
Átök í Ísrael og Palestínu

Segja Ísraelsmenn fremja þjóðarmorð á Gaza
Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Amnesty International segja Ísraelsmenn hafa framið, og halda áfram að fremja, hópmorð gegn Palestínumönnum á Gaza. Hópmorð eru jafnan kölluð þjóðarmorð í daglegu tali. Samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna hafa ísraelsk stjórnvöld gengið fram í þeim tilgangi að útrýma Palestínubúum á Gaza.

Engin greinarmunur gerður á Líbanon og Hezbollah ef friðurinn heldur ekki
Varnarmálaráðherra Ísrael segir að ef til þess kemur að vopnahléið við Hezbollah í Líbanon haldi ekki, muni stjórnvöld ekki gera greinarmun á Hezbollah annars vegar og Líbanon hins vegar.

Stúlka frá Gaza sem að missti allt
Ég hefði átt að fæðast í borginni Be’er Sheva, en í staðinn fæddist ég í borginni Khan Younis á Gaza, af því að Ísraelar ráku forfeður mína frá Be’er Sheva árið 1948, þegar þeir hertóku borg afa míns.

Hvernig getur þú stutt þjóðarmorð?
Öll vitum við að árangursríkasta leiðin til að styðja þjóðarmorð er ekki að segja beint út „ég styð þjóðarmorð“. Það sama á við um þá sem ætla að fremja þjóðarmorð. Þeir segja ekki „ég ætla að fremja þjóðarmorð“, þeir segja „við verðum að drepa alla þá sem ógna okkur og því miður munum við í leiðinni drepa öll börnin þeirra, frændur, frænkur, foreldra, afa og ömmur, en það er í raun þeim sem ógna okkur að kenna.“

Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna
Vopnahlé sem tók gildi milli Ísraela og Hezbollah í nótt hefur haldið að mestu í dag, þó það þyki brothætt og að Ísraelar hafi varpað sprengjum á tvö þorp í suðurhluta Líbanon. Fólk sem þurft hefur að flýja heimili sín streymir til suðurs þó herir bæði Ísrael og Líbanon hafi varað fólk við því.

Hveitipoki á fjörutíu þúsund
Kæru samborgarar. Ég er ekki í framboði. Þessa grein má lesa sem eins konar skilaboð til ykkar sem hryllir yfir því sem er að gerast í Palestínu og finnið til samkenndar með fólkinu sem bókstaflega berst fyrir lífi sínu á hverjum degi.

Fyrirtæki sem stundar stórfelld mannréttindabrot í Palestínu haslar sér völl á Íslandi
Þýska fjölþjóðlega fyrirtækið Heidelberg Cement hyggst hefja tröllaukið verkefni á Íslandi. Starfsemin felst í stórfelldum efnisflutningum, áformað er að moka burtu Litla-Sandfelli í Þrengslum og flytja um Þorlákshöfn með flutningsskipum út til Evrópu og nota sem íblöndunarefni í sement.

Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim
Vopnahlé á milli Ísraela og Hezbollah samtakanna í Líbanon tók gildi klukkan fjögur í nótt.

Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum
Ísraelski herinn tilkynnti í dag umfangsmiklar loftárásir í Beirút, höfuðborg Líbanon. Þær voru tilkynntar skömmu áður en Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, mun funda með ráðherrum sínum um mögulegt vopnahlé milli Ísraela og Hezbollah-samtakanna.

Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé
Ísraelsríki og Hezbollah-samtökin eru sögð nálgast samkomulag um vopnahlé. Axos-fréttastofan hefur eftir bandarískum embættismanni að skilmálar vopnahlésins liggi fyrir þó enn eigi eftir að staðfesta þá.

Ákall um aðgerðir gegn þjóðarmorði í Gaza
Ástandið í Gaza er skelfilegt og kallar á tafarlaus viðbrögð. Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna hefur lýst aðgerðum Ísraels á Gaza sem þjóðarmorði, þar sem fjöldi brota gegn alþjóðalögum og mannréttindum hefur verið staðfestur.

Hezbollah svarar Ísrael með umfangsmikilli loftárás
Sjö særðust í umfangsmikilli árás Hezbollah á Ísrael í gær en samtökin eru talin hafa skotið um 250 eldflaugum og drónum yfir landamærin. Sumar eldflauganna náðu til Tel Aviv.

Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir Ísland virða sjálfstæði og ákvarðanir Alþjóðlega sakamáladómstólsins í Haag sama hver eigi í hlut. Dómstóllinn gaf í fyrradag út handtökuskipanir á hendur Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael, Yoav Gallant fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins, og þremur leiðtogum Hamas, sem allir eru taldir látnir.

Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt
Umfangsmikil loftárás Ísraela í Beirút í Líbanon í nótt jafnaði fjölbýlishús við jörðu. Að minnsta kosti ellefu eru látnir og rúmlega tuttugu særðir en talið er að báðar tölur muni hækka.

„Tími til kominn að taka afstöðu gegn Ísrael“
Íþróttir eru ef til vill bitlaust verkfæri til að knýja fram samfélagsbreytingar en það er kominn tími til að taka afstöðu gegn Ísrael. Svona hljómar þýdd fyrirsögn pistilsins sem Jonathan Liew, íþróttablaðamaður The Guardian, birti á föstudag.

Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum
Ráðamenn í Ísrael hafa brugðist reiðir við ákvörðun dómara Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) að gefa út handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísrael. Báðir eru sakaðir um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu á Gasa, þar sem Ísraelar hafa verið að gera mannskæðar árásir í rúmt ár.

Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú
Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Haag hefur gefið út handtökuskipanir á hendur Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, Yoav Gallant, fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísrael, og gegn Mohammed Diab Ibrahim Al-Masri og tveimur öðrum leiðtogum Hamas-samtakanna sem er dánir.

Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur heitið þeim fimm milljónir dala sem frelsar gísl úr prísund sinni á Gasa. Þá lofar hann því að viðkomandi og fjölskylda hans fái að yfirgefa Gasa og komast í öruggt skjól.

Líbönsk landsliðskona lífshættulega slösuð eftir árás Ísraelsmanna
Celine Haidar berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi eftir að hafa særst illa í sprengjuárás Ísraelsmanna í suðurhluta Berút.

Hjálpargögnum stolið af tæplega hundrað flutningabifreiðum
Ráðist var gegn bílalest 109 flutningabifreiða á vegum Sameinuðu þjóðanna í gær, sem voru að flytja hjálpargögn til Gasa. Ökumenn 97 bíla voru neyddir til að afhenda byssumönnum hjálpargögnin skömmu eftir að hafa ekið um Karem Shalom hliðið.

Felldu talsmann Hezbollah í miðborg Beirút
Aðaltalsmaður Hezbollah-samtakanna féll í loftárás Ísraelshers á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar hafa gert harðar árásir á Líbanon undanfarnar vikur en fæstar þeirra hafa verið á miðborgina.

Kom til handalögmála í París
Á ýmsu gekk í kringum leik Frakklands og Ísrael í Þjóðadeild karla í fótbolta í gærkvöld. Síst inni á vellinum.

Friðhelgar fótboltabullur
Viðbrögð vestrænna leiðtoga og fjölmiðla í eigu milljarðamæringa vegna ofbeldis glæpalýðsins sem fylgdi ísraelska knattspyrnuliðinu Maccabi Tel Aviv til Amsterdam sýnir okkur stöðuna í hnotskurn.

11.11. - Aldrei aftur stríð
Það var á þessum degi 1918, í lok heimstyrjaldarinnar fyrri sem krafan ALDREI AFTUR STRÍÐ hljómaði um heim allan.

„Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon
Gideon Saar, utanríkisráðherra Ísrael, sagði í gær að „ákveðinn árangur“ hefði náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon. Talsmenn Hezbollah staðfesta að viðræður eigi sér stað en segja engar ákveðnar tillögur liggja fyrir að svo stöddu.

Hætta sem sáttasemjarar í deilu Ísraela og Hamas
Ríkisstjórn Katar hefur tilkynnt Bandaríkjamönnum og Ísraelum að ríkið muni hætta hlutverki sínu sem sáttasemjari í deilu Ísraela og Hamas-samtakanna. Telur ríkisstjórnin að viðræður séu til einskis á meðal aðilar séu ekki í góðri trú.

„Enginn mótmælenda ógnaði lögreglumönnum eða réðist að þeim“
Fyrirtaka fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli níu einstaklinga sem krefjast miskabóta vegna framgöngu lögreglu á mótmælum þann 31. maí í Skuggasundi, við fund ríkisstjórnarinnar, vegna ástandsins á Gasa. Þar voru um 40 mótmælendur beittir piparúða. Þrír fóru á slysadeild og tveir fengu aðhlynningu sjúkraliða á vettvangi.

Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam
Fimm hafa verið fluttir á sjúkrahús og á sjöunda tug manna hafa verið handteknir eftir að óeirðarseggir réðust á stuðningsmenn ísraelska fótboltaliðsins Maccabi Tel Avív í Amsterdam í Hollandi í gærkvöldi.

Netanjahú rekur varnarmálaráðherrann
Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísraels, hefur verið gert að víkja úr starfi af Benjamín Netanjahú forsætisráðherra.

Þöggun
Síðastliðinn laugardag, 2.nóvember var alþjóðegur baráttudagur gegn refsileysi glæpa á blaðamönnum og mótmælti hópur fólks, af því tilefni, með táknrænum gjörningi fyrir utan Útvarpshúsið.