Borgarstjórn

Fréttamynd

Bras og brall við gerð Brákarborgar

„Brákarborg hefur – ótrúlegt en satt – lent í neikvæðri umræðu í pólitíkinni því þar keyptum við gamla hjálpartækjaverslun og breyttum í einhvern fallegasta og vandaðasta leikskóla sem ég hef séð. Framkvæmdin var umhverfisvottuð og fékk hönnunarverðlaunin Grænu skófluna.“ Þessi ummæli í fésbókarfærslu þáverandi borgarstjóra frá 21. mars 2023 eldast ekki vel.

Skoðun
Fréttamynd

Mörgu á­bóta­vant við byggingu Brákarborgar

Ný skýrsla sem kynnt var fyrir borgarráði í dag um framkvæmdir í leikskólanum Brákarborg sýnir að mörgu hafi verið ábótavant við framkvæmdirnar. Til að mynda hófust framkvæmdir á þaki hússins áður en teikningar frá hönnuði og burðarvirkishönnuði lágu fyrir frá byggingarfulltrúa.

Innlent
Fréttamynd

Parísarhjólið rís á ný

Reykjavíkurborg hyggst endurtaka leikinn frá síðasta sumri og semur við Taylor's Tivoli Iceland um uppsetningu á parísarhjóli í miðborginni.

Innlent
Fréttamynd

Banna lagningu bíla í beygjum í Álakvísl

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt bann við lagningu ökutækja í beygjum í Álakvísl í Ártúnsholti milli Álakvíslar 16 og 38 og milli Álakvíslar 15 og 136. Upphaflega var til skoðunar að banna lagningu í allri götunni en íbúar mótmæltu.

Innlent
Fréttamynd

Bíla­stæðið rifið upp með rótum

Á bílastæðinu við Laugardalsvöll er nú unnið að því að rífa upp malbik svo hægt sé að leggja grunn að nýju skólaþorpi. Áætlað er að tíu kennslustofur fyrir börn í Laugarnesskóla verði reiðubúnar til notkunar í haust. 

Innlent
Fréttamynd

Dóru Björt svarað!

Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur, var býsna brött í grein sinni í Vísi í gær. Hér verða dregnar fram tilvitnanir úr grein hennar og þeim svarað lið fyrir lið. Dóra byrjar grein sína á húsnæðisátaki borgarinnar.

Skoðun
Fréttamynd

Segir við­brögð borgar­full­trúa á mót­mælum kjána­leg

Reykjavíkurborg og forsvarsmenn körfuboltafélagsins Aþenu hafa enn ekki komist að samkomulagi um endurnýjun samninga vegna notkunar félagsins á íþróttahúsi í Breiðholti. Liðsmenn mótmæltu við ráðhúsið í dag og liðsmaður Aþenu segir viðbrögð borgarfulltrúa á mótmælunum kjánaleg. Brynjar Karl, þjálfari, segir borgarfulltrúa ekki búna að kynna sér starf Aþenu áður en ákvörðun er tekin. 

Innlent
Fréttamynd

„Ættum frekar að láta borgina skrifa undir mann­réttinda­sátt­mála“

Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari Aþenu gefur lítið fyrir svör formanns menningar- og íþróttaráðs um samning sem hann bauð félaginu um afnot á húsnæði Leiknis til æfingatíma, slíkur samningur muni drepa félagið, hvers starf fer að miklu leyti fram utan tilsettra æfingatíma. Þurfi einhver að fylgja mannréttindum séu það borgaryfirvöld en ekki Aþena. 

Innlent
Fréttamynd

Vilja að Aþena fylgi mannréttindastefnu borgarinnar

Formaður menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar segir fundum ráðsins og körfuboltafélagsins Aþenu ekki lokið. Hann leggur til nýjan tvíhliða samning sem felur meðal annars í sér ákvæði um samskipti og að félagið fylgi mannréttindastefnu borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Vilja ný og öruggari bíla­stæði á samningslausu landi gróðrarstöðvar

Stjórn Knattspyrnufélagsins Víkings krefst þess að borgin afhendi félaginu svæði við Stjörnugróf svo hægt sé að hefja viðræður um uppbyggingu félagsins á svæðinu. Gróðrarstöðin Mörk hefur staðið samningslaus á svæðinu í níu ár. Framkvæmdastjóri Víkings segir ný og öruggari bílastæði fyrsta mál á dagskrá verði svæðið afhent félaginu. 

Innlent
Fréttamynd

Vill sjá upp­lýsinga­spjald um kjörna full­trúa í ráð­húsinu

Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, hefur lagt til að komið verði upp upplýsingaspjaldi í Ráðhúsi Reykjavíkur um þá fulltrúa sem kjörnir hafa verið í borgarstjórn. Markmiðið með slíku væri að auka sýnileika og vitund almennings um kjörna fulltrúa, sem og að efla tengsl borgarbúa við lýðræðislega stjórnsýslu borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Af hverju byggjum við innan gróinna hverfa?

Verið er að byggja innan allra hverfa borgarinnar. Á árinu 2025 eru 251 íbúðir í byggingu í Vesturbæ, 538 í miðborginni, 331 í Hlíðum, 525 íbúðir í Laugardal, 272 í Háaleiti og Bústöðum, 158 í Grafarvogi, 533 á Ártúnshöfðanum, 85 í Árbænum, 14 íbúðir í Breiðholti, 159 íbúðir í Grafarholti og Úlfarsárdal og 1 íbúð á Kjalarnesi en þetta eru samtals 2867 íbúðir. Af hverju?

Skoðun
Fréttamynd

Hefur skilning á báðum sjónar­miðum í Heið­merkur­málinu

Fyrirhugaðar breytingar á skipulagi við útivistarsvæðið í Heiðmörk þar sem til stendur að girða af stór svæði í þágu vatnsverndar hafa vakið hörð viðbrög. Oddviti Pírata í borgarstjórn kveðst hugsi yfir skotgröfunum sem málið hefur lagst í, en hún hefur mikinn skilning á báðum sjónarmiðum sem takast á.

Innlent
Fréttamynd

Bensínstöðvardíll og Birkimelur

Um langt skeið hefur það verið mantra vinstri-meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur að selja byggingarheimildir á lóðum borgarinnar á háu verði til almennra uppbyggingaraðila. Í júní 2021 var hins vegar frá þessu brugðið þegar gengið var til samninga við þrjú stærstu olíufélögin, N1, Olís og Skeljung, um að félögin myndu hætta að reka bensínstöðvar á tilteknum lóðum borgarinnar en á móti myndu félögin, að loknu deiliskipulagsferli, fá að byggja fjölbýlishús á lóðunum án þess að greiða byggingarréttargjöld.

Skoðun
Fréttamynd

Hver borgar fyrir ó­dýrar lóðir?

Í umræðu um húsnæðismál er oft talað um lausn vandans við háu húsnæðisverði og háu lóðaverði sé að byggja verði á ódýrum lóðum á óbrotnu landi í jaðri byggðar.

Skoðun
Fréttamynd

Gömul strætó­skýli verði nýtt sem „byttebox“

Reykjavíkurborg hyggst ráðast í tilraunaverkefni í sumar sem felst í að koma upp færanlega aðstöðu fyrir íbúa til að skiptast á smærri nytjahlutum án greiðslu. Fyrirmyndin er sótt til Danmerkur þar sem svokölluð „byttebox“ hefur verið komið upp og hefur notkun slíkra skýla aukist jafnt og þétt.

Innlent
Fréttamynd

Sparnaðurinn bitni á fjöl­skyldum

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að flokkurinn tali fyrir meiri sveigjanleika og fjölbreytni í leikskólakerfinu, en flokkurinn bókaði gegn ákvörðun meirihlutans um að afnema lengri opnun ákveðinna leikskóla til klukkan 17. Hún segir að sparnaður sem af þessu hlýst ýtist bara yfir á fjölskyldur.

Innlent
Fréttamynd

Af­nema lengri opnunar­tíma í á­kveðnum leik­skólum borgarinnar

Skóla- og frístundaráð samþykkti á fundi sínum í vikunni að afnema lengri opnun ákveðinna leikskóla til klukkan 17. Vísað var til lítillar nýtingar og kostnaðar vegna úrræðisins. Eftir breytinguna verða allir leikskólar opnir frá klukkan 7.30 til 16.30. Breytingin tekur gildi í september. 

Innlent
Fréttamynd

Ný for­ysta stefni í ranga átt

Oddviti Sósíalista í borgarstjórn segir nýja forystu flokksins stefna með hann í ranga átt. Hún hefur hætt öllu innra starfi og flokksmenn þurfa að finna sér nýjan leiðtoga.

Innlent
Fréttamynd

Sanna segir sig frá trúnaðar­störfum innan Sósíal­ista­flokksins

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, hefur sagt sig frá trúnaðarstöfum innan flokksins. Hún birti yfirlýsingu rétt í þessu en segist þar ætla að halda áfram að starfa sem oddviti flokksins í borgarstjórn. Þar situr hún í meirihluta með Samfylkingunni, Vinstri grænum, Flokki fólksins og Pírötum.

Innlent
Fréttamynd

Tekist á um breytta á­sýnd Suður­lands­brautar með til­komu Borgar­línunnar

Tilkoma Borgarlínunnar mun koma til með að breyta ásýnd og umferð verulega um Suðurlandsbraut. Akbrautum verður þar fækkað um tvær fyrir Borgarlínuna auk þess sem bæta á við göngu- og hjólastígum þannig að þeir séu báðum megin. Tillaga að þessari breytingu var samþykkt á fundi borgarráðs í gær og gengur nú til endanlegrar samþykktar í borgarstjórn. 

Innlent
Fréttamynd

Fólki sé vel treystandi til að fá sér bjór á íþrótta­viðburðum

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segist ekki vita til þess að áfengissala á íþróttaviðburðum hafi skapað sérstök vandamál síðustu ár. Það sé áríðandi að regluverkið verði uppfært en íþróttafélögunum sé almennt treystandi til að skipuleggja söluna og fólki til að fara rólega í neysluna. 

Innlent