Orkumál

„Ég hef aldrei verið jafn vel inni í þessu máli og akkúrat núna“
Formaður Miðflokksins segist aldrei hafa verið jafnvel upplýstur um þriðja orkupakkann og nú, eftir ræður félaga sinna. Formaður utanríkismálanefndar segir hins vegar ekkert nýtt hafa komið fram í ræðum Miðflokksmanna.

Hatari og Måns höfðu mest áhrif á vatnslosun í Reykjavík
Vatnsnotkun Reykvíkinga minnkaði talsvert þegar Hatari steig á svið á úrslitakvöldi Eurovision 2019 í Tel Aviv í gærkvöldi.

Inga Dóra hættir sem framkvæmdastjóri Veitna
Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna, mun á næstunni færa sig til innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur.

Andstæðingar orkupakkans afhentu varaforseta undirskriftir
Orkan okkar segist hafa safnað tæplega 13.500 undirskriftum gegn samþykkt þriðja orkupakkans.

Vegir Landsvirkjunar á við hálfan hringveginn í lengd
Landsvirkjun hefur á rúmlega hálfrar aldar starfstíma sínum lagt vegi á landinu sem samsvarar vegalengdinni milli Reykjavíkur og Egilsstaða. Fjárfesting orkufyrirtækisins í vegagerð nemur yfir tíu milljörðum króna.

Kolbeinn: Hafi Sigmundur ekki vitað af viðræðum var hann ekki góður forsætisráðherra
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, harðneitað að hann hafi getað stöðvað ferli þriðja orkupakkans á meðan hann sat sem forsætisráðherra.

Áslaug Arna segir Sigmund snúa út úr
Formaður utanríkismálanefndar brást illa við ummælum formanns Miðflokksins sem hann hafði uppi í gær, en hann gaf í skyn í fjölmiðlum að fundi utanríkismálanefndar um þriðja orkupakkann á fimmtudag hefði verið haldið leyndum fyrir sér.

EFTA-ríkin árétta sérstaklega sérstöðu Íslands í orkumálum
Sérstaða íslensks orkumarkaðar er áréttuð í yfirlýsingu EFTA-ríkjanna í sameiginlegu EES-nefndinni. Þar segir að þriðji orkupakkinn hafi engin áhrif á yfirráð ríkjanna yfir orkuauðlindum sínum.

Fulltrúar Tesla funduðu með íslenskum embættismönnum um rafbílavæðingu
Fulltrúar bandaríska rafbílaframleiðandans Tesla áttu fundi með íslenskum embættismönnum í stjórnkerfinu og á sveitarstjórnarstiginu áður tekin var ákvörðun um að opna útibú á Íslandi og auglýsa fimm lausar stöður.

EFTA-ríkin lýsa yfir sérstöðu Íslands í raforkumálum
Sameiginleg yfirlýsing Íslands, Noregs og Liechtenstein um sérstöðu Íslands á raforkumarkaði ESB var kynnt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Eining um að fækka dælunum
Borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í gær meginlínur og samningsmarkmið í viðræðum við olíufélögin, sem miða að því að fækka bensínstöðvum í borginni um helming.

Orkan okkar andvíg gegnsæi um orkuverð
Frosti Sigurjónsson, segir ekki til hagsbóta að auka gegnsæi um raforkuverð. Landsvirkjun eigi að nýta upplýsingaleynd í samningum. Forstjóri Landsvirkjunar segir stóriðju helst hafa hag af því að innleiða ekki orkupakkann.

Baudenbacher: Höfnun þriðja orkupakkans gæti sett aðild Íslands að EES í uppnám
Carl Baudenbacher fyrrverandi dómari við EFTA-dómstólinn telur að ef íslenska ríkið hafnar innleiðingu þriðja orkupakkans gæti það stefnt aðild ríkisins að EES-samningnum í uppnám.

Bjóða 15 prósenta hlut í HS Veitum til sölu
Fjárfestar hyggjast selja tæplega 42 prósenta hlut í félagi sem er næststærsti hluthafinn í HS Veitum. Samtals er um að ræða nærri 15 prósenta óbeinan hlut í fyrirtækinu sem er að mestu í eigu sveitarfélaga.

Þriðji orkupakkinn vekur lítinn áhuga
Meira en þriðjungur almennings veit ekki hvort hann er hlynntur eða andvígur samþykkt þriðja orkupakkans. Ráðherra orkumála segir kappkostað að koma upplýsingum á framfæri.

Norðmenn stefna á fjárfestingar í íslenskum vindi
Norska vindorkufyrirtækið Zephyr hefur stofnað dótturfyrirtæki á Íslandi, Zephyr Iceland. Markmiðið er að reisa vindmyllur og vindmyllugarða á Íslandi.

Fleiri andvígir samþykkt orkupakkans
Tæpur helmingur er andvígur því að Alþingi samþykki þriðja orkupakkann en innan við þriðjungur er því fylgjandi samkvæmt nýrri könnun. Tæp 59 prósent segjast annaðhvort ekki hafa kynnt sér málið eða kynnt sér það illa.

Stefán Már segir aðalatriðið vegna þriðja orkupakkans að reglugerð um ACER öðlast ekki lagagildi
Sú leið sem íslenska ríkið ætlar að fara við staðfestingu reglugerða þriðja orkupakkans er líklega án fordæma. Stefán Már Stefánsson lagaprófessor segir að það skipti ekki máli því reglugerð um Samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði (ACER) mun ekki taka gildi á Íslandi nema lagður verði sæstrengur og fram fari ný endurskoðun síðar á því hvort reglurnar samrýmist stjórnarskránni.

Vilja alla vindorku í umhverfismat
Inga Sæland og Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmenn Flokks fólksins, vilja að öll raforkuframleiðsla með 2 MW uppsett afl eða meira verði skyldug til að undirgangast umhverfismat.

Ekki hægt að tala um afleiðingar loftslagsbreytinga sem neitt annað en neyð
Umhverfisráðherra sat fyrir svörum í Sprengisandi í dag.

Viðskiptaráðsmönnum úthýst úr umræðuhóp Orkunnar okkar
Lögfræðingi Viðskiptaráðs Íslands, Gunnari Dofra Ólafssyni var í dag úthýst úr Facebook-hópnum Orkan okkar. Gunnar Dofri greinir frá því í færslu á Facebook-síðu sinni að tilefni útilokunarinnar virðist vera færsla Gunnars í hópnum sem fjallaði um umsögn Viðskiptaráðs um þriðja orkupakkann.

Telur að fyrirvarinn sem var nefndur „kanína úr pípuhatti“ hafi ekki verið nauðsynlegur
Birgir Tjörvi Pétursson lögmaður segir að fyrirvarinn í þingsályktun utanríkisráðherra um þriðja orkupakkann, sem tryggði stuðning margra þingmanna Sjálfstæðisflokksins við málið, hafi í raun verið ónauðsynlegur.

Telja afstöðu ráðuneytisins óljósa
Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, er nú í greiningarvinnu á vatnsgjaldi síðustu ára í kjölfar úrskurðar sveitarstjórnarráðuneytisins um að álagning OR á vatn árið 2016 hafi verið ólögmæt.

Fræðimenn greinir á um hvort valdframsal þriðja orkupakkans rúmist innan stjórnarskrár
Sú leið sem er farin með upptöku tilskipana þriðja orkupakkans samrýmist tveggja stoða kerfi EES-samningsins að mati Skúla Magnússonar dósents og héraðsdómara. Ágreiningur er hins vegar meðal fræðimanna í lögfræði um hvort valdframsalið sé nægilega vel afmarkað og skilgreint þannig að það rúmist innan íslensku stjórnarskrárinnar.

Ekki hægt að skipa fyrir um lagningu sæstrengs
Formaður utanríkismálanefndar segir að skýr svör hafi fengist á fundi nefndarinnar í gær við ýmsum rangfærslum sem uppi hafi verið í umræðunni um þriðja orkupakkann. Fulltrúi Miðflokksins vill leita undanþágu frá innleiðingu reglugerðar um Samstarfsstofnun eftirlitsstofnana á raforkumarkaði.

„Góður málstaður þarfnast ekki ósanninda, bara útskýringa“
Gunnar Dofri Ólafsson, lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, vill að frjálslynt fólk sameinist gegn popúlistum og standi vörð um EES-samninginn.

Spurði hvort Katrín gæti aðstoðað Bjarna við að framfylgja eigin stefnu
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, spurði forsætisráðherra um þriðja orkupakkann í dag.

Ný akleið opnast milli Mývatns og Húsavíkur
Landsvirkjun er að hefja lagningu heilsársvegar sem tengja mun Þeistareyki og Mývatnssveit. Þetta verður ein stærsta vegagerð ársins og mun opna áhugaverða hringleið fyrir ferðamenn.

Bjartsýnn á að orkupakki þrjú verði samþykktur á þingi
Utanríkisráðherra segir umræðuna um þriðja orkupakkann enn einkennast af miklum rangfærslum andstæðinga hans.

Díselolía víkur fyrir rafmagni á hálendinu
RARIK mun leggja raflínu og ljósleiðara frá Bláfellshálsi upp í Kerlingafjöll og Hveravelli í sumar sem mun gerbreyta aðstæðum ferðaþjónustu- og fjarskiptaþjónustufyrirtækja á hálendinu.