
Bandaríkin

Ekki farið fram á dauðarefsingu í máli ISIS Bítlanna
Bandaríkjastjórn hefur tilkynnt þeirri bresku að ekki verði sóst eftir því að tveir vígamenn Íslamska ríkisins, sem þekktir hafa verið undir viðurnefninu Bítlarnir, verði dæmdir til dauða.

Trump lýsir yfir stuðningi við yfirlýstan múslimahatara
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur lýst yfir stuðningi við Laura Loomer, konu sem vann forval Repbúblikanaflokksins í kjördæminu þar sem Trump er skráður til búsetu í Flórída.

Dýragarði Joe Exotic lokað
Sögusviði Netflix-þáttanna Tiger King, dýragarðurinn Greater Wynnewood Exotic Animal Park, hefur verið lokað.

Neyðarástand í Kaliforníu
Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, hefur lýst yfir neyðarástandi í ríkinu vegna mikilla gróðurelda.

Vill losna undan stjórn föður síns
Bandaríska söngkonan Britney Spears leitaði í gær til dómstóla í tilraun til að koma í veg fyrir að faðir hennar verði lögráðamaður hennar á ný.

Biden formlega útnefndur af Demókrataflokknum
Joe Biden var í nótt formlega útnefndur sem forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum en landsfundur flokksins stendur nú yfir og fer aðallega fram í gegnum netið.

Trump gagnrýndur fyrir að ætla að náða Susan B Anthony
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ætla að náða Susan B Anthony, brautryðjanda í kvenréttindabaráttu vestanhafs. Trump tilkynnti ákvörðuninna í dag, á aldarafmæli nítjándu viðbótar stjórnarskrár Bandaríkjanna sem tryggði konum kosningarétt.

Enn einn fyrrverandi starfsmaður CIA ákærður fyrir njósnir
Fyrrverandi starfsmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) og Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) hefur verið ákærður fyrir njósnir á vegum yfirvalda í Kína.

Tveir menn ákærðir fyrir áratugagamalt morðið á Jam Master Jay
Saksóknarar í New York í Bandaríkjunum hafa ákært tvo menn fyrir morðið á listamanninum víðfræga, Jam Master Jay, úr Run-DMC.

Svarar Trump og segir ástandið í ríkjum þeirra ekki sambærilegt
Jacinda Ardern forsætisráðherra Nýja Sjálands hefur svarað Donald Trump Bandaríkjaforseta fullum hálsi en hann tók Nýja Sjáland sem dæmi um land þar sem nýja kórónuveiran væri að fara úr böndunum á nýjan leik.

Þrír háttsettir framleiðendur reknir frá þætti Ellen
Þrír háttsettir framleiðendur spjallþáttar Ellen DeGeneres hafa verið reknir í kjölfar ásakana um ósæmilega hegðun og kynferðislega áreitni.

Segir Trump ekki valda starfinu
Michelle Obama fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna sendi í gærkvöldi frá sér ávarp sem spilað var á flokksþingi Demókrata sem að mestu fer fram á netinu.

Einn mesti hiti heimsins mældist í Bandaríkjunum í gær
Dauðadalurinn í Kaliforníu ber nafn með rentu þessa dagana.

Minnst 170 þúsund dánir í Bandaríkjunum
Minnst 170 þúsund Bandaríkjamenn hafa nú dáið í kórónuveirufaraldrinum, fleiri en í nokkru öðru ríki og hafa minnst 5,4 milljónir smitast af Covid-19.

Kallar þingmenn snemma úr fríi vegna Póstsins
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur tekið þá ákvörðun að kalla þingmenn snemma heim úr sumarfríi til að greiða atkvæði um frumvarp um Póst Bandaríkjanna.

Segir Trump ógna lýðræðinu með afstöðu sinni gagnvart póstatkvæðum
Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn og fyrrverandi forsetaframbjóðandinn Bernie Sanders segir að árásir Donalds Trump Bandaríkjaforseta á póstþjónustuna þar í landi jafngildi „lýðræðislegri kreppu í Bandaríkjunum.

Votta Trump samúð sína
Joe Biden forsetaframbjóðandi og Kamala Harris, varaforsetaefni hans, hafa vottað Donald Trump Bandaríkjaforseta samúð sína.

Trump íhugar að náða Edward Snowden
Donald Trump sagði í gær að hann væri að íhuga að náða uppljóstrarann Edward Snowden, sem nú er búsettur í Rússlandi.

Póstmálastofnunin segir atkvæði ekki munu skila sér í tæka tíð
Póstmálastofnun Bandaríkjanna hefur varað við því að milljónir atkvæða sem send verða með pósti muni ekki skila sér á réttum tíma og því ekki verða talin með í forsetakosningunum sem fara fram 3. nóvember næstkomandi.

Fordæma ummæli Trumps um Harris
Framboðsteymi Joe Biden, forsetaframbjóðanda Demókrata, hefur fordæmt ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta þar sem hann ýjaði að því að Kamala Harris, sem nýlega var tilkynnt sem varaforsetaefni Biden í baráttunni um Hvíta húsið, væri ekki kjörgeng í embætti varaforseta.

Lögðu hald á yfir milljón olíutunnur á leið til Venesúela
Bandaríkin hafa stöðvað för fjögurra íranskra olíuflutningaskipa sem höfðu sett stefnuna á Suður-Ameríkuríkið Venesúela.

Blæs í glæður umdeildrar kenningar um kjörgengi Harris
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur nú blásið eldi í glæður afar umdeildrar kenningar sem gengur út á Kamala Harris, varaforsetaefni Joe Biden, sé ekki gjaldgeng í embættið.

Banna leiguflug milli Bandaríkjanna og Kúbu
Bandaríkjastjórn hefur bannað öll leiguflug frá landinu til eyríkisins Kúbu í Karíbahafi og setur þar með enn meiri þrýsting á ríkisstjórn Raúl Castro.

Trump tengir fjársvelti póstsins við kosningarnar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann væri mótfallinn auknu fjármagni til Póstsins þar í landi. Viðurkenndi hann að það væri svo stofnunin gæti ekki brugðist við auknu álagi vegna fyrirhugaðra póstatkvæðagreiðslna í forsetakosningunum í nóvember.

Bjargaði manni í hjólastól frá því að verða fyrir lest
Maður sat fastur á lestarteinum í Kaliforníu.

Ísrael og furstadæmin ná sögulegu samkomulagi
Ríkisstjórnir Ísrael og Sameinuðu arabísku furstadæmanna hafa náð sögulegu samkomulagi um að bæta samband ríkjanna og koma á formlegum samskiptum þeirra á milli.

Vill meira vatnsflæði í sturturnar því hárið þarf að vera fullkomið
Ríkisstjórn Bandaríkjanna íhugar nú að slaka á reglum sem segja til um hversu mikið vatnsmagn má flæða um sturtur, eftir kvörtun frá Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Hann vill auka leyfilegt vatnsmagn í sturtunum þar sem hárið hans þurfi að vera fullkomið.

Gert að yfirgefa heimili sín vegna elda norður af Los Angeles
Yfirvöld í Kaliforníu hafa fyrirskipað íbúum á um fimm hundruð heimilum að yfirgefa heimili sín vegna gróðurelda norður af Los Angeles. Eldarnir hafa breiðst hratt út.

Kölluðu Trump „vælukjóa“
Joe Biden kom fram á blaðamannafundi í nótt með Kamölu Harris, varaforsetaefni sínu, í fyrsta sinn síðan hann tilkynnti um valið á Harris.

Bannaði lögregluþjónum sínum að vera með grímur
Billy Woods, fógeti Marionsýslu í Flórída í Bandaríkjunum, bannaði í gær lögregluþjónum sínum að bera grímur við störf sín. Hann bannaði sömuleiðis öllum þeim sem koma á lögreglustöð hans að vera með grímur.