Enski boltinn

Varnarmaður Aston Villa rifjaði upp þegar innbrotsþjófar reyndu að ræna honum
Kortney Hause, varnarmaður Aston Villa, lenti í ömurlegri lífsreynslu á öðrum degi jóla 2018. Fimm menn brutust þá inn til hans og reyndu að ræna honum.

Neville gagnrýndi Ronaldo og Fernandes og kallaði lið United hóp af vælukjóum
Gary Neville gagnrýndi frammistöðu Manchester United gegn Newcastle United og kallaði leikmenn liðsins vælukjóa.

Klopp áfram pirraður yfir álaginu yfir hátíðirnar
Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, virðist seint ætla að venjast því álagi sem fylgir því að vera hluti af enskri knattspyrnuhefð yfir jólahátíðina.

„Skil ekki hvernig De Gea varði skotið frá Almirón í lokin“
Eddie Howe, þjálfari Newcastle United, hrósaði sínum mönnum í hástert eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þá skildi hann ekki hvernig David De Gea varði skot Miguel Almirón undir lok leiks.

De Gea bjargaði stigi gegn Newcastle
Manchester United náði aðeins í eitt stig gegn Newcastle United í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Man United getur þakkað spænska markverðinum David De Gea fyrir stig kvöldsins.

Rangnick horfir til Þýskalands
Ralf Rangnick, þjálfari Manchester United, horfir til heimalandsins í leit að ungum og efnilegum leikmönnum. Talið er að hann sé á höttunum eftir allt að fjórum leikmönnum sem eru tvítugir eða yngri.

„Ef að ekki væri fyrir fótboltann væri helmingur ykkar að vinna á McDonalds“
Simon Jordan, fyrrverandi eigandi Crystal Palace, segir Pep Guardiola, Jürgen Klopp og fleirum að hætta að kvarta yfir miklu álagi á leikmenn í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta yfir jólavertíðina.

Martial vill fara frá United en engin tilboð hafa borist
Anthony Martial hefur óskað eftir sölu frá Manchester United. Enn hafa engin tilboð borist í franska framherjann.

Missa bara af tveimur umferðum vegna „velvildar“ afríska sambandsins
Jafnvel þó að Egyptaland kæmist í úrslitaleik Afríkumótsins í fótbolta myndi Mohamed Salah aðeins missa af tveimur deildarleikjum með Liverpool, vegna „velvildar“ afríska knattspyrnusambandsins.

Útskýrði af hverju hann réði sálfræðing: „Leikmenn þurfa einhvern til að tala við“
Ralf Rangnick var ekki lengi að láta til sín taka sem þjálfari Manchester United. Eitt af hans fyrstu verkum var að ráða íþróttasálfræðing og hinn 63 ára gamli Þjóðverji telur að ekki sé langt í að það verði vaninn hjá stærstu liðum heims.

Lögreglan biðst afsökunar á að hafa orðið fótboltamanni að bana
Lögreglan í West Mercia hefur sent skriflega afsökunarbeiðni til fjölskyldu fótboltamannsins fyrrverandi Dalians Atkinson, hálfu ári eftir að lögreglumaður var sakfelldur fyrir að hafa orðið honum að bana.

Foxillur Tuchel: „Þeir neyddu okkur til að spila“
Þrátt fyrir sigurinn á Aston Villa í gær var Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, ekki kátur eftir leikinn og sendi enska knattspyrnusambandinu tóninn.

Rifjaði upp kjarnorkudrifið æðiskast Fergusons: „Hann gæti verið njósnari!“
Í viðtali við The Athletic rifjaði Eric Steele, fyrrverandi markvarðaþjálfari Manchester United, þegar hann fékk hárblásarameðferðina frá Sir Alex Ferguson á sínum tíma.

Leik Arsenal og Wolves frestað
Enn er verið að fresta leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Nú er ljóst að Skytturnar mæta ekki Úlfunum þann 28. desember vegan kórónuveirunnar og gríðarlega meiðsla í herbúðum Úlfanna.

Brighton gekk frá Brentford í fyrri hálfleik
Tvö mörk í fyrri hálfleik sáu til þess að Brighton & Hove Albion sótti þrjú stig í greipar Brentford í síðasta leik ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Lokatölur á The American Express Community-vellinum 2-0 heimamönnum í Brighton í vil.

Terry aftur til Chelsea
John Terry er á leið aftur til enska knattspyrnufélagsins Chelsea samkvæmt The Athletic. Miðvörðurinn fyrrverandi lék með Chelsea nær allan sinn feril ef frá er talið eitt ár hjá Aston Villa sem og lán hjá Nottingham Forest á hans yngri árum.

Þurfti á svona frammistöðu að halda
„Ég er ánægður með eigin frammistöðu en ég verð að halda áfram,“ sagði Romelu Lukaku eftir 3-1 sigur Chelsea á Aston Villa. Lukaku var að skora sitt fyrsta mark fyrir Chelsea í deildinni síðan hann skoraði tvennu gegn sama liði þann 11. september.

Tvær vítaspyrnur frá Jorginho sá til þess að Chelsea vann á Villa Park
Jorginho skoraði tvívegis og Romelu Lukaku skoraði sitt fyrsta mark í rúma þrjá mánuði er Chelsea vann 3-1 sigur á Aston Villa í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Skemmtilegur leikur á að horfa
„Þetta var skemmtilegur leikur á að horfa þrjú stig til viðbótar fyrir okkur,“ sagði Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, eftir ótrúlegan 6-3 sigur á Leicester City í ensku úrvalsdeildinni.

Svekkjandi tap í fyrsta leik Daníels Leó á tímabilinu
Miðvörðurinn Daníel Leó Grétarsson fékk loks tækifæri í byrjunarliði Blackpool er liðið sótti Huddersfield Town heim í ensku B-deildinni í dag. Gestirnir leiddu 2-1 í hálfleik en töpuðu 3-2 eftir að missa mann af velli í síðari hálfleik.

Öruggt hjá Tottenham | Southampton lagði West Ham
Tottenham Hotspur vann þægilegan 3-0 sigur á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þá vann Southampton 3-2 útisigur á West Ham United.

Skytturnar ekki í vandræðum gegn Kanarífuglunum
Arsenal var án þriggja leikmanna vegna kórónuveirunnar er liðið heimsótti Norwich City í dag. Þrátt fyrir að þurfa að færa menn til í öftustu línu þó kom það ekki að sök þar sem Arsenal vann einkar öruggan 5-0 sigur.

Meistararnir höfðu betur í markaveislu
Svo virtist sem Leicester City myndi ekki eiga möguleika gegn Englandsmeisturum Manchester City á Etihad-vellinum í dag. Staðan 4-0 í hálfleik en gestirnir skoruðu þrívegis í síðari hálfleik áður en heimamenn tryggðu sigurinn, lokatölur 6-3 í ótrúlegum leik.

Þrír með veiruna hjá Arsenal
Þrír leikmenn enska knattspyrnuliðsins Arsenal hafa greinst með Covid-19 og eru því ekki með liðinu í dag er það tekur á móti Norwich City.

Ótrúlegur fjöldi frestaðra leikja í efstu fjórum deildum Englands
Nú fyrir um hálftíma hófst leikur Huddersfield og Blackpool í ensku B-deildinni. Það væri kannski ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að Daníel Leó Grétarsson er í fyrsta skipti í byrjunarliði Blackpool og að þetta er einn af aðeins tveimur leikjum sem ekki var frestað vegna kórónuveirunnar.

Leik Leeds og Aston Villa frestað vegna veirunnar
Leik Leeds og Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni næstkomandi þriðjudag hefur verið frestað vegna fjölda kórónuveirusmita innan herbúða Leeds.

Launakröfur Vlahovic gætu fælt ensku félögin frá
Framherjinn Dusan Vlahovic verður án efa einn eftirsóttasti bitinn þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar, en Serbinn hefur verið sjóðandi heitur með Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Vieira með veiruna og verður ekki með gegn Tottenham
Patick Vieira, knattspyrnustjóri Crystal Palace, verður ekki að hliðarlínunni er liðið heimsækir Tottenham Hotspur í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í dag eftir að hafa greinst með kórónuveiruna.

Leikur Tottenham og Crystal Palace fer fram þrátt fyrir mikla óvissu
Mikil óvissa hefur ríkt síðan í gærkvöldi varðandi það hvort að leikur Tottenham og Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni muni fara fram í dag, en nú hefur það verið staðfest að liðin munu mætast á Tottenham Hotspur leikvangnum klukkan 15:00.

Segir að ríkasti klúbbur heims þurfi að vera raunsær í janúarglugganum
Eddi Howe, knattspyrnustjóri Newcastle sem varð í haust ríkasta knattspyrnufélag heims, segir að klúbburinn þurfi að vera raunsær þegar janúarglugginn opnar eftir örfáa daga.