
Hlaup

Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur
Kuldi, rigning, snjór og hvassviðri er eins og við vitum hér á landi ansi algengt veðurfar. Íslenskir hlauparar þurfa því að æfa stærsta hluta ársins í krefjandi vetraraðstæðum og og því mikilvægt að velja vel hluti sem henta.

Þorbergur vann sjötíu kílómetra hlaup í Sviss
Ofurhlauparinn Þorbergur Ingi Jónsson gerði sér lítið fyrir og vann 70 kílómetra utanvegahlaupið „Wild 70“ í Sviss í dag.

Lést í hlaupi til minningar um systur sína
Bretinn Sam Wealleans hneig niður og lést í Great North hlaupinu í Englandi á sunnudaginn. Hann hljóp til minningar um systur sína og til þess að safna peningum í styrktarsjóð.

Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið
Katrín Lilja Sigurðardóttir hefur verið að taka Nutrilenk Gold í rúm 20 ár við eymslum og stirðleika í hné, baki og mjöðmum og sér ekki fyrir að taka pásu eða hætta því.

Gat varla gengið en hljóp hálfmaraþon
Dagur B. Eggertsson forseti borgarráðs segist hafa komið sjálfum sér og öðrum á óvart um helgina þegar hann hljóp hálfmaraþon. Hann segir það stóran áfanga, hann hafi ekki verið viss um að hann gæti þetta, enda séu ekki mörg ár síðan hann gat varla gengið vegna gigtar og þurfti að styðjast við staf vetrarlangt.

Bjóða Sindra hjartanlega velkominn í vottað hlaup
Eftir að hafa slegið 24 ára gamalt aldursflokkamet hlauparans mikla Kára Steins Karlssonar, en ekki fengið það skráð, hefur hinn 15 ára gamli Sindri Karl Sigurjónsson verið boðinn sérstaklega velkominn í Hjartadagshlaupið í ár.

Sló 24 ára met Kára Steins en fær það ekki skráð
Fimmtán ára strákur úr Borgarfirði sló 24 ára gamalt aldursflokkamet Kára Steins Karlssonar um helgina, í 10 kílómetra götuhlaupi. Eða nei, því hlaupið, sem var hluti af Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, var ekki vottað.

Myndir: Gleðin allsráðandi í fertugasta Reykjavíkurmaraþoninu
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í fertugasta skipti í gær. Eins og áður var mikil stemning á svæðinu og gleðin skein úr andlitum flestra.

Heldur upp á afmæli dótturinnar eftir sigur í Reykjavíkurmaraþoninu
Sigurður Örn Ragnarsson varð í dag fyrsti Íslendingurinn í mark í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka er hann kom í mark á tímanum 2:37:07.

Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hófst í morgun. Stefán Árni Pálsson, íþróttafréttamaður er í miðborginni og tekur á móti fólki við endamarkið.

Hlauparar og Menningarnæturgestir geti ekki kvartað yfir veðurspánni
Veðurfræðingur segir ekki hægt að kvarta undan veðurspánni á morgun en mælir þó með því að Menningarnæturgestir klæði sig vel. Spáin líti með besta móti út fyrir þá sem ætla sér að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun.

Til í keppni ef hlaupið er löglegt og milljónir dollara fást fyrir
Noah Lyles er til í að keppa við Tyreek Hill í hundrað metra spretthlaupi, en bara ef hlaupið fer löglega fram á hlaupabraut og hann fær margar milljónir dollara fyrir.

Allt fyrir hlaupið á einum stað
Þegar kemur að hreyfingu eru margir sem velja að hlaupa en það hefur líka lengi verið tengt við marga heilsueflandi ávinninga. Sumir hlaupa því fyrir heilsuna, aðrir sér til skemmtunar, einhverjir til þess að svala keppnisþörf og eflaust nokkrir sem gera það fyrir allt þrennt.

ÍBR sækir um vottun á Reykjavíkurmaraþoninu sem er að seljast upp
Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) hefur sent inn umsókn, eftir að umsóknarfrestur rann út, um vottun Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) á hálfu og heilu maraþoni í Reykjavíkurmaraþoninu sem fer fram þann 24. ágúst. Nær uppselt er í báðar keppnir. Þrátt fyrir að umsóknin hafi borist of seint verður hún tekin til afgreiðslu.

Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“
Guðni Th. Jóhannesson fráfarandi forseti Íslands flutti sitt síðasta ávarp í embætti í gær við upphaf utanvegarhlaupsins Kerlingarfjöll Ulta, fimm dögum áður en nýr forseti tekur við embætti. Að ávarpi loknu tók hann þátt í hlaupinu og hljóp 22 kílómetra.

Guðni hljóp í Kerlingarfjöllum og flutti sitt síðasta ávarp
Fjallahlaupið Kerlingarfjöll ULTRA var haldið í fyrsta skiptið í blíðskaparveðri í gær. Keppendur spreyttu sig á þremur vegalengdum á miðhálendinu og tókust á við krefjandi aðstæður með bros á vör. Guðni fráfarandi forseti var meðal þátttakenda og flutti þar sitt síðasta formlega ávarp.

Myndaveisla: Héldu upp á tíu ára afmælið í Guðmundarlundi
Haldið var upp á tíu ára afmæli Náttúruhlaupa í Guðmundarlundi á dögunum. Þangað mættu á þriðja hundrað iðkendur ásamt vinum og vandamönnum.

Stjörnulífið: Heimir Hallgríms ástfanginn í Suður Frakklandi
Íslensku stjörnurnar halda áfram að njóta sumarsins hvort sem það er erlendis, úti á landi eða gulri viðvörun á höfuðborgarsvæðinu. Fjallahlaup, útihátíðir og ástin einkenndi síðastliðna viku.

Vann Laugavegshlaupið fjórða árið í röð
Laugavegshlaupið fór fram í dag en þetta er í tuttugasta og áttunda sinn sem hlaupið er haldið. Alls tóku yfir 500 hlauparar þátt í ár.

N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri
Ein stærsta ferðahelgi landsins stendur nú yfir. Landsmenn flykkjast um landið á fótboltamót, tónlistarhátíðir og langhlaup. Þessa helgina ætlar veðrið hins vegar að setja strik í reikninginn, að minnsta kosti á Norður- og Norðausturlandi.

Andrea og Arnar langfyrst á Akureyri
Andrea Kolbeinsdóttir úr ÍR kom fyrst kvenna í mark og setti persónulegt met á Íslandsmeistaramótinu í hálfu maraþoni á Akureyri. Arnar Pétursson varð Íslandsmeistari karla. Aðeins ein íslensk kona hefur hlaupið hálft maraþon hraðar en Andrea gerði í kvöld.

Andrea svekkir sig ekki á mannlegum mistökum
Þeir hlauparar sem tóku þátt í Ármannshlaupinu í fyrradag munu ekki fá afrek sín skráð í afrekaskrá Frjálsíþróttasambands Íslands. Í tilkynningu segir að hlaupaleiðin teljist of stutt en fimmtíu og átta metra vantaði upp á metrana tíu þúsund sem hlaupararnir áttu að hlaupa. Ein þeirra sem þreytti hlaupið í fyrradag er Andrea Kolbeinsdóttir sem tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í greininni með því að koma fyrst í mark í kvennaflokki.

Aron Can og Gummi Emil í fullu fjöri með Mari
Góð stemning var í Snæfellsjökulshlaupinu síðastliðinn laugardag þegar hlauparar hlupu tuttugu og tvo kílómetra frá Arnarstapa yfir jökulhálsinn til Ólafsvíkur.

Mari tók kærastann með upp á jökul
Ofurhlaupakonan Mari Järsk fór með kærstanum sínum, Nirði Lúðvígssyni ljósmyndara í hans fyrsta utanvegahlaup, Snæfellsjökulshlaupið, um helgina. Mari segir Njörð hafa verið peppaðan til að byrja með en í gríni segir hún hann hafa verið frekar leiðinlegur á meðan hlaupinu stóð, enda gríðarlega erfitt.

Ætla ellefu sinnum upp Esjuna og safna áheitum
Ofurhlaupararnir Elísa Kristinsdóttir og Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir ætla sér að hlaupa mikið eftir tíu daga.

Litrík hlaupagleði í Laugardalnum
Líf og fjör var í Laugardalnum síðastliðna helgi þegar hið árlega Litahlaup, eða Color Run, var haldið í áttunda sinn. Hlaupið er fimm kílómetrar þar sem þátttakendur eru litaðir með litapúðri eftir hvern kílómetra. Sannkölluð fjölskylduveisla!

Vandamálið við fætur, þeir eru í laginu eins og fætur
Fótlaga hlaupa- og utanvegaskórnir frá Altra og Vivobarefoot hafa heldur betur slegið í gegn hér á landi.

Alls konar veðrabrigði vel heppnaður Hengill Ultra
Hengill Ultra fór fram í Hveragerði um helgina. Aðstæður voru krefjandi en mótið þótti heppnast vel.

„Það er aldeilis ekki sjálfsagt að hafa heilsu“
Ósk Gunnarsdóttir, útvarpskona og viðburðarstýra, segist hafa sett heilsuna í fyrsta sæti eftir að hafa misst hana í kjölfar barnsburðar fyrir fjórum árum síðan. Hún segist spennt fyrir sumrinu sem er þéttskipað af fjallahlaupum og tónlistarviðburðum.

Mýrdalshlaup í þoku og súld
Mýrdalshlaupið fór fram í ellefta skipti í Vík í Mýrdal í gær. Keppt var í 10 km og 21 km hlaupi en auk þess fór fram 3 km skemmtiskokk sem var vel sótt. Talsverð súld og þoka var yfir rásmarkinu í fjörunni í Vík þegar tæplega 400 keppendur lögðu af stað kl 11.00 í gærmorgun.