Hafa náð undraverðum árangri á nokkrum dögum Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2022 10:59 Úkraínskur hermaður á ferðinni á bryndreka í Kharkív-héraði. Úkraínskir hermenn þar hafa tilefni til gleði, miðað við gengi þeirra undanfarna daga. Getty/Metin Aktas Úkraínumenn hafa náð umfangsmiklum árangri í gagnárás gegn Rússum í Kharkív-héraði í norðurhluta landsins. Hersveitir Úkraínu eru sagðar komnar minnst fimmtíu kílómetra í gegnum varnir Rússa á einungis þremur dögum og hafa frelsað tugi þorpa og bæja sem hafa verið í haldi Rússa frá því innrásin hófst.
Þá eru Úkraínumenn þegar byrjaðir að skera á mjög mikilvægar birgðalínur Rússa á svæðinu. Vendingar sem þessar hafa ekki orðið á víglínunum í Úkraínu frá því snemma í innrásinni. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í ávarpi sínu í gærkvöldi að rúmlega þúsund ferkílómetrar af úkraínsku landsvæði hefðu verið frelsaðir. Forsetinn birti svo myndband sem sýndi úkraínska hermenn frá borginni Balakliya sem Rússar voru reknir frá á undanförnum dögum. Þessir hermenn tilkynntu Selenskí í myndbandinu að búið væri að framfylgja skipuninni um frelsun borgarinnar. defenders address Zelenskyy from liberated Balakliya"Mr. President, Mr. Commander-in-Chief, Balakliya is taken under control, the order has been completed. Today is Sept. 8, 4 p.m. Glory to Ukraine!" https://t.co/kvaHa9hhhO pic.twitter.com/JktagAIdqk— Euromaidan Press (@EuromaidanPress) September 8, 2022 Annað myndband frá borginni hefur vakið mikla athygli en það sýnir íbúa Balakliya fagna komu úkraínskra hermanna. Ukrainian civilians greet Ukrainian soldiers in liberated Balaklia.A moment for history pic.twitter.com/a0dSrYo2Ee— WarMonitor (@WarMonitor3) September 8, 2022 Ráðamenn í Rússlandi eða varnarmálaráðuneyti Rússlands hafa enn lítið sem ekkert sagt um gagnárás Úkraínumanna. Eins og áður hefur komið fram virðist sem markmið Úkraínumanna í Kharkív sé að ná borginni Kupyansk og þannig skera á birgðaleiðir Rússa í Izyum. Borgin féll í hendur Rússa í mars og er ein af þungamiðjum herafla Rússlands í austurhluta Úkraínu. Útlit er fyrir að Úkraínumenn séu þegar komnir að úthverfum Kupyansk. Fregnir hafa borist af því að bardagar séu hafnir í jaðri borgarinnar. Sjá einnig: Rýnt í stöðuna í Úkraínu - Komnir langt í gegnum varnir Rússa í Kharkív Það er miðað við rússneska bloggara sem sérhæfa sig í málefnum rússneska hersins. Það samfélag er tiltölulega stórt og mjög virkt í Rússlandi. Vestrænir sérfræðingar sem fylgjast meðal annars með myndefni sem úkraínskir og rússneskir hermenn birta á samfélagsmiðlum hafa gefið svipaða mynd af stöðunni í Kharkív. Imagine being a Ukrainian soldier in your teens or early 20s witnessing a scene like this pic.twitter.com/G11kH4jisO— Matthew Luxmoore (@mjluxmoore) September 9, 2022 Hér að neðan má sjá kort frá því í gær sem sýnir sókn Úkraínumanna í mjög grófum dráttum. Áðurnefndir rússneskir bloggarar segja Úkraínumenn hafa sótt lengra en kortið hér að neðan gefur til kynna, enda er það sextán klukkustunda gamalt. This map shows claimed advances by Ukrainain forces towards Kupiansk, in the Kharkiv countryside. Not all of these claims have been visually verified.A breakthrough in this area puts serious stress on Russian positions in Izyum and Lyman as Kupiansk is a key supply node. pic.twitter.com/0IQmyuA0W4— Nathan Ruser (@Nrg8000) September 8, 2022 Takist Úkraínumönnum að skera á þessar birgðalínur og halda því svæði sem þeir hafa frelsað frá Rússum í vikunni, gæti það haft gífurleg áhrif á getu rússneska hersins í austurhluta Úkraínu. Í það minnsta þar til Rússar mynda aðrar birgðalínur. Allar líkur á gagn-gagnárás Rússar hafa verið að flytja nýja herdeild til Úkraínu en sú er talin skipuð allt að tuttugu þúsund hermönnum. Líklegt er að sú herdeild, sem kallast „Þriðji herinn“ verði sendur til Kharkív og muni verða notuð til að reyna að stöðva sókn Úkraínumanna og reka úkraínska herinn aftur á bak í héraðinu. Utterly smashed Russian positions on the Kharkiv front. pic.twitter.com/TZrxAH4Uuk— Jimmy (@JimmySecUK) September 9, 2022 Óljóst er hve marga hermenn Úkraínumenn eru með á svæðinu og hve máttugir þeir eru þar en mögulegt er að þeir hafi fundið veikleika á víglínu Rússa og nýtt sér hann með tiltölulega fámennum sveitum. Þá er sömuleiðis lítið vitað um mögulegt mannfall Úkraínumanna í héraðinu. Framvindan í Kharkív og víðar í austurhluta Úkraínu, veltur mikið á því hvernig óhjákvæmileg gagn-gagnárás Rússa gengur á næstu dögum og vikum. Rússneska ríkisfréttaveitan RIA birti í morgun mydnband sem á að sýna rússneskan liðsauka á leið til Kharkív.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Tengdar fréttir Rússar hafa rænt allt að 1,6 milljónum Úkraínumanna og flutt til Rússlands Forseti Úkraínu þakkaði hersveitum sínum fyrir nýlega frækilega framgöngu og sigra í Kharkiv héraði. Fulltrúi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum gagnrýnir Rússa harðlega fyrir nauðungarflutninga á allt að 1,6 milljónum úkraínskra borgara til Rússlands. 8. september 2022 11:43 Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Komnir langt í gegnum varnir Rússa í Kharkív Hersveitir Úkraínu hafa sótt töluvert fram gegn Rússum Kharkív-héraði í norðurhluta Úkraínu á undanförnum dögum. Það gerðu þær með skyndisókn sem virðist hafa komið Rússum á óvart og Úkraínumenn hafi nýtt sér það að Rússar fluttu hersveitir til suðurs til að bregðast við sókn Úkraínumanna í Kherson-héraði. 8. september 2022 11:04 Hvítrússneski herinn æfir við landamæri Póllands Hvítrússneski herinn hefur hafið heræfingar við borgina Brest nærri pólsku landamærunum, við höfuðborgina Mínsk og í héraðinu Vitebsk í norðausturhluta landsins. 8. september 2022 07:11 Ógna birgðalínum Rússa í austri Hersveitir Úkraínu virðast hafa náð þó nokkrum árangri í gagnsókn þeirra í Kharkív-héraði í norðurhluta landsins. Gagnsóknin hófst í gær og virðast Úkraínumenn hafa komið Rússum á óvart, umkringt rússneska hermenn í borginni Balaklia og sótt áfram austur inn á yfirráðasvæði Rússa. 7. september 2022 11:52 Mest lesið Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Innlent Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Erlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Innlent „Ekkert nema gott að segja fyrir gróðurinn og sálarlíf landsmanna“ Veður Fleiri fréttir Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Sjá meira
Rússar hafa rænt allt að 1,6 milljónum Úkraínumanna og flutt til Rússlands Forseti Úkraínu þakkaði hersveitum sínum fyrir nýlega frækilega framgöngu og sigra í Kharkiv héraði. Fulltrúi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum gagnrýnir Rússa harðlega fyrir nauðungarflutninga á allt að 1,6 milljónum úkraínskra borgara til Rússlands. 8. september 2022 11:43
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Komnir langt í gegnum varnir Rússa í Kharkív Hersveitir Úkraínu hafa sótt töluvert fram gegn Rússum Kharkív-héraði í norðurhluta Úkraínu á undanförnum dögum. Það gerðu þær með skyndisókn sem virðist hafa komið Rússum á óvart og Úkraínumenn hafi nýtt sér það að Rússar fluttu hersveitir til suðurs til að bregðast við sókn Úkraínumanna í Kherson-héraði. 8. september 2022 11:04
Hvítrússneski herinn æfir við landamæri Póllands Hvítrússneski herinn hefur hafið heræfingar við borgina Brest nærri pólsku landamærunum, við höfuðborgina Mínsk og í héraðinu Vitebsk í norðausturhluta landsins. 8. september 2022 07:11
Ógna birgðalínum Rússa í austri Hersveitir Úkraínu virðast hafa náð þó nokkrum árangri í gagnsókn þeirra í Kharkív-héraði í norðurhluta landsins. Gagnsóknin hófst í gær og virðast Úkraínumenn hafa komið Rússum á óvart, umkringt rússneska hermenn í borginni Balaklia og sótt áfram austur inn á yfirráðasvæði Rússa. 7. september 2022 11:52