Úkraína

„Slátrarinn í Sýrlandi“ tekur við stjórn hersins í Úkraínu
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur skipað nýjan herforingja til að taka yfir stjórn innrásarinnar í Úkraínu. Sá heitir Aleksandr Dvornikov en er gjarnan kallaður „Slátrarinn í Sýrlandi“. Herforinginn tók við stjórn innrásarinnar um helgina en hingað til hefur enginn einn herforingi haldið utan um hernaðaraðgerðir Rússa.

Segja Rússa beita efnavopnum í Maríupol
Úkraínsk stjórnvöld hafa sakað Rússaher um að notast við efnavopn við Maríupol, hafnarborg í suðausturhluta landsins. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna fylgist með málinu en hefur ekki viljað staðfesta fregnir af árásinni.

Vaktin: Úkraínskar hersveitir búa sig undir síðasta bardagann í Maríupól
Breska varnamálaráðuneytið varar við því að Rússar muni mögulega nota fosfór-vopn í Maríupól, líkt og þeir hafa áður gert í Donetsk. Þeir segja notkun Rússa á ónákvæmum sprengjum stórauka hættuna á dauða almennra borgara.

Rýnt í stöðuna: Vopnakapphlaup í austri
Rússar vinna enn hörðum höndum að því að koma liðsauka til hersveita í austurhluta Úkraínu. Markmið þeirra er að ná fullum tökum á og halda Donbas-héraði en miklar efasemdir eru uppi um það hvort Rússar geti það yfir höfuð.

Vaktin: „Sannleikurinn mun sigra“
Ríkissaksóknari Úkraínu segir að rúmlega tólf hundruð lík hafi fundist í nágrenni við Kænugarð eftir að Rússar drógu herlið sitt til baka. Þá eru Rússar grunaðir um að hafa framið rúmlega 5.600 stríðsglæpi í Úkraínu frá því að innrásin hófst. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í dag og í kvöld.

Fyrrum ráðgjafi Pútíns segir að „alvöru viðskiptabann“ myndi binda enda á stríðið
„Raunverulegt innflutningsbann“ á orku frá Rússlandi gæti orðið til þess fallið að binda enda á stríðið í Úkraínu, að mati fyrrverandi efnahagsráðgjafa Vladimírs Pútín Rússlandsforseta.

Vaktin: Óbreyttir borgarar myrtir í Donetsk
Frá því að innrás Rússa inn í Úkraínu hófst fyrir 44 dögum hefur rússneskum hersveitum orðið lítið ágengt. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins munu á næstu dögum beita sér fyrir því að Alþjóðaglæpadómstóllinn taki fyrir mögulega stríðsglæpi Rússa. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag.

Segir árásina á lestarstöðina enn eitt dæmið um stríðsglæpi Rússa
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir árás rússneskra hersveita á lestarstöð í Kramatorsk vera enn eitt dæmið um þá stríðsglæpi sem Rússar hafa framið í Úkraínu og kallar hann eftir réttarhöldum. Rússar neita sök en utanríkisráðherra Úkraínu segir að um slátrun hafi verið að ræða og varnamálaráðuneyti Bretlands telur ljóst að rússneskar hersveitir hafi ráðist vísvitandi á almenna borgara.

Hengdu blóðugar dúkkur á grindverk sendiráðs Rússlands
Úkraínskar konur sem búa hér á landi stilltu upp blóðugum dúkum við rússneska sendiráðið í Reykjavík í dag og vilja að sendiherra Rússlands verði vísað úr landi. Utanríkisráðherra útilokar ekki að það verði gert.

39 látnir í Kramatorsk en Rússar segjast alsaklausir
Að minnsta kosti 39 eru látnir og um 90 slasaðir eftir að árás var gerð á lestarstöðina í Kramatorsk, þar sem talið er að um 4.000 manns almennir borgara hafi beðið eftir að komast burtu frá Donbas.

Vaktin: Evrópusambandið bætir í refsiaðgerðir
Yfirvöld í Úkraínu segja Rússa nú gera árásir á Odesa frá Svartahafi. Innviðir hafi orðið fyrir skemmdum. Breska varnarmálaráðuneytið segir að svo virðist sem Rússar hafi nú alfarið yfirgefið norðurhluta landsins.

Hleruðu rússneska hermenn ræða morð á íbúum Bucha
Leyniþjónusta Þýskalands (BND) hleraði samskipti milli rússneskra hermanna þar sem þeir meðal annars ræddu það að skjóta almenna borgara. Talið er mögulegt að umræðurnar tengist morðum á íbúum Bucha, norður af Kænugarði.

Vaktin: Sagðir eiga í töluverðum agavandræðum
Meirihluti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna greiddi atkvæði í dag um að víkja Rússum úr Mannréttindaráðinu. Utanríkisráðherra Úkraínu fagnaði niðurstöðunni en hann sagði stríðsglæpamenn ekki eiga erindi í ráð sem hafi það að markmiðið að vernda mannréttindi.

Fleiri lík finnast og Lúkasjenkó vill aðkomu að viðræðunum
Washington Post hefur birt sláandi frétt frá Bucha, þar sem fleiri lík finnast á hverjum degi. Ein verstu hroðaverkin sem Rússar frömdu í bænum áttu sér stað í glerverksmiðju við jaðar bæjarins.

Vaktin: Tíu eldflaugar fyrir hvern rússneskan skriðdreka
Yfirvöld í Úkraínu segjast hafa 4.700 mögulega stríðsglæpi Rússa til rannsóknar. Þau segja 167 úkraínsk börn hafa látið lífið frá því að innrásin hófst. Erlend ríki vinna einnig að því að safna sönnunargögnum um hroðaverk innrásarhersins, sem ráðamenn í Rússlandi segja ýmist hafa verið skipulögð af Vesturlöndum eða nasistum.

„Mun aldrei nást friður eða vopnahlé ef við erum bara í einhverjum kór“
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir mikilvægt að átta sig á því hvernig almenningur í Rússlandi hugsi. Stríðið í Úkraínu muni ekki hafa einfalda skyndilausn og tíst sem hann hafi sent frá sér séu ekki til marks um nokkurskonar stuðning hans við Vladimír Pútín, forseta Rússlands.

Ákvörðunin „stór og rétt“
Þingmaður Viðreisnar hvatti til þess á Alþingi í dag að starfsmenn rússneska sendiráðsins á Íslandi yrðu sendir úr landi. Utanríkisráðherra kveðst ekki útiloka slíkar ráðstafanir.

Óttast stórsókn í austri
Þúsundir íbúa í austurhluta Úkraínu hafa flúið Donbas að undanförnu af ótta við stórsókn Rússa í austurhluta Úkraínu. Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir að stríðið geti dregist í marga mánuði eða ár.

„Það var engin virðing borin fyrir mannslífum“
Íslendingur segir eyðileggingu og ummerki eftir nauðganir og morð hafa blasað við þegar hann heimsótti bæinn Bucha í útjaðri Kænugarðs í gær.

Vaktin: Undanhaldi Rússa frá Kænugarði að ljúka
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kemur til með að ávarpa öryggisráð Sameinuð þjóðanna í dag en þetta er í fyrsta sinn sem hann ávarpar ráðið frá því að innrás Rússa hófst í febrúar.

Úkraínuforseti vill Rússa út úr öryggisráðinu og draga þá fyrir stríðsglæpadómstól
Forseti Úkraínu hvetur til þess að Rússar verði reknir úr öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir stríðsglæpi og Evrópusambandið ætlar að banna innflutning á kolum frá Rússlandi og skipum þaðan að koma til evrópskra hafna.

Segir hryllinginn í Bucha aðeins eitt dæmi af mörgum og krefst aðgerða
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til fundar í New York í dag en Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði meðal annars ráðið í gegnum fjarfundarbúnað. Hann lýsti hryllingnum í Bucha, og víðar, kallaði eftir alvöru aðgerðum og gagnrýndi viðbrögð alþjóðasamfélagsins við stríðsglæpum Rússa.

Sindri þekkti bæjarstjórann sem Rússar skutu: Þetta hefðu getað verið við
Íslenskur maður sem flúði Kænugarð segir mikla heppni að hann hafi ekki verið fluttur inn í hús sem hann var að byggja í bænum Motishin. Hann þekkti bæjarstjórann þar vel sem fannst í gær látin ásamt eiginmanni sínum og syni. Þau höfðu verið skotin af Rússum.

Ný móttökumiðstöð fyrir flóttafólk var opnuð í Reykjavík
Ný móttökumiðstöð fyrir flóttafólk hefur opnað í Reykjavík þar sem Domus Medica var áður til húsa. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra segir mikilvægt að flóttafólkið geti leitað allrar nauðsynlegrar þjónustu á einum stað.

Vaktin: Gervihnattamyndir sýna lík á götum Bucha þann 11. mars
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Rússa hafa gerst seka um stríðsglæpi í Bucha og víðar þar sem fólk hafi verið pyntað, konum nauðgað og börn myrt. Hann segist enn opinn fyrir friðaviðræðum en að það reynist þeim sífellt erfiðara að semja við Rússa.

Sannfærð um að hinir seku verði sóttir til saka
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segist sannfærð um að Rússar verði sóttir til saka vegna stríðsglæpa. Það sagði hún í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og sagði hún einnig að fregnir af ódæðum rússneskra hermanna í norðurhluta Úkraínu muni hafa áhrif á viðhorf umheimsins gagnvart innrásinni.

Kallar Pútín stríðsglæpamann en telur ekki að um þjóðarmorð sé að ræða
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur farið fram á það að Vladímír Pútín Rússlandsforseti verði sóttur til saka fyrir stríðsglæpi sína í Úkraínu og fordæmdi fjöldamorðið í bænum Bucha. Forseti Úkraínu sakar Rússa um þjóðarmorð í bænum en Biden tekur ekki undir það.

Rússneska sendiráðið á Íslandi tekur undir með Moskvu en hvað er rétt?
Talsmenn sendiráðs Rússlands á Íslandi hafa tjáð sig um hroðaverkin í Bucha og endurtaka þá línu frá Moskvu að um sé að ræða „ögrun“ af hálfu Úkraínustjórnar.

Dynamo Kiev leikur gegn stærstu liðum Evrópu til að safna pening fyrir Úkraínu
Úkraínsku meistararnir Dynamo Kiev munu leika vináttuleiki gegn Barcelona, Paris Saint-Germain og AC Milan, ásamt öðrum stórliðum Evrópu til að safna pening fyrir stríðshrjáða þjóð þeirra.

Hryllingur í Bucha: Fullyrðir að rússneskir hermenn séu verri en íslamska ríkið
Utanríkisráðherra Úkraínu segir Rússa hafa framið fjöldamorð á almennum borgurum í bænum Bucha, þar sem lík liggja eins og hráviði á götum eftir brotthvarf Rússa. Vestrænir leiðtogar fordæma Rússa fyrir voðaverk á svæðinu og saka þá sumir um stríðsglæpi.