Skoðun: Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Fréttamynd

Höfum stað­reyndir á hreinu áður en við kjósum

Í þessari kosningabaráttu hafa skipulags- og samgöngumál verið áberandi í umræðunni. Það kemur mér lítið á óvart því ákvörðun sem er tekin í dag tekur langan tíma í framkvæmd og hefur síðan áhrif á samfélagið til næstu áratuga.

Skoðun
Fréttamynd

Skóla­starf til fyrir­myndar

Málefni leik-, grunn- og framhaldsskóla eru okkur í D-lista og annarra lýðræðissinna í Rangárþingi eystra hugleikin. Með öflugu, framsæknu og faglegu starfi á öllum skólastigum leggjum við sterkan grunn að framtíð barnanna okkar. Þar er auðvitað lykilatriði að huga vel að starfsumhverfi kennarra og annarra starfsmanna til að auðvelda þeim að takast á við það verkefni að kenna og leiðbeina þeim sem erfa munu landið.

Skoðun
Fréttamynd

Hversu lengi nennir þú að bíða?

Á morgun verður gengið til kosninga og má segja að kosningar séu ein áhrifaríkasta leiðin til þess að gera samfélagið okkar móttækilegra og betra. Sveitarfélögin fara með framkvæmd á lögbundinni þjónustu fatlaðs fólks. Áður en lengra er haldið er gott að árétta það að fatlað fólk er bara fólk, ósköp venjulegt fólk, börn, foreldrar og eldra fólk. Fólk sem hefur meðal annars áhuga á samfélagslegri þátttöku, íþróttastarfi, menntun, menningu, atvinnulífi og stjórnmálum. Fólk sem kýs.

Skoðun
Fréttamynd

Meira af í­þróttum fyrir alla í Múla­þingi

Allir í Múlaþingi eiga rétt á öflugu, fjölbreyttu og aðgengilegu íþrótta- og tómstundastarfi, óháð aldri eða búsetu. Íþróttir og tómstundir eru ekki aðeins mikilvægur vettvangur fyrir hreyfingu og heilsu, heldur líka fyrir félagsleg tengsl og sterkara samfélag. Þess vegna þarf að tryggja að sem flestir hafi raunveruleg tækifæri til þátttöku.

Skoðun
Fréttamynd

Gefum í­búum rödd í Fjarðabyggð

Það er oft talað um samráð við íbúa. En of oft er það þannig að samráðið kemur of seint eða hefur lítil áhrif á þær ákvarðanir sem teknar eru. Þá verður það að formsatriði en ekki raunverulegu samtali.Við viljum breyta því.

Skoðun
Fréttamynd

Fjöl­skyldan í for­gang

Á opnum fundi nýlega ræddi ég að við ættum að horfa jákvæðari augum á að bæta við mannauði í þjónustu sveitarfélagsins. Fleiri stöðugildi eru auðvitað ekki sjálfkrafa lausn við öllum okkar vandamálum, en við teljum að fólkið sjálft sé grunnurinn að góðu samfélagi. Þar nýtist fjármagnið best og þar á það heima.

Skoðun
Fréttamynd

Bíla­stæði fá meira pláss en börnin

Ég er frambjóðandi í þessum kosningum og hef setið endalaust af pallborðum, fundum og öðrum viðburðurm. Ég hef sjálfur svarað spurningum um bílastæði, þéttingu byggðar og húsnæðismál aftur og aftur og aftur. Og ég verð að segja það hreint út.

Skoðun
Fréttamynd

Á kjör­dag er líka kosið um frelsi fatlaðs fólks

Á morgun kjósum við nýjar sveitarstjórnir um land allt. Þá kjósum við m.a. um skóla- og leikskólamál, skipulagsmál, samgöngur og fjárhagsáætlanir. En við kjósum líka um mikilvægan málaflokk sem felur í sér þjónustu sem sveitarfélögum ber skylda til að veita skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk.

Skoðun
Fréttamynd

Ó­raun­hæft endurkaupaverð ógnar fram­tíð Grinda­víkur

Endurreisn Grindavíkur er eitt stærsta samfélagslega verkefni sem íslensk stjórnvöld standa frammi fyrir. Vilji er til staðar hjá mörgum fyrrverandi íbúum til að snúa aftur heim þegar aðstæður leyfa. Nú hefur hins vegar komið í ljós að gildandi lagarammi veldur verulegum vanda við endurkaup fasteigna, sem gæti gert fólki erfitt, eða jafnvel ómögulegt, að endurheimta eigin heimili á sanngjörnum kjörum.

Skoðun
Fréttamynd

Vaxtarmörk Sam­fylkingarinnar

Það er merkilegt hvað húsnæðisskortur á höfuðborgarsvæðinu er oft ræddur eins og náttúruhamfarir. Eins og hann hafi bara dunið yfir okkur, líkt og rokið eða nefndarskipulagið hjá Reykjavíkurborg.

Skoðun
Fréttamynd

Tölurnar tala sínu máli

Í langan tíma hefur undirritaður haft bæði gagn og ánægju af því að rýna í tölulegar upplýsingar og byggja ákvarðanatöku á traustum gögnum. Við skoðun á mælaborði Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa ýmis athyglisverð sannindi komið í ljós.

Skoðun
Fréttamynd

Um menningarstefnur og borgarpólitík

Eftir að hafa horft á stjórnmálaumræður oddvitanna í Reykjavík sl. miðvikudagskvöld setti ég menningargleraugun á mig og rýndi í hvað var sagt og hvað stendur í stefnum flokkanna um menningarmál.

Skoðun
Fréttamynd

Á bak við heimilisleysi eru ein­staklingar með sögu

Í 45 ár hef ég starfað innan velferðarkerfisins. Ég hef hitt hundruð einstaklinga sem hafa glímt við erfið lífsskilyrði, áföll, fátækt og veikindi. En ekkert hefur snert mig jafn djúpt og vinna mín með heimilislausu fólki.

Skoðun
Fréttamynd

Við erum lið

Það var spennuþrungið augnablik þegar ég gekk upp stigann í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins í Mjódd.

Skoðun
Fréttamynd

Er Borgar­línan ó­þörf og illa hugsuð fram­kvæmd á tíma tækni og breytinga?

Hægri settar strætóakreinar með snjallstýringu og gervigreind eru raunhæf, hagkvæm og fljótleg leið til að bæta almenningssamgöngur í Reykjavík. Í stað þess að ráðast í mjög kostnaðarsamar framkvæmdir með miðjusettum sérakreinum og stórum stöðvum, eins og í Borgarlínuverkefninu, er hægt að nýta núverandi gatnakerfi betur og ná fram sambærilegum ávinningi á mun lægri kostnaði.

Skoðun
Fréttamynd

Bónda í Húsdýragarðinn

,,Ætli ég eigi ekki bara að vera eitthvað sýningardýr hérna“ sagði einn bóndi við mig á dögunum meðan hann mændi upp í fjallið útúr fjárhúsum sínum.

Skoðun
Fréttamynd

Fæði, klæði, hús­næði

Á Íslandi hefur húsnæðismarkaðurinn þróast með þeim hætti að sífellt fleiri upplifa óöryggi, háa leigu og skort á raunverulegum réttindum.

Skoðun
Fréttamynd

Ekki kjósa Björgu, konuna mína

Ekki kjósa Björgu, konuna mína og oddvita Viðreisnar í Reykjavík. Þetta segi ég ekki vegna þess að hún er ekki klár. Hún er líklega klárasta manneskja sem ég þekki. Segi þetta heldur ekki vegna þess að hún er löt. Duglegri manneskju hef ég aldrei kynnst. Ég segi þetta af allt annarri ástæðu.

Skoðun
Fréttamynd

Garða­bær má ekki staðna

Í Garðabæ býr samfélag sem vex hratt. Á síðustu árum hefur íbúum bæjarins fjölgað um tæplega 2.400 manns og ljóst er að á næstu árum mun reyna enn meira á getu sveitarfélagsins til að veita góða þjónustu í takt við þessa þróun.

Skoðun
Fréttamynd

Fólkið í Hvera­gerði skiptir öllu máli

Framtíð Hveragerðis byggist ekki aðeins á framkvæmdum og fjárfestingum heldur fyrst og fremst á fólkinu sem býr í bænum. S-listinn leggur áherslu á samfélag þar sem þjónusta, tækifæri og lífsgæði ná til allra aldurshópa. Uppbygging bæjarins þarf að byggja á skýrri framtíðarsýn, faglegri stjórnsýslu og samstarfi við íbúa um þróun hans.

Skoðun
Fréttamynd

Af hverju ætti ungt fólk að kjósa 16. maí?

Sveitarstjórnarkosningar hafa bein áhrif á daglegt líf okkar allra — sérstaklega ungs fólks. Það er í sveitarfélaginu sem ákvarðanir eru teknar um skóla, íþróttir, samgöngur, húsnæðismál og tækifæri fyrir ungt fólk til að byggja upp framtíð sína. Þess vegna skiptir máli að ungt fólk mæti á kjörstað 16. maí og láti rödd sína heyrast.

Skoðun