
Ferðaþjónusta

Heimskautsgerðið hálfbyggt er orðið glæsilegt mannvirki
Heimskautsgerðið við Raufarhöfn er orðið eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna þótt enn vanti mikið til að ljúka gerð þessa einstaka mannvirkis.

Túristar á Íslandi straujuðu kortin fyrir 26 milljarða króna á þrjátíu dögum
Í júní komu um 187 þúsund ferðamenn til landsins um Leifsstöð.

Húsbílafólk fær athvarf á eigin stað í Gufunesi
Á föstudag var opnað tjaldstæði í Skemmtigarðinum í Grafarvogi sem er eingöngu fyrir ferðamenn á húsbílum, felli- og hjólhýsum. Framkvæmdastjóri Happy Campers fagnar nýjungunni. Þörf sé á slíkum tjaldstæðum um allt land.

Sex ára drengur steig í holu í Hveragerði og brenndist
Holan var með heitu vatni og hlaut drengurinn annars stigs bruna.

Féll að öllum líkindum 30-40 metra við Sólheimajökul
Ekki er vitað hversu alvarlega maðurinn er slasaður en hann var með meðvitund þegar björgunarlið kom á vettvang.

Þrjú útköll hjá björgunarsveitunum nánast á sama tíma
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á frá Hellu að Vík ásamt undanförum af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út rétt fyrir klukkan tvö í dag vegna einstaklings sem lenti í slysi á Sólheimajökli.

Ferðamenn með minna á milli handanna nú
Aukning taxfree-veltu er ekki í takt við fjölgun ferðamanna hér á landi. Sterkara gengi og hækkun fasts kostnaðar, eins og ferðakostnaðar innanlands og gistingar, kemur niður á verslun. Einsleitni markaðarins er farin að segja til sín.

Brexit hefur ekki áhrif á stefnu Easyjet varðandi Ísland
Breskir ferðamenn eru afar mikilvægir íslenskri ferðaþjónustu, sérstaklega utan háannatíma.

Leiðbeiningar á stýrið fyrir erlenda ökumenn
Bílaleigur hafa nú fengið ný spjöld þar sem ökumenn eru upplýstir með myndrænum hætti um hvað helst beri að varast í umferðinni. Spjöldin sem hengd eru á stýri bílaleigubílanna eru unnin af Samtökum ferðaþjónustunnar í samstarfi við viðbragðsaðila og stofnanir á borð við Vegagerðina og innanríkisráðuneytið.

Maðurinn enn ófundinn: Kafarar Landhelgisgæslunnar á leið í Sveinsgil
Sveitir á staðnum héldu stöðufund nú klukkan tvö.

Umfangsmiklar björgunaraðgerðir: Maðurinn féll fram af snjóhengjunni
Sveinsgil er í Torfajökli á Fjallabaksleið nyrðri en mennirnir tveir voru aðeins í dagsferð um svæðið.

Hátt á þriðja hundrað koma að aðgerðum í Sveinsgili
Búið er að kalla út björgunarsveitarmenn úr öllum björgunarsveitum frá Akranesi í vestri að Kirkjubæjarklaustri í austri.

Björgunarsveitarmenn reyna að moka sig í gegn
Gríðarlega erfiðar aðstæður eru við Sveinsgil þar sem leit stendur yfir af manni sem féll þar í ánna.

„Hálendið getur ekki tekið á móti fleiri ferðamönnum“
Sjötíu prósent þeirra gesta sem ganga Laugaveginn á milli Landmannalauga og Þórmerkur nú í sumar eru erlendir ferðamenn en mikil aukning hefur orðið í ferðum þeirra á hálendinu.

Hestaferðafyrirtæki bótaskylt vegna falls konu af baki
Konan hlaut beinbrot á framhandlegg og rifbeini auk þess að bólgna og merjast á baki og hálsi. Hjálmur hennar bjargaði því að ekki fór verr.

Nokkuð um leyfislausa í akstri með ferðamenn á Suðurlandi
Lögreglan á Suðurlandi kærði sex aðila í vikunni fyrir að hafa ekki gild hópferða- og rekstrarleyfi.

Tvöföldun Reykjanesbrautar tekur fimm til sex ár
Við segjum hingað og ekki lengra. Þetta segir talsmaður átaks um tvöföldun Reykjanesbrautar en tæplega 15 þúsund manns hafa skráð sig til þátttöku í átakinu á Facebook á tæpum tveimur sólarhringum.

Göngumanni bjargað úr sjálfheldu
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út eftir að neyðarboð barst stjórnstöð gæslunnar.

Hætta vegna ferðamanna á vegum
Algengt að ferðamenn stöðvi bílinn skyndilega til að taka myndir. Vegagerðin skoðar staði fyrir útskot.

Hugmyndin kom uppi á jökli
Ragnhildur og Júlíus eru hjón sem hefur alltaf dreymt um að stofna fyrirtæki saman.

Furðufréttir úr ferðamannabransanum
Kostuleg atvik, grátbrosleg og sum hver lýsa hreinlega háskalegum aðstæðum.

Skellti sér í sturtu á bílaþvottaplani og veifaði sprellanum framan í gagnrýnanda
"Ég þurfti alveg að nudda augun, ég átti ekki von á þessu,“ segir Garðar Valur Hallfreðsson.

Látum vegakerfið ekki grotna niður
Á sameiginlegum fundi Vegagerðarinnar og Samtaka ferðaþjónustunnar sem haldinn var fyrir skömmu kom fram að innan Vegagerðarinnar er nú unnið að því að reikna út verðmæti vegakerfis landsins. Fyrstu niðurstöður benda til að verðmæti þess geti verið á bilinu 600-700 milljarðar króna

Hætta fylgir ferðamönnum á brúm
Vegagerðin verður að bregðast við því að ferðamenn troði sér meðfram brúm landsins sem einungis eru ætlaðar farartækjum, til dæmis með því að setja upp skilti. Þetta segir Kári Jónasson leiðsögumaður.

Sumarpest fyllir Læknavaktina
Óvenju annasamt hefur verið á Læknavaktinni í Kópavogi síðustu daga miðað við árstíma. Fleiri lækna hefur þurft á vakt og sjúklingarnir hafa verið hátt í tvöfalt fleiri en venja er.

Kenna erlendum ferðamönnum hvernig á að keyra á Íslandi
Hvað á að gera þegar einbreið brú er framundan eða þegar kindur eru nálægt?

Náttúruvernd Íslands
Vorið 2002 var samþykkt á Alþingi að stinga veikburða starfsemi náttúruverndar á Íslandi ofan í skúffu hjá öflugri Hollustuvernd ríkisins svo að úr yrði Umhverfisstofnun. Það var mikið óheillaskref fyrir náttúruvernd á Íslandi.

Kona féll í klettum ofan við Víkurfjöru
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurlandi hafa verið kallaðar út til að sinna þremur útköllum.

Staðfest að Rifstangi liggur norðar en Hraunhafnartangi
Dæmi eru um að erlendir ferðamenn láti gifta sig á Hraunhafnartanga þar sem þeir telja hann nyrsta tanga Íslands.

Erlendar rútur raska ró Samtaka ferðaþjónustu
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa fengið ábendingar um að hér á landi starfi í auknum mæli erlend rútufyrirtæki og ekki sé greiddur virðisaukaskattur af starfsemi þeirra.