Úkraína
21 22 23 24 25 26 27 28 29 … 79 ›
Loftvarnaflautur hljóma og íbúum um allt land sagt að leita skjóls Loftvarnaflautur hafa hljómað út um alla Úkraínu í morgun og íbúar hvattir til að leita skjóls. Yfirvöld hafa varað við því að Rússar hyggist gera umfangsmiklar loftárásir á landið í dag. Erlent 10.2.2023 08:34
Kokkur Pútíns hættur að ráða fanga í Wagner Yevgeny Prigozhin, eigandi rússneska málaliðahópsins Wagner Group, sagði frá því í dag að hann væri hættur að ráða málaliða úr fangelsum Rússlands. Föngum hefur um nokkurra mánaða skeið boðist að ganga til liðs við Wagner og þjóna í sex mánuði í Úkraínu í skiptum fyrir frelsi. Erlent 9.2.2023 22:34
Komu höndum yfir áætlun um yfirtöku Rússa í Moldóvu Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í dag að Úkraínumenn hefðu komist á snoðir um áætlun leyniþjónusta Rússlands sem sneru að því að gera árásir á Moldóvu. Leyniþjónusta Moldóvu hefur staðfest þessar fregnir. Erlent 9.2.2023 20:06
Alræmdur málaliðaforingi skotinn í höfuðið á stuttu færi Hinn alræmdi herforingi og málaliði Igor Mangushev er látinn eftir að hafa verið skotinn í höfuðið af stuttu færi við varðstöð í Kadiivka. Eiginkona hans segir um aftöku að ræða og ýjað hefur verið að því að yfirmaður Wagner-hópsins hafi fyrirskipað morðið. Erlent 9.2.2023 08:58
Mikilvægar vikur í vændum í Úkraínu Ráðamenn í Úkraínu búast við umfangsmiklum árásum Rússa í austurhluta landsins á næstu vikum. Þeir segja Rússa hafa komið tugum og jafnvel hundruð þúsund hermönnum fyrir á svæðinu og þeir séu þegar byrjaðir að reyna að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur með því að senda hermenn fram í bylgjum. Erlent 8.2.2023 23:06
Órjúfanleg vinátta þjóðanna tveggja Úkraínuforseti kom í óvænta heimsókn til Bretlands í dag og fundaði með forsætisráðherra og konungi landsins. Þá ávarpaði hann breska þingið og þakkaði því stuðning í baráttunni við Rússa. Erlent 8.2.2023 20:00
Pútín hafi ákveðið að senda eldflaugina sem notuð var gegn MH17 Alþjóðlegt teymi rannsakenda segist hafa fundið sterkar vísbendingar um að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefði persónulega heimilað sendingu loftvarnarkerfis til aðskilnaðarsinna í Úkraínu sem notað var árið 2014 til að skjóta niður farþegaþotu frá Malasíu. Ólíklegt sé þó að hægt verði að sækja hann til saka. Erlent 8.2.2023 19:15
Selenskí í óvæntri heimsókn til Bretlands í dag Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti mun í dag heimsækja Bretland í fyrsta sinn síðan Rússar réðust inn í heimaland hans fyrir tæpu ári síðan. Heimsóknin er óvænt en við því er búist að Selenskí muni á morgun ferðast til Brussel til fundar við Evrópusambandið. Erlent 8.2.2023 10:40
Rússar hóta að auka árásir sínar vegna vopnasendinga Bandaríkjamenn eru byrjaðir að senda Bradley bryndreka til Úkraínu en hafa einnig lofað að senda þangað öflugri skriðdreka ásamt nokkrum ríkjum Evrópu. Varnarmálaráðherra Rússlands segir að með þessu séu bandalagsþjóðirnar að reyna að lengja í stríðinu. Erlent 7.2.2023 19:50
Úrvinda hermenn búast við enn harðari átökum Úrvinda úkraínskir hermenn kvarta yfir því að eiga við ofurefli að etja í austurhluta Úkraínu, þrátt fyrir að Rússar hafi ekki enn sent alla þá hermenn sem skikkaðir voru til herþjónustu á víglínurnar. Úkraínskir læknar segja mannfall hafa aukist að undanförnu en hart er barist víða á víglínunum í Úkraínu. Erlent 6.2.2023 22:41
Segir Pútín hafa lofað sér því að láta ekki drepa Selenskí Naftali Bennett, fyrrverandi forsætisráðherra Ísrael, hefur greint frá því að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hafi heitið honum því skömmu eftir innrás Rússa í Úkraínu að hann myndi ekki láta drepa Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Erlent 6.2.2023 07:36
Varnarmálaráðherra Úkraínu látinn taka pokann sinn Oleksii Reznikov hefur verið skipt út sem varnarmálaráðherra Úkraínu. Kyrylo Budanov, yfirmaður GUR leyniþjónustunnar, leysir hann af hólmi. Erlent 5.2.2023 21:47
Klitschko reiður vegna Rússa á ÓL: Með gullmedalíu í að nauðga konum Einn frægasti íþróttamaður í sögu Úkraínu sparaði ekki stóru orðin þegar hann gagnrýndi fréttirnar af því að Alþjóðaólympíunefndin, IOC, vilji finna leið fyrir Rússa og Hvít-Rússa til að taka þátt í Ólympíuleikunum í París á næsta ári. Sport 2.2.2023 09:31
Búast við stórsókn Rússa í lok febrúar Varnarmálaráðherra Úkraínu fullyrðir að Rússar séu að undirbúa nýja stórsókn sem gæti hafist í lok þessa mánaðar eða í kringum 24. febrúar. Erlent 2.2.2023 07:09
Tékklandsforseti vill Úkraínu í Nató um leið og stríðinu lýkur Nýkjörinn forseti Tékklands segist þeirrar skoðunar að Úkraína eigi að fá inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 1.2.2023 07:38
„Ljóst að yfirstandandi atburðir hafa stórskaðað samstarf norðurskautsríkja“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra er stödd í Tromsø í Noregi en þar stendur yfir norðurslóðaráðstefnan Arctic Frontiers. Innrás Rússlands í Úkraínu og afleiðingar hennar fyrir norðurslóðasamstarf voru efst á baugi í umræðum utanríkisráðherra Íslands, Noregs og Svíþjóðar og ráðuneytisstjóra finnska utanríkisráðuneytisins á ráðstefnunni í dag. Innlent 31.1.2023 19:44
Sameinuð með tónlist og himinháum kostnaði Slagorð Eurovision keppninnar sem haldin verður í Liverpool í ár, hefur verið afhjúpað og útlit keppninnar sömuleiðis. Kostnaður Breta við keppnina gæti numið meira en þremur milljörðum íslenskra króna. Tónlist 31.1.2023 11:45
Biden segir „nei“ við þotum til handa Úkraínumönnum „Nei,“ svaraði Joe Biden Bandaríkjaforseti einfaldlega þegar hann var spurður að því í Hvíta húsinu í gær hvort Bandaríkjamenn myndu senda F-16 herþotur til Úkraínu. Úkraínumenn kalla nú eftir herþotum eftir að hafa verið lofað skriðdrekum. Erlent 31.1.2023 06:38
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Við verðum að gera tímann að vopni okkar“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði í gærkvöldi eftir því að bakhjarlar ríkisins flýti vopnasendingum til landsins. Harðir bardagar geisa víða í austurhluta Úkraínu, þar sem Rússar virðast hafa gefið í á undanförnum dögum. Erlent 30.1.2023 15:00
Pútín sagðist geta skotið eldflaug á Bretland á innan við mínútu Að sögn Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sagðist Vladimir Pútín Rússlandsforseti geta skotið eldflaug í átt að Bretlandi „á innan við mínútu“ í símtali sem átti sér stað skömmu áður en Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 30.1.2023 07:16
Rússar safna í nýjan herafla á Krímskaga Rússar gerðu stórfelldar loftárásir á borgir og raforkuinnviði í Úkraínu í morgun. Þeir segja ákvörðun Vesturlanda um að senda skriðdreka til landsins marka beina þátttöku vestrænna ríkja í vörnum Úkraínu og ögrun við öryggi Rússlands. Erlent 26.1.2023 19:21
Kirkjugarður Wagner hefur sjöfaldast að stærð Kirkjugarður þar sem málaliðar Wagner Group eru jarðaðir hefur margfaldast af stærð á undanförnum mánuðum. Málaliðahópurinn er sagður hafa orðið fyrir miklu mannfalli í austurhluta Úkraínu en flestir þeirra sem falla eru sagðir vera fangar sem tóku tilboði um sex mánaða þjónustu í Wagner í skiptum fyrir frelsi. Erlent 26.1.2023 13:50
Skutu þrjátíu eldflaugum á Úkraínu Umfangsmikil loftárás er nú í gangi í Úkraínu en Rússar skutu í morgun að minnsta kosti þrjátíu eldflaugum á skotmörk í landinu. Erlent 26.1.2023 08:32
Kanslari Þýskalands mætir á leiðtogafund á Íslandi Þjóðverjar og bandalagsþjóðir þeirra í Atlantshafsbandalaginu munu senda Úkraínumönnum rúmlega hundrað skriðdreka til að byrja með, samkvæmt ákvörðun sem kanslari Þýskalands greindi frá í dag. Forsætisráðherra segir varkárni Þjóðverja skiljanlega í ljósi sögunnar. Erlent 25.1.2023 19:21
Bandaríkjamenn senda Úkraínumönnum 31 skriðdreka Bandaríkjamenn hafa samþykkt að senda 31 M1 Abrams skriðdreka til Úkraínu. Bandaríkjamenn hafa verið tregir til að senda skriðdreka en í gær samþykktu Þjóðverjar að senda 14 Leopard 2A6 skriðdreka á vígvöllinn. Búist er við að fleiri ríki Atlantshafsbandalagsins fylgi þessu fordæmi og sendi skriðdreka til Úkraínu. Erlent 25.1.2023 18:03
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Segja að vestrænir skriðdrekar brenni eins og aðrir Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, mun í dag tilkynna þýska þinginu ákvörðun sína um að flytja Leopard 2A6 skriðdreka til Úkraínu og leyfa ráðamönnum annarra ríkja sem nota skriðdrekana að senda einnig skriðdreka. Erlent 25.1.2023 10:50
Hleypa hlébörðunum á vígvöllinn Olaf Scholz kanslari Þýskalands hefur tekið ákvörðun um að senda skriðdreka, svonefnda hlébarða (Leopard 2) til Úkraínu. Þá verður öðrum þjóðum, sem búa yfir slíkum skriðdrekum, að öllum líkindum leyft að senda þá til Úkraínu, en þar sem skriðdrekarnir eru framleiddir í Þýskalandi þurfa þarlend yfirvöld þurfa að samþykkja útflutning þeirra. Erlent 24.1.2023 19:07
Bandaríkjamenn sagðir íhuga að senda sína skriðdreka Ráðamenn í Bandaríkjunum er sagðir líklegir til að senda Úkraínumönnum M1 Abrams skriðdreka á næstunni. Slíkar sendingar gætu verið tilkynntar strax í næstu viku en með þeim myndu Þjóðverjar einnig samþykkja að senda eigin skriðdreka og leyfa öðrum ríkjum að senda þýska skriðdreka. Erlent 24.1.2023 16:52
Biðja formlega um leyfi til skriðdrekasendinga Yfirvöld í Póllandi hafa sent formlega beiðni til Þýskalands um leyfi til þess að senda Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Ráðamenn í Póllandi hafa gefið í skyn að verði beiðninni hafnað muni þeir samt senda skriðdrekana en Þjóðverjar hafa verið undir miklum þrýstingi að undanförnu vegna málsins. Erlent 24.1.2023 11:01
Telur hæpið að Rússar verði reknir á brott á þessu ári Mark Milley, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segist telja óraunhæft að búast við því að Úkraínumenn geti rekið allar rússneskar hersveitir út úr Úkraínu á þessu ári. Hann sagðist ekki telja það ómögulegt en sagðist telja að stríðið í Úkraínu myndi enda við samningaborðið, eins og flest önnur stríð. Erlent 21.1.2023 22:30