Powerade-bikarinn

Sigurður í tveggja leikja bann vegna óviðeigandi hegðunar gagnvart Valskonum
Aga- og úrskurðarnefnd HSÍ hefur úrskurðað Sigurð Bragason, þjálfara toppliðs ÍBV í Olís-deild kvenna í handbolta, í tveggja leikja bann vegna óviðeigandi hegðunar hans eftir toppslaginn gegn Val fyrir rúmri viku.

Meistararnir mæta Haukum
Dregið var í undanúrslit Powerade-bikars karla og kvenna í handbolta í dag en úrslitin í keppninni ráðast með bikarveislu í Laugardalshöll 15.-18. mars.

„Sagði það sjálfur að ég ætlaði að vinna þennan leik“
Sigurður Dan Óskarsson, markmaður Stjörnunar í handbolta, átti hreint út sagt fullkomna innkomu í frábærum handboltaleik í TM Höllinni í Garðabæ í kvöld þegar að Stjarnan og Valur áttust við í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins.

Umfjöllun og myndir: Stjarnan - Valur 30-29 | Dramatískur endurkomusigur sló meistarana úr leik
Stjarnan varð í kvöld seinasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Powerade-bikarsins í handbolta er liðið vann dramatískan eins marks sigur gegn ríkjandi bikarmeisturum Vals, 30-29. Það var Gunnar Steinn Jónsson sem reyndist hetja Stjörnumanna þegar hann tryggði sigurinn þegar um þrjár sekúndur voru til leiksloka.

Stólpagrín gert að Monsa eftir klúðrið ótrúlega: „Vissi ekki að þetta væri hægt“
„Fyrst langaði mig til að hlæja en svo hugsaði ég; þetta var kannski svolítið vont,“ segir Úlfar Páll Monsi Þórðarson, leikmaður Aftureldingar, eftir sennilega ótrúlegasta klúður í sögu íslensks handbolta og þó víðar væri leitað.

Umfjöllun: KA - Afturelding 32-35 | Afturelding í Höllina eftir framlengdan spennutrylli
Afturelding tryggði sér sæti í undanúrslitum Powerade-bikarsins í handknattleik eftir sigur á KA í framlengdum leik fyrir norðan.

Umfjöllun og myndir: Haukar - Hörður 37-30 | Haukar í undanúrslit
Haukar unnu sjö marka sigur á Herði og eru komnir í undanúrslit Powerade-bikarsins í handbolta. Þrátt fyrir að hafa verið undir allan leikinn þá sýndi Hörður gæði inn á milli og voru aðeins einu marki undir í hálfleik. Haukar voru sterkari á svellinu í seinni hálfleik og unnu að lokum 37-30.

„Gaman að vera byrjaður að spila aftur og ég reyni að hjálpa liðinu“
Haukar tryggðu sér farseðilinn í undanúrslit í Powerade-bikarnum í handbolta. Tjörvi Þorgeirsson, leikmaður Hauka var ánægður með að hafa unnið leikinn sem var langt frá því að vera fullkominn.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - ÍBV 22-23 | ÍBV síðasta liðið í Höllina
ÍBV tryggði sér farseðilinn í undanúrslit Powerade-bikarsins þegar liðið vann eins marks útisigur á Stjörnunni 22-23. Eyjakonur voru yfir allan leikinn og þrátt fyrir að Stjarnan hafi komið til baka og ógnaði forskoti ÍBV var sigurinn verðskuldaður.

Stórt fyrir félagið og styrktaraðilana að komast í Höllina
ÍBV vann eins marks sigur á Stjörnunni 22-23. Þrátt fyrir að hafa verið yfir allan leikinn þá var Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV, ekki það sáttur með frammistöðu liðsins.

Haukar fóru auðveldlega í undanúrslitin
Haukar verða eitt fjögurra liða í undanúrslitum Powerrade-bikar kvenna í handknattleik eftir öruggan tólf marka sigur á Víkingi í kvöld.

Umfjöllun og viðtal: Fram - Valur 18-25 | Valur keyrði yfir Fram í seinni hálfleik
Valur verður á meðal liða í undanúrslitum Powerade-bikars kvenna í handknattleik eftir sjö marka sigur á Fram í 8-liða úrslitum í kvöld.

Íslands- og bikarmeistarar mætast í bikarnum
Stórleikur er á dagskrá í 8-liða úrslitum Powerade-bikars kvenna í handbolta. Þá eru hörkuviðureignir karlamegin einnig. Dregið var í hádeginu í dag.

„Lélegasta tölfræði sem aðstoðarmaður hefur skilað af sér“
Karlalið Vals í handbolta fagnar fríinu eftir mikið álag síðustu vikur. Meiðsli hafa hrjáð liðið síðustu vikur en liðið er þrátt fyrir það efst í Olís-deildinni, komið áfram í bikarnum og á góðan möguleika á áframhaldi í Evrópudeildinni á nýju ári.

Víðir komst ekki norður og KA heldur áfram í 8-liða úrslit Coca-Cola bikarsins
Veðrið er að setja strik í reikninginn fyrir landsmenn í dag og er handboltinn ekki undanþeginn því. Víðir úr Garði átti að fara norður til að keppa við KA í 16 liða úrslitum Coca-Cola bikarsins. Þeir komust ekki og því þurfti að gefa leikinn.

Umfjöllun: ÍBV - Valur 30-31 | Valsarar síðastir inn í átta liða úrslitin
Valur vann ÍBV með minnsta mun 30-31 og tryggði sér farseðilinn í átta liða úrslit bikarsins. Meistararnir voru með leikinn í hendi sér í seinni hálfleik en Eyjamenn gerðu vel í að koma til baka og fengu síðustu sókn leiksins til að jafna leikinn en allt kom fyrir ekki og Valur fór áfram.

Hörður áfram í bikarnum
Hörður frá Ísafirði lagði Kórdrengi í Coca Cola-bikar karla í handbolta í kvöld, lokatölur 25-38.

„Mér líður alls ekki vel“
Þórir Ólafsson, þjálfari Selfoss, var skiljanlega ekki eins glaður og Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, þegar hann ræddi við undirritaðan í leikslok. Leiknum lauk með sex marka sigri ÍR sem þýðir að Selfoss er fallið úr leik í Coca Cola-bikar karla í handbolta.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Selfoss 34-28 | Heimamenn áfram eftir nokkuð óvæntan sigur
ÍR er kannski í fallsæti Olís deildarinnar en er komið í 8-liða úrslit í bikarnum eftir frábæran sigur gegn Selfossi í Skógarseli í kvöld.

„Þetta var frábær sigur, þó að leikurinn sjálfur var það ekki“
Stjarnan sigraði FH með minnsta mun í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarkeppni karla í handbolta í kvöld og tryggði sér þar með farseðilinn í 8-liða úrslitin. Lokatölur í Kaplakrika 23-24 og eðlilega var Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, kampakátur í leikslok.

Afturelding áfram eftir magnaðan leik | Hauka unnu Víking
Afturelding er komið áfram í Coca Cola-bikar karla í handbolta eftir magnaðan útisigur á HK, lokatölur 43-44 eftir vítakeppni. Þá unnu Haukar fimm marka útisigur á Víking, lokatölur 27-32.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Stjarnan 23-24 | Stjörnumenn áfram með minnsta mun
Stjarnan tryggði sér farseðilinn í 8-liða úrslit í bikarkeppni karla með baráttusigri á FH-ingum í Kaplakrika í kvöld. Heimamenn voru með yfirhöndina fyrstu tuttugu mínútur leiksins en á stuttum kafla náðu gestirnir að jafna. Eftir endurkomu Stjörnumanna var jafnt á öllum tölum út leikinn. Stjarnan náði að sigra að lokum með minnsta mun, 24-23, og fara áfram í bikarkeppninni. Þetta er í annað sinn í þessari viku sem liðin eigast við en þau áttu kappi á mánudag. Sá leikur var í Olís-deildinni og lauk með jafntefli.

ÍBV í átta liða úrslit eftir öruggan sigur
ÍBV vann öruggan átta marka sigur er liðið tók á móti KA/Þór í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikars kvenna í handbolta í kvöld, 33-25.

Stórleikur í Eyjum og KA spilar í Garði
Það verður sannkallaður stórleikur í Vestmannaeyjum í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í handbolta eftir tæpan mánuð þegar ÍBV tekur á móti meisturum Vals.

Stjarnan, Haukar, HK og Selfoss í átta liða úrslit
Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð bikarkeppni HSÍ í kvennahandboltanum í kvöld þar sem Stjarnan, Haukar, HK og Selfoss tryggði sér sæti í átta liða úrslitum.

FH, Fram og Afturelding á leið í 16-liða úrslit
FH, Fram og Afturelding eru á leið í 16-liða úrslit bikarkeppni HSÍ eftir sigra sína í kvöld. FH vann nauman þriggja marka sigur gegn Gróttu í Olís-deildarslag, 25-22, Fram vann Grill66-deildarlið Fjölnis á útivelli, 29-33, og Afturelding vann öruggan tíu marka sigur gegn Grill66-deildarliði Þórs frá Akureyri, 21-31.

Þrettán fengu frímiða en tvö Olís-deildarlið mætast
Dregið var í fyrstu umferð bikarkeppni karla í handbolta í dag en þar eru þó aðeins þrjár viðureignir á dagskrá.

Ágúst Þór Jóhannson: „Ég held við höfum unnið ansi sanngjarnan sigur“
Valskonur eru meistarar meistaranna eftir frábæran sigur á Fram í nýju Framhúsi í Úlfársdalnum fyrr í dag. Valur var með yfirhöndina allan tímann og sigldu þær sigrinum heim. Lokatölur 19-23. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, var virkilega sáttur með sitt lið í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Fram 19-23 Valur | Valur er meistari meistaranna
Valur vann fyrsta bikar vetursins er þær unnu Fram í uppgjöri meistara meistaranna, 19-23. Fram varð Íslandsmeistari á síðustu leiktíð á meðan að Valur vann bikarmeistaratitilinn. Valskonur voru með yfirhöndina allan leikinn en eftir að hafa verið yfir með tveimur mörkum í hálfleik sigldu þær öruggum sigri heim.

Umfjöllun: Valur-KA 37-29 | Hlíðarendapiltar unnu öruggan sigur í Meistarakeppni HSÍ
Handboltatímabilið hófst formlega þegar Valur og KA mættust í Meistarakeppni HSÍ að Hlíðarenda. Íslands- og bikarmeistarar Vals unnu öruggan átta marka sigur, lokatölur 37-29. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.