

Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari, var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 28. nóvember. Hann er grunaður um ellefu kynferðisbrot og stórfelld auðgunarbrot.
Fyrirtaka var í máli Sigurðar Inga Þórðarsonar, oft nefndur Siggi hakkari, í Héraðsdómi Reykjaness í dag en þá lagði ákæruvaldið fram vitnalista.
Sigurður lýsir yfir sakleysi sínu í fjórtán ákæruliðum af átján.
Sigurður Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari, var í ítarlegu viðtali sem birtist í danska miðlinum Politiken.
Ákæra á hendur Sigurði Inga Þórðarsyni, sem oft er nefndur Siggi hakkari, var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness í morgun.
Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari er sakaður um að hafa svikið út mat frá American Style, KFC, Subway, Domino's og fleiri skyndibitastöðum á árunum 2012 og 2013.
Sigurður Ingi Þórðarson er sakaður um að hafa svikið út notkun á lúxusbílum á borð við Land Cruiser 150, Audi A6, Volvo XC90 og Ford Explorer. Allir bílarnir voru nýir þegar meint svik áttu sér stað.
Ákæruliðirnir eru átján og skipta undirliðirnir tugum.
Brotin sem Siggi er grunaður um eru grófari en þau sem hann var dæmdur fyrir í gær.
Sigurður Ingi Þórðarson, eða Siggi hakkari eins og hann hefur verið kallaður, var sakfelldur í Hæstarétti fyrir kynferðisbrot með því að hafa með blekkingum tælt dreng, sem þá var 17 ára.
Sigurður Ingi Þórðarsonar, betur þekktur sem Siggi hakkari, viðurkennir að hafa stolið og lekið gögnum Milestone, fyrirskipað árásir á heimasíður íslenskra stofnana og greinir frá því hvernig hann sveik Julien Assange í ítarlegu viðtali sem birt verður í tímaritinu Rolling Stone síðar í janúar.
Saksóknari krefst tíu til tólf mánaða fangelsis, aðallega skilorðsbundins, yfir mönnum sem reyndu að kúga fé af Nóa Síríusi með súkkulaði sem innihélt bremsuvökva. Annar segir raunverulegan höfuðpaur málsins hafa platað sig upp úr skónum.
Tveir menn stungu umslagi inn um lúguna hjá forstjóra Nóa Síríuss með bremsuvökvamenguðu Pipp-súkkulaði og bréflegri kröfu um tíu milljóna greiðslu. Þeir voru handteknir eftir að hafa sótt pakka sem þeir töldu að innihéldi peningana.
Segir það rangt að brjótast inn í tölvukerfi og stela upplýsingum í miklu magni.
Vefsíðan Wired fjallar í dag um mál Sigurðar Þórðarssonar, sem betur er þekktur sem Siggi hakkari.
„Ég var alltaf varkár,“ segir Sigurður Þór Helgason, eigandi iStore á Íslandi en hann er einn af mörgum sem Sigurður Ingi Þórðarson, stundum kallaður Siggi Hakkari, á að hafa svikið fé út úr.
Sigurður Ingi Þórðarson hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir stórfelld fjársvik. Meðal annars á hann að hafa þóst vera bókaútgefandi auk þess sem uppljóstrunasamtökin WikiLeaks hafa kært hann.
Var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald fyrir helgi.
"Ég er mjög undrandi eftir fundinn, og er eiginlega bara leið.“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um fund allsherjar- og menntamálanefndar sem fundaði í síðasta sinn á kjörtímabilinu um FBI-málið svokallaða á nefndasviði Alþingis í morgun.
Björgvin G. Sigurðsson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segir skýrslugjöf Sigurðar Inga Þórðarsonar varpa skýrara ljósi á málsatvik er tengjast stóra FBI-málinu svokallaða. Nefndin kannar málið þar sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra afturkallaði svokallaða réttarbeiðni FBI mannanna þegar þeir voru hér á landi sumarið 2011.
Sigurður Ingi Þórðarson kom í fylgd tveggja lífvarða á nefndasvið Alþingis í morgun þegar hann gaf Allsherjar- og menntamálanefnd skýrslu vegna aðkomu sinnar að stóra FBI-málinu svokallaða. Sigurður Ingi hefur hingað til verið kallaður Siggi hakkari í fjölmiðlum en hann virðist hafa verið nokkurskonar uppljóstrari alríkislögreglunnar.
"Við teljium að það hafi tekist að afstýra árásinni," sagði Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, spurður hvort hann teldi að það hefði verið framin tölvuárás hér á landi.
"Það sem skiptir máli er það að hingað vaða ekki inn erlend lögreglulið til þess að yfirheyra íslenska borgara án þess að hafa til þess leyfi þar til bærra stjórnvalda," sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á Alþingi í dag.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kom heim frá Kína í gærdag og hefur fundað stíft síðan þá vegna FBI-málsins svokallaða. Hann hefur meðal annars setið fundi með Sigríði J. Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara sem og Haraldi Johannessen, ríkislögreglustjóra.
"Ætli þetta séu ekki 46 þúsund dollarar,“ segir Siggi tölvuhakkari um upphæðina sem hann á að hafa stolið af Wikileaks. Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks, hefur kært Sigga, sem er 20 ára gamall, fyrir fjárdrátt eins og fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá í kvöld. Vísir ræddi við Sigga, sem er staddur erlendis þessa dagana, þar sem hann var inntur eftir afstöðu til málsins en þá svaraði hann einfaldlega: "Nó komment.“
"Þarna hefur blaðamaður BBC verið illa blekktur,“ segir Kristinn Hrafnsson, talsmaður WikiLeaks, um umfjöllun BBC sem fjallaði um hakkara vítt og breitt um veröldina.