Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran
1 2 3 4 5 6 … 15 ›
Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Breska hryðjuverkalögreglan rannsakar nú hvort Íran standi að baki meintum sprengjuáformum eftir að vopnaðir lögreglumenn fundu sprengiefni í þremur sendibílum sem lagt hafði verið í nokkurra mínútna fjarlægð frá herstöð Bandaríkjanna í Fairford í Gloucestershire í Bretlandi í gær. Bandaríski flugherinn hefur notað herstöðina í aðgerðum gegn Íran samkvæmt frétt Guardian. Erlent 28.9.2026 06:45
Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Stjórnvöld í Íran segja að deilan við Bandaríkin og Ísrael verði aðeins leyst með diplómatískum leiðum. Þetta kom fram í máli Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran í gær, degi eftir að Donald Trump lýsti því yfir að hann hafi hafnað tillögu Írana um að opna Hormússund og binda enda á átökin. Erlent 28.9.2026 06:40
Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Fimm voru handteknir nærri herflugstöðinni Fairford í Englandi í nótt eftir að íbúar þorps á svæðinu hringdu í lögreglu vegna þriggja sendiferðabíla sem þóttu grunsamlegir. Hringt var á lögregluna skömmu fyrir klukkan eitt í nótt en mennirnir sem voru í kjölfarið handteknir hafa verið sakaðir um brot á lögum um sprengiefni. Þeir liggja einnig undir grun um skipulagningu hryðjuverka. Erlent 27.9.2026 13:14
„Ég hafna samningi þeirra“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur staðfest að hann hafi hafnað tillögu Írana sem fólst í því að opnað yrði fyrir umferð flutningaskipa um Hormússund á ný. Hann segir tillöguna „óásættanlega“. Erlent 26.9.2026 21:30
Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Íranir lögðu fram tillögu að samkomulagi við Bandaríkin um opnun Hormússunds innan við viku með milligöngu Katar. Bandaríkjaforseti er sagður hafa hafnað tillögunni. Erlent 26.9.2026 08:33
Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa boðað yfirmenn herafla Tyrklands og Pakistan á fund þar sem ræða á hvernig ríkin tvö geta stutt Sáda vegna árása Húta í Jemen. Æðstiklerkur Sádi-Arabíu hefur kallað eftir því að hermenn konungsríkisins verði tilbúnir til að leggja lífið að veði í baráttunni gegn Hútum. Erlent 25.9.2026 07:52
Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Tugir fulltrúa ríkja á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gengu úr salnum þegar Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels steig í ræðustól í New York í dag. Forsætisráðherrann lét sér fátt um finnast og kallaði fulltrúana siðferðislega hugleysingja. Erlent 24.9.2026 21:08
Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Forseti Írans sakaði Bandaríkin um hryðjuverk í ræðu sinni fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og sagði Írani aldrei myndu beygja sig og bugta fyrir Bandaríkjunum. Þá hélt hann á myndum af hinum látna leiðtoga Ayatollah Khameinei sem og af látnum almennum borgurum. Á sama tíma lýsti hann Írani opna fyrir viðræðum en sendinefnd Bandaríkjanna yfirgaf salinn. Erlent 23.9.2026 20:59
Segir stóra ákvörðun framundan Donald Trump forseti Bandaríkjanna hótaði í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær að afmá klerkastjórnina í Íran ef átökin leystust ekki. Samskipti áttu sér stað á milli fulltrúa landanna á þinginu í gær. Erlent 23.9.2026 06:44
Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Donald Trump Bandaríkjaforseti fór um víðan völl eins og hans er von og vísa í árlegri ræðu hans frammi fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Hann segist standa frammi fyrir mikilli ákvörðun hvað varðar Íran, að gera samning við þarlend stjórnvöld eða eyða íslamska lýðveldinu. Þá gekk sendinefnd Kúbu út úr salnum og forsetinn sagði Bandaríkjamenn bera höfuð og herðar yfir Kína þegar kemur að gervigreind, sem hann nefndi nýju nafni. Erlent 22.9.2026 15:36
Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Bretar ætla að aðstoða Sáda í átökum þeirra gegn Hútum, með því að veita „varnartengda“ eldsneytisþjónustu. Breskar eldsneytisflugvélar verða senda til Sádi-Arabíu og notaðar til að dæla eldsneyti á herþotur Sáda. Erlent 22.9.2026 10:56
Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Ráðamenn í Kína hafa sent skilaboð til ráðamanna í Íran og beðið klerkastjórnina um hjálp við að halda aftur af Hútum í Jemen. Það er eftir að ríkisstjórn Sádi-Arabíu, sem selur talsvert af olíu til Kína, bað Kínverja um aðstoð. Árásir Húta á olíuvinnsluinnviði í Sádi-Arabíu og lokun sunnanverðs Rauðahafs fyrir siglingum Sáda hafa komið verulega niður á getu konungsríkisins til að flytja olíu úr landi. Erlent 18.9.2026 10:01
Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna telur grundvöll til að telja að Bandaríkjamenn hafi framið stríðsglæpi í tveimur árásum þeirra á Íran á þessu ári. Það telur írönsk stjórnvöld einnig hafa framið glæp gegn mannkyninu þegar þau börðu niður mótmæli. Erlent 17.9.2026 13:24
Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Bandarískir hermenn notuðu allt að og um áttatíu háþróuð og rándýr flugskeyti til að verjast nýlegri árás Írana á herstöð í Jórdaníu. Íranir notuðu um tuttugu skotflaugar við árásina og sprengjur úr þeim náðu til jarðar. Enginn bandarískur hermaður lét lífið en herþotur og aðrar flugvélar urðu fyrir skaða. Erlent 16.9.2026 16:49
Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Búið er að vara lengi við því að takmarkanir á flutningum olíuafurða um Hormússund muni á endanum leiða til olíukrísu. Yfirmenn bandarískra olíufélaga segja að sú krísa sé nú að raungerast. Olíubirgðir víða um heim séu að verða tómar og vandræði Sáda við að flytja út olíu um aðrar leiðir en sundið hafa aukið á vandann. Viðskipti erlent 15.9.2026 14:57
Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Donald Trump segir að ráðamenn í bæði Kænugarði og í Moskvu hafi samþykkt að ráðast ekki á orkuinnviði hvors annars. Þá heldur hann því fram að hærra olíuverð sé vegna Úkraínustríðsins en ekki vegna stríðs Bandaríkjanna gegn Íran. Rússar hafa ekki staðfest að samkomulag hafi náðst en Úkraínumenn hafa boðið Rússum slíkt um nokkuð skeið. Erlent 14.9.2026 16:20
Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, fundaði í morgun með Brad Cooper, aðmírál og yfirmanni yfirstjórnar herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (Centcom). Prinsinn hefur á undanförnum dögum farið fram á við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að Bandaríkjamenn aðstoði Sáda með árásum á Húta í Jemen. Því hefur Trump hafnað. Erlent 14.9.2026 11:17
Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Verð hráolíu hefur rokið upp í dag vegna áhyggja af enn frekari truflunum á flutningsleiðum olíu um heiminn, sem rekja má til aukinna og harðnandi átaka í Jemen. Hútar tóku í dag mikilvægan strandbæ við Rauðahaf sem mun gera þeim mun auðveldara að gera árásir á olíuflutningaskip á Rauðahafi. Erlent 10.9.2026 16:35
Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist ætla að gefa öllum fullorðnum Bandaríkjamönnum fimm þúsund dollara ef repúblikanar bera sigur úr býtum í báðum deildum þingsins. Kosningarnar fara fram í nóvember. Erlent 10.9.2026 07:30
Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Erindrekar frá Pakistan komu í dag viðvörun á framfæri við ráðamenn í Íran. Klerkastjórnin var beðin um að koma böndum á Húta eftir umfangsmiklar árásir þeirra á Sádi-Arabíu, ellegar væri hætta á því að átök á svæðinu gætu stigmagnast verulega. Erlent 9.9.2026 23:21
Réðust á fleiri olíuflutningaskip Bandaríkjamenn gerðu í dag árásir á fimm olíuflutningaskip Írana til viðbótar, eftir að Íranir skutu eldflaugum í átt að bandarísku herskipi. Íranir svöruðu með umfangsmiklum eldflaugaárásum. Erlent 8.9.2026 21:43
Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Hútar skutu í nótt tugum dróna og eldflauga að fjórum borgum í Sádi-Arabíu. Að minnsta kosti 73 eru særðir eftir árásirnar og ollu þær meðal annars skemmdum á olíuvinnsluinnviðum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu heita umfangsmiklum viðbrögðum en átök hafa harðnað í Jemen að undanförnu. Erlent 8.9.2026 20:50
Klerkastjórnin missir tökin Ráðamenn í Íran vöruðu í dag við því að þeir gætu gert árásir á bandarísk skotmörk í Mið-Austurlöndum og á olíuvinnsluinnviði í nágrannaríkjum sínum. Klerkastjórnin virðist þó vera að missa tökin á Hormússundi og þar af leiðandi missa vogarafl í mögulegum viðræðum við Bandaríkjamenn. Erlent 7.9.2026 20:01
Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Javier Milei, forseti Argentínu, segir að Argentína verði að ná stjórn á Falklandseyjum af Bretum. Hann vill stöðva byggingu olíuborpalls nærri eyjunum og vísar til þess að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi nýverið gefið til kynna að Bandaríkjamenn gætu breytt afstöðu sinni gagnvart eyjunum umdeildu. Erlent 4.9.2026 20:17
Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Ráðgjafar Bandraíkjaforseta vilja sjá til þess að forsetinn haldi átökum á Hormússundi í lágmarki fram að þingkosningum í nóvember, í von um að draga ekki enn frekar úr stuðningi við Repúblikana. Engu að síður hafa árásir færst í aukana við sundið undanfarna daga. Erlent 2.9.2026 23:54
Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Íranir skutu í nótt flugskeytum og drónum að bandarískum herstöðvum í Jórdaníu, Kúveit, Íraq og Barein. Voru árásirnar gerðar í kjölfar þess að Bandaríkjamenn hófu árásir á Írani að nýju í gær. Erlent 2.9.2026 06:42
Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Bandaríkjaher hóf árásir á skotmörk íranska byltingarvarðarins í Íran í dag. Árásirnar eru svar Bandaríkjahers við tilraunum byltingarvarðarins til árása á kaupskip á Hormússundi að sögn hersins. Erlent 1.9.2026 17:51
Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Daniel P. Driscoll, hermálaráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt af sér í kjölfar árekstra við Pete Hegseth varnarmálaráðherra sem hefur látið reka þaulreynda leiðtoga úr Bandaríkjaher síðustu mánuði. Erlent 1.9.2026 00:00
Íhuga fleiri árásir á Hormússund Donald Trump Bandaríkjaforseti og hans hæstsettu ráðgjafar vega nú og meta hvort Bandaríkjaher eigi að gera takmarkaðar árásir á Hormússundi í von um að koma í veg fyrir það að Íranir geti endurreist ratsjár- og eldflaugagetu sína á svæðinu. Erlent 31.8.2026 19:32
Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Íranir hafa svarað fyrir árásir Bandaríkjamanna á skotflaugapalla á Larak-eyju með árásum á herstöðvar í Jórdaníu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þá hafa fjölmiðlar í Íran greint frá því að kviknað hafi í olíuflutningaskipi á Hormússundi, eftir að skipið lenti á tveimur tundurduflum. Erlent 31.8.2026 06:51