Heimaeyjargosið 1973

Fréttamynd

Langhæsti styrkurinn fer til Eyja

Styrkur sem nemur 107 milljónum króna fer til Vestmannaeyjabæjar í tengslum við listaverk Ólafs Elíassonar sem ber heitið Sjónarhorn Flakkarans. Það er eitt þeirra átján verkefna sem fékk styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Heildarfjárhæð styrkjanna nemur um 490 milljónum króna og dreifast þeir víðs vegar um landið.

Innlent
Fréttamynd

Lista­verkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu

Minnisvarði um eldgosið í Heimaey verður vígður þann 12. maí en á athöfninni munu Hanna Katrín Friðriksdóttir atvinnuvegaráðherra og listamaðurinn Ólafur Elíasson vera meðal ræðumanna. Eyjamenn töldu sumir hverjir að verkið væri röskun á svæðinu en eftir kynningu sem haldin var á íbúafundi virðist sem fólk hafi róast. Þar kom fram að hægt væri að láta verkið hverfa sporlaust.

Innlent
Fréttamynd

Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyja­manna vill ekki sjá

Listamaðurinn Ólafur Elíasson fær hátt í 88,5 milljónir króna frá ríkinu og Vestmanneyjabæ fyrir minnisvarða um eldgosið í Heimaey sem til stendur að reisa á Eldfelli. Þá er ótalinn kostnaður vegna gerðar göngustígs og annarra framkvæmda sem fyrirhugaðar eru á svæðinu en áætlaður heildarkostnaður gæti numið allt að 220 milljónum. Ríflega sex hundruð manns hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem minnisvarðanum er mótmælt.

Innlent
Fréttamynd

Eyjakona í Grinda­vík búin að flýja ógn jarðelds í annað sinn á ævinni

Kona úr Vestmannaeyjum sem settist að í Grindavík eftir að hafa flúið Heimaeyjargosið fyrir hálfri öld hefur núna upplifað það í annað sinn á ævinni að flýja undan ógn jarðelds. Hún segir ómetanlegt að sjá hvað landsmenn eru tilbúnir að gera til að hjálpa Grindvíkingum en sjálf býr hún núna í íbúð sem ókunnugt fólk lánaði henni.

Innlent
Fréttamynd

Gosloka­há­tíð ekki í sam­keppni við Þjóð­há­tíð

Goslokahátíð Vestmannaeyjabæjar verður sett í dag. Í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá Heima­eyj­argosi lauk munu hátíðarhöldin standa í heila viku. Bæjarstjóri segir hátíðina ekki í samkeppni við Þjóðhátíð, sem sé allt annars seðlis. 

Innlent
Fréttamynd

Vestmannaeyjar héldu höfninni ólíkt blómlegasta bæ Tenerife

Hálf öld er liðin þessa dagana frá því menn hófu hraunkælingu í Heimaeyjargosinu en hún er talin hafa stuðlað að því að Vestmannaeyjahöfn varð jafnvel betri á eftir. Íbúar eins blómlegasta bæjar Tenerife voru ekki jafn heppnir í eldgosi þremur öldum fyrr. Hraunið sem þar rann í höfnina kippti fótunum undan lífsafkomu bæjarbúa.

Innlent
Fréttamynd

Eyjamenn minnast hálfrar aldar afmælis eldgossins

Hálf öld er í dag, 23. janúar, liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey árið 1973. Gosafmælisins er minnst með margvíslegum hætti í Vestmannaeyjum og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækja Eyjamenn.

Innlent
Fréttamynd

Blysför í Vestmannaeyjum í tilefni 50 ára gosafmælis

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækja Vestmannaeyjar á morgun, mánudag, 23. janúar, í tilefni þess að 50 ár verða liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey. Hápunktur margvíslegra minningarviðburða í bænum verður blysför frá Landakirkju annaðkvöld að Eldheimum þar sem gossins verður minnst með athöfn sem hefst klukkan 19:30.

Fréttir
Fréttamynd

Svona upplifðu Eyjamenn að vakna upp við eldgos

Fimmtíu ár verða liðin á mánudag, 23. janúar, frá upphafi eldgossins á Heimaey árið 1973, sem telja má einn af stærstu viðburðum Íslandssögunnar. Yfir fimm þúsund íbúar Vestmannaeyja þurftu í skyndi að yfirgefa heimili sín um nóttina þegar gossprunga opnaðist í jaðri byggðarinnar.

Innlent
  • «
  • 1
  • 2