Fótbolti
299 300 301 302 303 304 305 306 307 … 334 ›
Bestu mörkin: Upphitun fyrir 14. umferð Bestu deildar kvenna Það verður leikinn heil umferð í dag í Bestu deild kvenna en 14. umferð mun fara fram að öllu leyti í dag. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir úr Breiðablik og Snædís María Jörundsdóttir úr settust í sófann hjá Helenu Ólafsdóttur spáðu í spilin fyrir umferðina, ræddu undir 19 ára landsliðið og árangur þeirra í lokamóti Evrópumótsins sem fór fram fyrir stuttu. Fótbolti 29.7.2023 08:01
Nákvæmari uppbótartími á Englandi Knattspyrnusambandið á Englandi og samtök dómara þar í landi, PGMOL, hafa tilkynnt það að á komandi leiktíð verður tekið harðar á leiktöfum og reynt að hafa það þannig að boltinn verði sem mest í leik. Svipuð nálgun og hefur verið á undanförnum heimsmeistaramótum í knattspyrnu karla og kvenna þannig að þegar ekki er verið að spila fótbolta er þeim tíma bætt við uppbótartímann. Fótbolti 28.7.2023 23:02
Salzburg rak þjálfarann skömmu áður en hann var ráðinn til Al-Ahli Dagurinn hjá Matthias Jaissle, fyrrum þjálfara RB Salzurg, var heldur betur áhugaverður. Fyrr í dag var honum sagt upp sem þjálfara austurríska liðsins en í lok hans var hann ráðinn þjálfari Sádi arabíska liðsins Al-Ahli. Samningur hans við Al-Ahli er til þriggja ára. Fótbolti 28.7.2023 21:45
Viktor Jónsson með fernu í fyrsta tapi Aftureldingar í Lengjudeildinni Skagamenn eru fyrsta liðið sem hefur náð að leggja Aftureldingu af velli í Lengjudeild karla í knattspyrnu. ÍA lagði heimamenn úr Mosfellsbænum 2-5 og hleypa spennu í baráttuna um efsta sætið í deildinni sem gefur beint sæti í úrvalsdeildinni. Afturelding hafði ekki tapað leik og náð í 35 stig af 39 mögulegum fyrir þennan leik. Fótbolti 28.7.2023 21:15
Keflavík fær úkraínskan framherja fyrir fallbaráttuna Keflvíkingar hafa styrkt sig fyrir komandi fallbaráttu í Bestu deild karla í knattspyrnu. Liðið hefur samið við úkraínska framherjann Robert Gegedosh sem kemur til liðsins frá St. Lucia sem leikur í efstu deild á Möltu. Keflvíkingar sitja á botni deildarinnar með 10 stig þegar 16 umferðum er lokið. Fótbolti 28.7.2023 19:31
Alfreð Finnbogason skoraði og lagði upp fyrir Lyngby í jafntefli Þrír íslenskir leikmenn byrjuðu fyrir Lyngby þegar liðið gerði jafntefli við Viborg 2-2 á útivelli í annarri umferð efstu deildar Danmerkur í dag. Alfreð Finnbogason skoraði annað mark liðsins en ásamt honum byrjuðu þeir Sævar Atli Magnússon og Kolbeinn Finnsson einnig leikinn. Þetta var fyrsta stigið sem Lyngby nær í þetta tímabilið. Fótbolti 28.7.2023 19:00
Juventus í bann frá þátttöku í Sambandsdeild Evrópu og Chelsea sektaðir Juventus mun ekki leika í Sambandsdeild Evrópu eins og þeir höfðu unnið sér rétt til að gera á næsta tímabili. Liðið endaði í sjöunda sæti Serie A sem gaf keppnisréttinn í keppninni en vegna brota á fjármálareglum knattspyrnunnar (Financial fair play) þá munu þeir ekki fá að keppa í Sambandsdeildinni. Þá fá Chelsea sekt fyrir að gefa ekki upp réttar upplýsingar um sín fjármál Fótbolti 28.7.2023 18:17
Bæjarar fljúga til London til að reyna að kaupa Kane Tveir af hæstráðendum Bayern München ætla að ferðast til London til að freista þess að kaupa Harry Kane af Tottenham. Fótbolti 28.7.2023 16:45
Mané verður samherji Ronaldos hjá Al Nassr Sadio Mané er á leiðinni til sádi-arabíska félagsins Al Nassr sem Cristiano Ronaldo leikur með. Fótbolti 28.7.2023 15:16
Úrslitaleikirnir á Rey Cup sýndir á Stöð 2 Sport Stöð 2 Sport sýnir beint frá úrslitaleikjunum á Rey Cup á sunnudaginn. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta er gert. Íslenski boltinn 28.7.2023 14:30
Stálrósirnar unnu þrátt fyrir að vera færri í klukkutíma Kína vann Haití, 1-0, í síðasta leik dagsins á heimsmeistaramótinu í fótbolta kvenna. Fótbolti 28.7.2023 13:03
Fram ekki farið í formlegar viðræður við aðra þjálfara Agnar Þór Hilmarsson, formaður knattspyrnudeildar Fram, segir það afar þungbæra ákvörðun fyrir félagið að binda enda á samstarf sitt við Jón Þóri Sveinsson sem þjálfari karlalið félagsins í Bestu deildinni. Jón hafi tekið fréttunum af fagmennsku en engar formlegar viðræður hafa átt sér stað við mögulega arftaka Jóns í starfi til frambúðar. Íslenski boltinn 28.7.2023 12:31
Sjáðu mörkin úr fræknum sigri KA á Dundalk KA er í góðri stöðu fyrir seinni leikinn gegn Dundalk frá Írlandi í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir 3-1 sigur í fyrri leiknum í gær. Fótbolti 28.7.2023 11:56
Kynntu nýjan samning Birnis með Wolf of Wall Street myndbandi Fótboltamaðurinn Birnir Snær Ingason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Víking. Íslenski boltinn 28.7.2023 11:16
Glæsimark James kom ensku Evrópumeisturunum í kjörstöðu Evrópumeistarar Englands eru með fullt hús á toppi D-riðils heimsmeistaramótsins í fótbolta kvenna eftir sigur á Danmörku í dag, 1-0. Fótbolti 28.7.2023 10:34
Belgía níunda landið sem Guðlaugur Victor spilar í Íslenski landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson er genginn í raðir Eupen í Belgíu frá bandaríska liðinu DC United. Fótbolti 28.7.2023 10:26
Lingard reyndi að plata lögguna og gaf upp nafn á manni sem er ekki til Jesse Lingard, fyrrverandi leikmaður Manchester United, þurfti að mæta fyrir dóm eftir að hann reyndi að gabba lögregluna þegar hún tók hann fyrir of hraðan akstur. Enski boltinn 28.7.2023 09:45
Mbappé neitar að ræða við Sádana Kylian Mbappé hefur ekki minnsta áhuga á að spila fótbolta í Sádi-Arabíu og hefur neitað að ræða við forráðamenn Al Hilal. Fótbolti 28.7.2023 09:01
PSG ætlar að stela Højlund af United Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain hafa blandað sér í baráttuna um danska framherjann Rasmus Højlund sem leikur með Atalanta á Ítalíu. Fótbolti 28.7.2023 08:31
Ein af stjörnum HM hneig niður á æfingu Ein af stjörnum heimsmeistaramótsins í fótbolta kvenna féll í yfirlið á æfingu. Fótbolti 28.7.2023 07:31
Argentínsk endurkoma Argentína á enn möguleika á að komast áfram í sextán liða úrslit á HM í fótbolta kvenna eftir að hafa komið til baka og náð jafntefli gegn Suður-Afríku. Lokatölur 2-2. Fótbolti 28.7.2023 06:57
Barcelona í hvítum búningum í fyrsta sinn síðan 1979 Útivallabúningur Barcelona verður hvítur á komandi tímabili, en þetta er í fyrsta sinn í 44 ár sem félagið leikur í hvítum búningum, lit sem flestir tengja við erkifjendurna í Real Madrid. Fótbolti 28.7.2023 06:30
David Silva leggur skóna á hilluna Spænski knattspyrnumaðurinn David Silva tilkynnti í dag að hann væri hættur í fótbolta. Þessi tilkynning hefur legið í loftinu síðustu daga en Silva sleit krossband á æfingu með liði sínu Real Sociedad þann 21. júlí síðastliðinn. Fótbolti 27.7.2023 23:02
Margrét Árnadóttir til liðs við Þór/KA á ný Þór/KA hefur borist vænn liðsstyrkur í Bestu deild kvenna en Margrét Árnadóttir hefur gengið til liðs við liðið á ný eftir að hafa spilað með Parma á Ítalíu síðustu mánuði. Fótbolti 27.7.2023 22:31
Hallgrímur: „Við erum gríðarlega ánægðir með góð úrslit en það er bara hálfleikur“ Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var að vonum ánægður með 3-1 sigur sinna manna gegn Dundalk FC frá Írlandi. Þetta var fyrri viðureign liðanna í annarri umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar en seinni leikur liðanna fer fram 3. ágúst á Írlandi. Fótbolti 27.7.2023 21:41
Ægismenn knúðu fram jafntefli gegn Þrótti Einn leikur fór fram í Lengjudeild karla í kvöld. Ægir tók á móti Þrótti í fallbaráttuslag en liðin skildu að lokum jöfn 2-2. Fótbolti 27.7.2023 21:21
Þjálfari Dundalk: „Allir sem horfðu á leikinn sáu að við vorum mun betri aðilinn“ „Ég er bara pirraður, mér fannst við stjórna þessum leik frá upphafi til enda. Þetta er versta mögulega niðurstaða þegar litið er á frammistöðuna í þessum leik“, sagði Stephen O‘Donnell, þjálfari Dundalk FC, eftir 3-1 tap liðsins gegn KA. Fótbolti 27.7.2023 20:58
Umfjöllum: KA - Dundalk 3-1 | KA í góðri stöðu KA vann Dundalk frá Írlandi 3-1 í fyrri leik liðanna í annarri umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Bjarni Aðalsteinsson opnaði markareikninginn fyrir KA, Daniel Kelly jafnaði svo fyrir gestina skömmu síðar áður en Sveinn Margeir Hauksson skoraði tvö mörk til viðbótar fyrir KA. Fótbolti 27.7.2023 20:15
Mikael Anderson og félagar steinlágu gegn Club Brugge Club Brugge unnu sannfærandi 3-0 sigur gegn AGF í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 27.7.2023 20:14
Segir Henderson hafa svikið hinsegin samfélagið með félagaskiptum til Sádí Arabíu Thomas Hitzlsperger er ekki par hrifinn af félagaskiptum Jordan Henderson til Sádí Arabíu. Hann segir ljóst að Henderson sé ekki lengur stuðningsmaður hinseginfólks en dauðarefsing liggur við samkynhneigð þar í landi. Enski boltinn 27.7.2023 18:15