Eldgos og jarðhræringar
55 56 57 58 59 60 61 62 63 … 130 ›
Dregið úr skjálftavirkni seinni partinn Áframhaldandi skjálftavirkni er á Reykjanesi en áfram bólar ekkert á eldsumbrotum. Skjálfti að stærð 2,6 mældist við Keili skömmu fyrir klukkan 21 og fylgdu smáskjálftar í kjölfarið. Innlent 9.7.2023 21:33
Kvikugangurinn sé að færast nær yfirborðinu Um fjórtán hundruð jarðskjálftar hafa mælst frá miðnætti. Skjálftavirknin hefur þó róast seinnipartinn. Nýjustu gögn benda til þess að kvikugangurinn sé að færast nær yfirborðinu. Innlent 9.7.2023 16:58
Nokkuð kröftugir skjálftar og verið að skoða tvo möguleika Nokkuð kröftugir skjálftar mældust í nótt og í morgun. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að verið sé að velta upp tveimur möguleikum í stöðunni. Þá er varað við grjóthruni á skjálftasvæðinu. Innlent 9.7.2023 12:14
Enn talsverð virkni á Reykjanesi Enn er talsverð virkni á Reykjanesi og hefur hún lítið breyst undanfarna daga. Stærsti skjálfti næturinnar varð um korter yfir tólf í nótt og var hann 4,1 að stærð. Skömmu áður greindist 3,8 skjálfti. Innlent 9.7.2023 07:25
Staðan á Reykjanesi eftir daginn í dag Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Ísland segir að staðan á Reykjanesinu sé ennþá óbreytt frá því fyrr í kvöld. Nokkuð kröftugur jarðskjálfti reið yfir rétt fyrir klukkan 18 í dag en ennþá er ekki byrjað að gjósa. Innlent 9.7.2023 00:00
Voru stödd við upptök skjálftans: „Höfum aldrei upplifað annað eins“ Jarðskjálfti að stærðinni 4,5 reið yfir rétt fyrir klukkan 18 í dag. Skjálftinn átti upptök sín vestan við Kleifarvatn. Hjón sem voru stödd við vatnið þegar skjálftinn kom segjast aldrei hafa upplifað annað eins. Innlent 8.7.2023 20:17
Jarðskjálftinn yfir fjórir að stærð Rétt fyrir klukkan 18 fannst snarpur jarðskjálfti vel á suðvesturhorninu. Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands segir að umræddur skjálfti hafi verið 4,5 að stærð og að hann hafi átt upptök sín rétt vestan við Kleifarvatn. Innlent 8.7.2023 17:58
Kvikan það grunnt að ekki er hægt að styðjast lengur við GPS-gögn Lítið sem ekkert er að frétta af stöðu kvikunnar á Reykjanesi frá því í hádeginu í dag og staðan nokkuð óbreytt. Þá hefur skjálftavirknin á svæðinu verið með mjög svipuðu móti. Innlent 8.7.2023 16:57
Slösuð kona sótt á skjálftasvæðið og margir á vappi Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík fékk útkall klukkan 12:45 vegna konu sem hafði slasað sig á skjálftasvæðinu milli Keilis og Fagradalsfjalls. Aðgerðum lauk um klukkan tvö en mikil umferð ferðamanna er á svæðinu. Fólk er beðið að fara varlega á svæðinu. Innlent 8.7.2023 14:50
„Hátíðin er fyrst og fremst til að þakka að ekki fór verr“ Skipuleggjendur Goslokahátíðarinnar í Vestmannaeyjum segja hátíðina hafa gengið snurðulaust fyrir sig í ár en fimmtíu ár eru frá eldgosinu. Lífið 8.7.2023 14:19
Kvikan hugsanlega komin verulega nærri yfirborði Ný GPS gögn benda til þess að kvikan á Reykjanesi sé á kílómetra dýpi, eða jafnvel grynnra dýpi en það. Skjálftar mælast bæði á svæðinu á milli Keilis og Fagradalsfjalls og Eldey en þó færri en í upphafi hrinunnar. Innlent 8.7.2023 11:50
Lítið að gerast í nótt Áfram dró úr skjálftavirkni milli Fagradalsfjalls og Keilis í nótt. Margir smærri skjálftar mældust en sá stærsti mældist 3,3 að styrk en hann var rétt rúmlega tólf í nótt. Skömmu áður mældist skjálfti fjögur stig. Innlent 8.7.2023 07:37
Jarðskjálfti og rauður blettur en ekkert eldgos hafið Nokkuð snarpur jarðskjálfti átti sér stað á tólfta tímanum í kvöld. Þá hafa borist ábendingar um að eldgos gæti verið hafið miðað við reyk og annað sem sjá má á vefmyndavélum. Svo er hins vegar ekki. Innlent 7.7.2023 23:45
Tala um að eldgos hefjist eftir klukkustundir til daga Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að klukkustundir til dagar séu í að mögulegt eldgos hefjist. Kvikan sé að leita sér að leið upp að yfirborðinu, þegar leiðin finnst verði hún fljót að komast upp. Innlent 7.7.2023 22:01
Stefni allt í að gjósi á milli Fagradalsfjalls og Keilis Það stefnir allt í það að gangurinn undir svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis sé að fara að gjósa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá rannsóknarstofu Háskóla Íslands í eldfjallafræði og náttúruvá. 7000 skjálftar hafa mælst síðan skjálftahrinan hófst á Reykjanesi þann 4. júlí og innflæði kviku er tvöfalt hraðari en í fyrra. Innlent 7.7.2023 13:57
Hægir á landrisi, dregur úr skjálftum og „stefnir allt í gos“ Enn hægist á landrisi og dregur úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga, rétt eins og fyrir eldgosið í Fagradalsfjalli á síðasta ári. Eldfjallafræðingur segir allt stefna í eldgos, en kvika geti þó mallað í lengri tíma grunnt undir jarðskorpunni. Innlent 7.7.2023 11:43
Líkur á mun kröftugra gosi Kvikuinnflæði í innskot milli Fagradalsfjalls og Keilis er 88 rúmmetrar á sekúndu. Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir náttúruvársérfræðingur segir um töluverðan hraða að ræða og meiri en í fyrri gosum á Reykjanesi. Innlent 7.7.2023 10:55
Vogamenn búa sig undir eldgos í sínu sveitarfélagi Ráðamenn Voga á Vatnsleysuströnd eru viðbúnir því að eldgos gæti brotist upp í þeirra sveitarfélagi. Miðað við mat jarðvísindamanna á kvikuganginum, sem veldur jarðskjálftunum á Reykjanesi, gæti hann náð yfirborði þar sem landi hallar í átt að Faxaflóa. Innlent 7.7.2023 10:10
Gæti gosið hvenær sem er Um 6.500 jarðskjálftar hafa nú mælst á svæðinu á milli Fagradalsfjalls og Keilis frá því að yfirstandandi hrina hófst. Fimmtán skjálftar voru yfir fjórir að stærð og tugir yfir þremur. Innlent 7.7.2023 06:47
Hægur kvikugangur sem gýs líklega alveg við Keili Jarðeðlisfræðingur segir ekki hægt að spá fyrir um hvar eða hvenær kvikugangurinn nái yfirborðinu. Líklegast mun gjósa alveg við Keili þar sem skjálftavirknin er mest. Eftir tæplega 800 ára rólegheit er líklega hafið eldgosatímabil á Reykjanesskaga. Innlent 7.7.2023 00:30
Snarpur skjálfti reið yfir um níu Snarpur skjálfti að stærð 3,3 reið yfir um klukkan níu og fannst á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 6.7.2023 21:05
Bein útsending: Skjálftasvæðið á Reykjanesi Vísir hefur sett af stað beint streymi af svæðinu í Meradölum þar sem talið er líklegt er að eldgos geti hafist. Innlent 6.7.2023 16:42
Svona er umhorfs við Fagradalsfjall í skjálftahrinunni Jarðfræðingar búast við áframhaldandi skjálftahrinu á Reykjanesi næstu daga. Upptök skjálftahrinunnar eru á milli Fagradalsfjalls og Keilis en landris hefur orðið á stóru svæði á nesinu. Innlent 6.7.2023 16:22
Kunnugleg atburðarás á Reykjanesskaga Búist er við áframhaldandi skjálftavirkni í dag þrátt fyrir að heldur hafi dregið úr henni á Reykjanesskaga í nótt. Jarðelisfræðingur segir atburðarásina kunnuglega. Innlent 6.7.2023 12:56
Ákveðið að hætta að velja sér frídaga Í annað sinn á innan við ári gætu eldsumbrot truflað sumaráform samskiptastjóra almannavarna sem var á leið í sumarfrí á morgun. Tveir tímar liðu frá því að hún stimplaði sig út fyrir sumarleyfi í ágúst þegar eldgos hófst í Meradölum. Innlent 6.7.2023 11:40
Óvenju há rafleiðni ekki merki um yfirvofandi Kötlugos Óvenju há rafleiðni í Múlakvísl miðað við árstíma bendir ekki til þess að líkur hafi aukist á Kötlugosi. Náttúruvásérfræðingur Veðurstofu Íslands segir rafleiðni hægt og bítandi fara minnkandi. Hann hvetur fólk í grenndinni að fara varlega vegna jarðgass. Innlent 6.7.2023 10:42
Eldgos muni ekki fjölga ferðamönnum í sumar Forstöðumaður markaðssamskiptasviðs Íslandsstofu segir að eldgos eigi ekki eftir að hafa mikil áhrif á komu ferðamanna til skemmri tíma. Ekki sé mikið um laus hótelherbergi og erfitt væri að finna flugsæti. Til lengri tíma litið hafi eldgos þó góð áhrif á ímynd Íslands. Innlent 6.7.2023 10:35
Rafleiðni í Múlakvísl óvenju há Rafleiðni í Múlakvísl mælist nú óvenju há miðað við árstíma. Gasmælir á Láguhvolum mælir sömuleiðis jarðhitagas á svæðinu. Innlent 6.7.2023 07:19
Vaktin: Skjálfti að stærð 4,2 sá stærsti í dag Það dró heldur úr skjálftavirkni og skjálftastærð á Reykjanesskaga í nótt en alls mældust 750 skjálftar eftir miðnætti. Stærsti skjálfti dagsins var hins vegar 4,2 að stærð og reið yfir klukkan 11:03 í morgun. Innlent 6.7.2023 06:31
Snarpur skjálfti reið yfir rétt fyrir tvö Snarpur skjálfti reið yfir rétt fyrir klukkan tvö í nótt og fannst á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 6.7.2023 01:53
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti