Fótbolti

Snýr heim úr atvinnumennsku til að verja mark uppeldisfélagsins
Markvörðurinn Jökull Andrésson er á leið hingað til lands eftir að hafa spilað erlendis frá árinu 2017. Hann mun ganga í raðir Aftureldingar og verja mark liðsins í Lengjudeild karla í knattspyrnu.

Alonso með augun á Matip
Xabi Alonso, þjálfari Bayer Leverkusen, er í leit að miðverði og sagður vilja reynslu í öftustu línu.

„Hefði viljað sjá menn aðeins þroskaðri“
„Sóknarlega þorðum við að halda í boltann, þorðum að spila á milli línanna og fara í svæðin sem þeir skildu eftir sig,“ segir Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, um góða byrjun liðsins í fyrri leiknum gegn Tikvesh frá Makedóníu. Blikar komust í 2-0 en misstu leikinn niður í 3-2 tap.

Rekinn fyrir að biðja Messi um að biðjast afsökunar
Rasistasöngur argentínska landsliðsmannsins Enzo Fernandes og liðsfélaga hans eftir sigur Argentínu í Suðurameríkukeppninni var fordæmdur víða um heim en aðstoðaráðherra íþróttamála í Argentínu kemur einna verst út úr málinu.

Höfnuðu tilboði Fulham í McTominay
Manchester United hafnaði tilboði Fulham í skoska miðjumanninn Scott McTominay.

Ein af hverjum fimm knattspyrnukonum glíma við átröskun
Ný rannsókn sýnir að það sé mjög algengt að knattspyrnukonur glími við einhvers konar átröskun. Leikmannasamtökin vilja átak í eftirliti með andlegum málefnum leikmanna.

Heimir segir að Kelleher þurfi að yfirgefa Liverpool
Caoimhín Kelleher er varamarkvörður Liverpool en aðalmarkvörður írska landsliðsins. Landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson hefur smá áhyggjur af því að hann spili ekki nóg með félagsliði sínu.

Ísland niður um eitt sæti á FIFA listanum þrátt fyrir sigur á Englandi
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er í 71. sæti á nýjum styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins sem var gefinn út í dag.

Löw vill taka við enska landsliðinu
Maðurinn sem gerði Þýskaland að heimsmeisturum fyrir áratug hefur áhuga á að taka við enska fótboltalandsliðinu.

Fyrrverandi leikmaður United laminn á bar í Moskvu
Ráðist var á fyrrverandi leikmann Manchester United á bar í Rússlandi eftir úrslitaleik EM.

Sló met Freddys Adu og er yngstur í sögunni
Cavan Sullivan varð í nótt yngstur í sögunni til að spila fyrir lið í efstu deild í hópíþrótt í Bandaríkjunum.

„Verður að dæmast af því hvernig við högum okkur í Evrópu í ár“
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, segir Blika klára í bátana fyrir leik kvöldsins í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Blikar komust 2-0 yfir ytra gegn Tikvesh frá Makedóníu en misstu leikinn niður í 3-2 tap.

England: Hver er kominn, að koma, farinn og að fara?
Nú þegar Evrópumóti karla í knattspyrnu er lokið má búast við félög ensku úrvalsdeildarinnar fari á fullt að versla, og selja, leikmenn fyrir komandi tímabil.

Víkingar á leið til Albaníu
Víkingar munu mæta Egnatia frá Albaníu í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Bæði lið féllu úr leik í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Enn ein stjarnan slítur krossband í hné
Þýska landsliðskonan Lena Oberdorf, miðjumaður Bayern München, missir af Ólympíuleikunum sem fram fara í París sem og meirihluta komandi tímabils eftir að slíta krossband í hné gegn Austurríki.

Stefán Ingi á leið til Noregs
Framherjinn Stefán Ingi Sigurðarson er við það að ganga í raðir Sandefjord sem spilar í efstu deild Noregs. Hann hefur undanfarið ár leikið með Patro Eisden í Belgíu.

KR fær ungan framherja frá Húsavík
KR hefur samið við hinn sautján ára gamla Jakob Gunnar Sigurðsson. Hann kemur frá Völsungi þegar tímabilinu er lokið og skrifar undir þriggja ára samning í Vesturbænum.

Fyrrum leikmaður Everton í teymi Slot
Arne Slot, þjálfari Liverpool, bætti við þjálfarateymi sitt hjá félaginu í dag. Viðbótin þekkir til í Bítlaborginni.

Fórnaði sér fyrir fyrsta boltann frá Mbappé
Stuðningsmenn Real Madrid fjölmenntu í gær til að taka á móti nýjustu stórstjörnu félagsins.

FIFA hefur rannsókn á rasískum söngvum Argentínumanna
Í kjölfar kvörtunar franska knattspyrnusambandsins, FFF, hefur Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hafið rannsókn á níðsöngvum leikmanna argentínska karlalandsliðsins í garð þess franska.

Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða
Enska knattspyrnusambandið vill fá Pep Guardiola sem næsta landsliðsþjálfara og er tilbúið að bíða eftir því að samningur hans við Manchester City renni út.

Víkingar með augun á leik í Albaníu í kvöld
Víkingar komust ekki áfram í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi en fá annað tækifæri í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Þeir fá þó ekki að vita um væntanlegan mótherjann sinn fyrr en í kvöld.

Frá Liverpool beint í teymi Flick
Spánverjinn Thiago Alcantara, sem hætti nýverið knattspyrnuiðkun sem leikmaður, hefur strax snúið sér að þjálfun. Hann hefur verið ráðinn í þjálfarateymi uppeldisfélagsins.

Cecilía Rán spilar með Internazionale í vetur
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir verður lánuð til Ítalíu á tímabilinu 2024-25.

Luka Modric framlengir samning sinn við Real Madrid
Króatíski miðjumaðurinn Luka Modric spilar eitt tímabil í viðbót með Real Madrid en hann hefur framlengt samning sinn við spænska félagið.

Liðsfélagi Hákonar á leið til United
Manchester United hefur náð samkomulagi við Lille um kaup á varnarmanninum unga, Leny Yoro.

Fer frá Barcelona til Chelsea
Stórstjarnan Lucy Bronze hefur samið við Englandsmeistara Chelsea. Hún kemur til liðsins frá Barcelona á Spáni.

Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid
Spánar- og Evrópumeistarar Real Madrid hafa áhuga á að fá enska landsliðsmanninn Trent Alexander-Arnold í sínar raðir.

Wiegman gaf lítið fyrir það að hún gæti tekið við enska karlalandsliðinu
Sarina Wiegman, þjálfari enska kvennalandsliðsins, gaf lítið fyrir orðróm þess efnis að hún gæti tekið við karlalandsliðinu af Gareth Southgate.

Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“
„Jæja næstu 50 mínútur fara í að eyða líflátshótunum og ógeðslegum kommentum á Facebook/Instagram/Twitter síðum Víkings,“ segir Hörður Ágústsson sem sér um samfélagsmiðla knattspyrnuliða Víkinga, eftir tap liðsins gegn Shamrock Rovers í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.