
Fótbolti

Þorsteinn hefur gaman að Trump en er frekar Harris megin
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir því bandaríska nokkrum dögum fyrir forsetakosningarnar vestanhafs. Landsliðsþjálfari Íslands var spurður að því á blaðamannafundi hvort hann styddi Donald Trump eða Kamölu Harris.

Heimir hristir upp í hlutunum: „Ég vil gera þetta svona“
Til þess að freista þess að koma írska fótboltalandsliðinu á sigurbraut hefur Heimir Hallgrímsson hrist upp í hlutunum hjá því.

Skilaboðum lekið og Haaland ósáttur
Markahrókurinn Erling Haaland hefur lýst yfir óánægju sinni með það að einhver úr herbúðum norska landsliðsins í fótbolta hafi lekið skilaboðum í blaðamenn, og að þau hafi verið birt í bók.

Hópurinn sem fer til Bandaríkjanna
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta gerir eina breytingu á hópnum sem tryggði sig inn á EM í sumar, fyrir komandi leiki við Bandaríkin.

Þorsteinn kynnti Bandaríkjafarana
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Ólympíumeisturum Bandaríkjanna í vináttulandsleikjum ytra síðar í þessum mánuði. Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari kynnti val sitt á landsliðshópnum og svaraði spurningum fjölmiðla á blaðamannafundi í dag.

Klopp gæti ekki verið spenntari: „Lít á mig sem leiðbeinanda“
Forráðamenn Red Bull binda miklar vonir við ráðningu Jürgens Klopp í starf alþjóða yfirmanns fótboltamála hjá samsteypunni. Sjálfur kveðst hann ekki geta verið spenntari.

Þriðji Maldini-ættliðurinn sem er valinn í landsliðið
Daniel Maldini, leikmaður Monza, var í fyrsta sinn í valinn ítalska landsliðshópinn sem mætir Belgíu og Ísrael í Þjóðadeildinni. Hann er þriðji Maldini-ættliðurinn sem er valinn í ítalska landsliðið.

„Verð að líta á sjálfan mig sem KR-ing“
„Það er alltaf geggjað að koma til Íslands, finna kuldann í beinunum og hitta fjölskylduna og strákana aftur,“ segir Orri Steinn Óskarsson, landsliðsmaður í fótbolta.

Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool
Nú er orðið ljóst að Liverpool verður án brasilíska markvarðarins Alisson næstu sex vikurnar, eða fram yfir landsleikjahléið í nóvember, vegna meiðsla.

Stúkan: Stórkostleg afgreiðsla nema litli fuglinn hafi rétt fyrir sér
„Þetta er hundrað prósent afgreiðsla. Þetta er viljandi,“ sagði Baldur Sigurðsson um magnað mark Andra Rúnars Bjarnasonar fyrir Vestra í sigrinum gegn Fram í Bestu deildinni í fótbolta.

Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM
Jack Grealish, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, segir ljóst að hann hefði átt að fá sæti í EM-hópi enska landsliðsins í sumar.

Draumur að rætast hjá bræðrunum
Bræðurnir Brynjólfur og Willum Þór Willumssynir eru báðir í landsliðshópi Íslands fyrir komandi leiki í Þjóðadeildinni. Draumurinn er að fá að spila saman fyrir íslenska landsliðið.

Félögunum refsað en Jackson sleppur
Enska knattspyrnusambandið hefur ákært Chelsea og Nottingham Forest fyrir að hafa ekki stjórn á leikmönnum sínum í leik liðanna síðasta sunnudag. Einstakir aðilar málsins eru ekki ávíttir en félögin eiga von á sekt.

Klopp ráðinn til Red Bull en skýr klásúla í samningnum
Jürgen Klopp, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool, er búinn að finna sér nýtt starf og það er hjá orkudrykkjaframleiðandanum Red Bull, sem á knattspyrnufélög í nokkrum löndum.

Á skotskónum í framrúðubikarnum
Jason Daði Svanþórsson skoraði mark Grimsby þegar liðið tapaði 1-2 gegn Lincoln í framrúðubikarnum, bikarkeppni neðra deilda á Englandi.

Amanda fagnaði sigri en Sveindís þurfti að sætta sig við tap
Meistaradeild kvenna í fótbolta hófst með fjórum fjörugum leikjum í dag. Sveindís Jane Jónsdóttir mátti þola tap með liði sínu Wolfsburg en Amanda Andradóttir fagnaði sigri með Twente.

„Röð tilviljana að HK sé ekki búið að fá víti í sumar“
Í Stúkunni í gær var farið yfir leik HK og Fylkis um helgina sem endaði með 2-2 jafntefli og féll Fylkir í kjölfarið úr efstu deild. HK berst enn þá fyrir lífi sínu í deildinni og verður erfitt fyrir liðið að bjarga sér.

„Getur ekki stjórnað áliti annarra“
Knattspyrnumaðurinn Davíð Kristján Ólafsson segist kitla í puttana að fá aftur tækifæri með íslenska landsliðinu í knattspyrnu. Hann hefur ekki verið valinn undanfarin ár.

Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína
Enska knattspyrnugoðsögnin Gary Lineker, umsjónarmaður Match Of The Day, gífur lítið fyrir slúðursögur um framtíð hans í starfi hjá BBC.

Í tíu leikja bann fyrir „Jackie Chan“ ummælin
Ítalski varnarmaðurinn Marco Curto hefur verið úrskurðaður í tíu leikja bann frá fótbolta vegna kynþáttaníðs í garð Suður-Kóreumannsins Hwang Hee-Chan, sóknarmanns Úlfanna á Englandi.

Dagur og Messi tilnefndir til verðlauna
Dagur Dan Þórhallsson, leikmaður Orlando City, er einn af þeim sem tilnefndir eru sem varnarmaður ársins í bandarísku MLS-deildinni í fóbolta.

Myndasyrpa: Hulin andlit en líka bros á blönduðu grasi FH-inga
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta æfði á hybrid grasvelli FH í Kaplakrika í dag, í undirbúningi fyrir næstu tvo leiki í Þjóðadeild UEFA.

Stjarnan fær akureyskan markvörð frá Grindavík
Stjarnan hefur fengið hinn 25 ára gamla markvörð Aron Dag Birnuson til sín en hann hefur síðustu fjögur ár varið mark Grindavíkur í Lengjudeildinni.

Sakar stjórn Fylkis um óheiðarleika
Fótboltaþjálfarinn Gunnar Magnús Jónsson segir stjórnarmenn knattspyrnudeildar Fylkis hafa gengið á bak orða sinna með því að hætta við að framlengja samning við hann um að þjálfa áfram kvennalið félagsins.

Dunne telur að Heimir gæti misst starfið strax
Dagar Heimis Hallgrímssonar sem landsliðsþjálfari Írlands í fótbolta gætu verið taldir síðar í þessum mánuði, aðeins þremur mánuðum eftir að hann var ráðinn, að mati fyrrverandi landsliðsmanns Íra.

Safnaði kröftum á Íslandi eftir brottrekstur
Ítalinn Daniele De Rossi dvaldi hér á landi nýverið og virðist hafa notið sín vel ásamt eiginkonu sinni Söruh Felberbaum. Þau skutust í Íslandsferð eftir brottrekstur De Rossi.

Svona mark sést bara á nokkurra ára fresti: „Algjörlega einstakt“
Í Stúkunni, uppgjörsþætti Bestu deildar karla í fótbolta í gærkvöldi, var glæsimark Emils Atlasonar, framherja Stjörnunnar, fyrir aftan miðju gegn Víkingi Reykjavík tekið fyrir og var Atli Viðar Björnsson, einn af sérfræðingum þáttarins, klár á því að markið væri langbesta mark sumarsins sem og síðustu þriggja til fimm ára í efstu deild.

Konaté mætti með nýstárlega grímu til æfinga
Ibrahima Konaté, miðvörður Liverpool, er greinilega óhræddur við að fara óhefðbundnar leiðir í fatavali eins og hann sýndi þegar hann mætti til æfinga með franska landsliðinu í gær.

Handrit Ástu Eirar fékk fullkomin endalok
Eftir að hafa landað sjálfum Íslandsmeistaratitlinum með Breiðabliki um nýliðna helgi, þeim þriðja á ferlinum, greindi Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, frá því á sunnudaginn síðastliðinn að skórnir væru komnir á hilluna. Ákvörðun Ástu kom vafalaust mörgum á óvart en hún á þó sinn aðdraganda.

Ótrúlegir vítadómar í Þýskalandi: Tóku boltann upp tvisvar í sama leiknum
„Þetta er handboltadeildin,“ grínaðist Gummi Ben á Twitter þegar hann deildi myndbandi af hreint ótrúlegum leik í þýsku 2. deildinni í fótbolta. Tvö víti voru dæmd í leiknum vegna þess að menn tóku boltann upp með höndum.