Gilgo Beach-raðmorðinginn

Ákærður fyrir sjöunda morðið
Rex Heuermann, sem grunaður er um að hafa framið Gilgo Beach morðin svokölluðu, hefur verið ákærður fyrir sjöunda morðið. Saksóknarar segja Heuermann vera raðmorðingja og er nú sakaður um morðið á vændiskonunni Valerie Mack, sem hvarf fyrir rúmum tveimur áratugum.

Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum
Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona Rex Heuermann sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu, hyggst selja hús þeirra hjóna á Long Island þar sem talið er að voðaverkin hafi verið framið.

Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga
Lögmaður Rex Heuermann, sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu svokallaða, vill að lífsýni í málinu verði útilokuð frá réttarhöldunum. Í dómsal í Suffolk-sýslu í New York í gær, lýsti lögmaðurinn tækninni sem notuð var við að bendla Heuermann við morðin við „töfra“.

Tvær ákærur bætast við í máli Rex Heuermann
Rex Heuermann verður ákærður fyrir tvö manndráp til viðbótar í dag fyrir dómstóli í New York en ákærurnar gegn Heuermann verða því sex talsins. Þetta herma heimildir fréttastofu News 12 á Long Island.

Ása segist ætla að leyfa eiginmanni sínum að „njóta vafans“
Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona mannsins sem er grunaður um að vera Gilgo Beach-raðmorðinginn, sendi frá sér yfirlýsingu á miðvikudag þar sem hún segist ætla að leyfa manninum sínum að „njóta vafans“.

Gilgo-Beach morðinginn líklega ákærður í fjórða manndrápsmálinu
Rex Heuermann á von á fjórðu ákærunni fyrir manndráp en en hann er grunaður um Gilgo-Beach morðin svokölluðu. Áður hafði hann verið ákærður fyrir manndráp þriggja kvenna en líkamsleifar þeirra fundust á svipuðum tíma á Gilgo-ströndinni í New York.

Lífsýni úr Ásu við lík fórnarlambs Heuermanns
Lífsýni sem var tekið af Ásu Ellerup, íslenskri eiginkonu Rex Heuermann grunaðs raðmorðingja, er samskonar lífsýni sem fundust við lík fórnarlambs eiginmanns hennar, sem hefur hlotið viðurnefnið Gilgo Beach-morðinginn.

Ása Guðbjörg fær 140 milljónir fyrir þátttöku í heimildarmynd
Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona meinta raðmorðingjans Rex Heuermann, og uppkomin börn þeirra hafa samþykkt að gerð verði heimildarmynd um þau meðan réttarhöld yfir Heuermann fara fram.

Ása krefur FBI um bætur eftir leit á heimilinu
Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona hins grunaða raðmorðingja Rex Heuermann, hefur stefnt bandarísku alríkislögreglunni og krafist bóta vegna tjóns sem varð á heimili Ásu í sumar. Tjónið hlaust þegar alríkislögreglan, FBI, gerði tólf daga húsleit í tengslum við rannsóknina á Heuermann.

„Hann er ekki sekur“
Rex Heuermann, sem grunaður er um Gilgo Beach-morðin svokölluðu, mætti fyrir dómara í New York í gær. Um var að ræða undirbúning fyrir komandi réttarhöld yfir honum, þar sem hann er sakaður um að hafa myrt minnst þrjár konur.

Ása opnar sig um lífið eftir handtökuna
Ása Ellerup, eiginkona hins grunaða raðmorðingja Rex Heuermann, segir dagana eftir handtöku Heuermann hafa verið ólýsanlega. Hún hafi ekki vitað hvar hún væri. Ása þakkar almenningi fyrir veittan stuðning.

Kettir Ásu fjarlægðir og komið fyrir í „dauðaathvarfi“
Lögreglan í New York-ríki Bandaríkjanna tók tvo ketti Ásu Ellerup, eiginkonu Rex Heuermann, og kom þeim fyrir á dýraathverfi þar sem dýrin eru drepin finni þau ekki nýjan eiganda. Heuermann er grunaður raðmorðingi, en það var í húsleit lögreglu á heimili hans og Ásu þar sem kettirnir voru fjarlægðir.

Óttast að móðir þeirra hafi verið síðasta fórnarlambið
Ættingjar og vinir konu sem hefur verið saknað um árabil óttast að hún hafi verið fórnarlamb Rex Heuermann, sem er grunaður um að myrða fjölda kvenna. Lögreglan vestanhafs rannsakar nú hvort mál konunnar og Heuermann tengist, og þá hvort hún hafi verið síðasta fórnarlamb hans.

Báru kennsl á 27 ára gamlar líkamsleifar á Gilgo ströndinni
Lögregluyfirvöld í Suffolk-sýslu í New York tilkynntu í dag að tekist hefði að bera kennsl á líkamsleifar sem fundust á Gilgo ströndinni á árunum 1996 til 2011. Fyrst fundust fætur í poka og svo bein á árunum 2010 og 2011. Líkamsleifar fjögurra kvenna sem Rex Heuermann er grunaður um að hafa myrt fundust á sama stað.

Reiknað með löngum réttarhöldum í máli Heuermann
Rex Heuermann, hinn meinti Gilgo Beach raðmorðingi, mætti í dómsal í skamma stund í gær. Saksóknarar afhentu lögmönnum hans átta terabæti af sönnunargögnum til yfirferðar.

Ása búin að tala við Rex
Ása Ellerup, eiginkona hins grunaða raðmorðingja Rex Heuermann, hefur rætt við hann eftir handtökuna. Ekki er vitað hvað um hvað þau ræddu.

Skemmdir lögreglu svo miklar að hún eigi ekki rúm til að sofa í
Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona Rex Heuermann, grunaða Gilgo Beach-raðmorðingjans, segir að varla sé hægt að búa á heimilinu eftir að lögreglan lauk þar rannsókn sinni í kjölfar handtöku Heuermann. Skemmdirnar séu svo miklar.

Ása þreytt á áreiti gulu pressunnar við heimili hennar
Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona meinta Gilgo Beach-raðmorðingjans Rex Heuermann, sást fyrir framan hús þeirra í bænum Massapequa Park í New York fylki í gærmorgun. Þegar fréttamenn gáfu sig á tal við hana við húsið brást hún ósátt við og lyfti löngutöng.

Heuermann til rannsóknar vegna fjögurra morða í Atlantic City
Lögreglan í Bandaríkjunum er nú með það til rannsóknar hvort að Rex Heuermann hafi myrt fjórar konur í borginni Atlantic City í New Jersey árið 2006. Heuermann heimsótti borgina oft og fór á nektardansklúbba.

Sekta fólk sem tekur myndir af húsi Heuermann
Lögreglan í Nassau sýslu í New York hefur ákveðið að sekta þá sem stoppa og mynda hús Rex Hauermann sem grunaður er um að vera raðmorðingi. Sektin er 150 dollarar, eða 20 þúsund krónur.

Fagnar handtöku mágs síns og hugsar til frændsystkina
Hálfsystir Ásu Guðbjargar Ellerup, eiginkonu grunaða raðmorðingjans Rex Heuermann, segir að hún sé í áfalli eftir að mágur hennar var handtekinn og ákærður fyrir þrjú morð.

Sækir um skilnað frá grunuðum raðmorðingja
Íslensk kona sem gift er grunuðum raðmorðingja hefur sótt um skilnað. Ása Guðbjörg Ellerup er gift Rex Heuermann en hann hefur verið ákærður fyrir að myrða þrjár konur og er grunaður um að hafa myrt þá fjórðu í „Gilgo Beach morðunum“ svokölluðu.

Systir Ásu Ellerup: „Við höfum ekki heyrt neitt frá henni“
Fjölskylda Ásu Ellerup, eiginkonu Rex Heuermann, hefur enga hugmynd um hver staðan er á henni þessa dagana eða hvar hún er niðurkomin. Þetta kemur fram í frétt á vef Daily Mail þar sem rætt er við Jóhönnu Ellerup, systur Ásu og mágkonu Heuermann.

Ýmist lýst sem ógnvekjandi nágranna eða tryggum fjölskylduföður
Það tók rannsakendur fimmtán ár að komast á snoðir um það hver morðinginn, að baki „morðunum á Gilgo ströndinni“, væri. Rannsakendur telja sig hafa fundið morðingjann, Rex Heuermann, sem hefur lifað tvöföldu lífi á Long Island í New York undanfarna áratugi. Honum er bæði lýst sem samviskusömum fjölskyldumanni og ógnvekjandi nágranna með stuttan þráð.

Grunaður raðmorðingi giftur íslenskri konu
Maðurinn, sem handtekinn var í New York í gær og er ákærður fyrir að myrða þrjár konur, er giftur íslenskri konu. Spjótin beindust meðal annars að honum vegna DNA-sýnis sem fannst á konunum þremur og talið er vera af íslensku konunni.

Skæður raðmorðingi loks gómaður
Lögreglan í New York hefur handtekið mann sem grunaður er um aðild að „Morðunum á Gilgo Beach“ svokölluðu. Hann er talinn hafa myrt nokkrar konur en líkamsleifar ellefu manns hafa fundist við rannsókn morðanna frá árinu 2010.