Fótbolti

Rekinn frá BBC vegna ásakana um óviðeigandi hegðun
Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur rekið sparkspekinginn Jermaine Jenas vegna ásakana um framkomu á vinnustað og óviðeigandi hegðun.

Arsenal að ganga frá kaupunum á Merino
Enskir fjölmiðlar greina frá því að Arsenal hafi náð samkomulagi við Real Sociedad um kaup á spænska landsliðsmanninum Mikel Merino.

Uppgjörið og viðtöl: HK - KR 3-2 | Lygilegur endurkomusigur HK-inga
HK vann ótrúlegan 3-2 endurkomusigur eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik. Atli Þór Jónasson skoraði sigurmarkið með skalla. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

„Sá þetta ekki fyrir mér þegar ég átti afmæli síðast“
Óskar Örn Hauksson hélt upp á fertugsafmælið sitt með því að koma inn á í 5-0 sigri Víkings gegn Santa Coloma í fyrri leik liðanna um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.

Panathinaikos tapaði þrátt fyrir að vera fleiri í sjötíu mínútur en Chelsea vann
Þrátt fyrir að vera manni fleiri í sjötíu mínútur tókst Panathinaikos ekki að vinna Lens í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í deildarkeppni Sambandseildar Evrópu. Lokatölur 2-1, Lens í vil.

„Ég elska bara að skora“
Nikolaj Hansen skoraði fyrsta og síðasta mark Víkings er liðið vann afar sannfærandi 5-0 sigur gegn Santa Coloma í fyrri leik liðanna í forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.

„Snýst um að hleypa þessu ekki í neina vitleysu“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, segir það vera skrýtna tilfinningu að hafa unnið 5-0 stórsigur gegn Santa Coloma í forkeppni Sambandsdeildarinnar, en hugsa samt eftir leik að sigurinn hafi getað verið mun stærri.

ÍR-sigur í Grafarvoginum og fyrsti sigur Njarðvíkur í mánuð
ÍR gerði góða ferð í Grafarvoginn og vann 1-2 sigur á Fjölni í Lengjudeild karla í kvöld. Þá vann Njarðvík langþráðan sigur þegar liðið lagði Gróttu að velli, 1-0.

Uppgjörið: Víkingur - Santa Coloma 5-0 | Stórsigur Víkinga þrátt fyrir tvö vítaklikk
Þrátt fyrir að klúðra tveimur vítaspyrnum vann Víkingur stórsigur á Santa Coloma frá Andorra, 5-0, í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.

Valgeir lagði upp en Orri fagnaði sigri
Lið íslensku landsliðsmannanna Valgeirs Lunddal Friðrikssonar og Orra Steins Óskarssonar áttu ólíku gengi að fagna í umspili um sæti í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.

Liverpool selur Van den Berg til Brentford
Brentford hefur keypt hollenska varnarmanninn Sepp van den Berg frá Liverpool. Talið er að kaupverðið sé um 25 milljónir punda.

Trippier vill komast frá Newcastle
Enski landsliðsmaðurinn Kieran Trippier vill yfirgefa Newcastle United í leit að meiri spiltíma.

KR og HK alveg jöfn í innbyrðis leikjum fyrir leik kvöldsins
HK tekur á móti KR í kvöld í Bestu deild karla í fótbolta í einum umtalaðasta leik í deildinni í langan tíma.

„Að einhverju leyti verið talað illa um félagið“
„Það er gott að það sé komið að þessu,“ segir Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, um leik kvöldsins við KR. Gengið hefur á ýmsu í aðdragandanum og ekki endanlega staðfest fyrr en í morgun að leikurinn færi fram í kvöld.

Fyrsti sautján ára strákurinn með þrennu síðan Haaland náði því
Táningurinn Sverre Nypan var í aðalhlutverki í norsku úrvalsdeildinni í gær þegar Rosenborg vann öruggan sigur á Lilleström.

21 tap í 22 Evrópuleikjum og markatalan 7-62
Víkingur spilar í kvöld fyrri leik sinn á móti liði UE Santa Coloma frá Andorra en í boði í þessu einvígi félaganna er sæti í Sambandsdeildinni á þessari leiktíð.

Uppselt í Víkina í kvöld
Íslands- og bikarmeistarar Víkings fá góðan stuðning í kvöld í fyrri leik sínum á móti UE Santa Coloma í umspil um sæti í Sambandsdeildinni.

Heimir vill finna óþokka
Heimir Hallgrímsson hitti stuðningsmenn írska landsliðsins í fótbolta í gærkvöld og svaraði ýmsum spurningum þeirra sem vildu kynnast nýja landsliðsþjálfaranum. Þar kom meðal annars fram að Heimir teldi leikmenn írska liðsins hugsanlega of vingjarnlega náunga.

„Erum alls ekki að fara vanmeta þá“
„Mér líður mjög vel fyrir leiknum og við erum allir með góða tilfinningu fyrir þessu og við erum að fara vinna þennan leik,“ segir Nikolaj Hansen fyrirliði Víkinga fyrir fyrri leikinn gegn UE Santa Coloma í umspili um laust sæti í Sambandsdeildinni.

„Ekki verið neitt sérstakt mál“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, segir leikmenn liðsins hafa leitt hjá sér reikistefnu í kringum leik kvöldsins við HK í Bestu deild karla. Leikurinn fer fram eftir endanlega niðurstöðu áfrýjunardómstóls KSÍ í morgun.

„Veit ekki hvað ég myndi gera við þig, líklega giftast þér“
Víkingar spila einn mikilvægasta leik í sögu félagsins í kvöld. Liðið er á leiðinni í einvígi sem gæti skilað félaginu mörg hundruð milljónum í kassann.

Ronaldo fór fram úr Messi á innan við tveimur tímum
Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo skellti í eitt heimsmet í gær þegar hann setti nýju Youtube síðuna sína í loftið. Aldrei hefur stofnandi Youtube síðu verið fljótari upp í milljón.

Áfrýjunardómstóll KSÍ hafnar kröfu KR | Leikið í Kórnum í kvöld
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur staðfest úrskurð aga- og úrskurðarnefndar sambandsins þess efnis að KR fái ekki dæmdan 3-0 sigur gegn HK í Bestu deild karla. Liðin mætast í kvöld.

Hákon óttaðist um líf vinar síns: „Auðvitað hugsar maður alltaf það versta“
Óhugnanlegt atvik átti sér stað í leik Lille í frönsku úrvalsdeildinni um helgina. Landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson leikur með liðinu og segir það hafa tekið á. Lukkulega fór betur en áhorfðist í fyrstu.

Færu sömu leið og Blikar en á gjörólíka endastöð
Víkingar freista þess í Víkinni í kvöld, og í Andorra eftir viku, að tryggja sér meira en hálfan milljarð króna og Evrópuleiki fram að jólum, mögulega við lið á borð við Chelsea og Fiorentina.

Númerin tekin af og fá ekki að æfa með aðalliðinu
Raheem Sterling og Trevor Chalobah virðast ekki eiga framtíð hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea. Þeim hefur verið gert að æfa ekki með aðalliðinu og nú hafa þeir misst treyjunúmerin sem þeir skörtuðu á síðasta tímabili.

Eriksson kveður í nýrri mynd: „Ekki vorkenna mér, brosið“
Í nýrri heimildamynd segist Sven-Göran Eriksson, fyrrverandi þjálfari enska karlalandsliðsins í fótbolta, vonast til að vera minnst sem góðrar og jákvæðrar manneskju.

Orri á óskalista Real Sociedad
Spænska úrvalsdeildarliðið Real Sociedad hefur áhuga á íslenska landsliðsframherjanum Orra Steini Óskarssyni.

Glenn rekinn frá Keflavík
Botnlið Bestu deildar kvenna, Keflavík, hefur sagt þjálfaranum Jonathan Glenn upp störfum.

Nketiah nálgast Nottingham
Nottingham Forest á í viðræðum við Arsenal um kaup á enska framherjanum Eddie Nketiah.