Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, var ánægður með frammistöðu sinna manna í 1-0 sigri á Burnley í kvöld. Sigur sem kemur City í toppsæti deildarinnar og furðaði Guardiola sig á fullyrðingum spyrils í viðtali eftir leik. Enski boltinn 22.4.2026 22:05
Haaland skaut Manchester City á toppinn Manchester City kom sér í kvöld í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með 1-0 sigri gegn Burnley á útivelli. Erling Braut Haaland skoraði eina mark leiksins snemma leiks. Enski boltinn 22.4.2026 18:33
Kjartan tippar á leiki Arsenal og City út tímabilið Búast má við harðri samkeppni um Englandsmeistaratitilinn eftir sigur Manchester City á Arsenal 2-1 á sunnudaginn. Enski boltinn 21.4.2026 08:02
Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Manchester City vann 2-1 sigur á Arsenal í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Aprílmánuður ætlar því að verða Arsenal-mönnum enn á ný afar erfiður undir stjórn Mikel Arteta. Enski boltinn 19. apríl 2026 17:24
Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Arsenal fékk ekki góðar fréttir þegar í ljós kom hver verður með flautuna þegar úrslitin gætu mögulega ráðist í baráttunni um enska meistaratitilinn 2026. Enski boltinn 15. apríl 2026 06:32
Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Manchester City minnkaði forskot Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar niður í sex stig með öruggum sigri á Chelsea, 0-3, á Stamford Bridge í gær. Alls voru níu mörk skoruð í leikjunum fjórum í gær. Enski boltinn 13. apríl 2026 08:33
Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Manchester City vann 3-0 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta síðdegis. Liðið nálgast Arsenal í toppbaráttunni. Enski boltinn 12. apríl 2026 17:25
Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Eftir 4-0 sigurinn á Liverpool í ensku bikarkeppninni í gær staðfesti Pep Lijnders, aðstoðarþjálfari Manchester City, að fyrirliðinn Bernardo Silva myndi yfirgefa félagið þegar samningur hans við það rennur út í sumar. Enski boltinn 5. apríl 2026 22:22
Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Dregið var í undanúrslit ensku bikarkeppninnar í fótbolta skömmu eftir lokaleik átta liða úrslitanna, milli West Ham United og Leeds United. Enski boltinn 5. apríl 2026 19:03
Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Erling Haaland skoraði þrennu þegar Manchester City vann öruggan sigur á Liverpool, 4-0, í fyrsta leik átta liða úrslita ensku bikarkeppninnar. Þetta er áttunda árið í röð sem City kemst í undanúrslit bikarkeppninnar. Enski boltinn 4. apríl 2026 13:35
City fór langt með að tryggja titilinn í stórsigri gegn United Manchester City er svo gott sem orðið Englandsmeistari eftir 0-3 sigur á útivelli í nágrannaslag gegn Manchester United. Enski boltinn 28. mars 2026 15:58
Rodri daðrar opinberlega við Real Madrid Spænski landsliðsmiðjumaðurinn Rodri, handhafi Gullboltans 2024, hefur nú viðurkennt að það yrði erfitt fyrir hann að hafna tilboði frá Real Madrid. Enski boltinn 26. mars 2026 09:02
Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir Norski knattspyrnumaðurinn Erling Haaland, stjörnuleikmaður Manchester City, keypti sérstaka útgáfu af Heimskringlu Snorra Sturlusonar á 1,3 milljónir norskra króna og gaf bókasafninu í heimabæ sínum eintakið. Bókin er sú dýrasta sem selst hefur í Noregi. Erlent 24. mars 2026 20:09
Kallaði skiptingu Foden „góðgerðarskiptingu“ „Það var eins og um „góðgerðarskiptingu“ væri að ræða þegar Phil Foden kom inn á í uppbótartíma í úrslitaleik Manchester City og Arsenal í deildabikarnum,“ segir Wayne Rooney, fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins. Enski boltinn 24. mars 2026 06:31
Fullkomin helgi fyrir hetju City: Sigur okkar er áfall fyrir Arsenal Nico O'Reilly var hetja Manchester City í sigrinum á Arsenal í úrslitaleik enska deildabikarsins og hann vonast til að þetta högg fyrir topplið ensku úrvalsdeildarinnar muni hafa jákvæð áhrif fyrir City-menn í titilbaráttunni. Enski boltinn 24. mars 2026 06:01
Haaland fær frí frá landsliðinu Erling Haaland fær frí frá norska landsliðinu þessa vikuna og mun ekki mæta á landsliðsæfingu fyrr en á laugardag. Fótbolti 23. mars 2026 12:03
O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Nico O'Reilly, sem fagnaði 21 árs afmæli í gær, var hetja Manchester City á Wembley í dag þegar hann skoraði bæði mörkin gegn Arsenal í 2-0 sigri í úrslitaleik enska deildabikarsins í fótbolta. Enski boltinn 22. mars 2026 18:19
Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Stuðningsmenn annarra liða en Manchester City og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni hallast að því að styðja þá bláklæddu í titilbaráttunni. Liðin mætast í úrslitaleik enska deildabikarsins í dag. Enski boltinn 22. mars 2026 13:01
Verður Kepa aftur skúrkurinn? „Ég hefði tekið hann út af með handafli,“ sagði John Terry, fyrrverandi fyrirliði Chelsea, í setti Sky Sports eftir tap Chelsea fyrir Manchester City í úrslitum deildabikarsins árið 2019. Þar er rætt um Kepa Arrizabalaga, þáverandi markvörð Chelsea, sem var skúrkurinn í þeim leik . Hann mætir City aftur í dag í úrslitaleik keppninnar. Enski boltinn 22. mars 2026 12:30
Báðir þurfa bikar Fyrrum félagar mætast er Arsenal og Manchester City keppa um enska deildabikartitilinn á Wembley í dag. Bæði Mikel Arteta og Pep Guardiola þurfa á titli að halda. Enski boltinn 22. mars 2026 10:45
Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Það er enn óljóst hvort Martin Ödegaard fyrirliði Arsenal snúi aftur þegar Arsenal mætir Manchester City í úrslitaleik enska deildabikarsins á sunnudag. Enski boltinn 20. mars 2026 21:31
Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, sagði að „stærsta áskorun“ þjálfaraferils síns hafi verið Liverpool undir stjórn Jürgen Klopp, ekki Real Madrid, eftir að Manchester City tapaði 5-1 samanlagt fyrir spænska liðinu í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Enski boltinn 19. mars 2026 07:03
Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Það voru skoruð frábær mörk þegar fjögur lið komust áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í gærkvöld. Fótbolti 18. mars 2026 09:02
Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City Real Madrid er komið áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar í fótbolta eftir 5-1 samanlagðan sigur á Manchester City. Fótbolti 17. mars 2026 21:55
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti