

Tveir fyrrverandi stjórnendur bílaframleiðandans Volkswagen hlutu fangelsisdóma og tveir aðrir skilorðsbundna dóma fyrir svik vegna útblásturshneykslisins sem skók þýskan bílaiðnað í dag. Talið er að hneykslið hafi kostað Volkswagen meira en þrjátíu milljarða evra til þessa.
Rupert Stadler, fyrrverandi forstjóri bílaframleiðandans Audi, varð fyrsti stjórnarmaður Volkswagen til þess að hljóta dóm í útblásturshneykslinu sem skók þýskan bílaiðnað þegar hann var fundinn sekur um svik í dag. Hann hlaut skilorðbundinn fangelsisdóm og dæmdur til að greiða háa sekt.
Ákvörðun um uppsögn Herbert Diess, framkvæmdastjóra Volkswagen Group kom mörgum í opna skjöldu. Raunveruleg ástæða þess að hann var að endingu látinn taka pokann sinn var sú að eina verkefnið sem var eftir á borði hans síðan í desember síðastliðnum, olli talsverðum seinkunum á kynningum rafbíla eins og Porsche Macan, Artemites verkefni Audi og Bentley rafbílum. Diess var enn yfir hugbúnaðardeildinni CARIAD sem virðist hafa verið síðasta hálmstráið.
Herbert Diess, framkvæmdastjóri Volkswagen samsteypunnar hefur sagt starfi sínu lausu og mun láta af því 1. september næstkomandi. Næsti framkvæmdastjóri Volkswagen samsteypunnar verður Oliver Blume, núverandi framkvæmdastjóri Porsche.
Volkswagen kynnti á dögunum nýja stefnu fyrir Volkswagen samsteypuna. Volkswagen skilgreinir sig nú sem hugbúnaðardrifið ferðalausna fyrirtæki með áherslu á vörumerkin sín og tækni grundvöll sem með samlegðaráhrifum eflir og opnar nýjar leiðir í átt að nýjum tekjustraumum.
Martin Winterkorn, fyrrverandi forstjóri þýska bílarisans Volkswagen, hefur verið ákærður fyrir að bera ljúgvitni þegar hann mætti fyrir nefnd þýska þingsins í tengslum við útblásturshneyksli fyrirtækisins sem komst í hámæli árið 2015.
Volkswagen í Bandaríkjunum laug að fjölmiðlum þegar sendar voru út fréttatilkynningar á mánudag og þriðjudag um að til stæði að breyta nafni starfseminnar úr „Volkswagen of America“ í „Voltswagen of America“. Var það sagt gert til að undirstrika aukna áherslu á rafbílaframleiðslu félagsins.
Þrír fyrrum stjórnarmenn og einn deildarstjóri á eftirlaunum hafa verið ákærðir fyrir svik og sviksamlegar auglýsingar vegna díselskandalsins.
Dómstóll í Þýskalandi komst að þeirri niðurstöðu að bílaframleiðandinn Volkswagen þyrfti að greiða eigendum dísilbíla sem fyrirtækið átti við til að blekkja yfirvöld bætur í dag. Tugir þúsunda dómsmála hafa verið höfðuð í Þýskalandi vegna útblásturshneykslisins.
Þýskir saksóknarar hafa verið sektað Daimler, móðurfélag Mercedes Benz um 870 milljónir evra að jafnvirði um 118 milljarða íslenskra króna.
Rupert Stadler er talinn hafa vitað af svindli á útblástursprófum en aðhafst ekkert. Hann er ákærður fyrir svik og falskar auglýsingar.
Ákæran varðar svindl Volkswagen á útblástursprófum til að fela mengun frá dísilbílum fyrirtækisins.
Forstjóri Volkswagen telur aðeins helmingslíkur á að þýskir bílaframleiðendur haldi sterkri stöðu sinni í ljósi hertra umhverfisreglna.
Stjórnendur þýska bílaframleiðandans eru sakaðir um að hafa brugðist í að greina hluthöfum frá fjárhagslegum afleiðingum útblástursprófanasvindlsins.
Rupert Stadler, forstjóri bílaframleiðandans Audi hefur verið handtekinn í Þýskalandi í tengslum við rannsókn á röngum upplýsingum um útblástur dísilbíla.
Játningin er hluti af samkomulagi sem Volkswagen gerði við bandarísk yfirvöld.
Volkswagen þegar samþykkt að greiða 1.903 milljarða sektarkröfur frá Bandaríkjunum.
Sektir fyrirtækisins í Bandaríkjunum gætu verið meira en 1,2 milljarðar dala eða rúmir 140 milljarðar króna.
Hver bíleigandi vestnahafs fær 640.000 til 1.250.000 krónur í skaðabætur.
Þýski bílaframleiðandinn mun greiða andvirði 1200 milljarða íslenskra króna í skaðabætur til viðskiptavina sinna í Bandaríkjunum.
Yrði greitt til 600.000 eigenda díslbíla með svindlhugbúnaði.
Þýski bílaframleiðandinn hefur komist að samkomulagi við bandarísk yfirvöld vegna Volkswagen-skandalsins svokallaða.
238 fjárfestar fara fram á andvirði tæplega 470 milljarða króna frá þýska bílaframleiðandanum.
Vilja sömu bætur og eigendur Volkswagen bíla í Bandaríkjunum fá.
Kæran var lögð fram fyrir hönd Umhverfismálastofnunar Bandaríkjanna (EPA).
Volkswagen segir útblásturshneyksli sitt ná til mun færri bíla en það hafði áður talið. Þýski bílaframleiðandinn segist nú telja að kolefnisútblástur og eldsneytiseyðsla aðeins 36 þúsund Volkswagen-bíla hafi verið ranglega gefin upp en ekki 800 þúsund bíla líkt og fyrirtækið gaf út í síðasta mánuði.
Forstjóri Volkswagen hefur sent Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra bréf þar sem þetta kemur fram.
Útblásturshneyksli þýska bílaframleiðandans Volkswagen virðist ekki hafa teljandi áhrif á sölu bílanna hér á landi. Málið kom upp í síðari hluta september en markaðshlutdeild Volkswagen í október jókst milli ára.
Svindlbúnaðurinn er ekki aðeins bundinn við díselbíla líkt og áður var talið.
Lífleg sala er í notuðum Volkswagen bílum, álíka mikil og í fyrra.