Orkumál

Rún nýr samskiptastjóri Veitna
Rún Ingvarsdóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri Veitna. Rún kemur inn í teymi sérfræðinga sakskipta- og samfélags hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sem er móðurfélag Veitna.

Óhaldbær rök sjálfbærnistjórans
Ómögulegt er að útvega orkuna sem til þarf svo hætta megi notkun jarðefnaeldsneytis hér á landi, eingöngu með bættri nýtingu starfandi virkjana á Íslandi. Að stilla áskoruninni upp með þessum hætti er ekki ein sviðsmynd af mörgum, líkt og sjálfbærnistjóri Orkuveitunnar staðhæfir. Heldur er þetta hreinlega markmiðið sem stjórnvöld hafa sett sér.

Ekki frítt í stæði fyrir rafmagnsbíla frá og með áramótum
Reglur sem veita rétt til þess að leggja rafmagns- og metan-bílum endurgjaldslaust í gjaldskyld bílastæði í Reykjavík falla úr gildi um áramótin. Ekki er lengur talin þörf á slíkum ívilnunum.

Tvöfalda þarf orkuframleiðsluna vegna orkuskiptanna
Tvöfalda þarf orkuframleiðslu í landinu á næstu átján árum til að ná fram markmiðum um orkuskipti miðað við núverandi orkunýtingu Íslendinga. Umhverfis- orku- og loftslagsráðherra segir að flókið geti reynst að ná fram nauðsynlegri pólitískri samstöðu um þetta en telur alla sammála um markmiðin.

Reykjavíkurborg fær rafmagn frá N1
N1 rafmagn ehf. mun sjá Reykjavíkurborg fyrir rafmagni næstu tvö árin, frá og með áramótum. Rafmagnskaup borgarinnar færast frá dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur sem er í meirihlutaeigu borgarinnar.

„Leiðinlegt að þeir skuli ekki sjá þetta með opnari hug“
Ívar Ketilsson, Bitcoin-sérfræðingur sem heldur úti hlaðvarpinu Bitcoin-byltingin, vísar því á bug að horfurnar séu ekki góðar á sviði rafmynta nú um mundir. Virði Bitcoin hefur staðið í stað í um 20.000 Bandaríkjadölum frá því í sumar.

Máttu nota uppfinningu nýsköpunarstjóra
Íslenskar orkurannsóknir þurfa ekki að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum fyrir notkun á uppfinningum sem starfsmaðurinn fann upp á meðan hann var enn starfsmaður. Starfsmaðurinn taldi sig eiga rétt á hluta af nettóhagnaði af uppfinningunum.

Gasið flæðir frá Frakklandi til Þýskalands í fyrsta sinn
Gas er nú byrjað að flæða frá Frakklandi til Þýskalands í fyrsta sinn. Þetta er hluti af aukinni samvinnu ríkjanna í orkumálum vegna orkukreppu í Evrópu.

Innanlandsvélar Icelandair gætu verið knúnar vetni eftir þrjú ár
Tækni til að umbreyta olíuknúnum innanlandsflota Icelandair í vetnisknúnar flugvélar verður tilbúin eftir þrjú ár. Þetta kom fram á fundi um orkuskipti í flugi á Reykjavik Edition hótelinu í dag í tengslum við Hringborð norðurslóða.

Hvetja Breta til að spara gas og rafmagn í vetur
Orkustofnun Bretlands hvatti landsmenn til þess að spara gas og rafmagn eftir fremsta megni til þess að draga úr hættu á því að grípa þurfi til skammtana og hjálpa til við að lækka verð. Forstjóri stofnunarinnar telur þó ólíklegt að skortur verði á gasi og rafmagni.

Páll tekur við af Júlíusi hjá HS Veitum
Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku, mun taka við stöðu forstjóra HS Veitna í upphafi næsta árs. Hann tekur við stöðunni af Júlíusi Jóni Jónssyni sem lætur senn af störfum sem forstjóri eftir fjörutíu ára starf hjá félaginu.

Vantar raddir í virkjanakórinn?
Það var áhugaverð spurning sem Innherji setti fram í gær. Ætlar Orkuveita Reykjavíkur að skila auðu í orkuskiptunum, spurði nafnlaus blaðamaðurinn, sem virðist hafa verið utan þjónustusvæðis um hríð.

Hvernig og hvaðan koma orkuskiptin?
Stjórnvöld hafa metnaðarfullar áætlanir í loftslagsmálum og stefna að kolefnishlutleysi og fullum orkuskiptum árið 2040 Augljóst er að orkufyrirtæki þjóðarinnar, öflugasta orkufyrirtæki landsins sem vinnur um 70% af allri raforku hér á landi, getur gegnt lykilhlutverki í að hrinda þeim áætlunum í framkvæmd.

Er allt vænt grænt?
Það er mikið sótt að hugmyndafræði ESG um þessar mundir og hún gagnrýnd með ýmsum hætti. Það sem veitir gagnrýnendum byr undir báða vængi er meðal annars stríð í Úkraínu og áhrif þess á orkuöryggi og matvælaverð sem og yfirvofandi alþjóðlega efnahagslægð. Undir þeim kringumstæðum er eðlilegt að staldra við og endurhugsa málin.

Bein útsending: Orkuskipti í flugi - tækifæri fyrir Ísland
Morgunfundur Icelandair, Isavia, Landsvirkjunar og Samtaka ferðaþjónustunnar sem ber yfirskriftina Orkuskipti í flugi - tækifæri fyrir Ísland hefst í dag klukkan 8:30. Búist er við því að fundinum ljúki klukkan 10.

Ætlar Orkuveita Reykjavíkur að skila auðu í orkuskiptunum?
Rauði þráðurinn í stefnumótun stjórnvalda hér á landi sem erlendis eru orkuskiptin. Í þeim felst einna helst að skipta kolefnisorkugjöfum fyrir umhverfisvænari orkugjafa. Óraunhæft er að láta af notkun kolefnisorkugjafa víðast hvar um heim til skemmri tíma eða lengri tíma litið. Þeir eru einfaldlega of veigamiklir. Fyrsta markmiðið ætti alltaf að vera að draga úr vexti notkunar þeirra og auka hlutfall endurnýjanlegra og umhverfisvænna orkugjafa.

Beinum kröftum okkar á réttan stað
Tímarnir hafa breyst. Núna er sama hvort viðmælandinn starfar hjá einka- eða ríkisfyrirtæki eða er við stjórnvölinn hjá félagasamtökum eða á þjóðarskútunni. Öll eiga það sameiginlegt að vilja leggja hönd á plóg í baráttunni gegn loftslagsvandanum. Þau gera það á eigin vinnustað og í einkalífinu en ekki síst með því að stuðla að samstarfi fjölda aðila alls staðar í samfélaginu.

Húsasmiðjan byggir upp græna innviði og dregur enn frekar úr kolefnisfótspori
Húsasmiðjan hefur sett sér metnaðarfull markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í allri starfsemi fyrirtækisins. Hluti af þeim markmiðum er að að skipta út jarðeldsneyti í bílaflota fyrirtækisins í umhverfisvæna orkugjafa.

Þurfa að stórauka framlög til endurnýjanlegrar orku og aðlögunar
Þjóðir heims þurfa að þrefalda framlög sín til uppbyggingar endurnýjanlegrar orkugjafar og tvöfalda framleiðslu á hreinni orku á næstu átta árum til þess að hægt verði að ná loftslagsmarkmiðum. Á sama tíma ógna loftslagsbreytingar orkuinnviðum heimsins.

Framkvæmdastjóri ON: Aukin raforkuframleiðsla ekki á teikniborðinu
Orka náttúrunnar (ON) hefur ekki í hyggju að byggja upp nýjar jarðvarmavirkjanir eða auka raforkuframleiðslu sína. Fjárfestingar í virkjunum ON munu fyrst og fremst miða að því að viðhalda núverandi orkuframleiðslu. Þetta segir Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

Hleðslustöðvamálinu lokið eftir nei frá Hæstarétti
Ísorka fær ekki að áfrýja dómi Landsréttar í hleðslustöðvarmálinu svokallaða til Hæstiréttar. Málskotsbeiðni Ísorku var hafnað af Hæstarétti fyrir helgi.

Harpa og Ingólfur til ON
Harpa Pétursdóttir og Ingólfur Örn Guðmundsson hafa verið ráðin til Orku náttúrunnar. Ingólfur hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns sölu- og viðskiptaþróunar og Harpa í starf aðstoðarkonu framkvæmdastýru.

Spáð að þessi verði fyrsta rafknúna farþegaflugvélin
Þegar rafmagnsflugvélin Alice hóf sig til flugs fyrir tólf dögum frá Grant County-alþjóðaflugvellinum í Washington-ríki í Bandaríkjunum sagði CNN-fréttastofan að hún væri fyrsta farþegaflugvél heims, sem alfarið væri rafknúin, til að taka flugið. Þetta fyrsta reynsluflug hennar varði í átta mínútur og fór hún í 3.500 feta hæð.

Strengur í hjarta Reykjavíkur úti vegna álags
Byggingaframkvæmdir og þétting byggðar í Reykjavík hafa valdið víðtækum rafmagnstruflunum síðustu vikur. Forstöðumaður hjá Veitum segir að auka þurfi samstarf við verktaka svo rafmagnsbilanir verði ekki algengari samhliða aukinni uppbyggingu.

Þétting byggðar ein helsta orsök tíðra rafmagnsbilana
Byggingaframkvæmdir sem fylgja þéttingu byggðar eru helsta orsök óvenju tíðra rafmagnsbilana sem hafa hrjáð íbúa miðbæjar og Vesturbæjar upp á síðkastið. Veitingamaður segist hafa tapað gríðarlegum fjármunum vegna rafmagnsleysisins í gær.

Sér fram á mikið tekjutap vegna rafmagnsleysis
„Klukkan hálf fimm, þá sló bara út,“ segir Kristján Þorsteinsson á veitingastaðnum Osushi í Tryggvagötu. Staðurinn er á meðal þeirra sem glímir við víðtækt rafmagnsleysi í miðborg Reykjavíkur. Segja má að slökkt sé á vesturhluta borgarinnar að stóru leyti.

Landsnet í viðbragðsstöðu vegna óveðursins
Starfsmenn Landsnet eru í viðbragðsstöðu fyrir óveður sem reiknað er með að gangi yfir stóran hluta landsins á sunnudag. Aukinn mannskapur hefur verið kallaður út.

Á varðbergi vegna veðursins
Landsnet er á varðbergi vegna óveðursins sem spáð er að skelli á stóran hluta landsins næstkomandi sunnudag. Varað hefur verið við því að ísing og selta geti sest á raflínur og valdið rafmagnsleysi.

Rússum ekki boðið í nýtt bandalag sem á að stilla saman strengi Evrópuríkja
Leiðtogar ríkja Evrópska stjórnmálabandalagsins, sem á ensku nefnist European Political Community, funda í fyrsta skipti í sögu hins nýja bandalags í dag. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tekur þátt í fundinum fyrir hönd Íslands.

Saka samtök olíuútflutningsfyrirtækja um að styðja Rússa
OPEC+ samtök olíuútflutningsríkja ákváðu í dag að draga verulega úr olíuframleiðslu til að bregðast við lækkandi olíuverði. Áhrifin á heimshagkerfið eru talin mikil og búist er við hækkunum á olíuverði eftir langþráðar lækkanir síðustu vikur. Ákvörðunin er högg fyrir Joe Biden Bandaríkjaforseta sem segir ákvörðunina til marks um skammsýni og sakar samtökin um að styðja Rússa með ákvörðuninni.