

Alexander S. Vindman, undirofursti, sagði þingmönnum í gær að honum hafi verið svo brugðið yfir framferði Trump gagnvart Úkraínu að hann hafi gert lögfræðingum þjóðaröryggisráðsins viðvart í tvígang.
Starfsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna var sakaður um að vera njósnari og mögulega óþjóðrækinn í hægrisinnuðum fjölmiðlum eftir að hann bar vitni sem kom Trump forseta illa.
Offurstinn Alexander Vindman, sem situr í þjóðaröryggisráði Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, lýsti tvisvar sinnum yfir áhyggjum vegna viðleitni ríkisstjórnar Trump og utanaðkomandi aðila sem tengjast Trump til að fá yfirvöld Úkraínu til að rannsaka pólitískan andstæðing forsetans.
Greidd verða atkvæði um rannsókn Demókrata á hugsanlegum embættisbrotum Donald Trump í samskiptum sínum við úkraínsk stjórnvöld fyrr á árinu í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í vikunni.
Framburður sendiherra Bandaríkjanna gagnvart ESB virðist grafa undan málsvörn Trump forseta um samskipti hans við úkraínsk stjórnvöld.
Þingmenn Repúblikanaflokksins ollu usla í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gær þegar þeir ruddu sér leið inn í fundarherbergi þar sem lokaður nefndarfundur fór fram.
Upplýsingar sem New York Times hefur undir höndum grafa undan málsvörn Trump og bandamanna hans varðandi samskipti hans við Úkraínu á þessu ári.
William B. Taylor, starfandi sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu, greindi rannsakendum sem rannsaka möguleg embættisbrot Donald Trump forseta Bandaríkjanna, frá því í dag að Trump hafi neitað að veita Úkraínu hernaðaraðstoð og að hann hafnað því að funda með forseta Úkraínu í Hvíta húsinu nema hann myndi heita því að rannsaka andstæðinga Trump í bandarískum stjórnmálum.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna undir stjórn forsetans Donald Trump, hélt aftur af tæplega 400 milljón dala hernaðaraðstoð til þess að þrýsta á úkraínsk yfirvöld til þess að rannsaka meinta aðstoð sem yfirvöld í Kænugarði veittu Demókrataflokknum í aðdraganda forsetakosninganna árið 2016, frá þessu greindi starfandi starfsmannastjóri Hvíta hússins, Mick Mulvaney í blaðamannafundi.
Einn þeirra sem eru í miðpunkti Úkraínumáls Trump Bandaríkjaforseta segist ekki hafa gert sér grein fyrir að meira hafi hangið á spýtunni í samskiptum við úkraínsk stjórnvöld.
Í viðtali skýrir orkumálaráðherra Bandaríkjanna frekar hversu mikil áhrif persónulegur lögmaður Trump forseta hafði á stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart Úkraínu.
Einn af helstu lögfræðingum Hvíta hússins sem ákvað að takmarka aðgang að símtali Trump og Zelenskíj Úkraínuforseta er sagður í miðju rannsóknarinnar.
Fyrrverandi yfirmaður málefna Rússlands og Evrópu hjá þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna bar vitni fyrir þingnefnd sem rannsakar möguleg embættisbrot Trump forseta í gær.
Utanríkismálanefnd fékk í morgun afhent gögn yfir alla fundi milli utanríkisráðherra Íslands og ráðherra Bandaríkjastjórnar frá 1. janúar 2018.
Donald Trump Bandaríkjaforseti þrýsti á Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna að víkja sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu úr embætti sínu. Frá þessu greindi fyrrverandi sendiherrann Marie Yovanovitch í yfirheyrslum vegna rannsóknar Bandaríkjaþings á meintum brotum Trump í starfi er viðkoma Úkraínu-skandalnum sem tröllríður pólítískri umræðu vestanhafs.
Tveir samverkamenn Rudy Giuliani, einkalögmanns Donald Trump, sem voru handteknir í gær vegna gruns um að þeir hafi brotið lög um fjármál stjórnmálaframboða, voru handteknir á flugvelli með flugmiða aðra leiðina til Vínar í Austurríki.
Mennirnir tveir aðstoðuðu persónulegan lögmann Trump forseta við að koma á fundum við úkraínska embættismenn sem þeir vildu að fyndu skaðlegar upplýsingar um pólitískan mótherja forsetans.
Hann segist ekki hafa vitað af því að Trump hefði stöðvað hernaðaraðstoð fyrr en eftir símtal þeirra sem hratt af stað rannsókn Bandaríkjaþings á Trump.
Joe Biden hefur í fyrsta sinn kallað eftir því að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, verði ákærður fyrir embættisbrot.
Sendiherra Bandaríkjanna gagnvart ESB sem sá um samskipti Trump-stjórnarinnar við Úkraínu ber ekki vitni í dag eins og til stóð samkvæmt ákvörðun utanríkisráðuneytisins.
Bandarískir athafnamenn notfærðu sér tengsl við Trump forseta og lögmann hans til að reyna að koma ár sinni fyrir borð hjá stóru úkraínsku orkufyrirtæki.
Rannsókn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á mögulegum embættisbrotum Trump forseta er hafin af fullum þunga.
Í ljós hefur komið að starfsmenn Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna þrýstu á Úkraínu til að hefja slíka rannsókn gegn því að Volodymir Zelensky, nýr forseti Úkraínu, fengi fund með Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.
Fyrrverandi sendifulltrúi Bandaríkjanna í Úkraínu bar vitni fyrir þingnefnd í dag. Hann segist hafa varað við því að ásakanir gegn Joe Biden, fyrrverandi varaforseta, ættu ekki við rök að styðjast.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, kallaði eftir því í dag að yfirvöld Kína rannsaki Joe Biden, pólitískan andstæðing sinn, og son hans, Hunter Biden.
Nokkrir öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins kölluðu eftir endurbótum á embætti ríkissaksóknara Úkraínu, um svipað leyti og Joe Biden gerði hið sama.
Núverandi og fyrrverandi starfsmenn Hvíta hússins, segja eftirrit af símtali Donald Trump og Volodymir Zelensky, forsetum Bandaríkjanna og Úkraínu, bera ummerki þess að hluti samskipta þeirra hafi verið fjarlægður.
Trump hefur farið mikinn vegna Úkraínumálsins í dag. Á blaðamannafundi með forseta Finnlands gaf hann sterklega í skyn að einn leiðtoga demókrata væri með lítil typpi.
Donald Trump hefur lengi staðið í þeirri trú að uppruna rannsóknarinnar megi að miklu leyti rekja til Bretlands og hefur hann meðal annars sakað breskar leyniþjónustur um að njósna um framboð sitt fyrir Barack Obama, forvera sinn.
Forsetaframboð Trump stefnir að því að verja um milljarði dollara í endurkjör hans, jafnvirði um 124 milljarða íslenskra króna.