Sveitarstjórnarkosningar 2026
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 13 ›
VG og Sanna sameina krafta sína Vinstri græn í Reykjavík og Vor til vinstri munu hafa myndað framboðsbandalag fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi mun leiða listann. Innlent 18.1.2026 17:40
Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Karólína Helga Símonardóttir var kjörinn oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði í dag og mun því leiða flokkinn í sveitarfélaginu í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún hafði betur gegn Jóni Inga Hákonarsyni, sem hefur leitt listann síðustu átta ár. Innlent 17.1.2026 21:08
„Hef hvergi hallað réttu máli“ Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, segist ekki hafa farið með rangt mál þegar hún var spurð hvort borgin væri að kanna lóðarréttarsölu Péturs Marteinssonar, mótframbjóðanda síns í prófkjöri Samfylkingarinnar. Innlent 17.1.2026 07:36
Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Sjálfkjörið var í kjörnefnd Varðar sem sér um uppstillingu á lista Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosningunum. Allir núverandi borgarfulltrúar sem Vísir hefur náð tali af vilja aftur í framboð, ekki náðist í einn. Oddviti segist finna gríðarlegan áhuga fólks á því að fá sæti á lista flokksins. Innlent 17.1.2026 07:02
Borgarstjóri fór með rangt mál Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri bað lögmenn borgarinnar um að kanna lóðarréttarsölu Péturs Marteinssonar, mótframbjóðanda síns í prófkjöri Samfylkingarinnar, þrátt fyrir að hafa þvertekið fyrir það í fjölmiðlaviðtölum. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg óskaði hún eftir upplýsingum um hvort Pétur hefði mátt framselja lóðarrétt samhliða sölu á félagi sínu. Innlent 16.1.2026 21:10
Fjórir slást um oddvitasæti Viðreisnar Fjórir gefa kost á sér í oddvitasæti Viðreinsar í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum. Innlent 16.1.2026 18:55
Telur Pétur hafa svarað ágætlega fyrir lóðaviðskipti Forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar telur að Pétur Marteinsson, frambjóðandi í prófkjöri flokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, hafi svarað ágætlega spurningum um viðskiptahagsmuni sína. Hann hafi gert grein fyrir þeim og verið skýr í þeim efnum. Innlent 16.1.2026 12:01
Andstæðan við lóðabrask Pétur Marteinsson sem vill leiða lista Samfylkingarinnar í Reykjavík segir að miklar tafir á uppbyggingaráformum hans og félaga í Nýja Skerjafirði hafi gert það að verkum að þeir hafi ákveðið að selja lóðina sem þeim var úthlutað á svæðinu. Innlent 15.1.2026 23:32
Finnur vill oddvitasæti VG í Reykjavík og bjóða fram með öðrum flokkum Finnur Ricart Andrason býður sig fram í oddvitasæti Vinstri grænna í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Hann vonast til að flokkurinn verði hluti af sameiginlegu framboði á vinstri vængnum. Innlent 15.1.2026 18:22
„Markmiðið var aldrei að kaupa eign til að selja með hagnaði“ Pétur Marteinsson, sem vill leiða lista Samfylkingar í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum, segir að markmið hans hafi aldrei verið að kaupa lóðir til þess að selja síðar með hagnaði. Fram hefur komið að hann hafi fengið 69 milljónir króna í sinn hlut eftir sölu á lóð í Skerjafirði fyrir tveimur árum. Hann segir undirbúning byggingu ódýrra íbúða á lóðinni hafa verið aðalstarf hans í fimm ár. Fyrir það hafi hann verið með reiknuð laun upp á 25 milljónir króna, sem gerir 417 þúsund krónur á mánuði. Innlent 15.1.2026 13:23
Fékk 69 milljónir króna fyrir söluna Félag í eigu Péturs Marteinssonar sem býður sig fram sem oddviti í prófkjöri Samfylkingar fékk 69 milljónir króna fyrir sölu á hlut í lóð í Skerjafirði sem hann og viðskiptafélagar hans fyrirhuguðu að byggja íbúðir á fyrir tveimur árum. Hann segist hafa unnið að verkefninu í fimm ár en uppbygging hafi tafist vegna kerfislegra og pólitískra þátta. Það hafi því verið ákveðið að selja félagið sem heldur á lóðinni til annarra eigenda. Innlent 15.1.2026 11:35
Fyrrverandi þingmaður vill oddvitasæti á Akureyri Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, hefur gefið kost á sér í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Innlent 15.1.2026 11:23
Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Ert þú sama manneskja í dag og þú varst í gær? Samkvæmt bandaríska félagssálfræðingnum Daniel Gilbert nálgumst við framtíðarútgáfuna af sjálfum okkur eins og börnin okkar. Lífið 15.1.2026 07:00
Svona sjá Pétur og Heiða leikskólavandann Nýtt ár, ný tækifæri sagði skáldið og það á svo sannarlega við í ráðhúsinu því það styttist óðfluga í sveitastjórnarkosningar. Það má segja að kosningabaráttan sé í þann mund að fara á flug enda er pískrað um samgöngumál og prófkjör á öllum kaffistofum landsins. Lífið 14.1.2026 13:02
Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark Samfylkingin hefur samkvæmt síðustu alþingiskosningum og skoðanakönnunum verið stærsti flokkur Íslands á landsvísu. Eftir að Kristrún Frostadóttir formaður flokksins tók við stjórnartaumum virðist ekkert lát á vinsældunum hans. En hvað má ráða í komandi prófkjöri Samfylkingarinnar í borginni? Þar virðist ýmislegt rekast á annars horn. Innlent 14.1.2026 09:04
Vongóð um stuðning Miðflokksins Formaður Samfylkingarinnar er vongóð um að hljóta stuðning Miðflokksins þegar frumvörp ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum verða afgreidd í þinginu. Það vakti athygli á dögunum þegar hún sagði í samtali við Heimildina að hún teldi Samfylkinguna geta náð saman með Miðflokknum um ýmislegt í útlendingamálum. Innlent 13.1.2026 23:32
Neitar að hafa sigað lögmönnum borgarinnar á Pétur Borgarstjóri Reykjavíkur neitar því að hafa sigað lögmönnum borgarinnar á mótframbjóðanda sinn í oddvitaslag Samfylkingarinnar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Mótframbjóðandinn gefur lítið fyrir athugun lögmannanna á lóðum sem voru í eigu félags hans, málið skipti hann engu máli. Innlent 13.1.2026 15:05
„Ég veit ekkert hvað er í gangi“ Einhverjir hafa vafalítið rekið upp stór augu þegar þeir komu auga á nafn Natans Kolbeinssonar á lista yfir stuðningsmenn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur. Natan er enda formaður Viðreisnar í Reykjavík. Hann kannast ekkert við að hafa skráð sig á listann og telur að hrekkjusvín hafi verið þar á ferð. Innlent 9.1.2026 15:56
Framsókn velur á lista í febrúar og Einar enn óskoraður oddviti Framsóknarflokkurinn í Reykjavík mun velja fólk á lista flokksins í komandi borgarstjórnarkosningum á tvöföldu kjördæmisþingi sem fram fer þann 7. febrúar næstkomandi. Enn sem komið er hefur Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar og fyrrverandi borgarstjóri, einn lýst því yfir að hann gefi kost á sér til að leiða lista flokksins áfram í borginni. Hann er áfram um að fella þurfi meirihlutann í borginni og ítrekar að samstarf með Samfylkingu hugnist honum ekki. Innlent 9.1.2026 14:42
Sósalistaflokkurinn ekki með í Vori til vinstri Oddvitar og borgarfulltrúr á vinstri væng stjórnamál í Reykjavík funda enn um möguleikann á sameiginlegu framboði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Niðurstaða ætti að liggja fyrir síðar í mánuðinum. Grasrót Vinstri grænna fundar og Pírata funda á næstu vikum. Sósíalistaflokkurinn tekur ekki þátt í framboðinu en oddviti flokksins segir það ábyrgðarhluta að bjóða fram sterkan valkost á vinstri væng. Innlent 9.1.2026 08:02
Bæjarfulltrúar slást um oddvitasætið í Hafnarfirði Fimmtán framboð bárust í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði en tveir bæjarfulltrúar etja þar kappi um oddvitasætið. Innlent 8.1.2026 17:52
Mikill áhugi á fyrsta sæti hjá Viðreisn Björg Magnúsdóttir, fjölmiðlakona og fyrrverandi aðstoðarmaður borgarstjóra Framsóknarflokksins, er sú þriðja sem gefur kost á sér í oddvitasæti Viðreisnar í komandi borgarstjórnarkosningum. Hún segist standa fyrir breytingar í borginni sem nú sé ákall um. Hún getur hugsað sér að fara í samstarf við alla flokka. Innlent 7.1.2026 11:54
Jónas Már vill leiða Samfylkingu í Kópavogi Jónas Már Torfason lögfræðingur vill leiða framboðslista Samfylkingarinnar í Kópavogi. Jónas starfar sem lögfræðingur á lögmannsstofunni Réttur - Aðalsteinsson & Partners. Jónas er uppalinn í Kópavogi og flutti nýlega aftur heim. Jónas segir það hans markmið að mynda meirihluta í Kópavogi. Innlent 7.1.2026 09:56
Björg blandar sér í oddvitaslaginn í borginni Björg Magnúsdóttir, fjölmiðlakona og fyrrverandi aðstoðarmaður borgarstjóra Framsóknarflokksins, gefur kost á sér í oddvitasæti Viðreisnar í komandi borgarstjórnarkosningum. Þetta staðfestir Björg nú í morgun en þegar hefur verið sterkur orðrómur uppi um að hún hygðist taka oddvitaslaginn fyrir Viðreisn í borginni. Innlent 7.1.2026 09:12
Sami oddviti í fyrsta sinn í tæp þrjátíu ár Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík mun í fyrsta sinn í tuttugu og átta ár stilla upp sama oddvita í tvennum borgarstjórnarkosningum í röð. Stjórnmálafræðingur segir stöðu Hildar Björnsdóttur sem oddvita sterka og að hún geti nú sett saman samhentan lista fyrir kosningar. Innlent 6.1.2026 21:18
Hildur Björnsdóttir óskoraður oddviti í Reykjavík Hildur Björnsdóttir verður áfram oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í borgarstjórnarkosningum 16. maí næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Verði, fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Innlent 6.1.2026 16:43
Guðmundur Ingi rótar fólki inn í Samfylkinguna Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu býður sig fram til 3. sætis á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Guðmundur er með duglegri mönnum og hann hefur nú þegar fengið hundruð manna til að skrá sig í flokkinn til að geta kosið í prófkjöri sem fer fram eftir 17 daga. Innlent 6.1.2026 14:47
„Lítur út fyrir að aðeins eitt framboð hafi borist“ Allt lítur út fyrir að Hildur Björnsdóttir verði ein í framboði til oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Leiðtogaprófkjör var fyrirhugað 24. janúar en nú lítur út fyrir að ekkert verði af því. Innlent 6.1.2026 13:09
Guðmundur Árni vill áfram leiða Samfylkingu í Hafnarfirði Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, ætlar sér aftur fram í næstu sveitarstjórnarkosningum í vor. Hann segir að tillaga um að setja á stofn uppstillinganefnd verði lögð fyrir félagsfund flokksins á fimmtudag. Verði sú tillaga samþykkt hafi nefndin fram í miðjan febrúar til að stilla upp lista. Innlent 6.1.2026 12:53
„Við Guðlaugur Þór erum góðir vinir“ Allt lítur út fyrir að Hildur Björnsdóttir verði oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í borgarstjórnarkosningum í vor, eftir að Guðlaugur Þór Þórðarson tilkynnti í morgun að hann myndi ekki fara í oddvitaslag við hana. „Við Guðlaugur Þór erum góðir vinir og höfum átt gott samstarf sem oddvitar í Reykjavík. Hann hefur verið öflugur þingmaður Reykvíkinga og það er eðlilegt að margir hafi skorað á hann. En hann hefur nú lýst yfir fullum stuðningi við mig í baráttunni fram undan og það er auðvitað ómetanlegt fyrir mig. Við Sjálfstæðismenn göngum sameinuð til kosninga í vor,“ segir hún. Innlent 6.1.2026 12:13