
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024)

Telur enga frétt í leyniupptökunum um hvalveiðar
Verkalýðsleiðtogi af Akranesi segir ekkert fréttnæmt í leynilegum upptökum af syni Jóns Gunnarssonar þar sem hann ræddi um baktjaldamakk um hvalveiðar. Þá segist hann eiga erfitt með að sjá að Alþingi gæti bannað hvalveiðar þótt meirihluti væri fyrir því þar.

Áfram séreign inn á lánin og ekkert kílómetragjald í bili
Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur til að heimild til skattfrjálsrar ráðstöfunar á viðbótargjaldi til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól lána verði framlengd út árið 2025. Í stað kílómetragjalds sem ekki verði komið á um áramótin verði önnur gjöld hækkuð um 2,5 prósent.

„Nei, Áslaug Arna“
„Nei, Áslaug Arna, ég fór ekki beint inn í umhverfisráðuneytið til að sinna mínum eigin hagsmunum, fjölskyldu minnar eða vina, heldur til að vinna að almannahagsmunum með því að efla náttúruvernd í landinu.“

Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“
Fréttastofa hefur undir höndum upptökur sem sýna samtal huldumanns, sem sagðist vera svissneskur fjárfestir, við Gunnar Bergmann Jónsson, son Jóns Gunnarssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Brot úr þessum upptökum voru sýnd í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Berum ekki ábyrgð á því sem að fólk segir úti í bæ“
„Það má ekki gleyma því að fólk með ýmis konar bakgrunn tekur þátt í stjórnmálum og berst fyrir hugsjónum sínum. Ég meina Guðmundur Ingi var tekinn úr Landvernd beint inn í umhverfisráðuneytinu til þess að hvað? Að friðlýsa, stoppa allar orkuframkvæmdir, beint í sína hagsmuni og meira að segja sem ráðherra. Hér er Jón aðstoðarmaður, til þess að létta undir með Bjarna sem tekur þrjú ráðuneyti á þessum tíma. Hann hefur engin völd.“

Ríkislögreglustjóri beinir sjónum sínum að leynilegri upptöku
Greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur ákveðið að kanna mál sem snýr að leyniupptökum huldumanns á samtali sínu við Gunnar Bergmann, son Jóns Gunnarssonar, þingmanns og aðstoðarmanns forsætis- og matvælaráðherra. Lögregla hefur rætt við Gunnar í tengslum við athugun sína á málinu.

Tilefni til að kanna hvort ráðherra hafi farið á svig við siðareglur
Prófessor við Háskóla Íslands telur tilefni til að kannað verði hvort forsætisráðherra hafi farið á svig við siðareglur ráðherra þegar ákveðið var að Jón Gunnarsson fengi stöðu í Matvælaráðuneytinu. Það að rætt hafi verið á sama fundi að Jón tæki sæti á lista Sjálfstæðiflokksins og fengi stöðu í ráðuneytinu veki upp spurningar.

Hundruð umsókna frá bændum vegna tjóns í kuldatíð í vor og sumar
Tjón af völdum óvenjulegrar kuldatíðar í vor og sumar hefur verið skráð á fjórða hundrað búa, fyrst og fremst á Norðurlandi. Starfshópur á vegum ríkisstjórnarinnar á að fara yfir tjón bænda og leggja fram tillögur um stuðning við þá.

Viðreisn boðar jafnvægi, forgangsröðun og ábyrgð
Kaupmáttur launa hefur sveiflast þrisvar sinnum meira á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum undanfarna tvo áratug. Fólk finnur fyrir þessum sveiflum og þessu ójafnvægi, ekki síst ungt fólk sem nýlega hefur stofnað heimili.

Þurfum aftur alvöru náttúruvernd í umhverfisráðuneytið
Saga náttúruverndarmála á Íslandi hefur verið samofin ásókn virkjanaaðila í víðerni og villta náttúru landsins, ekki síst miðhálendið.

Varð að segja af sér ráðherradómi vegna vanhæfi – Er nú þrefaldur ráðherra, líka forsætisráðherra
Stundum eru menn að tala um bananalýðveldi. Svona í háði og með lítilsvirðingu. Þau eiga víst að vera helzt í Afríku og á öðrum framandi slóðum. En, þurfum við að leita svo langt til að finna eitt?

Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins, segir sig og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar, hafa lent í undarlegum símatruflunum þegar þau voru á fundi NATO-þingsins í Bratislava í Slóvakíu.

Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn
Forsætisráðherra segir ekkert hæft í fréttum byggðum á leynilegri upptöku um að Jón Gunnarsson hafi fengið stöðu í matvælaráðuneytinu gegn því að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Píratar vilja að málið verði rannsakað.

„Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“
Bjarni Benediktsson segir Jón Gunnarsson ekki hafa tekið sæti á lista í skiptum fyrir stöðu í matvælaráðuneytinu. Bjarni segist hafa ákveðið í síðustu viku að Jón kæmi ekki að veitingu hvalveiðileyfis og segir hleranir bera merki þess að verið sé að reyna að hafa áhrif á alþingiskosningar.

Meira fyrir minna: Bætt nýting opinberra fjármuna
Útgjöld hins opinbera hafa vaxið mikið undanfarin ár. Á þetta við um nánast öll málefnasvið.

Jón muni ekki koma nálægt meðferð „hvalamálsins“
Bjarni Benediktsson hefur greint frá því að Jón Gunnarsson, settur aðstoðarmaður Bjarna í matvælaráðuneytinu, muni ekki koma að afgreiðslu hvalveiðileyfa í matvælaráðuneytinu.

Vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað
Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2024 sýna vísbendingar um að andleg heilsa barna á Íslandi hafi batnað síðustu tvö ár. Niðurstöður sýna lækkun í tíðni kvíða og depurðar í öllum árgöngum. Enn segist þó um helmingur stúlkna í 10. bekk finna fyrir depurð. Þá hafa um þrettán prósent stúlkna í 10. bekk verið beittar kynferðisofbeldi af jafnaldra en hlutfallið lækkar á milli ára.

Segist ekki skulda dómsmálaráðherra skýringar
Fyrrverandi félagsmálaráðherra segist ekki skulda dómsmálaráðherra neinar skýringar á afskiptum sínum í máli fjölfatlaðs palestínsks drengs og fjölskyldu sem átti að vísa úr landi í haust. Þá hafi engin formleg beiðni borist frá henni til félagsmálaráðuneytisins um skýringar á því hvers vegna hann skarst í leikinn þegar það átti að vísa drengnum úr landi.

Kynna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar
Mennta og barnamálaráðuneytið kynnir niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar klukkan 14 til 16:30 í dag Hátíðarsal aðalbyggingar Háskóla Íslands. Hægt verður að horfa í streymi hér að neðan.

Tvö vilja í Endurupptökudóm
Berglind Svavarsdóttir lögmaður og Matthías G. Pálsson lögfræðingur hafa sótt um embætti dómanda við Endurupptökudóm.

Burt með baráttusöngva úr virkjunarkafla stóriðjustefnunnar
Ein afdrifaríkasta breytingin sem ríkisstjórnin gerði á stjórnarráðunum á síðasta kjörtímabili var stofnun umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Með því að setja sjónarmið verndar og nýtingar undir sama hatt glataðist ákveðið jafnvægi sem náðist fram með því að tvö ráðuneyti héldu ólíkum sjónarmiðum á lofti varðandi stærstu framkvæmdir.

Fyrrverandi félagsmálaráðherra eigi eftir að svara í máli Yazans
Dómsmálaráðherra segir að fyrrverandi félagsmálaráðherra hafi enn ekki svarað hvaða upplýsingar hann hafði sem kröfðust þess að stöðva ætti brottför fjölfatlaðs palestínsks drengs og fjölskyldu úr landi í haust. Hún er ósátt við niðurstöðu málsins.

Hafi ekki sakað blaðamenn um hleranir: „Ég sagði það ekki og hef hvergi sagt það“
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki rétt að hann hafi sakað blaðamenn um að standa í hlerunum sem beindust að syni hans, Gunnari Bergmann Jónssyni. Hann setur þó spurningamerki við vinnubrögð blaðamanna.

Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval
Sonur Jóns Gunnarssonar á að hafa sagt á upptöku að faðir sinn hafi tekið sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í skiptum fyrir að komast í aðstöðu til að veita veiðileyfi til Hvals hf. Þá hafi hann sagt að utanríkisráðherra muni undirrita útgáfu leyfisins vegna hagsmunatengsla forsætisráðherra.

Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis
Leynileg upptaka sem virðist hafa verið grundvöllur umfjöllunar um aðstoðarmann forsætisráðherra og hvalveiðar var boðin fleirum en Heimildinni í síðustu viku. Boðin voru send í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis sem vann meðal annars fyrir Harvey Weinstein.

„Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“
Snorri Másson oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi Suður segir að hann „sundli við fúkyrðaflaumi“ Svandísar Svavarsdóttur í hlaðvarpinu Ein pæling fyrir helgi. Hann segir ásakanir Svandísar í hans garð lygi frá rótum.

„Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“
Ritstjóri Heimildarinnar hefur vísað þungum ásökunum Jóns Gunnarssonar alfarið á bug. Hann sagði blaðamenn Heimildarinnar hafa staðið að því að tálbeita veiddi upplýsingar um hvalveiðar upp úr syni hans.

Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition
Jón Gunnarsson, fulltrúi ráðherra í matvælaráðuneytinu, segir tálbeitu á vegum Heimildarinnar hafa verið ekið um á drossíu af einkabílstjóra og gist á Edition hótelinu á meðan hún njósnaði um son hans. Samkvæmt heimildum Vísis var tálbeitan ekki á vegum Heimildarinnar.

Segir hafa verið njósnað um son hans
Jón Gunnarsson, fulltrúi ráðherra í matvælaráðuneytinu, segir blaðamenn á Heimildinni hafa sett á svið blekkingarleik til þess að safna upplýsingum um hvalveiðar í gegnum son hans.

Stöðvun megi rekja til klúðurs og skorts á fjármagni
Fjórtán mánuðir eru síðan Vegagerðin bauð síðast út stórt verkefni. Sérfræðingur segir vandann helst liggja í skorti á fjármagni og klúðri í tveimur stórum útboðum nýlega.