Fótbolti

„Ég veit núna hvað ég er að fara út í og hvað ég þarf að laga“
Amanda Andradóttir var í síðustu viku seld frá Íslandsmeisturum Vals til hollenska meistaraliðsins Twente. Hún segir erfitt að kveðja uppeldisfélagið, í annað sinn, en telur tímabært að taka stökkið og er spennt fyrir skemmtilegum sóknarbolta.

Ten Hag vill bæta meira í hópinn
Erik ten Hag, stjóri Manchester United, er þess fullviss að lið hans geti unnið hvaða lið sem er þegar liðið er fullskipað. Hann segist vonast eftir því að bæta fleiri leikmönnum í hópinn á næstu viku.

Ryan Sessegnon aftur heim í Fulham
Örvfætti miðjumaðurinn Ryan Sessegnon er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt Fulham á frjálsri sölu en Sessegnon var á sínum tími seldur til Tottenham á 25 milljónir punda.

„Það er erfitt að brjóta okkur niður“
Ásta Eir Árnadóttir, leikmaður Breiðabliks, skoraði eina mark leiksins þegar liðið sigraði Fylki á heimavelli í 14. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Þrátt fyrir sigur fannst Ástu frammistaðan ekki upp á marga fiska.

„Sjaldan verið jafn súr og svekktur að tapa leik á móti toppliði“
Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis, var súr og svekktur með tap á móti Breiðabliki í kvöld í 14. umferð Bestu deildar kvenna. Hann tók þó marga jákvæða punkta úr leiknum í kvöld.

Toppliðið Fjölnis bjargaði stigi gegn botnliðinu
Topplið Fjölnis í Lengjudeild karla missteig stig í kvöld gegn botnliði Dalvíkur/Reynis en gestirnir voru hársbreidd frá því að fara með öll stigin úr Grafarvogi.

Allt jafnt í Víkinni í fjörugum leik
Víkingur og Þróttur skildu jöfn í Bestu deild kvenna í kvöld í markalausum en fjörugum leik.

Fyrirhuguð sala á Everton hvorki gengur né rekur
Leit Everton að nýjum eigendum hefur siglt í strand eftir að Friedkin Group, félag bandaríska auðjöfursins Dan Friedkin, sleit viðræðum um kaup á félaginu.

Njósnaskandall Kanada vindur upp á sig
Óheiðarleiki þjálfarateymis kanadíska kvennalandsliðsin í knattspyrnu á Ólympíuleikunum hefur vakið mikla athygli en Beverly Priestman, þjálfari liðsins, var send heim ásamt þremur öðrum úr þjálfarateyminu.

Uppgjörið: Breiðablik - Fylkir 1-0 | Blikar aftur á toppinn
Breiðablik tók á móti Fylki á Kópavogsvelli í kvöld í 14. umferð Bestu deildar kvenna. Leikurinn endaði með 1-0 sigri Blika en Ásta Eir Árnadóttir skoraði eina mark leiksins í upphafi hans.

Trinity Rodman sýndi trixið sitt á stóra sviðinu
Trinity Rodman var á skotskónum þegar Bandaríkin sigruðu Sambíu, 3-0, í fótboltakeppni Ólympíuleikanna í gær. Markið kom eftir frábæra gabbhreyfingu sem er nefnd eftir henni.

Brasilísk goðsögn rænd í París
Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Zico lenti í óskemmtilegri uppákomu í París þar sem hann var mættur til að fylgjast með Ólympíuleikunum.

HK spurðist fyrir um Frederik Schram og Valur bauð í Loga Hrafn
HK spurðist fyrir um Frederik Schram, markvörð Vals, á dögunum. Þetta herma heimildir fréttastofu. Þjálfarar liðanna tveggja kveðast þó báðir koma af fjöllum.

Endurgerði mynd af sér og Gumma Torfa 34 árum síðar
Þrátt fyrir að rúm þrjátíu ár séu liðin frá því Guðmundur Torfason yfirgaf St Mirren er hann enn í miklum metum hjá stuðningsmönnum félagsins. Það mátti glöggt hjá þegar hann mætti á leik skoska liðsins gegn Val í Sambandsdeild Evrópu í gærkvöldi.

Thiago meiddur og setur félagaskipti Toney í hættu
Igor Thiago meiddist á hné í æfingaleik með Brentford í gærkvöldi sem gæti sett fyrirhuguð félagaskipti Ivans Toney í hættu.

Theódór Elmar óttast krossbandsslit: „Vona það besta en hræddur um það versta“
Theódór Elmar Bjarnason, leikmaður KR í Bestu deild karla, varð fyrir hnémeiðslum á æfingu hjá liðinu í vikunni. Ekki er ljóst hversu alvarleg meiðslin eru.

Sjáðu mörkin úr leikjum íslensku liðanna í Sambandsdeildinni
Fjórir leikir fóru fram hér á landi í undankeppni Sambandsdeildarinnar í gær. Stjarnan var eina liðið sem vann sinn leik, Breiðablik og Víkingur töpuðu en Valur gerði markalaust jafntefli. Öll mörkin úr leikjunum má sjá hér fyrir neðan.

Priestman vikið úr starfi og aðstoðarmaðurinn fékk fangelsisdóm
Beverly Priestman hefur verið vikið úr starfi sem þjálfari kvennalandsliðs Kanada í fótbolta á meðan Ólympíuleikunum stendur eftir að frekari upplýsingar um drónanjósnir hennar litu dagsins ljós.

Bordeaux er gjaldþrota og verður áhugamannalið
Franska liðið FC Girondins de Bordeaux, sem er sjötta sigursælasta lið í sögu franskrar knattspyrnu, hefur verið lýst gjaldþrota og mun leika frönsku C-deildinni í haust, sem er hálf-atvinnumannadeild.

„Þurfa að nálgast hann eins og Arsenal nálgaðist Haaland“
„Það var margt gott og þá sérstaklega eftir að við hækkuðum tempóið í okkar leik,“ byrjaði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, að segja eftir sigur síns liðs á Paide í fyrri leik liðanna í forkeppni Sambandsdeildarinnar.

„Frammistaðan veitir von fyrir seinni leikinn“
Höskuldur Gunnlaugsson átti góðan leik inni á miðsvæðinu þegar Breiðablik laut í lægra haldi fyrir Drita í fyrri leik liðanna í annarri umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla á Kópavogsvelli í kvöld. Fyrirliðinn er vongóður um að Blikar nái að komast áfram þrátt fyrir 2-1 tap.

Heimakonur byrja leikana á sigri
Frakkland vann góðan 3-2 sigur á Kólumbíu í A-riðli Ólympíuleikanna í kvöld en heimakonur byrjuðu leikinn af miklum krafti og gerðu nánast út um hann í fyrri hálfleik en staðan var 3-0 þegar flautað var til hálfleiks.

„Ég held að stuðningsmenn okkar séu stressaðir“
Það var að vonum svekktur Arnar Gunnlaugsson sem mætti í viðtal eftir 0-1 tap Víkings gegn KF Egnatia í kvöld. Arnar segir sína menn hafa lagt sig alla fram en skortur á sjálfstrausti og tæknileg mistök urðu þeim að falli.

Njarðvíkingar hægðu á Þrótturum
Fjórir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í kvöld og það má segja að það hafi ekki vantað hitann, þó svo að það sé bölvuð kuldatíð. Tvö rauð spjöld fóru á loft og tvö víti voru dæmd.

Uppgjör og viðtöl: Breiðablik-Drita 1-2 | Ísak Snær lækkaði fjallið töluvert með marki sínu
Blikar eru í nokkuð snúinni stöðu eftir fyrri leik sinn við Drita frá Kósóvó í annarri umferð í forkeppni Sambandsdeildar karla í fótbolta sem fram fór á Kópavogsvelli í kvöld.

„Það var ekki planið hjá okkur“
Gylfi Þór Sigurðsson segir tilfinningarnar vera blendnar eftir markalaust jafntefli Vals við St. Mirren í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.

Uppgjörið: Valur - St. Mirren 0-0 | Tíu Valsmenn héldu út
Valur og St. Mirren gerðu markalaust jafntefli í fyrri viðureign liðanna í forkeppni Sambandsdeild Evrópu.

Kristófer Ingi ekki með Blikum sökum handvammar
Kristófer Ingi Kristinsson, leikmaður Breiðabliks, situr uppi í stúku og fylgist með leik Breiðabliks og Drita þessa stundina en hann átti að vera á varamannabekknum í kvöld.

Þýskaland fór létt með Ástralíu
Þjóðverjar byrjuðu Ólympíuleikana á að leggja Ástralíu 3-0 í knattspyrnu kvenna en Þjóðverjar höfðu töluverða yfirburði í leiknum.

Orri Steinn lagði upp tvö gegn pöbbaliðinu
Stórlið FCK átti ekki í miklum vandræðum á útivelli gegn FC Bruno's Magpies í fyrri leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildarinnar en Orri Steinn og félagar höfðu töluverða yfirburði í leiknum.