Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran
1 2 3 4 5 6 … 11 ›
Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Mánaðarkort í almenningssamgöngur verður tímabundið helmingi ódýrara en áður um alla Svíþjóð með aðgerð sem sænska ríkisstjórnin kynnti í dag. Tilefnið er hækkandi olíuverð vegna hernaðarbrölts Bandaríkjamanna og Ísraela í Íran. Erlent 26.5.2026 13:21
Íranska liðið spilar í Bandaríkjunum en þarf að gista í Mexíkó Íranska fótboltalandsliðinu verður ekki leyft að dvelja í Bandaríkjunum á meðan heimsmeistaramótinu stendur, þrátt fyrir að liðið eigi að spila þar þrjá leiki. Íranar munu gista í Mexíkó og ferðast milli staða á leikdögum. Fótbolti 26.5.2026 08:29
Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Bandaríkjaher gerði árásir í suðurhluta Íran í dag sem beindust að eldflaugaskotstöðvum og írönskum bátum. Þetta hefur BBC og Fox News eftir miðlægri stjórnstöð hersins. Árásirnar hafi verið hluti af „sjálfsvörn“ til að „vernda hermenn okkar gegn þeirri ógn sem stafaði af írönskum herafla“. Erlent 25.5.2026 23:57
Rubio vongóður um vopnahlé Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að samkomulag við Íran gæti náðst í dag, mánudag. Hann segir samninganefndir landanna tveggja komnar með eitthvað bitastætt á samningaborðið en vinna sé þó enn yfirstandandi. Rubio er þessa stundina staddur í opinberri heimsókn á Indlandi. Erlent 25.5.2026 10:19
Trump vill ekki flýta sér Bandarísk stjórnvöld eru nálægt því að ná samkomulagi við Íran sem myndi binda enda á stríðið, opna Hormússund á ný og fela í sér að Íranir losi sig við birgðir af auðguðu úrani. Þetta hefur AP-fréttaveitan eftir embættismönnum í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beint þeim tilmælum til erindreka sinna að flýta sér ekki að gera samning. Erlent 24.5.2026 23:57
Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í færslu á samfélagsmiðlum að samkomulag um að binda enda á átökin í Miðausturlöndum lægi að mestu fyrir. Meðal ákvæða þess væri að opnað yrði fyrir umferð um Hormússund. Þessu hafna írönsk stjórnvöld alfarið. Erlent 23.5.2026 22:23
Mjakist nær samkomulagi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn og Írana „færast mun nær“ samkomulagi um að binda enda á stríðið í Miðausturlöndum. Báðir aðilar eru varkárir í yfirlýsingum en teikn um árangur hafa einnig borist frá Teheran. Erlent 23.5.2026 19:08
Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Dregið gæti til tíðinda í friðarviðræðum Bandaríkjamanna og Írans á næstu klukkustundum eða næstu dögum, að sögn utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Pakistanskir milligöngumenn segja að árangur hafi náðst í samræðum sínum við Írana í dag. Innlent 23.5.2026 15:13
Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Ráðamenn í Evrópu eru með til skoðunar að skipa sérstakan erindreka gagnvart Rússlandi sem koma á að friðarviðræðum um Úkraínu. Þessi erindreki myndi þá eiga í viðræðum við ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Fyrst þurfa Evrópumenn þó að komast að samkomulagi um hvað erindrekinn á að segja. Erlent 22.5.2026 22:22
Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að bandarískum hermönnum í Evrópu muni fækka. Um það sé skilningur meðal aðildarríkja NATO en framkvæmdastjóri bandalagsins segir að hin ríka Evrópa hafi reitt sig of mikið á Bandaríkin í varnarmálum og að það muni breytast á næstu árum. Erlent 22.5.2026 14:38
Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Stjórnvöld í Íran og Oman hafa rætt saman um að taka upp kerfi þar sem rukkað yrði fyrir skipaumferð um Hormuz-sund. Viðræðurnar eru ekki síst athyglisverðar í ljósi þess að Oman er bandamaður Bandaríkjanna og Bandaríkjastjórn hefur varað við hugmyndum um gjaldtöku á sundinu. Erlent 22.5.2026 11:35
Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Xi Jinping, forseti Kína, segir hættu á því að alþjóðasamfélagið fari aftur að lúta „frumskógarlögmálinu“. Samband Kínverja og Rússa sé hins vegar til þess gert að stuðla að stöðugleika. Vladimir Pútín Rússlandsforseti er staddur í opinberri heimsókn í Kína. Erlent 20.5.2026 12:43
Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ísrael hugðust koma fyrrverandi forseta Íran, Mahmoud Ahmadinejad, aftur til valda þegar þeir hófu árásir á landið. Ísraelsmenn lögðu á ráðin um árás á heimili Ahmadinejad í Tehran, þar sem hann sætti stofufangelsi, til að frelsa forsetann fyrrverandi. Ahmadinejad, sem særðist í árásinni, ku hafa vitað af áætluninni en snúist hugur þegar hann var frjáls. Ekki er vitað hvar hann er niðurkominn. Erlent 20.5.2026 10:23
Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Michael O'Leary forstjóri írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair segist hafa „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti félagsins í sumar þrátt fyrir viðvarandi eldsneytisskort margra flugfélaga vegna Íransstríðsins. Hann varar þó við því að flugfargjöld geti hækkað síðar á árinu. Viðskipti erlent 18.5.2026 15:35
„Annars verður ekkert eftir af þeim“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir varar við því að „ekkert verði eftir“ af Írönum ef þeir hafa ekki fljótar hendur við í friðarviðræðum. Viðræður milli Írana og Bandaríkjamanna dregist verulega á langinn og líkur eru á því að stríð brjótist aftur út. Erlent 17.5.2026 22:35
Bíður þetta böl lands og þjóðar? Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan. Lífið 14.5.2026 07:01
Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Á sama tíma og evrópsk flugfélög tilkynntu um samdrátt í flugáætlunum þeirra vegna stórhækkaðs eldsneytisverðs fjölgaði einkaþotuferðum í síðasta mánuði. Einaþotuútgerðir láta gagnrýni sér sem vind um eyru þjóta. Viðskipti erlent 13.5.2026 11:39
Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mætir í dag til Kína þar sem hann mun á næstu dögum funda með Xi Jinping, forseta Kína. Líklegt er að viðskipti ríkjanna verði helsta umræðuefni forsetanna en þeir hafa að öðru leyti margt að tala um, eins og átökin í Mið-Austurlöndum, málefni Taívan og gervigreind, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 13.5.2026 10:56
Hafa gert leynilegar árásir í Íran Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa gert leynilegar árásir á skotmörk í Íran. Sérfræðingar hafa lengi velt vöngum yfir slíkum árásum en þær eru meðal annars sagðar hafa beinst gegn olíuvinnsluinnviðum og vatnseymingarstöð. Erlent 12.5.2026 11:25
Skák og mát í Íran Bandaríkin geta hvorki snúið við né stjórnað afleiðingunum af því að tapa þessu stríði við Íran. Umræðan 11.5.2026 17:47
Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir vopnahléið gegn Íran hanga á bláþræði. Það er eftir að hann lýsti yfir miklum vonbrigðum með svör klerkastjórnarinnar í Íran við tillögum að mögulegum friði. Erlent 11.5.2026 16:07
Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum Tillögur Írana um forsendur fyrir viðræðum um varanlegan frið eru sagðar fela í sér afléttingu hafnbanns Bandaríkjanna á Hormuz-sundi, afléttingu allra refsiagerða gegn Íran og tryggingu fyrir því að ekki verði gerðar frekari árásir á landið. Þá segir Wall Street Journal tillögurnar fela í sér skammvinnra bann gegn auðgun úrans en Bandaríkjamenn höfðu lagt til og útflutning aðeins hluta birgða Írana af auðguðu úrani. Erlent 11.5.2026 07:01
„Gjörsamlega óásættanlegt“ Svör bárust frá írönskum stjórnvöldum í dag við friðartillögum Bandaríkjamanna. Lítið er vitað um innihald þeirra en Donald Trump Bandaríkjaforseti segir þau vera óboðleg. Erlent 10.5.2026 21:29
Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Donald Trump Bandaríkjaforseti segir vopnahlé enn í gildi milli Bandaríkjanna og Íran, þrátt fyrir að komið hafi til átaka á Hormuz-sundi í gær. Erlent 8.5.2026 06:55
Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Íranski herinn sakar Bandaríkjaher um að hafa brotið gegn samkomulaginu um vopnahlé. Bandaríkjamenn segjast hafa skotið gegn Írönum í sjálfsvörn. Erlent 7.5.2026 21:59
Franskur floti á leið til Persaflóa Frakkar eru að senda flugmóðurskipið Charles de Gaulle og fylgiskip þess í átt að Hormússundi. Flotanum var siglt gegnum Súesskurðinn í gær og er honum ætlað að koma að því að tryggja siglingar um sundið á nýjan leik. Forseti Frakklands segir þó að flotinn eigi alls ekki að koma að átökum á svæðinu. Erlent 7.5.2026 09:14
„Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir aðstæður í flugfélagarekstri í heiminum í dag mjög krefjandi og breytilegar. Viðskipti innlent 7.5.2026 08:24
Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Íranir hafa valdið mun meiri skaða á innviðum Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum en Bandaríkjastjórn hefur viljað kannast við. Þetta eru niðurstöður Washington Post, sem byggja á rannsóknum á gervihnattamyndum. Erlent 7.5.2026 07:30
Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ísraelar gerðu loftárás á Líbanon með það að markmiði að hæfa leiðtoga innan Hezbollah-samtakanna. Vopnahlé milli þeirra tók gildi um miðjan apríl. Erlent 6.5.2026 19:09
Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Íranskir fjölmiðlar segja það ekki rétt að viðræður um mögulegan frið við Bandaríkjamenn hafi tekið stakkaskiptum og að samkomulag gæti brátt legið fyrir. Íranir hafi enn ekki sent svar við nýjustu samningsdrögum Bandaríkjamanna og það þau drög innihaldi einhverjar „óásættanlegar kröfur“. Erlent 6.5.2026 14:02