Rekstur hins opinbera

Þingmenn flytja og húsgögnin sett á sölu
Stefnt er að því að ný bygging Alþingis verði tekin í notkun fyrir mánaðamót. Starfsmenn þingsins eru orðnir spenntir að flytja starfstöðvar sínar en gert er ráð fyrir að byggingin spari ríkið níutíu milljónir á hverju ári.

„Rúmir 140 milljarðar frá greininni beint inn í skattkistur ríkis og sveitarfélaga“
Síðasta sumar var næstfjölmennasta ferðamannasumarið frá því að mælingar hófust samkvæmt nýrri samantekt Ferðamálastofu. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir mörg jákvæð teikn á lofti líkt og dreifing ferðamanna yfir árið auk þess sem verðmætin séu meiri á hvern ferðamann. Áskoranir séu þó enn vissulega til staðar.

Segir ráðherra hafa beitt sig undirróðri og fautaskap
Markús Ingólfur Eiríksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) hefur stefnt ríkinu og Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra vegna þess sem hann kallar ranglæti og óeðlilegan þrýsting í tengslum við ólögmæta uppsögn.

ÍL-sjóður tapaði 13,2 milljörðum á fyrri hluta árs
Afkoma ÍL-sjóð á fyrstu sex mánuðum ársins var neikvæð sem nemur 13,2 milljörðum króna samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé þann 30. júní 2023 var neikvætt um 243.916 milljónir króna samanborið við neikvætt eigið fé að fjárhæð 230.704 milljónir króna í ársbyrjun.

Kennari á hvern nemenda fjörutíu prósent dýrari á Íslandi
Meðallaunakostnaður íslenskra grunnskólakennara á hvern nemanda er fjörutíu prósent hærri en meðaltal OECD-ríkjanna. Þetta kom fram á vef Stjórnarráðsins á dögunum sem birti tilkynningu vegna skýrslu OECD um stöðu menntunar innan ríkja stofnunarinnar.

Vandað verklag við aðhald í ríkisrekstri
Áform stjórnvalda um aðhald í ríkisrekstri eru ekki ný af nálinni og koma iðulega til tals í tengslum við fjárlagafrumvarp hvers tíma. En umræða um þau flýgur oft hærra þegar kjarasamningar eru á næsta leiti.

RÚV þverneitar að borga og hafnar kröfum BÍ
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, hefur misst þolinmæðina í viðræðum sínum við Ríkisútvarpið. Hún sendi nýverið bréf til starfsmanna RÚV þar sem hún gerir grein fyrir stöðu mála.

Hljóðfæraleikarar landa kjarasamningi við ríkið
Samningar hafa náðst í kjaradeilu hljóðfæraleikara Sinfoníuhljómsveitar Íslands við ríkið. Skrifað var undir samninga hjá ríkissáttasemjara á sjöunda tímanum í kvöld.

Stórtækar umbætur í fangelsismálum
Framundan eru stórtækar umbætur í fangelsismálum hérlendis með það að markmiði að byggja upp fangelsi og fullnustukerfi sem sæmir nútímaþjóðfélagi, með bætt öryggi og aðstöðu til betrunar að leiðarljósi.

Nýttu sér forkaupsrétt á einu elsta húsinu á Þingvöllum
Þingvallanefnd ákvað í vor að nýta sér forkaupsrétt á sumarbústað við Valhallarstíg og greiddi 40 milljónir króna fyrir húsið. Skoðað verður að vera með rekstur í húsinu.

Störf Markúsar og Gylfa auglýst til umsóknar
Embætti forstjóra tveggja heilbrigðisstofnana hafa verið auglýst til umsóknar. Annar núverandi forstjóra hefur tilkynnt það að hann sé að hætta en hinn hefur greint frá ágreiningi við heilbrigðisráðherra.

Ráðuneytið skoðar niðurgreiðslu á Húsavíkurflugi
Innviðaráðuneytið og sveitarfélögin Norðurþing og Þingeyjasveit kanna möguleika á því að styðja flug til Húsavíkur afmarkað yfir vetrarmánuðina. Flugfélagið Ernir hefur haldið úti reglubundnu áætlunarflugi milli Reykjavík og Húsavíkur síðan 2012.

Hvers vegna má ekki ræða hagræðingu?
Síðustu daga hefur sprottið upp mikil og ekki síður mikilvæg umræða um framtíð menntunar og menntastofnana. Menntamálaráðherra ákvað í lok apríl síðastliðnum að setja af stað könnun um aukið samstarf eða sameiningu nokkurra framhaldsskóla á landinu.

Bein útsending: Áskoranir og tækifæri sveitarfélaga á Fjármálaráðstefnu
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga fer fram á Hilton Reykjavík Nordica í dag og á morgun. Þar kemur sveitarstjórnarfólk saman til skrafs og ráðagerða varðandi fjármál og verkefni sveitarfélaga, ásamt því að ræða þau mál sem efst ber á baugi í sveitarstjórnarmálum.

Lægstu barnabætur aldarinnar?
Í Sprengisandi á sunnudaginn tókust á formenn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar um fjárlagafrumvarpið. Nokkrum mínútum vörðu formennirnir í að ræða velferðarkerfið og lét Kristrún Frostadóttir eftirfarandi orð m.a. falla.

Má Landsvirkjun henda milljörðum?
Viðhorf til kerfis upprunaábyrgða, þessa einfalda bókhaldskerfis sem orkufyrirtæki þjóðarinnar hagnast vel á, hefur því miður mótast að hluta af upplýsingaóreiðu og falsfréttum.

„Kerfið hefur leitt til ákveðinnar sóunar“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra, kynnti í dag gagngera kerfisbreytingu á fjármögnun háskólanna sem hún segir forsendu þess að íslenskir háskólar geti náð enn betri árangri. Gagnsæi hins nýja fyrirkomulags tryggi það að skólarnir sjái að meiri og betri árangur skili þeim auknu fjármagni.

Bein útsending: Boðar umfangsmikla kerfisbreytingu í fjármögnun háskóla
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur boðið til blaðamannafundar í dag 18. september klukkan 10:30 í Sykursalnum í Grósku. Á fundinum verður kynnt umfangsmikil kerfisbreyting á úthlutun fjármagns til háskóla.

Þurfa að greiða fyrir tímann sem starfsmaður varði í flugvél
Landsréttur hefur viðurkennt að starfsmaður hafi átt að fá greitt fyrir þann tíma sem hann varði í flugvélum í vinnuferð.

Listasafnið mögulega í gamla Landsbankahúsið
Ríkisstjórnin hyggst kanna fýsileika þess að gera breytingar á húsnæði opinberra stofnanna. Það sem er til skoðunar er meðal annars að Listasafn Íslands flytji í gamla Landsbankahúsið, að Hæstiréttur fari í Safnahúsið og að húsnæði Hæstaréttar geti nýst fyrir Landsrétt. Forsætisráðherra kveðst bjartsýn á mögulegar breytingar á stjórnarskrá.

Settur forstjóri segir upp fjórum starfsmönnum
Fjórum starfsmönnum Ríkiskaupa var sagt upp störfum á föstudag í síðustu viku. Settur forstjóri stofnunarinnar segir uppsagnirnar komnar til af rekstrarlegum ástæðum.

„Sterk rök“ fyrir því að lánshæfismat ríkisins muni hækka frekar á næstunni
Fjármála- og efnahagsráðherra tekur undir með meðal annars seðlabankastjóra og bankastjóra Arion banka um færa megi fyrir því gild rök að lánshæfismat ríkissjóðs sé lægra en við ættum skilið miðað við styrk hagkerfisins og Ísland njóti þar ekki „sannmælis“ sé litið til samanburðar við aðrar þjóðir. Fjölbreyttari útflutningsstoðir og sá viðnámsþróttur sem hagkerfið hefur sýnt eftir faraldurinn gefur væntingar um að lánshæfieinkunn ríkisins muni hækka enn frekar á næstunni.

„Það er ekki endalaust til, háttvirtur þingmaður“
Formaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina setja velferðina á ís með nýju fjárlagafrumvarpi. Fjármálaráðherra segir hana tala með óábyrgum hætti um opinber fjármál.

Segja rangt að Samtökin '78 fái ekki fjárveitingu
Forsætisráðuneytið segir alrangt að fjárframlagi sé ekki úthlutað til verkefna Samtakanna '78 í fjárlögum næsta árs. Samtökin fái þó minna á næsta ári en þessu.

„Þetta er gríðarlegt högg“
Framkvæmdastjóri Samtakanna '78 segir það gríðarlegt högg að sjá að fjárframlagi sé ekki úthlutað til verkefna samtakanna í fjárlagafrumvarpi ársins 2024. Hann kveðst þó vongóður um að því fáist breytt, verkefni samtakanna haldi áfram að stækka líkt og umræðan síðustu daga sýni fram á.

Hjalteyrarbörnin fá 410 milljónir
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2024 er gert ráð fyrir að 410 milljónum króna verði ráðstafað til uppgjörs sanngirnisbóta vegna Hjalteyrarmálsins.

Skilur ekkert í yfirlýsingum um aðhald í ríkisfjármálum
Formaður Miðflokksins gefur lítið fyrir yfirlýsingar fjármálaráðherra um aðhald í ríkisfjármálum þegar fjárlagafrumvarpið var kynnt. Þingmaður Viðreisnar segir lítið nýtt í frumvarpinu.

Helmingshækkun á stuðningi til einkarekinna fjölmiðla
Gert er ráð fyrir helmingshækkun á stuðningi við einkarekna fjölmiðla á milli ára í nýju fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2024. Útvarpsgjald hækkar um 3,5 prósent á milli ára.

Persónuafsláttur og þrepamörk hækka
Gert er ráð fyrir því í ársbyrjun 2024 að persónuafsláttur hækki um rúmlega fimm þúsund krónur á mánuði og að skattleysismörk hækki um rúmlega 16 þúsund krónur.

Gistináttaskattur á skemmtiferðaskip í fyrsta sinn
Gistináttaskattur sem felldur var niður á tímum heimsfaraldurs verður tekinn aftur upp um áramót. Þá mun hann einnig leggjast á skemmtiferðaskip, í fyrsta sinn. Áætlað er að hann skili 1,5 milljarði króna í þjóðarbúið.