Viðvaranir að falla úr gildi en meira óveður í nánd Djúp lægð á Grænlandssundi hefur valdið suðvestan hvassviðri eða stormi á landinu með dimmum éljum. Lægðin er farin að grynnast og vindinn lægir svo um munar með deginum, en áfram má þó búast við éljum. Það er frost um mestallt land, á bilinu 0 til 5 stig. Veður 21.3.2026 07:33
Skammt stórra högga á milli Gular veðurviðvaranir eru í gildi fyrir flesta landshluta fram til morguns og vegir um Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði og Steingrímsfjarðarheiði meðal þeirra sem eru lokaðir. Veðurfræðingur segir skammt stórra högga á milli og landsmenn þurfi að venjast vetrarríki á næstunni. Veður 20.3.2026 19:43
Gular viðvaranir um allt vestanvert landið til morguns Gular veðurviðvaranir eru nú í gildi um allt vestanvert landið og einu svæðin sem eru undanskilin eru Norðurland eystra, Austurland og Austfirðir. Á höfuðborgarsvæðinu verður viðvörun í gangi í allan dag og fram á morgundaginn en spáð er suðvestan hvassviðri og dimmum éljum. Annars staðar er einnig spáð hvassviðri eða jafnvel stormi og er varasamt að vera á ferðinni. Veður 20.3.2026 07:21
Holtavörðuheiðin opin á ný Búið er að opna Holtavörðuheiðina eftir lokun í nótt. Enn er ófært um Fróðaárheiði. Hálka og snjóþekja er á flestum leiðum. Veður 16.3.2026 07:22
Bætir í norðaustanáttina að nýju Alldjúp lægð mjakast nú austur skammt suðaustur af landinu og í kvöld kemur svo lægð sunnan úr hafi og sameinast við hina fyrri suðaustur af landinu og bætir þá í norðaustanáttina að nýju. Veður 16.3.2026 07:15
Loka heiðinni og opna fjöldahjálparstöð: Biðja „ALLA“ um að halda sig heima Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur lokað þjóðveginum frá Blöndósi suður yfir Holtavörðuheiði og biðlar til vegfarenda að halda sig heima. Fjöldahjálparstöð verði opnuð í íþróttahúsinu á Blönduósi. Ólíklegt þykir að vegirnir opni aftur í kvöld. Veður 15.3.2026 19:44
Önnur rúta fór út af og Hringvegi lokað að hluta Þrenging er á Hringvegi um Holtavörðuheiði þar sem rúta fór út af vegi í dag, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Þá hefur Hringveginum verið lokað milli Hvammstanga og Víðigerðis þar sem bílar sitja fastir. Ríflega hundrað björgunarmenn hafa verið ræstir út síðasta sólarhring, að sögn Landsbjargar. Veður 15.3.2026 18:53
„Blint í stórhríð á Vestfjörðum“ Enn eru við gildi gular viðvaranir á Vestfjörðum en einnig óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi. Snjóflóðahætta verður á vegum á Vestfjörðum og hefur Vegagerðin lýst yfir hættustigi á Súðavíkurhlíð og Flateyrarvegi frá miðnætti og verður vegunum þá lokað. Veður 15.3.2026 07:37
Gular viðvaranir á norðvesturhorninu: Rýma atvinnuhúsnæði og loka vegum Nokkur atvinnuhúsnæði á Ísafirði verða rýmd í fyrramálið vegna snjóflóðahættu, að sögn Veðurstofu Íslands. Sömuleiðis verður Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð lokað á miðnætti, en í nótt taka gular veðurviðvaranir gildi á norðvesturhorni landsins. Veður 14.3.2026 21:40
Hvessir á mestöllu landinu í kvöld Minnkandi norðvestan- og vestanátt í dag. Snjókoma eða slydda með köflum norðanlands, en styttir upp að mestu þar síðdegis. Næsta lægð er væntanleg inn á Grænlandshaf seint í dag og áhrifa hennar fer að gæta í kvöld og nótt með vaxandi vindi með úrkomu. Veður 14.3.2026 07:29
Stífri norðanátt beint til landsins og vegir lokaðir Lægðasvæði norðaustur af landinu beinir stífri norðvestlægri átt yfir landið með snjókomu á norðanverðu landinu og víða skafrenningi á fjallvegum. Sunnanlands verður úrkomulítið þó að reikna megi með dálitlum éljum suðvestanlands. Veður 13.3.2026 07:13
Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Alldjúp lægð skammt norðaustur af landinu stýrir veðrinu á landinu næsta sólarhringinn, en hún mun þó grynnast smám saman. Lægðin beinir norðvestlægri átt til landsins með ofankomu, einkum fyrir norðan. Veður 12.3.2026 07:09
Færð geti víða spillst hratt Í dag má búast við allhvössum vindi og snjókomu á fjallvegum og heiðum víða um land. Slíkt hríðarástand skapar mjög blind og erfið akstursskilyrði og færð getur spillst hratt. Veður 9.3.2026 10:15
Él og slydduél í dag og önnur lægð á morgun Í dag má búast við suðlægri átt og fimm til 13 metrum á sekúndu og él eða slydduél, en lengst af að það verði þurrt norðaustanlands framan af degi. Eftir hádegi gengur í suðaustan 13 til 20 metra á sekúndu og bætir í él um tíma á austanverðu landinu. Veður 8.3.2026 07:27
Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir íbúa á suðvesturhorni landsins geta orðið varir við eldingar í dag. Töluverður fjöldi eldinga laust niður í gær og ein á höfuðborgarsvæðinu nú í morgun. Veður 7.3.2026 09:59
Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Gul viðvörun er í gildi á meirihluta landsins þar til klukkan um hádegi eða seinni part í dag. Lengst eru viðvaranir í gildi á Norðurlandi eystra, Ströndum, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, eða til klukkan 16. Viðvörun rennur fyrst út í Breiðafirði klukkan 12 en svo klukkan 14 á Suðurlandi og á miðhálendi. Sums staðar eru líkur á eldingum líkt og í gær. Veður 7.3.2026 07:33
Varað við þrumuveðri með tíðum eldingum Gul viðvörun er í gildi vegna eldinga á Suðurlandi. Veðurfræðingur segir eldingarnar að mestu hafa verið bundnar við syðsta hluta landsins fyrir hádegi en veðrið sé að færast vestar. Fréttastofa hefur frétt af eldingum í Mosfellsbæ síðdegis í dag og þá var einnig greint frá rafmagnsleysi í Þorlákshöfn. Veður 6.3.2026 15:03
Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Kröpp og djúp lægð er núna vestur af landinu. Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar gengu skilin yfir landið í nótt og erum við nú í hlýjasta hluta veðurkerfisins. Úrkoman á engu að síður að vera blönduð samkvæmt spá, rigning, slydda og jafnvel snjókoma á köflum. Veður 6.3.2026 07:28
Gular veðurviðvaranir í kortunum Veðurstofa Íslands spáir suðlægri átt með éljum sunnan og vestan til á landinu í dag. Hiti verður í kringum frostmark, en um núll til fimm stiga frost norðaustanlands. Veður 5.3.2026 07:12
Köldu lofti beint til landsins Milli Íslands og Grænlands er nú víðáttumikil lægð sem beinir köldu lofti úr suðvestri til landsins. Veður 4.3.2026 07:01
Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða. Veður 3.3.2026 06:34
Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Ört dýpkandi lægð er nú á leið til norðurs fyrir austan land og fylgja henni vaxandi norðvestanátt á austurhelmingi landsins. Reikna má með 18 til 28 metrum á sekúndu á þeim slóðum eftir hádegi, hvassast í vindstrengjum á Austurlandi og Austfjörðum. Veður 2.3.2026 07:10
Appelsínugul viðvörun á morgun Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun á Austurlandi vegna norðaustan hríðar sem tekur gildi klukkan eitt á morgun, mánudaginn 2. mars. Gular viðvaranir vegna veðurs hafa sömuleiðis verið gefnar út fyrir Norðurland eystra, Austfirði, Miðhálendi og Suðausturland. Veður 1.3.2026 11:32
Vara við stórhríð á Austurlandi Varað við miklum vindi og snjókomu á norðaustanverðu landinu eftir hádegi á morgun. Veður 1.3.2026 10:08