Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Sterkt sam­fé­lag byggir á fjöl­breyttu at­vinnu­lífi

Rekstur sveitarfélagsins Rangárþings eystra á síðasta kjörtímabili hefur gengið vel og er það eitt af okkar aðaláherslumálum á komandi kjörtímabili að halda því áfram. Ábyrgur rekstur á að skila sér til fólks og fyrirtækja. Skattfé íbúa skal nýta vel í þeirra þágu í formi góðrar þjónusta, hóflegra álaga og lækkun gjalda.

Skoðun
Fréttamynd

Segir Krist­rúnu dreifa ó­sannindum um Sjálf­stæðis­flokkinn

Það má heldur betur segja að hiti sé að færast í borgarstjórnarkosningarnar en Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, sakar Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar, um að dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn sem varðar sölu á orkuinnviðum.

Innlent
Fréttamynd

Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópa­vog

Ég bauð mig fram á lista Framsóknar í Kópavogi af ástríðu fyrirþví að gera góðan bæ og þjónustu hans enn betri. Ég trúi aðalltaf megi bæta hlutina; stundum með langhlaupi, en oft dugarað taka stuttan, markvissan sprett.

Skoðun
Fréttamynd

Græni tefillinn

Einu sinni var grænn trefill...Þetta gæti verið upphafið á notalegu ævintýri og að mörgu leyti er sá græni trefill það sem ég ætla að segja frá. Fyrir margt löngu lögðu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu fram hugmynd að grænum trefli/göngustíg á hálsum við efri mörk byggða – allt frá Esjunni að Hafnarfirði eða um 50 km.

Skoðun
Fréttamynd

Fyrir hvern er byggt?

Nýverið gerði Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) könnun um skipulags- og búsetuóskir Íslendinga. Þar kemur m.a. fram að 84,3% svarenda Kópavogs telja að tvö eða fleiri bílastæði á hverja íbúð eða eign sé hæfilegur fjöldi bílastæða.

Skoðun
Fréttamynd

Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnar­firði

Ég vil geta skroppið í búð að kaupa það sem vantar í uppskriftina án þess að þurfa að ræsa bílinn. Ný hverfi eru oft byggð með engri verslun í göngufæri og stundum er jafnvel langt að keyra

Skoðun
Fréttamynd

Gott að eldast á Akur­eyri

Samfylkingin á Akureyri hefur sett það á stefnuskrá sína fyrir kosningarnar 16. maí að innleiða verkefnið „Gott að eldast“ á Akureyri. Verkefnið var innleitt sem tilraunaverkefni í Mosfellsbæ og hefur verið gerður að því góður rómur. Hugmyndafræði verkefnisins þykir okkur góð en í stuttu máli gengur það út á að mæta ört stækkandi og virkari hópi eldri borgara sem er okkur mikils virði. En hvað myndi breytast ef verkefnið „Gott að eldast“ yrði innleitt á Akureyri?

Skoðun
Fréttamynd

Bið­listi eftir lífinu

Biðlistar eftir leikskólaplássum hafa raunveruleg áhrif á líf fjölskyldna, t.d. á atvinnuþátttöku foreldra, fjárhag heimila, skipulag fjölskyldulífs og velferð barna. Iðulega, þegar foreldri kemst að því að löng bið er eftir leikskólaplássi fyrir barn sitt, verður það að fréttamáli og réttilega svo. Af hverju gildir þetta ekki með sama hætti þegar fatlað fólk bíður eftir lögbundinni þjónustu?

Skoðun
Fréttamynd

Hleypum þeim værukæru í kær­komið frí

Nú styttist í sveitarstjórnarkosningar og þá gefst okkur tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á nærsamfélagið okkar.Mitt nærsamfélag heitir Garðabær og þar er ágætt að búa. Frá mínu heimili er stutt í leikskóla og matvöruverslun og öll almenn þjónusta yfirleitt innan seilingar. En það er ekki þar með sagt að allt sé eins og best verður á kosið.

Skoðun
Fréttamynd

Deilur magnast í Borgar­byggð um vindorkuver

Sveitarstjórnarkosningarnar í Borgarbyggð 2026 mótast nú í auknum mæli af deilum um vindorkuver, Holtavörðuheiðarlínu 1 og aukin afskipti ríkisins af orkumálum í héraðinu. Á framboðsfundi í Logalandi þ. 14. maí s.l. kom fram óvenju sterk samstaða allra framboða gegn frekari uppbyggingu vindorkuvera í Borgarbyggð og Skorradal, þar sem lögð var áhersla á að standa með landeigendum og bændum gegn því sem kallað er ofríki Landsnets og stjórnvalda.

Skoðun
Fréttamynd

Börn úr símum – inn í sam­fé­lagið

Það er ekkert leyndarmál að börn og ungmenni eyða sífellt meiri tíma í símanum. Skjánotkun hefur færst úr því að vera afþreying yfir í að verða aðalvettvangur samskipta, leikja og jafnvel sjálfsmyndar. Á sama tíma hefur dregið úr félagsstarfi og einfaldri útiveru. Þetta er þróun sem við þurfum að taka alvarlega.

Skoðun
Fréttamynd

Menning er skatt­stofn, ekki skraut

Ég hef staðið í þessu harki lengi. Ég hef rekið bari, haldið líklega þúsundir minni tónleika og tekið þátt í risaviðburðum. Þessu fylgja hljóðmenn, listamenn, verktakar og ýmiss konar tæknifólk sem mætir, vinnur og fær greitt.

Skoðun
Fréttamynd

Hundalífið í Kópa­vogi

Síðan ég fór í framboð, hreinlega síðan ég fór prófkjör í vetur, hefur fólk komið til mín og beðið mig um að gera eitthvað í málefnum hundaeigenda. Ég get sagt ykkur að þetta er heitt málefni í Kópavogi.

Skoðun
Fréttamynd

Styrkjum ís­lensku­kennslu fyrir börn og ung­menni

Í grunnstefnu Miðflokksins í menntamálum vill flokkurinn leggja ríka áherslu á að íslenska hafi forgang innan opinberra stofnana og að samfélagið sameinist um að efla og vernda tungumálið. Flokkurinn vill styrkja íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni og tryggja öllum nemendum vandaða menntun. Jafnframt er lögð áhersla á að kennarar, foreldrar og nemendur hafi aðgang að nauðsynlegri stoðþjónustu.

Skoðun
Fréttamynd

Hestar í höfuð­borginni

Að stíga á bak er dásamleg tilfinning. Hestar eru fallegar skepnur og nálægðin við þá fyllir mann af einhvers konar náttúrukrafti.Við eigum að vera mjög stolt af því að Reykjavík sé ein fárra höfuðborga í heiminum þar sem hestamennska blómstrar í návígi við byggðina. Þessi einstaka menningararfleifð og íþróttastarfsemi stendur hins vegar frammi fyrir áskorunum sem kalla á skýra framtíðarsýn af hálfu borgaryfirvalda.

Skoðun
Fréttamynd

Okkar sam­eigin­legu verk

Á laugardag göngum við að kjörborðinu og veljum fólkið sem við treystum best fyrir okkar nánasta umhverfi. Kjarni stjórnmálanna er þjónusta við íbúa og þar gegna sveitarfélögin lykilhlutverki.Þess vegna er mikilvægt að til sveitarstjórna veljist fólk sem sýnir ráðdeild í rekstri. Ábyrg meðferð almannafjár er forsenda þess að við getum veitt þá þjónustu sem samfélagið krefst og við þurfum að leita allra leiða til þess að bæta hana.

Skoðun
Fréttamynd

Hvernig er að eldast í Reykja­vík?

Eldra fólk og hagsmunasamtök þeirra hafa stigið fram í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og kallað eftir umræðu um hvað stjórnmálaflokkar vilja gera fyrir sístækkandi hóp eldra fólks í borginni. Borgarlífið snýst ekki bara um skólastarf, snemmtæk inngrip og rekstur borgarinnar.Þriðjungur kjósenda er eldra fólk, hópur sem mætir á kjörstað og tekur afstöðu enda kjörsókn þessa hóps mun meiri og betri en þeirra sem yngri eru. Hvaða þjónusta er í borginni fyrir þennan mikilvæga hóp? Hvers vegna er hún svona ósýnileg? Er Reykjavíkurborg borg fyrir eldra fólk?

Skoðun
Fréttamynd

Ríða, drepa, giftast

Einu sinni gengu þrír blindir menn fram á fíl. Þeir höfðu aldrei áður komist í tæri við þá skepnu og voru því afar forvitnir. Þeir þreifuðu einn í einu á fílnum til að komast að raun um hvernig hann liti út. Sá fyrsti sagði: „Fíllinn er langur og mjór eins og reipi“. „Nei“, sagði annar, „hann er hár, hrjúfur og breiður eins og veggur“. „Ykkur skjátlast báðum hrapallega“, sagði sá þriðji, „fíllinn líkist mest feitri slöngu“.

Skoðun
Fréttamynd

Vel­megun ein­stak­lingsins - opin­ber auð­legð - mark­mið jafnaðar­manna

Hver er framtíðarsýn stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram til borgarstjórnar 2026? Þar er sumt ljóst en margt dulið. Það var bandaríski hagfræðingurinn John Kenneth Galbraith sem á sjötta áratug síðustu aldar færði í orð hugmyndina „einkaauðlegð, opinber örbirgð“ (private affluence, public squalor) til að draga athyglinni að vaxandi auðsöfnun sumra meðan opinber þjónusta og innviðir væru sveltir og vanfjármagnaðir.

Skoðun
Fréttamynd

Hver ber á­byrgð á stöðu Hafnar­fjarðar?

Rekstur Hafnarfjarðarbæjar er ekki sjálfbær, og er undir vaxandi álagi. Skuldahlutföll hafa hækkað og svigrúm til fjárfestinga í grunnþjónustu hefur minnkað. Þetta hefur bein áhrif á getu bæjarins til að fjárfesta í viðhaldi, bæta innviði og þjónusta bæjarbúa.

Skoðun
Fréttamynd

Gangbrautarvörður sem vill leysa málin

Síðan við fjölskyldan fluttum í Laugardalinn hef ég ítrekað séð eða heyrt af börnum sem hafa næstum orðið fyrir bíl á gangbrautinni við heimili mitt á Kirkjuteig.

Skoðun
Fréttamynd

Löng valdaseta bara vanda­mál fyrir suma

Nú heyrist víða fullyrt að „Samfylkingin þurfi frí“ frá stjórn Reykjavíkurborgar. Klárlega geta fylgt áskoranir langvarandi setu við völd og mikilvægt og vera meðvituð um þær. En þá þarf að ræða líka kostina við samfellu við stjórn.

Skoðun
Fréttamynd

Belonging

Most, if not all of us, want to belong to the community we live in. Regardless of our age, background, social class, origin, or gender. It is a universal human need to connect with other people. A lack of connection causes social isolation, loneliness, and sadness.¹

Skoðun