EM 2016 í Frakklandi

„Ætlum ekki að spila fyrir Holland á morgun“
Heimir Hallgrímsson og Aron Einar Gunnarsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi Íslands á Torku Arena í Konya í morgun.

Strákarnir æfa á keppnisvellinum í dag
Íslenska landsliðið kom til Tyrklands í gær og notar daginn til undirbúnings fyrir leikinn á morgun.

Alfreð fær hótanir á Twitter
Sagði hollenska stuðningsmenn ekki þurfa að óttast og fékk bágt fyrir hjá tyrkneskum knattspyrnuáhugamönnum.

Gylfi bætti eitt met Eiðs Smára og jafnaði annað
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði sitt sjötta mark í undankeppni EM í jafnteflinu á móti Lettlandi um helgina og tryggði sér með því tvö met í markaskorun fyrir íslenska landsliðið í undankeppnum stórmóta.

Litla Ísland er haldreipi hollensku stjarnanna
Íslensku landsliðsstrákarnir þurfa bara að treysta á sig sjálfa í baráttunni um toppsæti A-riðils undankeppni EM 2016 þrátt fyrir að hafa misst Lettaleikinn niður í jafntefli um helgina. Íslenska liðið var ósigrað á Laugardalsvelli í undankeppninni sem hefur ekki gerst áður.

Strákarnir vinsælir í Leifsstöð
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta ferðaðist til Tyrklands í dag en flogið var beint frá Keflavík til Konya í suður Tyrklandi þar sem síðasti leikur liðsins í undankeppni EM 2016 fer fram á þriðjudaginn.

Lewandowski skoraði sitt þrettánda mark og jafnaði metið
Pólverjinn Robert Lewandowski hefur verið heitasti framherji fótboltans síðustu vikur og hann var á skotskónum í kvöld þegar Pólverjar unnu 2-1 sigur á Írum.

Þjóðverjar komust inn á 24. stórmótið í röð
Heimsmeistarar Þjóðverjar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins í Frakklandi næsta sumar eftir 2-1 sigur á Georgíu í lokaleik sínum í undankeppninni.

Pólland og Þýskaland á EM | Írland fer í umspilið
Pólland komst í kvöld í lokakeppni EM þriðja skiptið í röð eftir 2-1 sigur á Írlandi á heimavelli í kvöld en Robert Lewandowski skoraði sigurmark Póllands í kvöld.

Róbert: Ekki hægt að sleppa svona tækifæri
Róbert Örn Óskarsson sendi Hannesi batakveðjur á leiðinni út í flugvél til Tyrklands en hann fékk frí í vinnuni til þess að taka þátt í landsliðverkefninu.

Hannes Þór fór úr axlarlið
Íslenska landsliðið varð fyrir áfalli í morgun þegar markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson meiddist á æfingu. Hannes lenti illa á annarri öxlinni og fór úr axlarlið.

Sjö þjóðir hafa bæst í EM-hópinn á síðustu þremur dögum
Lokaumferðin í riðlunum í undankeppni Evrópumótsins í Frakklandi næsta sumar hefst í dag en undanfarna þrjá daga hafa sjö þjóðir tryggt sér farseðilinn í úrslitakeppni EM næsta sumar. Helmingur sætanna er því enn laus.

Hannes fer ekki með til Tyrklands vegna meiðsla | Róbert kemur inn í hópinn
Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, meiddist á æfingu í morgun og ferðast fyrir vikið ekki með liðinu til Tyrklands fyrir leik liðanna á þriðjudaginn en Róbert Örn Óskarsson, markvörður FH, tekur sæti hans í landsliðshópnum.

Bale: Aldrei liðið jafn vel eftir að hafa tapað leik
Gareth Bale og félagar í Wales gátu fagnað sæti á lokakeppni EM í gær þrátt fyrir tap gegn Bosníu en þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1958 sem Wales kemst á lokakeppni stórmóts.

Albanía í lokakeppni stórmóts í fyrsta sinn | Rúmenía á EM
Albanía komst á lokakeppni stórmóts í fyrsta sinn í dag með 3-0 sigri á Armeníu á útivelli en á sama tíma komst Rúmenía á EM.

Wales komst í lokakeppni EM þrátt fyrir tap í Bosníu
Wales komst í lokakeppni EM í fyrsta sinn í tæplega 60 ár þrátt fyrir 0-2 tap gegn Bosníu Herzegóvínu í kvöld en tap Ísrael gegn Kýpur þýðir að sæti Wales er öruggt.

Ísland heldur toppsætinu eftir sigur Tyrkja í Tékklandi
Tyrkland vann 2-0 sigur á Tékklandi í Prag í kvöld en sigur Tyrkja þýðir að Ísland heldur toppsæti riðilsins þegar aðeins ein umferð er eftir þrátt fyrir að hafa aðeins náð jafntefli gegn Lettlandi í dag.

Kári verður með gegn Tyrkjum
"Kári verður með. Hann lendir í höndunum á Stefáni (H. Stefánssyni, sjúkraþjálfara) og hann reddar þessu,“ sagði Heimir og upplýsti að Kári hefði fengið slink á bakið.

Ari Freyr: Þetta var hálf aulalegt
Ari Freyr Skúlason, vinstri bakvörður Íslands, var svekktur með niðurstöðuna gegn Lettum en íslensku strákarnir töpuðu niður tveggja marka forystu og þurftu að sætta sig við jafntefli.

Jóhann Berg: Ætluðum að jarða þá
Jóhann Berg Guðmundsson segir að varnarleikur liðsins hafi gleymst í jafnteflinu gegn Lettum í kvöld.

Heimir Hallgrímsson: Skipulagið í liðinu hrundi
Landsliðsþjálfararnir hafa ekki áttað sig á því hvað varð til þess að leikur íslenska liðsins hrundi í síðari hálfleik.

Hannes: Nýtum svekkelsið til að koma okkur á toppinn gegn Tyrkjum
Hannes Þór Halldórsson markmaður íslenska landsliðsins segir að varnarleikur liðsins hafi verið opnari en venjulega.

Sölvi: Var dálítið eins og körfubolti eftir að ég kom inn á
"Mjög svekkjandi úrslit í ljósi þess að við vorum 2-0 yfir og höfðum tiltölulega góða stjórn á leiknum,” sagði Sölvi Geir Ottesen, varnarmaður Íslands, í samtali við fjölmiðla eftir 2-2 jafntefli gegn Lettlandi.

Eiður Smári: Megum ekki halda að við séum of góðir
Eiður Smári Guðjohnsen segir að leikurinn gegn Lettlandi hafi verið ágætisvatnsgusa fyrir Ísland og að það megi læra af honum.

Alfreð: Það er bara á milli okkar
Alfreð Finnbogason, framherji íslenska landsliðsins í knattspyrnu, var ánægður með að fá tækifæri í byrjunarliðinu í 2-2 jafntefli gegn Lettum í undankeppni fyrir Evrópumótið í Frakklandi næsta sumar. Alfreð var þó ekki ánægður með spilamennskuna í síðari hálfleik.

Heimir: Óþarfi að missa þetta niður í jafntefli
Heimir Hallgrímsson var ósáttur með spilamennsku íslenska liðsins í dag en eftir að hafa komist 2-0 yfir fór liðið að gera eitthvað allt annað en oft áður.

Kolbeinn: „Ekkert nema þrjú stig kemur til greina í Tyrklandi“
Fyrirliðinn Kolbeinn Sigþórsson var súr með síðari háflleik íslenska liðsins.

Gylfi: Hálfvandræðalegt fyrir okkur
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði gullfallegt mark gegn Lettlandi í dag en það dugði því miður ekki til sigurs.

Þjálfari Lettlands: „Ég gerði mistök“
Marian Pahars, þjálfari Lettlands, var að vonum sáttur eftir að hafa séð lærisveina sína vinna upp tveggja marka forskot Íslands í dag en hann sagðist hafa gert mistök þegar hann lagði leikinn upp.

Sjáðu mörkin úr leik Íslands og Lettlands | Myndband
Ísland og Lettland skyldu jöfn 2-2 í seinasta heimaleik Íslands í undankeppni EM 2016 í dag en Lettum tókst að jafna metin eftir að hafa lent 0-2 undir í fyrri hálfleik.