Mið-Austurlönd

Isis lýsa yfir stofnun kalífadæmis
Íslömsku öfgasamtökin Isis hafa lýst yfir stofnun nýs ríkis á landsvæðum sem tilheyra Sýrlandi og Írak og hefur leiðtogi þeirra, Abu Bakr al-Baghdadi verið útnefndur kalífi og leiðtogi allra múslima. Þetta hefur lengi verið yfirlýst stefna samtakanna en nú þegar þau viðast stjórna stórum landsvæðum í löndunum tveimur hefur verið ákveðið að ganga alla leið og var tilkynningu þess efnis send út á Netinu í nótt.

Vígamenn ISIS hrundu árás stjórnarhersins
Stjórnarherinn í Írak hélt í gær áfram stórsókn í átt að borginni Tíkrit sem hófst á laugardag.

Stjórnarherinn í Írak endurheimtir Tíkrit
Stjórnarherinn í Írak gerði í dag áhlaup á hersveitir uppreisnarmanna öfgasamtakanna ISIS í borginni Tíkrit í norðurhluta landsins, og er borgin nú á valdi stjórnarhersins. Talið er að um 60 liðsmenn ISIS hafi fallið í árásinni.

Muktada al Sadr hótar aðgerðum
Núri al Maliki, forsætisráðherra Íraks, fagnaði árásum sýrlenska stjórnarhersins á landamærastöð sem herskáir öfgamenn höfðu náð á sitt vald.

Sýknaður í fyrstu lotu
Róttæki múslimaklerkurinn Abu Katada, barðist lengi gegn því að verða framseldur frá Bretlandi til Jórdaníu,

Al-Maliki styður aðgerðir sýrlenskra stjórnvalda
Þótt stjórnvöld í Írak hafi ekki óskað eftir árásinni segist forsætisráðherra Íraks styðja allar aðgerðir gegn ISIS.

Bandaríkin ásaka Sýrlendinga um loftárásir
Bandarísk stjórnvöld ásaka sýrlenska ráðamenn um að hafa fyrirskipað loftárásir í vesturhluta Íraks nú á þriðjudag til að stöðva framgöngu uppreisnarmannanna sem ráða lögum og lofum í norðurhluta landsins.

Hafnar kröfum Bandaríkjamanna um nýja stjórn í Írak
Núri al Maliki, forsætisráðherra Íraks, vill ekki mynda sameinaða stjórn þjóðernishópa í landinu til að vinna bug á herskáum íslamistum.

Fyrstu bandarísku hermennirnir komnir til Íraks
Helmingur þeirra 300 hermanna sem bandarísk yfirvöld hafa lofað að senda til landsins hafa hafist handa.

Segja Írakstríðið ekki hafa verið þess virði
Yfirgnæfandi meirihluti Bandaríkjamanna telja að innrásin árið 2003 og átökin sem henni fylgdu hafi ekki borgað sig.

Olíuhreinsistöðin í Bají á valdi Isis
Uppreisnarmenn súnníta í Írak undir forystu Isis samtakanna segjast hafa náð fullri stjórn á olíuhreinsistöðinni í Bají, norður af höfuðborginni Bagdad.

Kerry lofar Írak stuðningi í baráttunni gegn Isis
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir næstu daga og vikur skipta öllu máli.

Herstöðvar á landamærum Íraks og Sýrlands herteknar
Um mikinn áfangasigur er að ræða fyrir ISIS þar sem samtökin hafa nú tryggt öruggan og stöðugan flutning hergagna yfir landamærin.

Vilja að Bandaríkjamenn geri loftárásir á Isis
Barack Obama Bandaríkjaforseti telur sig ekki þurfa leyfi frá þinginu, ákveði hann að beita hernum í baráttunni gegn Ísis samtökunum í Írak.

Íranar reiðubúnir að verja helga staði í Írak
Uppreisnarmenn sækja að mörgum heilögum stöðum sjía norður af Bagdad.

Ráðist á stærstu olíuhreinsunarstöð Íraks
Auknar líkur á olíuskorti og rafmagnsleysi í Írak.

Íbúar í Bagdad hamstra matvæli
Íbúar í Bagdad höfuðborg Íraks eru byrjaðir að hamstra matvæli og safna vatni en vígamenn Isis samtakanna nálgast nú borgina óðfluga.

Ólíklegt að ISIS takist að ná Bagdad
SIS segjast hafa tekið 1.700 íraska hermenn af lífi.

Ríkasta hermdarverkasveit í heimi
Óvinsældir stjórnvalda í Írak meðal súnníta í landinu og þrautþjálfaðir hermenn, sem reknir voru úr þjóðarhernum við fall Saddams Hussein, er meðal þess sem getur skýrt skjótan uppgang hinna herskáu ISIS-manna, að mati átakafræðings.

Vígamenn ná annarri borg á sitt vald
Vígamenn súnníta í Isis samtökunum hafa náð borginni Tal Afar í norðurhluta Íraks, að því er íbúar segja.

Bandaríkin og Íran íhuga að ræða ástandið í Írak
Stjórnvöld í Bandaríkjunum og í Íran eru nú að íhuga að efna til beinna viðræðna vegna ástandsins í Írak. Ríkin tvö hafa lengi eldað grátt silfur en sókn ISIS hreyfingarinnar í Írak gæti gefið þeim tilefni til að slíðra sverðin og sameinast í baráttunni gegn samtökunum.

Tóku fjölda hermanna af lífi
Öfgahópurinn sem stjórnar stórum landsvæðum í Írak og Sýrlandi birtu í dag myndir af fjöldamorði þeirra á hermönnum í Írak.

Bandaríkjamenn huga að loftárásum í Írak
Þó stendur ekki til að senda hermenn til landsins þar sem 4.500 þeirra féllu á árunum 2003 til 2011.

Valdamesti hryðjuverkaleiðtoginn síðan Bin Laden var og hét
Talið er að uppreisnarmenn leynist í íraska hernum og stjórnvöld virðast telja við ofurefli að etja. Íranar og Bandaríkjamenn hafa heitið aðstoð en leiðtogi uppreisnarmanna er sagður áhrifamesti hryðjuverkaleiðtoginn síðan Osama Bin Laden var og hét.

Bandaríkjamenn útiloka ekki hernaðaríhlutun í Írak
Barack Obama bandaríkjaforseti sagði að hryðjuverkahópar þarlendis verði stöðvaðir með öllum tiltækum ráðum.

Kirkuk undir stjórn Kúrda
Stjórnarherinn í Írak hefur flúið borgina.

Sigurganga ISIS í Írak heldur áfram
Herskáir íslamistar hafa nú náð borginni Tikrit á sitt vald, degi eftir að borgin Mosul féll í þeirra hendur. Her og lögregla forðuðu sér í kjölfar átaka og almenningur flýr borgirnar. Núri al Maliki forseti vill refsa þeim hermönnum sem flúðu.

Hálf milljón flýr Mosul
Allt að hálf milljón manna hefur nú flúið borgina Mosul, þá næststærstu í Írak eftir að íslamistar náðu þar völdum í gær. Á meðal þeirra sem lögðu á flótta voru hermenn stjórnarhersins en vígamennirnir, sem tilheyra samtökunum ISIS, ráða nú lögum og lofum í öllu héraðinu.

Neyðarástandi lýst yfir: Þúsundir flýja Mosul
Um hundrað og fimmtíu þúsund hafa flúið borgina og þar eru á meðal fjöldi hermanna og lögreglumanna sem hafa klætt sig sem almenna borgara, af ótta við að verða fyrir barðinu á uppreisnarmönnunum.

„Þetta var langur tími, en við misstum aldrei vonina“
Tyrkneskir hermenn fundu fjölmiðlamennina fyrir tilviljun síðastliðinn föstudag á afskekktu svæði í Tyrklandi þar sem þeir allir voru með bundið fyrir augun.