Enski boltinn

„Mamma, við skulum fara til Bandaríkjanna“
Fimm ára sonur Emmu Hayes átti mikinn þátt í því að hún tók risaákvörðun varðandi þjálfaraferil sinn.

Mourinho útskýrði af hverju hann hafnaði enska landsliðinu
Portúgalska knattspyrnustjóranum José Mourinho bauðst á sínum tíma að taka við enska landsliðinu en ákvað að afþakka það.

Reiðilesturinn um samlokuna kom Wilder í vandræði
Chris Wilder, knattspyrnustjóri Sheffield United, hefur verið ákærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir ummæli sína um dómara eftir 3-2 tapleik á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í síðasta mánuði.

Segir að þeim elsta í sögunni verði sparkað
Útlit er fyrir að hinn 76 ára gamli Roy Hodgson, elsti knattspyrnustjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, verði rekinn frá Crystal Palace.

Rabóna-markið verður skráð á réttan mann
Jaden Philogene skoraði eitt glæsilegasta mark tímabilsins fyrir Hull í gærkvöldi þegar liðið lagði Rotherham að velli.

Meiðslin tóku sig upp aftur og Trent missir af úrslitaleiknum
Trent Alexander-Arnold, leikmaður Liverpool í ensku úrvalsdeildinni, verður frá keppni næstu misseri vegna meiðsla í hné sem tóku sig upp á ný og mun missa af úrslitaleik enska deildarbikarsins gegn Chelsea.

Haaland missti ömmu sína um helgina
Erling Braut Haaland fékk slæmar fréttir um síðustu helgi eftir að hann hafði skorað bæði mörk Manchester City á Everton í ensku úrvalsdeildinni.

Salah byrjaður að æfa á ný
Liverpool stuðningsmenn geta glaðst yfir góðum fréttum úr herbúðum liðsins því Mohamed Salah er byrjaður að æfa á ný.

Hvað ef Xabi Alonso segir nei við Liverpool?
Það er virðist vera fátt sem komi í veg fyrir að Spánverjinn Xabi Alonso verði næsti knattspyrnustjóri Liverpool. Það er helst hann sjálfur sem getur komið í veg fyrir það með því að hafna starfinu.

Englendingar vilja tryggja sér nýju spútnikstjörnuna hjá Man. Utd
Gareth Southgate, þjálfari enska fótboltalandsliðsins, er sagður vilja tryggja það að Manchester United strákurinn Kobbie Mainoo spili fyrir enska landsliðið í framtíðinni.

Eriksson fær hinstu óskina uppfyllta á Anfield
Sænski fótboltaþjálfarinn Sven-Göran Eriksson, sem kveðst í besta falli eiga ár eftir ólifað, fær draum sinn um að stýra Liverpool uppfylltan í næsta mánuði.

Segir að Rasmus Hojlund verði súperstjarna hjá Man. Utd
Stuðningsmenn Manchester United hafa þurft að sýna mikla þolinmæði þegar kemur að danska framherjanum Rasmus Hojlund en nú virðist vera farið að birta vel til á þeim bænum.

Aston Villa missir lykilmann út tímabilið
Aston Villa hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu og aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum. Enn versna vandræðin en miðjumaður liðsins, Boubacar Kamara, sleit krossband og verður frá út tímabilið.

Gallagher tvenna og mark Enzo í uppbótartíma tryggði Chelsea sigur
Conor Gallagher skoraði tvívegis gegn sínum gömlu félögum þegar Chelsea lagði Crystal Palace að velli, 3-1, Jefferson Lerma kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik en gestirnir svöruðu vel í þeim seinni.

Enginn tryggt liði sínu fleiri stig en McTominay
Scott McTominay hefur svo sannarlega reynst Manchester United vel í vetur og verið liðinu mikilvægur.

Segir að fagn Douglas Luiz gæti hafa kveikt í United
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, telur að fagnaðarlæti Douglas Luiz eftir að hann jafnaði fyrir Aston Villa í leik liðanna í gær gætu hafa kveikt í Rauðu djöflunum.

Sagði orð Guardiola hafa verið algjöran lágpunkt
Kalvin Philips var lánaður frá Manchester City til West Ham í janúarglugganum. Hann var keyptur til City sumarið 2022 en náði sér aldrei á strik hjá meisturnum.

„Vitum að við þurfum að ná þeim“
Erik Ten Hag var afar sáttur með sigur Manchester United á Aston Villa í kvöld en sigurinn heldur liði United inni í baráttunni um sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.

Skotinn magnaði hetja United á Villa Park
Scott McTominay var hetja Manchester United sem vann frábæran útisigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag. Skotinn knái skoraði sigurmark United eftir að hafa komið inn sem varamaður.

„Þurftum að fara varlega með Trent“
Jurgen Klopp segir að hann hafi þurft að fara varlega með Trent Alexander-Arnold sem fór af velli í hálfleik í sigri Liverpool gegn Burnley í dag. Hann segir mörg lið vera í baráttunni um titilinn.

Newcastle hafði betur í markaleik í Skírisskógi
Bruno Guimares skoraði tvö mörk fyrir Newcastle sem gerði góða ferð í Skírisskóg og vann sigur á Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Loks sigur hjá Sheffield United og Toney heldur áfram að skora
Sheffield United vann lífsnauðsynlegan sigur í botnbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Hákon Rafn Valdimarsson var ekki í leikmannahópi Brentford sem vann góðan útisigur.

Tottenham í fjórða sætið eftir dramatík
Tottenham vann dramatískan sigur á Brighton þegar liðin mættust í London í dag. Þá vann Sheffield United lífsnauðsynlegan sigur í botnbaráttunni.

Liverpool í toppsætið á nýjan leik
Liverpool er aftur komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 3-1 sigur á Burnley á heimavelli í dag.

Gleymdu að ýta á senda takkann og McGuire fer ekki fet
Bandaríski landsliðsmaðurinn Duncan McGuire ætlaði að klára tímabilið með Íslendingaliðinu Blackburn Rovers í ensku b-deildinni en ekkert verður að því.

Southgate íhugar að velja Mainoo en fær samkeppni frá Gana
Þrátt fyrir að hafa aðeins spilað tólf leiki fyrir aðallið Manchester United gæti Kobbie Mainoo verið valinn í enska landsliðið fyrir leiki þess í næsta mánuði.

Tíu mínútur í skammarkróknum ef leikmenn fá bláa spjaldið
The Telegraph hefur staðfest að IFAB, alþjóðlega knattspyrnuráðið, ætli á föstudag að kynna blá spjöld til leiks í knattspyrnu.

Meiddist í fimm mínútna endurkomunni gegn Arsenal
Það á ekki af Thiago, miðjumanni Liverpool, að ganga. Hann var ekki fyrr kominn aftur á völlinn þegar hann meiddist.

Leikmenn Liverpool spáðu fyrir um sigurvegara Super Bowl
Úrslitaleikurinn um Ofurskálina, Super Bowl, á sviðsljósið í þessari viku og margir eru að velta því fyrir sér hvort San Francisco 49ers eða Kansas City Chiefs vinni titilinn í ár.

Segir of mikið af myndbandsdómgæslu og að þetta taki of langan tíma
Enska úrvalsdeildin hefur séð heilan haug að mistökum í myndbandsdómgæslu á þessu tímabili og yfirmanni hjá ensku úrvalsdeildinni finnst hreinlega að það sé verið að skoða of marga hluti í dag.