Fréttir
323 324 325 326 327 328 329 330 331 … 334 ›
Sjá merki um óróa Vísbendingar eru um að jökulhlaup sé hafið í Grímsvötnum. Náttúruvársérfræðingar fylgjast með stöðunni en þeir hafa í morgun séð merki um hlaupóróa. Innlent 11.1.2024 09:02
Fjöldadauði sela rakinn til H5N1 Staðfest hefur verið að fjöldadauða sela og sæfíla í suður-Atlantshafi á eyjunni Suður-Gergíu má rekja til þess að þeir smituðust af H5N1. Erlent 11.1.2024 09:00
Íbúa í kjallara gert að stöðva stöðuga kattaumferð inn um glugga Óheimilt er fyrir íbúa í kjallara í fjölbýlishúsi í Reykjavík, sem lengi hefur hleypt köttum sem hann á ekkert í inn um glugga í íbúð sinni, að taka á móti köttum. Innlent 11.1.2024 08:47
Christie dregur sig í hlé en biðlar til kjósenda að hafna Trump Chris Christie, fyrrverandi ríkisstjóri New Jersey, hefur dregið sig úr forkosningum Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar. Valið mun þá stand á milli Donald Trump, Nikki Haley og Ron DeSantis. Erlent 11.1.2024 08:30
Ásakanir Suður-Afríku gegn Ísrael teknar fyrir í dag Alþjóðadómstóllinn mun í dag taka fyrir umleitan Suður-Afríku um að dómstólinn grípi til aðgerða vegna meints þjóðarmorðs Ísraela á Palestínumönnum á Gasa. Erlent 11.1.2024 07:33
Stór skjálfti í grennd við Grímsvötn Nokkuð öflugur skjálfti reið yfir í morgun í Grímsvötnum en upptök hans voru um þrjá og hálfan kílómetra norðaustur af Grímsfjalli í Vatnajökli. Innlent 11.1.2024 07:30
Þrástaða veðrakerfanna brotnar upp í dag Veðurstofan gerir ráð fyrir áframhaldandi suðlægri átt og yfirleitt stinningskalda eða allhvössum vindi í dag. Það mun fara að rigna, fyrst vestanlands og má svo búast við talsverðri úrkomu í suðvesturfjórðungi landsins þegar líður að kvöldi. Veður 11.1.2024 07:25
Hjólastólalyftan ítrekað biluð vegna of þungra hjólastóla Hjólastólalyfta í kvikmyndahúsinu á Akureyri er ítrekað biluð því of þungir rafmagnsstólar fara í hana. Lyftan er aðeins gerð fyrir stóla sem eru ekki rafmagnsstólar. Aðgengismál eru misjöfn eftir kvikmyndahúsum Sambíóanna en best í Egilshöll og Kringlunni. Innlent 11.1.2024 07:00
Mikið vatn í djúpri sprungunni „Leit stendur yfir, maðurinn er ekki fundinn,“ sagði Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í morgun um leitina að manninum sem er talinn hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík í gær. Mikið vatn er í sprungunni að hans sögn. Innlent 11.1.2024 06:59
„Atlantshafsbandalagið er dautt“ Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og núverandi forsetaframbjóðandi, er sagður hafa sagt við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, að Atlantshafsbandalagið væri „dautt“. Erlent 11.1.2024 06:45
Hefði frestað barneign hefði hún vitað af barnabanni Einstæð móðir með barn á brjósti þarf að velja á milli þess að segja sig úr áfanga í fjarnámi í leikskólafræði við Háskólann á Akureyri eða sætta sig við lægri einkunn. Ástæðan er sú að ekki er leyfilegt að vera með barn í kúrsinum. Forsvarsmenn HA segja reynt að koma til móts við foreldra en gæta þurfi hagsmuna annarra nemenda um leið. Innlent 11.1.2024 06:45
Skorar á Fjarðabyggð að draga til baka stuðning við jarðgöng Forsvarsmaður undirskriftasöfnunar um breytta forgangsröðun jarðganga á Austfjörðum, Mjófirðingurinn Erlendur Magnús Jóhannsson, skorar á bæjarfulltrúa Fjarðabyggðar að draga til baka stuðning Fjarðabyggðar innan Sambands sveitarfélaga á Austurlandi við Fjarðarheiðargöng. Jafnframt hvetur hann þá til þess að fara fram á nýja úttekt á gangnakostum á Mið-Austurlandi. Fréttir 10.1.2024 23:33
Hafi reynt að fela dóp í stað þess að bjarga lífi konunnar Maður á þrítugsaldri, sem er grunaður um að hafa orðið konu að bana á Selfossi í apríl á síðasta ári, er talinn hafa spillt sönnunargögnum málsins áður en lögreglu var gert viðvart um andlátið. Innlent 10.1.2024 23:29
Leynigöngum gyðinga í Brooklyn lokað og níu handteknir Lögreglan í Brooklyn í New York-borg handtók níu meðlimi hasidíska gyðingasamfélagsins á mánudag vegna leyniganga sem þeir höfðu grafið frá höfuðstöðvum Chabad-Lubavitch-hreyfingarinnar að sögufrægri sýnagógu. Erlent 10.1.2024 22:25
„Það verður unnið í þessu þangað til málið leysist“ Björgunarsveitir hafa hafið leit á ný að manni sem féll niður í sprungu í Grindavík í dag. Leitin fer þannig fram að tveir og tveir leita í einu, með því að síga ofan í sprunguna í körfu. Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar í samtali við fréttastofu. Innlent 10.1.2024 22:08
Breytt pokastefna Sorpu umdeild: „Þetta er rugl“ Formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl segir breytta pokastefnu hjá Sorpu kalla á sérstakar bílferðir og finnst miður að þróunin sé á þá leið að skerða þjónustu í nærumhverfinu. Viðmælendur fréttastofu segjast flestir óánægðir með breytingarnar Innlent 10.1.2024 21:31
Auglýsa netspilavíti með krókaleiðum Erlent netspilavíti auglýsir í íslensku sjónvarpi með krókaleiðum. Formaður samtaka áhugafólks um spilafíkn segir fjárhættuspil á netinu vera normalíseruð í samfélaginu sem getur valdið miklum skaða. Innlent 10.1.2024 21:00
Hefur áhyggjur af því að allir séu upp á kant við ráðherra Vilhjálmur Árnason, ritari og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki upplifa átök innan flokksins um stöðu matvælaráðherra. Það sé búið að vera ljóst síðan í sumar að þingflokknum hafi fundist ákvörðun ráðherra um að fresta hvalveiðum slæm. Innlent 10.1.2024 19:13
„Jörðin bara opnast undir fótum hans“ Karlmanns sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík í dag er enn leitað. Aðstæður í bænum eru sagðar hættulegar fyrir björgunarfólk. Lögreglustjóri á Suðurnesjum lýsir slysinu þannig að jörðin hafi opnast undan manninum og hann hafi ekki ráðið við aðstæður. Hans verði leitað í alla nótt gerist þess þörf. Innlent 10.1.2024 19:06
Riðutilfelli á sjö hundruð kinda búi Matvælastofnun hefur borist tilkynning frá tilraunastöð HÍ í meinafræði þess efnis að riða hafi greinst í sláturfé í Blöndudal í Húna og Skagahólfi. Innlent 10.1.2024 18:28
Guðrún Jónsdóttir er látin Baráttukonan Guðrún Jónsdóttir er látin 91 árs að aldri. Hún fæddist þann sextánda júní 1931 og lætur eftir sig eina dóttur, Ragnheiði Thorlacius, fyrrverandi héraðsdómara. Hún lést í gær á hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi. Innlent 10.1.2024 18:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Leit stendur enn yfir að manni sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík í dag. Aðstæður á vettvangi eru afar hættulegar fyrir björgunarfólk; sprungan er mjög djúp og jarðvegur ótryggur. Fréttir 10.1.2024 18:19
Orðræðan gefi til kynna allsherjarstríð, tilfærslu og eyðileggingu Magnús Þorkell Bernharðsson, sagnfræðiprófessor við Williams háskóla í Bandaríkjunum og sérfræðingur í sögu Mið-Austurlanda segir líkur á að fleiri ríki muni brátt dragast inn í stríðið fyrir botni Miðjarðarhafs. Hann segir að fyrir Ísraelsmönnum vaki að binda enda á samfélag Palestínumanna á Gasa og búa þar til nýtt samfélag, sé tekið mið af orðræðu ráðamanna. Innlent 10.1.2024 18:14
Stefna á að fara aftur niður sprunguna í kvöld Björgunaraðilar í Grindavík stefna að því að senda björgunarmenn niður sprungu í Grindavík á nýjan leik í leit að manni sem talinn er hafa fallið ofan í sprunguna í morgun. Maðurinn hafði verið einn við vinnu við jarðvegsþjöppun eftir sprungufyllingu. Innlent 10.1.2024 18:01
Samþykkt að Kvosin og Austurstræti verði göngusvæði Forhönnun að nýju Austurstræti var kynnt í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í morgun. Gatan á að verða göngugata og í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að hönnun götunnar ýti undir það að hún verði áfram „ein mikilvægasta gata miðborgarinnar.“ Innlent 10.1.2024 17:25
Útstunginn og blóðugur jógabolti lykilsönnunargagn Allt bendir til þess að Tómas Waagfjörð hafi reynt að verjast hnífaárás Steinþórs Einarssonar með jógabolta í íbúð á Ólafsfirði í október 2022. Steinþór hlaut átta ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Hann kannaðist ekkert við að jógabolti hefði komið við sögu í átökunum en boltinn var útstunginn og blóðugur. Innlent 10.1.2024 17:15
Fresta íbúafundi vegna leitarinnar Grindavíkurbær hefur ákveðið að fresta íbúafundi sem var á dagskrá á morgun. Ástæðan er sögð „hörmulegt slys“ sem átti sér stað í dag. Innlent 10.1.2024 16:13
Lét aflífa hvolpinn og fær engar skaðabætur Hundaræktendur þurfa ekki að endurgreiða konu sem aflífaði veikan hvolp sem hún hafði keypt af þeim. Þar vó þungt að hún ákvað að láta aflífa hvolpinn áður en ítarleg skoðun gat farið fram á honum. Innlent 10.1.2024 16:00
Lægðin hefur áhrif á mælana Líkur á eldgosi á Reykjanesskaga á næstu dögum aukast stöðugt, að mati jarðeðlisfræðings. Ekki sé sjálfgefið að atburðarásin verði með sama hætti og síðast. Veður hefur áhrif á mæla á svæðinu þessa dagana og náið er fylgst með vefmyndavélum. Innlent 10.1.2024 14:52
Alvarlegar afleiðingar standi aðilar ekki við sitt Formaður VR segir að samningaviðræður breiðfylkingar ASÍ við SA á því stigi nú að farið sé að ræða einstök atriði. Hann segist hafa trú á viðræðunum þrátt fyrir fyrri reynslu, allir aðilar þurfi að standa við sitt. Innlent 10.1.2024 14:39