Frjálsar íþróttir

FRÍ frestar mótum og varar við frekari röskun
Frjálsíþróttasamband Íslands hefur frestað mótum vegna tilmæla um að íþróttaviðburðum verði frestað til 10. ágúst hið minnsta.

Fá lengri tíma til að ná lágmarki fyrir Ólympíuleikana
World Athletics, Alþjóða frjálsíþróttasambandið, gaf það út í dag að tími til að ná lágmarki í maraþonhlaupi fyrir Ólympíuleikana í Tókýó hafi verið lengdur.

Hafdís best og vill vera þeim yngri fyrirmynd: Hef fundið að ég er ekki sú vinsælasta
Hafdís Sigurðardóttir hefur unnið fjölmörg verðlaun fyrir Ísland, jafnvel með rifinn liðþófa í hné, slegið lífseig Íslandsmet en líka þurft að sætta sig við að vera „einu kreditkorti“ frá sæti á Ólympíuleikum og vera utanveltu í íslenska landsliðinu.

Evrópumeistarinn náði einu kasti lengra en Ásdís
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud, Íslandsmethafi í spjótkasti, varð í 2. sæti á móti í Þýskalandi í gær þar sem hún kastaði á ný yfir 60 metra og veitti ríkjandi Evrópumeistara góða keppni.

Guðbjörg Jóna með besta afrekið en FH-ingar með flesta titla
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir úr ÍR og Kolbeinn Höður Gunnarsson úr FH eru sprettharðasta fólk landsins í dag miðað við það að þau unnu 100 metra hlaup á fyrri keppnisdegi Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum á Akureyri.

Guðbjörg Jóna: Ef ég bæti mig þá set ég Íslandsmet
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fer fram á Akureyri um helgina þrátt fyrir að nokkrir keppendur mótsins hafi verið skipaðir í sóttkví. Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir stefnir á að setja enn eitt Íslandsmetið.

Frjálsíþróttakeppandi með veiruna - Meistaramótið fer fram um helgina
Á þriðja tug einstaklinga eru komnir í sóttkví eftir að þátttakandi á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum, 15-22 ára, um síðustu helgi greindist með kórónuveiruna.

Guðlaug Edda: Þetta er veruleiki sem er til staðar á Íslandi núna
Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautakona, ræddi nýjan raunveruleika afreksíþrótta-fólks sem þarf nú að vera virkt á samfélagsmiðlum til að fá styrki og fjárhagslega aðstoð frá fyrirtækjum.

Bætti 37 ára gamalt Íslandsmet í gærkvöld
Hlynur Andrésson bætti í gærkvöldi 37 ára gamalt Íslandsmet í 3000 metra hlaupi á móti í Hollandi. Þetta er hans áttunda Íslandsmet.

Vigdís hefur bætt eigið Íslandsmet ítrekað en vill gera betur
Vigdís Jónsdóttir er margfaldur Íslandsmeistari í sleggjukasti. Hún stefnir á Ólympíuleikana þegar fram líða stundir.

Heimsmeistarinn taldi sig hafa bætt heimsmet Usain Bolt en svo reyndist ekki
Noah Lyles taldi sig hafa slegið heimsmet Usain Bolt í gær en svo reyndist ekki þegar betur var að gáð.

Vigdís Jónsdóttir bætti eigið Íslandsmet í sleggjukasti
Sleggjukastarinn Vigdís Jónsdóttir úr FH setti Íslandsmet í dag á 9. Origo móti FH er hún kastaði 62,69 metra og bætti sitt eigið Íslandsmet um 11 sentímetra.

„Augljóst að við þurfum að sjá þessa stöðu breytast næstu árin“
Stjórn Frjálsíþróttasambands Íslands þurfti að færa stærsta mót ársins í tvígang og loks milli landshluta með skömmum fyrirvara vegna óboðlegra aðstæðna á höfuðborgarsvæðinu. Formaður segir sveitafélögin ekki vera að standa sig.

Ásdís aldrei kastað jafn oft eins nálægt Íslandsmetinu
Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari, hafnaði í öðru sæti á Leichtathletik-mótinu í Luzern í Sviss í dag. Hún kastaði fjórum sinnum yfir 60 metra en Íslandsmetið er 63,43 metrar, sem hún á sjálf.

Meistaramót Íslands fært til Akureyrar
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum utanhúss hefur verið fært úr Kópavogi norður til Akureyrar. Mótið fer fram á Þórsvelli dagana 25. og 26. júlí.

Ásdís byrjar lokaárið af krafti: „Gjörsamlega búin á því“
„Þetta var annar góður dagur á skrifstofunni,“ segir Ásdís Hjálmsdóttir, Íslandsmethafi í spjótkasti, sem átti fjórða besta kastið í heiminum í ár þegar hún kastaði 62,66 metra á móti í Svíþjóð í gær.

Spyr sig hver sé framtíð frjálsra íþrótta í Reykjavík
Verið er að leggja nýtt undirlag á hluta hlaupabrautarinnar við þjóðarleikvanginn í Laugardal eftir að brautin varð fyrir skemmdum í vetur. Frjálsíþróttafólk segir aðstöðuna sem boðið er upp á í Laugardal óboðlega.

Vigdís bætti Íslandsmet
Vigdís Jónsdóttir bætti í dag eigið Íslandsmet í sleggjukasti á Origo móti FH. Mótið fór fram í Kaplakrika í sólskini og við frábærar aðstæður.

Lærisveinn Vésteins með lengsta kast ársins
Sænski kringlukastarinn Daniel Ståhl átti risakast á frjálsíþróttamóti í Helsingborg í dag og kom sér í efsta sæti heimslistans yfir lengstu köst ársins.

„Öldungurinn“ Ásdís byrjar á Norðurlandameti og sínu lengsta kasti í þrjú ár
Ásdís Hjálmsdóttir, Íslandsmethafi í spjótkasti, átti sitt lengsta kast í tæp þrjú ár þegar hún keppti á móti í Svíþjóð í gær.

Kláraði og vann sjöþraut fótbrotin: Helvíti en ég fór þetta á þrjóskunni
Sigur Maríu Rúnar Gunnlaugsdóttur í sjöþraut á danska meistaramótinu í fyrra er enn merkilegri eftir að hún sagði hvað hún þurfti að ganga í gegnum til þess að klára þrautina.

Meistaramóti Íslands í frjálsum seinkað um mánuð
Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum hefur verið fært fram til loka júlímánaðar.

Heimsmeistari í bann fyrir að mæta ekki í lyfjapróf
Ríkjandi heimsmeistari í 400 metra hlaupi, Salwa Eid Naser frá Barein, hefur verið dæmd í tímabundið bann frá keppni eftir að hafa ekki mætt í lyfjapróf.

Bætti Íslandsmetið í níunda skiptið
FH-ingurinn Vigdís Jónsdóttir endurheimti Íslandsmetið í sleggjukasti á fyrsta mótinu eftir kórónuveirufaraldurinn.

Fljótasta kona landsins vinnur hjá skattinum í sumar
Það ætti að vera mun erfiðara „að hlaupast“ undan skattinum í sumar nú þegar Ríkisskattstjóri er með Íslandsmethafann í 100 og 200 metra hlaupi í vinnu hjá sér.

Skrýtið að finna fyrir svo miklu hatri út af víðavangshlaupi
Arnar Pétursson, margfaldur Íslandsmeistari í maraþoni, hefur á glæstum ferli sínum sem hlaupari verið sakaður um svindl bæði í Reykjavíkurmaraþoninu og í Víðavangshlaupi ÍR.

Arnar hljóp fyrsta maraþonið án undirbúnings og sló 26 ára met - Valdi hlaupin eftir að Martin fékk landsliðssæti
Arnar Pétursson var á kafi í körfubolta þegar hann kom foreldrum sínum og fleirum í opna skjöldu með því að hlaupa maraþon 18 ára gamall, og slá 26 ára gamalt Íslandsmet.

Félögin ráðstafa peningunum frá ÍSÍ eftir eigin höfði
Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdarstjóri Fjölnis, segir að félögin geti ráðstafað peningnum frá ÍSÍ eins og þau vilja en Fjölnir var það íþróttafélag sem fékk hæsta styrkinn frá ÍSÍ vegna áhrifa COVID-19.

Ekki hægt að æfa frjálsar utanhúss í Reykjavík: „Afleiðing ákvarðanaleysis“
Ekki er hægt að stunda frjálsar íþróttir utanhúss í Reykjavík í dag svo að vel sé. Eina hlaupabrautin í borginni, á Laugardalsvelli, er ónýt eftir veturinn og tafir hafa orðið á því að nýr völlur í Mjódd verði tilbúinn.

Ásdís fær ekki að enda á stórmóti en vonast eftir því að bæta Íslandsmetið
Frjálsíþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir fær ekki að enda síðasta árið sitt á stórmóti því nú hefur bæði Ólympíuleikunum í Tókýó sem og EM 2020 verið frestað vegna kórónuveirunnar.