Fótbolti

Hornspyrnur Arsenal gerðu gæfumuninn gegn United
Arsenal vann Manchester United, 2-0, í stórleik 14. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Bæði mörkin komu eftir hornspyrnur.

Rautt fyrir hártog og sami maður með tvö sjálfsmörk
Chelsea rúllaði yfir Southampton, 1-5, í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Bláliðar hafa unnið þrjá leiki í röð og er í 2. sæti deildarinnar, sjö stigum á eftir toppliði Liverpool.

Loksins vann City
Eftir sjö leiki án sigurs vann Manchester City loks þegar Nottingham Forets kom í heimsókn. Lokatölur 3-0, Englandsmeisturunum í vil.

Salah með tvö en Kelleher gaf jöfnunarmark undir lokin
Mohamed Salah skoraði tvö mörk og lagði upp eitt þegar Liverpool gerði 3-3 jafntefli við Newcastle Unitedá St. James' Park í kvöld.

Stjarnan kaupir Benedikt frá Vestra
Benedikt Warén er genginn í raðir Stjörnunnar frá Vestra. Hann átti stóran þátt í því að Vestramenn héldu sér í Bestu deildinni á síðasta tímabili.

Dregið í riðla fyrir HM félagsliða sem verður sýnt ókeypis
Dregið verður í hið umdeilda HM félagsliða í fótbolta á morgun, um klukkan 18 að íslenskum tíma, í Miami í Bandaríkjunum. Stórlið á borð við Real Madrid og Manchester City eru með í keppninni.

Van Dijk boðinn nýr samningur
Liverpool hefur boðið fyrirliðanum Virgil van Dijk nýjan samning en samningur hollenska miðvarðarins rennur út í sumar.

„Haldið þið að ég vilji ekki nota Kevin?“
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, gefur lítið fyrir vangaveltur þeirra Jamie Carragher og Gary Neville um að einhvers konar ósætti sé á milli hans og Kevin De Bruyne.

Damir spilar með liði frá Brúnei
Íslandsmeistarinn Damir Muminovic hefur nú skrifað undir samning við knattspyrnufélagið DPMM frá Brúnei og mun spila með liðinu í úrvalsdeild Singapúr.

Leikmaður Man. United neitaði að klæðast regnbogalituðum jakka
Hætt var við að láta leikmenn enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United klæðast jakka framleiddan af Adidas, til stuðnings baráttu hinsegin fólks, fyrir leik gegn Everton um nýliðna helgi eftir að einn leikmaður liðsins neitaði að taka þátt. Ekki eru allir á eitt sáttir með þá ákvörðun í leikmannahópi liðsins.

Fékk ekki að fara inn á út af pínlegu klúðri
Einhver hefur gert afar pínleg mistök sem bitnuðu á Lucy Bronze og enska landsliðinu í fótbolta í gærkvöld, í vináttulandsleik við Sviss á Bramall Lane í Sheffield.

Breyta fótboltareglunum vegna Arteta
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal. hefur kannski haft meiri áhrif á fótboltareglurnar heldur en margan grunar. IFAB, Alþjóða fótboltaráðið, hefur nefnilega ákveðið að breyta reglum sínum vegna atviks í Evrópuleik Arsenal á dögunum.

Amorim varar stuðningsmenn United við: Óveðrið mun koma
Ruben Amorim hefur byrjað vel hjá Manchester United en horfir raunhæft á framhaldið. Hann veit að það mun harðna á dalnum og hann vill að stuðningsmenn félagsins geri sér grein fyrir því.

Hunsaði varnaðarorðin og skrifaði aftur um ást Jesú á fyrirliðabandið sitt
Enski landsliðsmaðurinn Marc Guéhi var aftur fyrirliði Crystal Palace þegar liðið mætti Ipswich Town í ensku úrvalsdeildinni í gær. Hann hlustaði hins vegar ekki á viðvörun aganefndar ensku úrvalsdeildarinnar.

Luke Shaw algjörlega niðurbrotinn
Martröðin heldur áfram hjá enska landsliðsmanninum Luke Shaw. Shaw hefur verið meira og minna meiddur í langan tíma og er nú meiddur aftur.

Reiddist fréttamanni: Veist við hvern þú ert að tala
Rúben Dias, varnarmaður Manchester City, reiddist fréttamanni eftir ítrekaðar spurningar um það hvernig leikmenn liðsins reyndu að takast á við versta gengi þess í háa herrans tíð.

Tveir nýliðar í hópi þjóða sem Ísland gæti mætt á EM í Sviss
Nú er ljóst hvaða fimmtán lið verða með Íslandi í drættinum fyrir EM kvenna í fótbolta, en dregið verður í riðla 16. desember. Sjö síðustu þjóðirnar tryggðu sér EM-farseðil í kvöld.

Draumabyrjun hjá Nistelrooy
Ruud van Nistelrooy fékk í kvöld draumabyrjun sem stjóri Leicester, þegar liðið vann West Ham 3-1. Að sama skapi hangir starf Julen Lopetegui, stjóra Hamranna, á bláþræði.

Neuer sá rautt og Bayern enn á ný úr leik
Ógöngur Bayern München í þýska bikarnum í fótbolta halda áfram því liðið féll í kvöld úr leik í 16-liða úrslitum, eftir 1-0 tap gegn meisturum Leverkusen.

Stórsigur eftir erfiða tíma hjá Barcelona
Eftir þrjá leiki í röð án sigurs styrkti Barcelona stöðu sína á toppi spænsku 1. deildarinnar í fótbolta í kvöld með frábærum sigri gegn Mallorca á útivelli, 5-1.

Dramatískt mark Ísabellu tryggði Íslandi áfram
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta, skipað leikmönnum nítján ára og yngri, er komið áfram á næsta stig í undankeppni Evrópumótsins eftir jafntefli gegn Norður-Írlandi í dag.

Grínaðist með 115 ákærur City: „Ég endurtek, þetta var grín“
Arne Slot, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, sló á létta strengi á blaðamannafundi í dag er hann var spurður út í samningsmál Mohamed Salah en samningur hans við félagið rennur út eftir yfirstandandi tímabil. Slot dró þær 115 ákærur sem Manchester City á yfir höfði sér inn í umræðuna og vildi svo ítreka að hann hafi verið að grínast með því.

Amorim vill ekki að stuðningsmenn United syngi nafnið hans
Rúben Amorim er þakklátur fyrir móttökurnar sem hann hefur fengið frá stuðningsmönnum Manchester United en er samt ekki hrifinn af nýjum söng þeirra um hann.

Ashley Young gæti mætt syni sínum í enska bikarnum
Everton dróst gegn C-deildarliði Peterborough United í 3. umferð ensku bikarkeppninnar. Feðgar gætu þar mæst.

Van Nistelrooy sár yfir því að hafa verið látinn fara frá United
Ruud van Nistelrooy sárnaði að hafa ekki fengið að halda áfram að starfa fyrir Manchester United þegar nýi knattspyrnustjórinn, Rúben Amorim, tók við.

Fengu fernu á sig frá Atla í miðju Evrópuævintýri
Á meðan að flest íslensk fótboltalið eru farin að huga að næstu leiktíð, eftir stutt frí, þá eru leiktíðirnar farnar að blandast saman hjá Víkingum sem mættu HK í Bose-bikarnum í kvöld.

Neitaði að sýna regnbogaliti og félagið segist virða það
Fótboltamaðurinn Sam Morsy, fyrirliði Ipswich, neitaði að bera fyrirliðaband í regnbogalitum og sýna þannig stuðning við hinsegin fólk, í leik við Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.

Svaraði baulinu með marki og reif sig úr að ofan
Þegar leikmenn skora gegn sínu gamla félagi kjósa þeir stundum að fagna ekki en Nicolo Zaniolo fór allt aðra leið í kvöld, í 2-0 sigri Atalanta gegn Roma í ítölsku A-deildinni í fótbolta.

Arsenal dróst gegn Man. Utd en Liverpool og Tottenham heppin
Ríkjandi bikarmeistarar Manchester United mæta sigursælasta liði keppninnar, Arsenal, á Emirates-vellinum í Lundúnum í þriðju umferð enska bikarsins. Dregið var í kvöld og eru forvitnilegir leikir á dagskrá.

Bruune fór illa með íslensku stelpurnar á Spáni
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tapaði gegn sterku liði Danmerkur í seinni vináttulandsleik sínum á Pinatar Arena á Spáni, 2-0 í kvöld.