Úkraína
22 23 24 25 26 27 28 29 30 … 79 ›
Skilgreina Wagner sem alþjóðleg glæpasamtök Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að skilgreina rússneska málaliðahópinn Wagner Group sem alþjóðleg glæpasamtök. Í kjölfar þess verður hópurinn beittur viðskiptaþvingunum sem takmarka eiga umsvif hópsins á heimsvísu. Erlent 21.1.2023 09:07
Macron ætlar í mikla hernaðaruppbyggingu Emmanuel Macron, forseti Frakklands, tilkynnti í dag áætlun sína um þriðjungs aukningu á fjárútlátum til varnarmála. Samkvæmt áætlun hans á að verja 413 milljörðum evra til hersins á árunum 2024 til 2030, en á síðustu sambærilegu fjárhagsáætlun, frá 2019 til 2025, voru sömu fjárútlát 295 milljarðar. Erlent 20.1.2023 15:56
Samþykkja ekki enn skriðdrekasendingar til Úkraínu Boris Pistorius, nýr varnarmálaráðherra Þýskalands, sagði við blaðamenn í Ramstein í Þýskalandi í dag að engin ákvörðun hefði verið tekin um það að senda Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Hann sagði þó að ráðuneyti hans myndi fara yfir birgðastöðu Þjóðverja og kanna hve marga skriðdreka hægt væri að senda og hve fljótt, verði slík ákvörðun tekin á næstunni. Erlent 20.1.2023 14:25
Rússar segja að sendingar vestrænna skriðdreka muni engu máli skipta Dmitrí Peskóv, talsmaður Valdimírs Pútíns, forseta Rússlands, segir að hergagnasendingar Vesturlanda til Úkraínu muni ekki hafa nein áhrif á stöðu mála á víglínum landsins. Sendingarnar muni eingöngu auka á vandræði Úkraínumanna. Erlent 20.1.2023 11:17
Ráðherra meðal þeirra sem dóu þegar þyrla brotlenti á leikskóla Denys Monastyrskiy, innanríkisráðherra Úkraínu, aðstoðarinnanríkisráðherra og ráðuneytisstjóri eru meðal þeirra minnst átján sem dóu í þyrluslysi í Brovary, skammt austur af Kænugarði, í morgun. Erlent 18.1.2023 08:41
Hrapaði við leikskóla í úthverfi Kænugarðs Þyrla eða dróni rakst á byggingu sem hýsir leikskóla í Brovary, úthverfi Kænugarðs, í Úkraínu í morgun. Innlent 18.1.2023 07:50
Ólafur Stephensen og birgðastaðan á dilkakjöti hjá KS Ólafur Stephensen framkvæmdastóri Félags atvinnurekenda skráir eftirfarandi á facebook síðu sína 17. janúar 2023. „Á bls. 13 í Morgunblaðinu í dag er sagt frá nýjasta stríðsglæp Rússa í Úkraínu, eldflaugaárás á íbúðablokk, þar sem minnst 40 manns létu lífið. Af 75 særðum eru 14 börn. Skoðun 18.1.2023 07:01
Á að ákveða hvort Úkraína fái vestræna skriðdreka Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, tilkynnti í morgun að hann myndi skipa Boris Pistorius í embætti varnarmálaráðherra. Sá hefur verið innanríkisráðherra Neðra-Saxlands frá árinu 2013 en hans fyrsta verk í nýju embætti verður að taka ákvörðun um það hvort flytja megi Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Erlent 17.1.2023 13:01
Stór hluti af Mudryk-peningunum fer til úkraínska hersins Forseti Shakhtar Donetsk, Rinat Akhmetov, hefur greint frá því að stór hluti upphæðarinnar sem félagið fékk frá Chelsea fyrir Mykhalo Mudryk renni til úkraínska hersins og hans baráttu hans við innrásarlið Rússa. Enski boltinn 16.1.2023 14:01
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar undirbúa sig fyrir langvarandi stríð Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er byrjaður að taka skref í að breyta hinni „sértæku hernaðaraðgerð“, eins og hann kallar innrás Rússa í Úkraínu, í langvarandi stríð. Ríkisstjórn hans vinnur meðal annars að áframhaldandi herkvaðningu og umfangsmiklum breytingum á iðnaðarkerfi Rússlands með því markmiði að halda stríðinu í Úkraínu áfram til lengdar. Erlent 16.1.2023 11:12
Tugir látnir og fleiri saknað eftir eldflaugaárás á íbúðablokk Minnst 29 hafa fundist látnir og 44 er leitað eftir að Rússar gerðu eldflaugaárás á íbúðablokk í Dnipro í Úkraínu í gær. Ólíklegt er að nokkur finnist á lífi í rústunum. Erlent 15.1.2023 23:23
Kippir sér frekar upp við rafmagnsleysið en sprengingarnar Loftárásir voru gerðar á mikilvæga innviði Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu í morgun. Óskar Hallgrímsson, ljósmyndari sem er búsettur í borginni, segir nýjustu loftárásir Rússa sýna fram á veikleika í loftvarnarkerfi Úkraínumanna. Hann segist fremur kippa sér upp við rafmagnsleysi en sprengingar. Innlent 14.1.2023 14:07
Loftárásir á innviði Kænugarðs Loftárásir voru gerðar á mikilvæga innviði Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu í morgun. Yfirvöld beina því til íbúa að leita skjóls í loftvarnarbyrgjum. Erlent 14.1.2023 09:40
Segir enn barist í Soledar en sveitum Rússa hafi fjölgað úr 250 í 280 Úkraínumenn halda enn borginni Soledar en hersveitum Rússa í Úkraínu hefur fjölgað úr 250 í 280 frá því í síðustu viku. Þetta sagði Hanna Maliar, aðstoðarutanríkisráðherra Úkraínu, á blaðamannafundi í morgun. Erlent 12.1.2023 12:36
Úkraínuforseti segir hinn frjálsa heim sigra Rússa Rússneskar hersveitir hafa sótt hart fram við bæinn Soledar skammt frá borginni Bhakmut í austurhluta Úkraínu undanfarna sólarhringa. Mikið mannfall hefur verið á báða bóga í tilraunum Wagner hersveita Rússa til að ná Bhakmut á sitt vald undanfarna mánuði. Erlent 11.1.2023 19:21
Pútín skiptir um herforingja í Úkraínu Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands, tilkynnti í dag að Valery Gerasimov, formaður herforingjaráðs Rússlands, muni taka yfir stjórn innrásar Rússa í Úkraínu. Gerasimov tekur við af herforingjanum Sergei Surovikin, sem hefur verið yfir innrásinni undanfarna þrjá mánuði. Erlent 11.1.2023 18:10
Rússar sækja fram í Soledar Hersveitir Rússa hafa náð árangri gegn Úkraínumönnum í bænum Soledar í austurhluta Úkraínu. Bærinn er norður af Bakhmut en gífurlega harðir bardagar hafa geisað á svæðinu um langt skeið. Rússar hafa reynt að ná Bakhmut í marga mánuði en virðast nú ætla að reyna að umkringja borgina. Erlent 10.1.2023 22:30
Kallar eftir stigmögnun af hálfu bandamanna Sir Richard Shirreff, fyrrverandi hershöfðingi hjá Atlantshafsbandalaginu, segir að Bretar hefðu átt að senda Úkraínumönnum skriðdreka fyrir mörgum mánuðum. Bretar íhuga nú að senda Challenger-2 skriðdreka til Úkraínu. Erlent 10.1.2023 11:07
Íhuga að senda breska skriðdreka Ríkisstjórn Bretlands íhugar að senda Challenger 2 skriðdreka til Úkraínu. Málið hefur verið til skoðunar í nokkrar vikur en ef af verður verða Bretar fyrstir til að senda Úkraínumönnum skriðdreka sem framleiddir eru á Vesturlöndum. Erlent 9.1.2023 18:15
Ekkert hæft í fullyrðingum Rússa um mikið mannfall Stjórnvöld í Úkraínu vísa alfarið á bug fullyrðingum Rússa frá því í gær sem sögðust hafa fellt 600 úkraínska hermenn á einu bretti í eldflaugaárás. Erlent 9.1.2023 07:36
Senda vestræna bryndreka til Úkraínu Yfirvöld Í Bandaríkjunum og Þýskalandi tilkynntu í gærkvöldi að ríkin myndu senda tugi bryndreka til Úkraínu og þjálfa áhafnir á þá á komandi vikum. Það var í kjölfar þess að Frakkar opinberuðu að þeir ætluðu að senda brynvarin farartæki. Erlent 6.1.2023 10:54
Yfirlýsingar um vopnahlé ekkert nema blekkingar og áróður Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir yfirlýsingar Rússlandsforseta um vopnahlé yfir rússnesku jólahátíðina ekkert annað en blekkingarleik til að freista þess að tefja gagnsókn Úkraínuhers í austurhluta Donbas. Erlent 6.1.2023 08:56
Pútín vill jólavopnahlé Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur skipað Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra sínum, að koma á einhliða vopnahléi í hádegi á morgun til miðnættis á laugardagskvöld (7. janúar), eða í 36 klukkustundir. Það er eftir að æðsti klerkur rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar lagði slíkt vopnahlé til. Erlent 5.1.2023 15:47
Sinna íslensk stjórnvöld ekki sem skyldi öryggis- og varnarmálum? Ásakanir um andvaraleysi í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu standast ekki skoðun né heldur fullyrðingar um gerbreyttar aðstæður í íslenskum öryggis- og varnarmálum hennar vegna. Innrásin og stríðið í Úkraínu hafa ekki haft neinar afleiðingar sem veikja undirstöður varna- og öryggismála Íslands eða krefjast endurmats á þeim, hvað þá þess að fast herlið verði á landinu – eins og meðal annars hefur verið kallað eftir. Innherji 5.1.2023 15:39
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar sagðir stefna á aðra herkvaðningu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er að undirbúa þjóð sína fyrir langvarandi átök í Úkraínu og Rússar eru sagðir vera að undirbúa aðra herkvaðningu. Bakhjarlar Úkraínumanna vinna að því að senda ný vopnakerfi til landsins en forðast enn að senda skriðdreka. Erlent 5.1.2023 14:00
Myndir ársins 2022: Eldgos, óveður og menn í járnum Ljósmyndarar og myndatökumenn Vísis voru á ferð og flugi árið 2022. Eldgos, óveður og stjórnmálin voru að sjálfsögðu meðal helstu myndefna en aðgerðir lögreglu og dómsmál komu einnig oft við sögu. Innlent 4.1.2023 09:30
Kokkur Pútíns segir hvert hús í Bakhmut vera virki Rússneski herinn á í basli með að brjóta varnir Úkraínumanna við Bakhmut á bak aftur þar sem „hvert hús er virki“, samkvæmt Yevgeny Prigozhin, eiganda Wagner Group málaliðahópsins. Hann og Wagner hafa leitt viðleitni Rússa við að ná tökum á bænum um mánaða skeið en víglínunum þar hefur verið lýst sem „hakkavél“. Erlent 3.1.2023 15:13
Farsímanotkun sögð hafa leitt til einnar mannskæðustu árásar stríðsins Rússneskir ráðamenn í Donetsk-héraði í Úkraínu segja að þeir hermenn sem féllu í einni af mannskæðustu árásum stríðsins í Úkraínu á nýársnótt geti kennt sjálfum sér um. Úkraínumenn hafi fundið þá vegna þess hve margir af hermönnunum voru að nota farsíma sína. Erlent 3.1.2023 11:16
Selenskí segir drónaárásir Rússa verða langvarandi Selenskí Úkraínuforseti sagði í reglulegu ávarpi sínu í nótt að Rússar ætli sér augljóslega að beita írönskum drónum í meira mæli næstu mánuðina til að draga stríðið á langinn og að ætlun þeirra sé að vona að Úkraínumenn missi baráttuþrekið. Erlent 3.1.2023 07:18
Sagðir hafa fellt hundruð Rússa í einni árás Úkraínumenn eru sagðir hafa fellt hundruð rússneskra hermanna í einni árás í austurhluta Úkraínu á nýársnótt. Fregnir hafa borist af því að flugskeytum hafi verið skotið að skóla í bænum Makívka því þar hafi fjölmargir hermenn verið komnir saman. Erlent 2.1.2023 11:13