýmist er verið að herða eða slaka á sóttvarnareglum, þar sem við höfum unnið heima og á vinnustaðnum í bland og þar sem margir hafa þurft að sæta sóttkví og einangrun.

Hver verðskuldar þitt hrós?
Alþjóðlegi hrósdagurinn er haldinn hátíðlegur 1. mars um heim allan. Haldið var fyrst upp á daginn í Hollandi fyrir 18 árum en nú er honum fagnað víða um heim, meðal annars hér á landi.

Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja
Baráttan við loftslagsbreytingar af mannavöldum er það viðfangsefni sem nú ber hæst.

Umhverfisvæn jól
Í aðdraganda jóla hefst yfirleitt mikið neyslufyllerí. Við straujum greiðslukortin eins og enginn sé morgundagurinn og kaupum hluti sem engin þörf er fyrir og enda í kassa inni í geymslu eða jafnvel í ruslinu.

Að hlusta af athygli
Hraði nútímans gerir það að verkum að samskipti verða stundum að formsatriði, svona eins og þegar einhver býður okkur "góðan dag“ úti í búð.

Alþjóðlegur dagur dánaraðstoðar
Í dag 2. nóvember 2017 er í annað sinn haldið upp á dag dánaraðstoðar víða um heim. Tilgangurinn er að hvetja til umræðu um þau mikilvægu mannréttindi að fá að hafa yfirráð yfir líkama sínum, lífi og dauða og eftir atvikum að fá aðstoð lækna við að deyja með reisn.

Sumarið er tíminn
Sumarið er tíminn til að njóta og hlaða batteríin fyrir veturinn. Hér á eftir eru nokkrar leiðir til að hlúa að sjálfum okkur og þeim sem okkur þykir vænt um:

Dánaraðstoð: Rétt skal vera rétt
Í byrjun febrúar birtust greinar í Fréttablaðinu um „líknardeyðingu“ eins og Björn Einarsson öldrunarlæknir á Landakoti-LSH kallar dánaraðstoð. Björn fer ekki með rétt mál og viljum við því leiðrétta hann með þessari grein.

Að upplifa jól með hug byrjandans
Núvitund hefur verið að ryðja sér til rúms undanfarin ár og sífellt fleiri leggja áherslu á að þjálfa meðvitaða athygli og vera meira til staðar í eigin lífi.

Umræðufundur um loftslagsmál
Dagana 1.-2. september verður haldinn Fundur fólksins í Norræna húsinu.

Virðum rétt barna og ungmenna til vímulauss lífs
Vika 43, vímuvarnavikan, er haldin 23. – 30. október 2011. Markmið Viku 43 eru eftirfarandi:

Byrgjum brunninn - Við tryggjum ekki eftir á
Forvarnardagurinn er haldinn 5. október 2011. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum. Þessi ráð eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Á þessu ári er einblínt sérstaklega á nemendur framhaldsskóla landsins og undanfarið hafa landsmönnum birst auglýsingar í sjónvarpinu þar sem unglingar svara spurningum um vímuefni og neyslu.